Morgunblaðið - 18.09.1990, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990
Vestfjarðakjördæmi:
Sjálfstæðismenn með
prófkjör 27. október
KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálfstæðisflokksins á Vestíjörðum hefur
ákveðið að efnt verði til prófkjörs 27. október til að velja fram-
bjóðendur á lista flokksins fyrir alþingiskosningarnar næsta vor.
Ljóst er að annar þingmanna flokksins í kjördæminu, Þorvaldur
Garðar Kristjánsson, mun taka þátt í prófkjörinu, auk fyrsta vara-
þingmannsins, Einars K. Guðfinnssonar, en ekki liggur fyrir hvort
hinn þingmaðurinn, Matthías Bjarnason, verður í framboði.
Aðalfundur kjördæmisráðs
Sjálfstæðisfiokksins í Vestfjarða-
kjördæmi var haldinn síðastliðinn
laugardag. Þar var samþykkt ein-
róma að halda prófkjör 27. októ-
ber nk. til að velja frambjóðendur
100 milljón-
ir seldust í
húsbréfum
GUNNAR Helgi Hálfdanarson,
forstjóri Landsbréfa hf., segir
að lífeyrissjóðirnir hafí brugðist
mjög vel við nýjum kjörum sem
boðin eru á húsbréfum og hafi
þau selst fyrir 100 milljónir
króna í gær, fyrsta daginn sem
tilboðið var í gildi.
„Miðað við þessar undirtektir
erum við að vona að það sé kominn
skriður á sölu húsbréfanna. Þetta
eru góð viðbrögð, þó of snemmt sé
að dæma,“ sagði Gunnar Helgi enn-
fremur.
á lista flokksins í kjördæminu fyr-
ir alþingiskosningarnar næsta vor.
Kosningarétt í prófkjörinu eiga
flokksbundnir sjálfstæðismenn á
Vestfjörðum og auk þess þeir kjós-
endur í kjördæminu, sem undirrita
stuðningsyfirlýsingu við flokkinn.
Á fundinum lýstu þeir Þorvaldur
Garðar Kristjánsson, alþingismað-
ur, og Einar K. Guðfinnsson, fyrsti
varaþingmaður flokksins í kjör-
dæminu, því yfir, að þeir hygðust
gefa kost á sér i prófkjörinu. Matt-
hías Bjarnason, alþingismaður,
rifjaði upp að hann hefði áður lýst
því yfir að hann myndi ekki fara
aftur í framboð til Alþingis. Hins
vegar hefði sér borist fjöldi áskor-
ana um að sitja áfram og hann
hefði ekki enn gert upp hug sinn
í þessu efni.
Á aðalfundinum var kjörin ný
stjþrn kjördæmisráðsins. Formað-
ur var kjörinn Einar Oddur Kristj-
ánsson, Flateyri, varaformaður
Geirþrúður Charlesdóttir, ísafirði,
og aðrir í stjórn eru Björg Guð-
mundsdóttir,^ Bolungarvík, Óli M.
Lúðvíksson, ísafirði og Gísli Ólafs-
son, Patreksfirði.
Sala á Hafþóri RE:
Hæstbjóðandi hafði
ekki nægar tryggingar
INGÓLFUR Vestmann Ingólfs-
son, sem áttí hæsta tilboðið í
rækjutogarann Hafþór RE, hefur
ekki lagt fram fullnægjandi
tryggingar fyrir útborgun í skip-
ið og veð fyrir eftirstöðvunum,
eins og sjávarútvegsráðuneytið
hefur gert kröfu um. Frestur
Ingólfs til að leggja fram trygg-
ingarnar rann út í gær og hefur
ráðuneytið boðið Ljósavík hf. í
Þorlákshöfn að ganga til samn-
inga um kaup á skipinu, en fyrir-
tækið átti næsthæsta tilboðið í
skipið.
Tryggingaverðmæti Hafþórs er
rúmar 200 milljónir króna en kvóta-
verðmæti um 80 milljónir. Ingólfur
Vestmann Ingólfsson átti hæsta til-
boðið í skipið, eða 240 milljónir
króna, en Ljósavík í Þorlákshöfn
bauð 233 milljónir. í síðustu viku
veitti sjávarútvegsráðuneytið Ing-
ólfi frest fram á mánudag til að
leggja fram bankatryggingu fyrir
útborgun sinni í skipið og fullnægj-
andi veð fyrir eftirstöðvunum. .
Að sögn Gylfa Gauts Pétursson-
ar, lögfræðings í sjávarútvegsráðu-
neytinu, gat Ingólfur ekki lagt fram
þær tryggingar sem ráðuneytið
gerði kröfu um, heldur óskaði eftir
lengri fresti. Gylfi segir að ekki
hafi verið hægt að fallast á þá
beiðni. Þess í stað hafi verið haft
samband við Ljósavík hf. og viðræð-
ur við fyrirtækið um kaup á skipinu
muni væntanlega hefjast í dag.
Morgunblaðið/Júlíus
Frá slysstað á Suðurlandsvegi. Lögreglu- og sjúkraliðsmenn við flak Mazda-bifreiðarinnar. Bifreið-
in er opin þar sem búnaður björgunarbifreiðar slökkviliðsins var notaður til að klippa yfírbygg-
ingu hennar af svo unnt væri að flytja hina slösuðu á brott.
Kona lést í árekstri sem rak-
inn er til ölvaðs ökumanns
46 ÁRA kona, Helga Sigurðardóttir, beið bana í hörðum árekstri
á Suðurlandsvegi, við Sandskeið, laust fyrir klukkan hálfellefu á
sunnudagskvöld. Fjórir aðrir slösuðust alvarlega. Slysið varð með
þeim hætti að bíl, með húsi af Moskvitsj en á jeppaundirvagni, var
ekið yfir á öfugan vegarhelming þar sem hann rakst á bifreið sem
í voru konan sem lést, sonur hennar, tengdadóttir og barnabam.
Okumaður bílsins sem slysinu olli er grunaður um ölvun við akst-
ur. Hann hafði áður verið sviptur ökuréttindum vegna ölvunar-
aksturs.
Slysið bar að með þeim hætti
að tveimur fólksbílum var ekið
áleiðis til Reykjavíkur en jeppabif-
reiðinni áleiðis austur. Skömmu
áður en bílamir mættust var jepp-
anum ekið yfír á öfugan vegar-
helming. Ökumaður fremri fólks-
bílsins, sem er af gerðinni Mazda,
reyndi að sveigja undan en tókst
ekki að forðast árekstur við jepp-
ann sem skall á hægri hlið fólks-
bílsins, þar sem konan sem lést sat
í framsæti. Bíll, sem ekið var á
eftir fólksbflnum rakst á hina tvo
og skemmdist en enginn sem í
honum var slasaðist.
Þegar lögregla og sjúkralið
komu ásamt lækni og tækjabíl
slökkviliðs á slysstað var konan
látin. Tengdadóttir hennar sem sat
í aftursæti hafði lærbrotnað og
hlotið höfuðáverka. Ungt barn
hennar og ökumannsins, sonar
Helgu heitinnar, sat í bílstól í aft-
ursæti og hlaut einnig höfuðá-
verka, svo og ökumaðurinn. Jeppa-
bifreiðin valt við áreksturinn. Far-
þegi í henni höfuðkúpubrotnaði og
ökumaðurinn kenndi sér meins á
fæti. Hann var útskrifaður af
slysadeild að lokinni skoðun en
aðrir hinna slösuðu voru lagðir inn
á Borgarspítalann. Enginn þeirra
var talinn í lífshættu í gærkvöldi,
samkvæmt upplýsingum lögreglu.
Ökumaður jeppabílsins - er eins
og fyrr sagði grunaður um ölvun
við aksturinn en hann var að sögn
lögreglu sjáanlega undir áhrifum
áfengis. Hann var ökuréttindalaus;
hafði verið sviptur þeim vegna ölv-
unaraksturs. Hann gisti fanga-
geymslur í fýrrinótt en að loknum
yfirheyrslum í gær var hann látinn
laus. Hann hafði þá játað sök sína.
15 mínútum áður en lögreglu
var tilkynnt um slysið hafði henni
verið tiikynnt að jeppinn væri í
umferð og að ökumaðurinn væri
Helga Sigurðardóttir.
talinn ölvaður. Ekki var vitað að
ferð bílsins væri heitið út úr bæn-
um. Öll ökutæki lögreglunnar voru
beðin að svipast um eftir bílnum
en sú eftirgrennslan hafði ekki
borið árangur þegar tilkynnt var
um slysið.
Helga Sigurðardóttir var fædd
30. janúar 1944. Hún var til heim-
ilis að Hraunbæ 68 í Reykjavík.
Helga lætur eftir sig eiginmann
og 4 uppkomin börn.
Fjonr aðilar fá ekki heim-
ildir til að flytja út ísfisk
FJÓRIR aðilar, Gámavinir í
Vestmannaeyjum, Skipaaf-
greiðsla Vestmannaeyja, Skipa-
þjónusta Suðurlands og Kleif-
ar-Sæhamar í Vestmannaeyj-
um, fengu ekki úthlutað heim-
ildum til ísfiskútflutnings í
þessari viku. Jafnframt voru
heimildir fjögurra annarra að-
ila skertar um 30%, en þeir eru
Jón Ásbjörnsson í Iteykjavík,
Seifur hf. í Reykjavík, Vísir hf.
I Grindavík og Hrellir hf. á
Höfn í Hornafirði.
Að sögn Sigurbjöms Svavarsson-
ar, stjómarformanns Aflamiðlunar,
er ákvörðun stjórnarinnar um að
synja ofangreindum aðilum um út-
flutningsheimildir byggð á því, að
þeir hafi farið gróflega fram úr
heimildum að undanförnu. Ekki sé
hægt að veita þeim útflutningsleyfi
meðan ekki sé hægt að tryggja að
þeir haldi sig innan heimilda.
Sigurbjörn segir, að stjórn Afla-
Góðar líkur á að heimsmeistaramót-
ið í brids 1995 verði haldið á íslandi
GÓÐAR líkur eru taldar á því
að heimsmeistaramótið í brids
árið 1995 verði haldið hér á
landi. Þetta er niðurstaða við-
ræðna fulltrúa Bridssambands
íslands og forsvarsmanna Al-
þjóða bridssambandsins í Genf
í Sviss í síðustu viku. Islandi
hefur þegar verið boðið að
halda heimsmeistaramót fyrir
spilara 25 ára og yngri.
Helgi Jóhannsson forseti Brids-
sambandsins og Bjöm Eysteins-
son ræddu við Jose Damiani for-
seta Evrópu bridssambandsins og
stjórnarmann í Alþjóðasamband-
inu og lýstu áhuga íslendinga á
að halda heimsmeistaramót á
næstu árum. Helgi sagði við
Morgunblaðið, að þessi málaleitan
hefði fengið betri undirtektir en
hann hefði þorað að vona. Komið
hefði í Ijós, að búið væri að út-
hluta mótinu árin 1991 og 1993,
og Kínveijar hefðu sótt um að
halda mótið árið 1995, en í ljósi
atburða þar á síðasta ári hafi sú
umsókn fengið dræmar undirtekt-
ir.
; Helgi sagði að Damiani hefði
komið til íslands í vetur, og litist
vel á land og þjóð. Þá hefði það
greinilega haft mikið að segja, að
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra og Davíð Oddsson
borgarstjóri hefðu tekið með
formlegum hætti þátt í umsókn
Bridssambandsins.
Miklar sviptingar hafa verið
innan Alþjóða bridssambandsins
undanfarið þar sem fulltrúar Evr-
ópu og annara heimshluta hafa
tekist á. Nú hafa náðst nokkrar
sættir, og sagði Helgi að umsókn
íslands hefði komið fram á réttum
tíma hvað það varðaði, því íslend-
ingar hefðu staðið fyrir utan þess-
ar deilur og væri því góður kostur
fyrir báða aðila. Þá hefðu fulltrú-
ar Norðurlandanna í Genf stutt
málaleitan íslands dyggilega.
miðlunar muni fá ti) meðferðar á
fundi sínum á fimmtudag upplýs-
ingar frá tollayfirvöldum um leiðir
til að fylgjast með ísfiskútflutningi.
Á þeim fundi mun stjórnin taka
afstöðu til þess, hvert framhaldið
verði varðandi þá aðila, sem flutt
hafa út ísfisk umfram heimildir.
Að sögn Gylfa Gauts Pétursson-
ar, lögfræðings í sjávarútvegsráðu-
neytinu, er nú til athugunar í ráðu-
neytinu hvort tilefni sé til að kæra
útflytjendur, sem ekki hafa haldið
sig innan heimilda. Hafi af því til-
efni verið farið yfir allar tölur um
útflutning á ísfiski frá því í febrúar
og sé niðurstöðu að vænta á næst-
unni.
Nokkrir útflytjendur hafa óskað
eftir því við Jón Steinar Gunnlaugs-
son hrl. að hann svaraði nokkrum
lagalegum spumingum um útflutn-
ing ísvarins fisks. Niðurstaða Jóns
er m.a. sú, að stjórnvöldum sé
óheimilt að binda leyfi til útflutn-
ings á fiski skilyrðum og að utanrík-
isráðherra sé óheimilt að framselja
til Aflamiðlunar vald til að gefa
útflutningsleyfi.
Sjá greinargerð Jóns Steinars
Gunnlaugssonar hrl. á bls. 12-13.