Morgunblaðið - 18.09.1990, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990
Insignia
Herrapeysur kr. 2.958,-
Stutt greining á
veikindum Stöðvar 2
PETIT
í veibitúrinn
ert annað en látlaust bruðl með pen-
inga grandalausra áskrifenda. Lítum
aðeins á forgangsröðina:
1. Forysta Stöðvar 2 úthlutaði
sjálfri sér nánast ómældu fé í formi
launa og risnu.
2. Nýir glæsivagnar voru keyptir
undir menn í helztu ábyrgðarstöðum
þegar á fyrstu starfsdögum fyrir-
tækisins.
3. Reyndir starfsmenn voru keypt-
ir frá öðrum fjölmiðlum með stór-
felldum yfirboðum umfram alla
launataxta og eru þau enn stunduð
þrátt fyrir hina nýju aðhaldsstefnu,
sem boðuð hefur verið hjá fyrirtæk-
inu.
4. Stöð 2 hóf verðstríð við Sjón-
varpið til að komast yfir eftirsóknar-
vert erlent myndefni. Það dugði ekki
að bjóða sama verð og Sjónvarpið
gerði. Starfsmaður Stöðvar 2 hefur
lýst því í blaðaviðtali að hagur ís-
lendinga hafi stórskaðazt á erlend-
um sjónvarpsmörkuðum að updan-
förnu. Þessi sami starfsmaður er
nýkominn frá því að stunda yfirboð
á'sömu mörkuðum til að skáka bæði
Stöð 2 og Sjónvarpinu. Það var gert
í nafni Sýnar hf. Nú situr Stöð 2 í
súpunni með Sýn hf., starfsmanninn
og yfirboð hans.
5. Stjórnendum Stöðvar 2 var svo
mikið í mun að sýna sig og sanna
í gerð innlendra þátta að ráðizt var
1 hvert verkefnið af öðru, meira af
kappi en forsjá. Nýir þættir voru
auglýstir með látum en hurfu jafn-
skyndilega og hljóðlaust af skjánum
aftur, áskrifendum til mikillar furðu.
Af þessu hlutust stórfelld fjárútlát
sem engu skiluðu til baka.
6. Ein alvarlegustu mistökin voru
gerð á auglýsingamarkaðnum. Stöð
2 kom sér upp tækniaðstöðu til að
undirbúa auglýsingagerð annarra
framleiðenda. Það átti að gleypa
þann bita í heilu lagi, sem ekki
tókst. Auglýsingagjaldskrá var mjög
svo sveigjanleg og hægt að semja
um nánast hvað sem var. Auglýs-
ingamínútur voru notaðar í vöru-
skiptum. Svo langt gekk þessi vit-
leysa, að dagskrárgerðarmenn fengu
borgað með auglýsingatíma. Menn
hlupu hver um annan þveran út um
hvippinn og hvappinn að koma þess-
um mínútum sínum í verð. Má nærri
geta hvaða verðlagspólitík hefur gilt
í þeim viðskiptum.
Ég fullyrði að ekkert af hinum
grónustu og stöndugustu fyrirtækj-
um á íslandi myndi nokkurn tímann
leyfa sér þá óhófseyðslu og sællífis-
stefnu, sem varð aðalsmerki og leið-
arljós forystusveitar Stöðvar 2 frá
byijun og áður en fyrirtækið hafði
slitið barnsskónum eða hefði nokkra
burði til að berast á með þeim hætti
sem gert var.
Meðhöndluð með silkihönzkum
Fá dæmi eru um að fyrirtæki á
íslandi hafi notið jafnmikillar og al-
mennrar velvildar og Stöð 2, þegar
hún hóf göngu sína.
Blöð og bankar báru hana á örm-
um sér. Almenningur fagnaði auknu
vali. Upplýsingum um ótrúlega vel-
gengni hins nýstofnaða fyrirtækis
var reglulega komið á framfæri. Það
er athyglisverður kafli í íslenzkri
blaðamennsku, þegar horft er um
öxl.
Um síðustu áramót las ég blaða-
grein eftir fyrrverandi markaðs-
stjóra Stöðvar 2, þar sem fullyrt
var, að auglýsingatekjur stöðvarinn-
ar hefðu numið 350 milljónum króna
á síðasta ári. Áskrifendur voru sagð-
ir 47.000 í fyrra og meðalverð
áskriftar var 1.803 kr. á mánuði.
Heildarárstekjur Stöðvar 2 hefðu því
átt að nema rúmlega 1,3 milljörðum
1989 samkvæmt heimildum frá fyr-
irtækinu sjálfu. Sjónvarpið með sína
70.000 notendur hafði 1 milljarð í
tekjur árið 1989, þar af 280 milljón-
ir af auglýsingum.
Svo kveinka þessir menn sér und-
an litlu ráðstöfunarfé og aðstöðu-
mun í samkeppni við „ríkisrisann"!
Óvandaður málflutningur
Við áramótahvellinn í Verzlunar-
BÚSÁHÖLD - GJAFAVÖRUR - LEIKFÖNG OFL.
PANTIÐ JÓLAVÖRURNAR NÚNA
Verð miðað við gengi 23.8.1990 PÖNTUNARSÍMI52866.
eftir Míirkús Örn
Antonsson
Undanfarið hafa mér borizt sér-
stakar kveðjur frá nokkrum for-
ráðamönnum Stöðvar 2, gömlum og
nýjum, í blaðagreinum um sam-
keppni ljósvakamiðlanna.
Skítkast Stöðvarmanna að
Ríkisútvarpinu ætti ef til vill að virða
þeim til vorkunnar. Það er að sínu
leyti vottur um yfirklór manna í
miklum vanda, sem vilja fyrir alla
muni beina athyglinni frá eigin óför-
um með ófrægingarskrifum og upp-
lognum sökum um helzta keppinaut-
inn. Þeir, sem lengst hafa gengið í
þeirri iðju eru reyndar fulltrúar for-
tíðarinnar á Stöð 2, menn sem
óvefengjanlega bera höfuðábyrgð á
alkunnu klúðri í rekstri fyrirtækisins
síðustu árin. Dapurlegt er til þess
að vita, að gamlir forvígismenn í
nýjum hlutverkum skuli ekki geta
brotizt út úr skugga hins liðna og
leitt fyrirtækið til nýrrar sóknar.
Hin gamalgróna ímynd er þeim
greinilega fjötur um fót.
Sjúkdómar Stöðvar 2
Ég leiði hjá mér að skattyrðast
við þessa kunningja hvern og einn
persónulega. Því eru hins vegar.tak-
mörk sett hvað mönnum verður lengi
liðið að spinna áfram þann blekking-
arvef, sem frá upphafi hefur umvaf-
ið Stöð 2 og næsta umhverfi hennar.
Hinir nýju eigendur Stöðvar 2
komu hreint fram og lögðu spilin á
borðið í augsýn fjölmiðla og almenn-
ings á sérstökum blaðamannafundi
hinn 10. júlí sl. Þá var upplýst að
skuldir Stöðvar 2 hefðu um áramót
numið tæpum 1.500 milljónum og
tapið tyerið 155 milljónir á árinu.
Mun lakari staða en þeim hefði ver-
ið talin trú um, þegar björgunar-
starfið var hafið. Athygli vakti hvaða
áherzlu þeir lögðu á uppgjör við
þijá fyrri aðaleigendur fyrirtækisins
vegna skuldar þeirra upp á litlar 24
milljónir. Ekki var dregin nein Ijöður
yfir að þarna væri um að ræða fé
til einkaþarfa þeirra þremenninga,
sem ekki hefði verið með neinu
móti hægt að réttlæta í bókhaldi
fyrirtækisins. Þessar upplýsingar
sögðu meira og vörpuðu skýrara ljósi
opinberlega á sjúkdóma Stöðvar 2
en flest annað, sem fram hefur kom-
ið í umijöllun íjölmiðla.
Forgangsröðin
Stöð 2 lifði óheilbrigðu lífí. Vægt
til orða tekið. Þar var stunduð fjár-
málastefna sem í bezta falli gæti
kallazt fyrirhyggjuleysi en var ekk-
bankanum kom annað á daginn eins
og alþjóð veit. Þá fékkst lokastað-
festing þess, að forráðamenn Stöðv-
ar 2 höfðu hagrætt sannleikanum
um sín mál frá byijun, frammi fyrir
bankaráði, blaðamönnum og al-
menningi.
Þeir framhaldsþættir, sem efnt
er til þessar vikurnar með stöðugum
árásum á Ríkisútvarpið, eru að sjálf-
sögðu sama marki brenndir.
Þar rekur hver rökleysan og rang-
færslan aðra. Hér verða nefnd nokk-
ur dæmi:
1. Það er uppspuni frá rótum, að
Ríkisútvarpið virði ekki forsendur
Ijárlaga og sé undir einhveiju sér-
stöku eftirliti ljárveitingavaldsins.
Rekstur Ríkisútvarpsins er fullkom-
lega í samræmi við heimildir í íjár-
lögum 1990. Varðandi niðurstöður
í ijárlagadæmi Ríkisútvarpsins
vísast til blaðsíðu 191 í prentuðum
fjárlögum ríkisins, ef menn vilja sjá
það svart á hvítu.
2. Það er alrangt, að Ríkisútvarp-
ið keppi við undirboð Stöðvar 2 á
auglýsingamarkaðnum með enn
frekari undirboðum. Auglýsingatekj-
ur Sjónvarpsins hafa farið vaxandi
á árinu og voru orðnar rúmlega 160
milljónir í ágúst. Gjaldskrár hafa
hækkað reglulega. Eins og sjónvarp-
snotendur sjá bezt sjálfir flæða ekki
undirboðsauglýsingar út yfír dag-
skrá Sjónvarpsins.
3. Það er tilhæfulaust með öllu,
að Ríkisútvarpið safni auknum
skuldum á launareikningi sínum hjá
ríkissjóði. Þær 318 milljónir króna,
sem orðið hafa að umtalsefni í þessu
sambandi er skuld, sem stendur
óbreytt frá árinu 1988 og hafði
safnazt upp af þeirri ástæðu, að
Ríkisútvarpið var fyrirvaralaust
svipt lögbundnum tekjum og fékk
ekki að hækka afnotagjöld sín eins
og fjárlög sögðu til um. Margoft
hefur verið rætt um að gera þetta
dæmi upp á þremur árum með því
að Tryggingastofnun ríkisins greiði
afnotagjöld fyrir bótaþega sína í stað
þess að Ríkisútvarpið sé látið fella
þau niður og þola af því tekjumissi
upp á 100 milljónir króna árlega.
Það þykir kannski einhveijum for.-
vitnilegt, að Ríkisútvarpið hugðist
taka 60 milljón króna lán hjá við-
• •
Herrasnyrtivörur 4 stk. kr. 814,-
Barnapeysur kr. 886,-
Dömubolir kr. 2.218,-
2 kg. Cadbury’s Roses Jólatréslampi
konfekt kr. 1.898,- kr. 1.478,-
„Því verður tæplega
trúað, að málsmetandi
forystumenn í verzlun
og viðskiptum, þar á
meðal hinir nýju eig-
endur Stöðvar 2, ætli
að festa sig í vonlausri
varnarstöðu fyrir þessa
taumlausu ævintýra-
mennsku, sem dæmd
var til að enda með
skipbroti.“
Markús Örn Antonsson