Morgunblaðið - 18.09.1990, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990
Gengið um skógarlundinn á Álfaskeiði.
Aðalfundur Skógræktarfélags íslands 1990;
Almenn þátttaka aðals-
merki Átaksins 1990
AÐALFUNDUR Skógræktarfélags íslands var haldinn á Flúðum í
Hrunamannahreppi dagana 31. ág.-2. sept. Fulltrúar og gestir voru
hátt á annað hundrað en í tilefni 60 ára afmælis félagsins voru gest-
ir venju fremur margir. Meðal erlendra gesta voru skógræktarstjóri
Noregs, Oluv Aaide, og sérstakir fulltrúar skógræktarfélaganna í
Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi. Forseti Islands, frú Vigdís Finnboga-
dóttir var einnig gestur fundarins en hún er verndari „Átaks um
landgræðsluskóga 1990“. Forsætisráðherra og landbúnaðarráðherra
sátu og kvöldfagnað á Flúðum ásamt eiginkonum sínum.
Auk hefðbundinna aðalfundar-
starfa var „Átak um landgræðslu-
skóga 1990“ helsta umræðuefni
fundarins, en til þess var efnt í til-
efni afmælisins í samvinnu við
Skógrækt ríkisins, Landgræðsluna
og landbúnaðarráðuneytið. Að sögn
Huldu Valtýsdóttur, formanns fé-
lagsins, þykir árangur af þessu sam-
starfi hafa tekist svo vel að ákveðið
var að halda því áfram á næsta ári
þótt með breyttum áherslum verði.
Um 8.000 manns tóku þátt í gróð-
ursetningu landgræðsluskóga á 76
stöðum á landinu en gróðursettar
verða á vegum átaksins 2,3 milljón-
ir plantna á árunum 1990-91.
Sjálfboðaliðastörf og almenn
þátttaka landsmanna hefur að sjálf-
sögðu sett aðalsmerki á þetta þjóð-
arátak og þess verður lengi minnst.
Þeir sem styrktu það með gjöfum
skiptu hundruðum en þeir sem létu
hvað mest af hendi rakna voru Eim-
skipafélag íslands, Landsvirkjun,
Olís, Ljósmyndavörur-Fujiumboðið,
Hitaveita Suðumesja og Framleiðni-
sjóður landbúnaðarins. Sala á
„grænu greininni" nemur um 12
milljónum en lokauppgjör er ekki
enn fyrir hendi.
Á fundinum tóku margir þátt í
umræðum um átakið og framhald á
næsta ári, en nánari ákvörðun um
skipulag framkvæmda hefur ekki
verið tekin enn. Þó þótti augljóst
að fá þyrfti tvo ráðunauta til að
fara í reitina og leiðbeina um að-
hlynningu plantnanna og framhald
aðgerða.
A fundinum var einnig gerð stutt-
lega grein fyrir „Vinaskóginum"
svonefnda í Kárastaðalandi í Þing-
vallasveit. Þar var efnt til gróður-
setningar fyrir fé sem erlend sendi-
ráð á Islandi hafa gefið til átaksins
en þær gjafír nema nú um 2 milljón-
um króna. Til viðbótar kemur fé sem
safnast hefur í söfnunarbauka sem
komið hefur verið fyrir á fjölfömum
ferðamannastöðum. í þennan reit
hafa einnig og munu gróðursetja
þjóðhöfðingjar sem hingað koma á
vegum forseta okkar og þess óska
og sömuleiðis tré sem fengin eru
fyrir gjafir til forsetans og gefin í
þeim tilgangi eða tengjast embætti
forsetans, Stöpull úr stuðlabergi
hefur verið settur í reitinn með áletr-
un gefendafÞess má geta að forset-
inn, frú Vigdís, minntist þess í
ávarpi sem hún flutti á fundinum
að Mitterrand Frakklandsforseti
hefði Iátið í ljós áhuga á að koma
upp slíkum vinaskógi í Frakklandi
að íslenskri fyrirmynd.
Fyrsta fundardegi lauk með er-
indi Arnórs Snorrasonar skógfræð-
ings sem Ijallaði um skipulag og
markmiðssetningu aðildarfélaganna
við skógræktarstörf. Amór lagði
áherslu á nútímaleg sjónarmið og
vinnubrögð sem þörf væra á að fé-
lögin kynntu sér. Ráðgert er frekara
kynningarstarf í félögunum um þau
máj.
Á fundinum var minnst 60 ára
afmælis Skógræktarfélags íslands,
en það var stofnað á Þingvöllum
Alþingishátíðarárið 1930. Rifjuð
voru upp orð Sigurðap Sigurðssonar
þáverandi búnaðarmálastjóra á
stofnfundinum í Almannagjá þar
sem hann benti á að þjóðarsamtök
þurfi til að klæða landið á ný — til
þess þurfí mikið starf og sérstaka
alúð og umhyggju. Þau orð séu jafn-
gild í dag og þau voru þá.
Bent var á að efling skógræktar
væri ekki séríslenskt fyrirbæri —
skógrækt væri einn mikilvægasti
umhverfisverndarþátturinn um víða
veröld — skipti jafnvel sköpum fyrir
framhald mannlífs á þessari jörð.
Kjartan Ólafsson, formaður Skógræktarfélags Árnesinga, og kona
hans.
Oluv Aalde, skógræktarstjóri i Noregi, og Sigurður Blöndal, fyrrv.
skógræktarstjóri.
Allar þjóðir heims sem nokkurs eru
megnugar ættu að sinna skyldum
sínum í þeim efnum. „Það skýtur
skökku við,“ sagði Hulda Valtýs-
dóttir í setningarræðu sinni, „þegar
sjálfstæð þjóð sem annað veifið vill
hreykja sér á bekk með velferðar-
þjóðum heims, bregður yfir ' sig
skikkju beiningarmanns þegar talið
berst að endurheimt íslensku skóg-
anna“.
Á fyrsta fundardegi var einnig
minnst sérstaklega 50 ára afmælis
Skógræktarfélags Árnesinga á
þessu án og rakti formaðurinn
Kjartan Ólafsson sögu þess.
Fundarstörfum var fram haldið á
laugardagsmorgun en eftir hádegi
var farin skoðunarferð að Álfaskeiði
og skógarreiturinn þar skoðaður.
Því næst var farið að Snæfoksstöð-
um en þar er víðáttumikið land í
eigu félagsins í Árnessýslu með
lífvænlegum skógi í góðum vexti.
Efnt var til veislu á Flúðum á
laugardagskvöld á vegum skóg-
ræktarfélaganna og sýslunnar.
Heimamenn önnuðust skemmtidag-
skrá og ræður voru fluttar. Heiðrað-
ir voru sérstaklega fyrir vel unnin
störf á vegum Skógræktarfélags
Árnesinga þeir Ólafur Jónsson, Sig-
urður Ingi Sigurðsson og Stefán
Jasonarson. Allir hafa þeir lagt fram
dijúgan skerf til skógræktannála í
sýslunni. Skógræktarfélagi Islands
bárust höfðinglegar gjafir í tilefni
afmælisins. Norska ríkisskógræktin
færði félaginu að gjöf 20 þúsund
norskar krónur til að standa straum
af kostnaði við námsdvöl íslensks
skógfræðings þar í landi og Danska
heiðarfélagið gaf einnig veglega
upphæð til námsdvalar fyrir íslensk-
an skógfræðing í skógrækt í Dan-
mörku svo nokkuð sé nefnt.
Á síðasta degi fundarins voru
ályktanir afgreiddar og stjórnarkjör
fór fram. Jónas Jónsson búnaðar-
málastjóri, sem setið hefur í stjórn
félagsins í um það bil 20 ár, gaf
ekki kost á sér til endurkjörs. Hon-
um voru þökkuð vel unnin störf í
þágu skógræktar. Nú eiga sæti í
stjórninni: Baldur Helgason, Björn
Árnason, Hulda Valtýsdóttir,
Snædís Gunnlaugsdóttir, Sveinbjörn
Dagfinnsson, Tómas Ingi Olrich og
Þorvaldur S. Þorvaldsson.
Nokkrar tillagna sem samþykktar
vora á aðalfundi Skógræktarfélags
íslands að Flúðum 1990:
Aðalfundurinn minnir á ákvæði í
stefnuyfirlýsingu núverandi ríkis-
stjórnar um greiðslu fjármagns til
sérstaks skógræktarátaks árin
1989-91 og að helmingur þess skuli
renna til skógræktarfélaga.
Aðalfundurinn skorar á landbún-
aðarráðhérra að sjá til þess að auk-
ið verði íjármagn til styrktar skjól-
beltarækt í landinu.
Aðalfundurinn átelur hve fjáiveit-
ingar til skógræktar á bújörðum
skv. ákv. skógræktarlaga hafa verið
litlar og í engu samræmi við fram-
kvæmdaáhuga bænda á þegar við-
urkenndum skógræktarsvæðum.
Fundurinn beinir þeim eindregnu
tilmælum til fjárveitingavaldsins að
bæta þar verulega úr. Ennfremur
beinir fundurinn þeim tilmælum til
Skógræktar ríkisins og landbúnað-
arráðuneytisins að gengið verði frá
almennum reglum um framkvæmd
þessa kafla skógræktarlaganna.
Brýnast er þó að gengið verði hið
fyrsta frá samningum við þá bænd-
ur sem þegar hafa hafið fram-
kvæmdir í samræmi við samþykktar
áætlanir fyrir einstök héruð.
Aðalfundurinn beinir því til rikis-
stjórnar og fjárveitingavalds að
áætla fé á hverju ári til þess að
standa undir námskeiði í gróður-
setningu og umhirðu plantna fyrir
skólaböm þannig að sumarvinna
unglinga nýtist betur og markviss-
ar.
Aðalfundurinn beinir þeim til-
mælum til landbúnaðarráðherra og
Skógræktar ríkisins að hvergi verði
gefíð eftir í framkvæmd þeirra áætl-
ana sem gerðar hafa verið um rækt-
un aspar til iðnaðarframleiðslu og
eflingar skógræktar og landbúnaðar
á Suðurlandi.
Aðalfundurinn skorar á landbún-
aðarráðuneytið og búnaðarsambönd
landsins að vinna að skógrækt í
þeim landshlutum sem til þess henta
þar sem fyrirsjáanlegur er mikill
samdráttur í sauðfjárframleiðslu og
gefa bændum kost á að búa á jörð-
um sínum við skógrækt með öðram
búskap.
Aðalfundurinn hvetur héraðs-
skógræktarfélögin til að gera skóg-
ræktarreiti sína sem aðgengilegasta
fyrir almenning. Ennfremur hvetur
aðalfundurinn til þess að félögin
leggi áherslu á skipulagningu við
nýjar gróðursetningar.
Aðalfundurinn beinir þeim ein-
dregnu tilmælum til Alþingis að í
væntanlegum lögum um búfjárhald
verði tekið tillit til gróðurverndar
og aðstöðu ræktunarfólks til að veij-
ast ágangi og tjóni sem vörslulaust
búfé veldur.