Morgunblaðið - 18.09.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990
19
Merkilegar breytingar á
grunnskólalögnm í Danmörku
eftir Birgi ísleif
Gunnarsson
Á undanförnum árum hefur verið
unnið að mjög róttækum og merki-
legum breytingum á dönsku grunn-
skólalögunum_ sem nauðsynlegt er
fyrir okkur íslendinga að íhuga
vandlega. Ný grunnskólalög tóku
gildi í Danmörku um síðustu ára-
mót sem gæti verið okkur til fyrir-
myndar. Þar er valdi i raun dreift
mjög mikið, bæði út til sveitarfélag-
anna og til skólanna sjálfra.
Markmið breytinganna
Helstu markmið breytinganna á
lögunum í Danmörku voru: Að
draga úr miðstýringu, að einfalda
meðferð mála og ákvarðanatöku,
að marka hverri stjórnsýslueiningu
ákveðin'n bás og hlutverk innan
skólakerfisins. Dregið er verulega
úr valdi ráðuneytisins þannig að
hlutverk þess verður almennt eftir-
lit, að gefa út heildarreglugerðir
og ýmsar viðmiðunarreglur og úr-
skurða í ágreiningsmálum sem upp
kunna að koma. Dregið er úr valdi
amtsráðanna, en það er þriðja
stjórnsýslustigið í Danmörku, stig
milli sveitarfélaga og ríkis. Þeirra
verkefni verða nú eingöngu á sviði
sérkennslumála. Það eru hins vegar
sveitarstjórnirnar og skólarnir sjálf-
ir sem fá valdið í sínar hendur.
Valddreifing og sjálfsstjórn eru lyk-
ilorðin í þessum brejdingum.
Sveitarstjórnirnar fá
fj árveitingavaldið
Helstu verkefni sveitarfélaganna
verða þessi: Ákveða skólunum um-
fang og hafa eftirlit. Þau fá íjárveit-
ingavaldið, ráða allt starfsfólk en
geta í þeim efnum framselt heimild-
ir sínar t.d. til skólastjórnar eða
skólastjóra. Þau ákveða gerð hvers
skóla og skipulagsramma skóla-
Birgir ísleifur Gunnarsson
„Eg tel það mjög æski-
legt að við fylgjumst
rækilega með hvernig
til tekst með þessa
breytingu, því ég tel að
það sé ekki síst á grunn-
skólasviðinu sem við
eigum að huga að aukn-
um völdum til sveitarfé-
laganna.“
starfsins. Jafnframt eiga þau að
viðurkenna námsskrár skólanna.
Skólastjórinn og stjórn skólans
fá vald til að fara með íjárhagsleg-
an rekstur skólans og að bera
ábyrgð á faglegu starfi innan
skólans. Allsráðandi í skólastjórn-
unum eiga að verða foreldrarnir
sem eiga börn í viðkomandi skóla.
Jafnframt á sveitarstjórn að til-
nefna einn sveitarstjórnarmann
með málfrelsi og tillögurétti. Við
hlið skólastjórnar á að starfa sérs-
takt fagráð þar sem starfsmenn
skólans t.d. kennarar eiga sæti.
Kennarar verða starfsmenn
sveitarfélaga
Sveitarstjórnirnar fá sem sagt
aukinn íhlutunarrétt um málefni
grunnskólans. Bekkjarstærð og
tímaijöldi nemenda er ekki lengur
miðstýrt frá ráðuneyti. Vinnutími
og vinnufyrirkomulag kennara
breytist og sem fyrr segir annast
sveitarfélögin kjarasamninga við
kennara sem verða starfsmenn
þeirra. Sveitarfélögin fá framlög frá
ríkinu sem eru ákveðin upphæð á
hvern nemanda en annast síðan
sjálf um aðrar fjárveitingar.
Þessi róttæka breyting kom til
framkvæmda í Danmörku um sl.
áramót. Ég tel það mjög æskilegt
að við fylgjumst rækilega með
hvernig til tekst með þessa breyt-
ingu, því ég tel að það sé ekki síst
á grunnskólasviðinu sem við eigum
að huga að auknum völdum til sveit-
arfélaganna. Grunnskólar eru til í
hveiju einasta sveitarfélagi og þó
að nauðsynlegt sé að tryggja jafn-
rétti á milli sveitarfélaga og lands-
hluta að því er snertir möguleika
nemenda til menntunar og að
tryggja verði lágmarksskilyrði í lög-
gjöf og framkvæmd, þá tel ég að
grunnskólinn eigi að vera næsta
stóra verkefni sem sveitarfélög og
samtök þeirra taka að sér. Þá hef
ég auðvitað í huga að sveitarfélögin
fái nýjar tekjur til að bera uppi
þann kostnað sem af þessu hlýst.
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins fyrir
Reykja víkurkjördæmi.
Heimsmeistaramótið í brids:
Hjördís og Jacqui enduðu í 32. sæti
HJÖRDÍS Eyþórsdóttir og Jac-
qui McGreal enduðu í 32. sæti í
kvennaflokki heimsmeistara-
mótsins í brids, en þær náðu sér
aldrei á strik í úrslitakeppninni.
Heimsmeistarar í tvímenningi
urðu Brasilíumennirnir Gabriel
Chagas og Marcello Branco. Þeir
unnu opna flokkinn með miklum
yfirburðum, fengu 356,63 stig eða
59,4% skor að meðaltali. Þetta er
í annað skipti sem Branco verður
heimsmeistari í tvímenningi, og
þeir Chagas eru auk þess núver-
andi heimsmeistarar í sveitakeppni.
í næstu sætum urðu Peter Nagy
og Ralph Katz frá Bandaríkjunum
og Cezary Balicki og Tadeusz
Zmudzinski frá Póllandi. Briinzell
'Og Nielsen frá Svíþjóð urðu í 6.
sæti og Henriksen og Scháffer frá
Danmörku í 8. sæti.
Kvennaflokkinn unnu Kerri
Shuman og Karen McCallum frá
Bandaríkjunum eftir mikinn enda-
sprett. Þær eru jafnframt heims-
meistarar kvenna í sveitakeppni.
Kathie Wei og Judi Radin frá
Bandaríkjunum urðu í 2. sæti og
og Arnolds og Vriend frá Hollandi
urðu í 3. sæti.
FRJÁISI lífEYRISSJÓÐLRIlNN
er hagstæður kostur fyrir mai*ga.
-10,4% raunávöxtun
á síðasta árí.
- 20% ársvextir miðað við
6 fyrstu mánuði ársins.
- Öll inneign sjóðfélaga
erþeirraséreign.
- Inneign sjóðfélaga erfist
samkvæmtvenjulegum erfðareglum.
<n>
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF
- Löggilt verðbréfafyrirtæki -
HAFNARSTRÆTI28566 ■ KRINGLUNNI689700 ■ AKUREYR111100
Vetrartmiiim
hjá SJÓVÁ-ALMENNUM
er frá níu til fímm
Haustið er komið og veturinn. nálgast óðum.
Hjá SJÓVÁ-ALMENNUM skiptum við yfír í
vetrarafgreiðslutíma sem er frá
klukkan níu til fimm. Vetrartíminn gildir
frá 15. september til 1. maí.