Morgunblaðið - 18.09.1990, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990
23
Irakar opna landamæri Kúvæt:
Þúsundir Kúvæta flýðu
y fir til Saudi-Arabíu
Reuter
Kúvæsk börn á harðahlaupum við landamæri Saudi-Arabíu. Um 6.000
kúvæskar fjölskyldur flýðu til Saudi-Arabíu um helgina er írösku
innrásarherirnir í Kúvæt opnuðu landamæri ríkjanna.
Nikósíu. Reuter.
IRAKAR opnuðu landamærin
milli Kúvæt og Saudi-Arabíu um
helgina og notuðu þúsundir Kú-
væta tækifærið og flýðu eyði-
legginguna í heimalandi sínu.
„Þeir ætla sér greinilega að rýma
borgina af Kúvætum og fiytja íraka
þangað í staðinn. Það virðist vera
ætlun þeirra að má ríkið af landa-
kortinu og eyðileggja minninguna
um það,“ sagði kúvæskur kaup-
sýslumaður að nafni Ahmed er flýði
til Saudi-Arabíu um helgina. Hermt
er að íraskir hermenn hafi hirt
vegabréf af Kúvætum er þeir
hleyptu þeim yfír landamærin.
Kúvætarnir sem komust til
Saudi-Arabíu um helgina sögðu að
matvæli væru nánast gengin til
þurrðar í Kúvætborg. Dvölin þar
hefði verið orðin svo óbærileg að
þeir hefðu ekki átt annarra kosta
völ en yfirgefa heimili sín og flýja.
írösku innrásarherirnir gengju um
og skytu á fólk. Þeir hefðu breytt
skólum borgarinnar í fangelsi og
söfnuðu þar fólki saman. Hefðu
þeir hengt upp áskoranir og heitið
fólki verðlaunum fyrir að vísa sér
á vestræna menn sem kynnu að
fara huldu höfði í borginni. Loks
stunduðu innrásarsveitirnar kerfis-
bundin rán og virtist tilgangurinn
að svipta borgina, stofnanir hennar
og fyrirtæki, öllum tækjabúnaði.
Tveir flóttamenn sögðu sögur af
verslunarstjóra stórmarkaðar sem
var dreginn fyrir aftökusveit á al-
mannafæri og skotinn er hann neit-
aði að hengja upp myndir af Sadd-
IRA rænir
lögreglu-
manni og
myrðir hann
St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímanns-
syni, fréttaritara Morgunblaðsins.
IRA stöðvaði bíl rétt norðan við
landamæri Irlands og Norður-
Írlands á laugardagskvöld, tók
þrjá farþega til fanga, en sleppti
tveimur þeirra síðar um kvöldið.
í gærmorgun tilkynnti IRA, að
lögreglumaðurinn, sem þeir
héldu, hefði verið myrtur.
Louis Robinson hafði verið á leið
heim til sín úr veiðiferð á írlandi
ásamt fimm félögum sínum. Hann
var lögreglumaður í Ulster-lögregl-
unni, en hafði sætt læknismeðferð
í þrjú ár vegna þunglyndis og ekki
unnið reglulega.
IRA stöðvaði bílinn, sem Robin-
son ferðaðist í með félögum sínum,
rétt norðan við landamæri írlands
og Norður-írlands. Hryðjuverka-
mennirnir vissu, að Robinson var í
bílnum og kröfðust þess, að hann
kæmi út. Þeir tóku tvo aðra, en
slepptu þeim fljótlega, eftir að hafa
misþyrmt þeim.
Eiginkona Robinson bað IRA, að
láta mann sinn lausan, í ijölmiðlum
á sunnudag. Á mánudagsmorgun
tilkynnti IRA, að Robinson hefði
verið myrtur. Síðar þann dag fannst
lík, sem talið var lík Robinsons.
am íraksforseta í versluninni. „Her-
mennirnir tryllast er þeir verða var-
ir þjóðrækni Kúvæta. Þeir þola t.d.
hvorki að sjá fánann né minnstu
hollustu við Emírinn,“ sagði opinber
starfsmaður sem flýði með fjöl-
skyldu sína til Saudi-Arabíu. Láta
mun nærri að um 6.000 kúvæskar
fjölskyldur hafi flúið þangað um
helgina.
ÓL 1996:
Kosið milli
sex borga
í Tókýó
Tókýó. Reuter.
TILKYNNT verður I dag
hvaða borg verður falin
framkvæmd Ólympíuleik-
anna sumarið 1996 en það
ár verður öld liðin frá því
fyrstu leikarnir í nútima sið
fóru fram.
Sex borgir hafa bitist um
leikana og varið af því tilefni
jafnvirði milljarða ÍSK í margs
konar kynningarstarf. Eru það
Atlanta í Bandaríkjunum,
Aþena í Grikklandi, Belgrað í
Júgóslavíu, Manchester á Eng-
landi, Melbourne í Ástralíu og
Toronto í Kanada.
Fyrstu nútímaleikarnir voru
haldnir í Aþenu 1896 og hefur
mörgum þótt eðlilegt að 100
ára afmælis leikanna yrði
minnst þar í borg. Margt þykir
þó mæla gegn umsókn Aþenu
og segja menn, sem málum eru
kunnugir, að líkur á því að
Atlanta verði fengnir leikarnir
hafi aukist. Enginn hefur viljað
afskrifa Melbourne og Toronto
en fáir spá því að þeir fari fram
í Manchester og enginn veðjar
á Belgrað.
Atkvæðagreiðsla hefst í Al-
þjóðaólympíunefndinni (IOC) í
Tókýó klukkan 9,45 að íslensk-
um tíma í dag og verður kosn-
ing endurtekin þar til ein borg
hlýtur hreinan meirihluta, 44
atkvæði eða fleiri. Fækkar
borgum um eina í hverri um-
ferð. Klukkan 11,47 er ráðgert
að Juan Antonio Samaranch,
forseti IOC, opni innsiglað um-
slag með niðurstöðum kosning-"
anna og tilkynni hvar leikarnir
fari fram árið 1996.
Leitið til okkar:
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
MANEX
HÁRVÖKVINN
Jóhannes S. Jóhannesson:
„Ég hafði í gegnum árin reynt
allt til að losna við flösuna en
ekkert dugði. Ég hélt ég yrði
bara að saetta mig við þetta.
En nú veit ég betur. Vökvinn
virkilega virkar".
Elín Sigurbergsdóttir:
: „MANEX hárvökvinn hefur I
j virkað með ólíkindum vel fyrir |
j mig. Ég var því sem næst að 1
k missa allt hárið. Það datt af i |
flygsum og ég var komin með |
l'í hárkollu. Fljótlega eftir að ég |
| byrjaði að nota MANEX hætti
j hárlosið og í dag er ég taus I
j við hárkolluna og komin með (
jí mikið og fallegt hár. Læknirinn |
['. minn og kunningjar minir eru |
[ hreint undrandi á þessum ár- |
| angri".
■ I
Sigríður Adólfsdóttir:
j „Fyrir 15 árum varð ég fyrir |
; því óhappi í Bandaríkjunum að [
j lenda i gassprengingu og p
; missti við það augabrúnirnar, |
■ sem uxu aldrei aftur. Ég fór |
! að nota MANEX vökvann fyrir |
4 mánuðum og í dag er ég I
j komin með fullkomnar auga- |
brúnir. Hárgreiðslumeistarínn 1:
j minn, Þórunn Jóhannesdóttir i
Keflavík, segir þetta vera
i hreint kraftaverk".
Jóna Björk Grétarsdóttir:
| Ég missti megnið af hárinu 1
1987 vegna veikinda. Árið 1
1989 byrjaði hárið fyrst að |
I vaxa aftur, en það var mjög 1
j lélegt, svo þurrt og dautt og 1
s vildi detta af. Síðan kynntist |
ég MANEX. Eftir 3ja mánaða |
1 notkun á MANEX próteininu, 1
Ivítamíninu og sjampóinu er hár 1
mitt orðið gott og enn i dag I
finn ég nýtt hár vera að vaxa “.
Fæst í flestum apótekum,
hárgreiðslu- og rakarastofum
um lantí allt.
Dreifing:
anfóraia
S. 680630.
ERLENT