Morgunblaðið - 18.09.1990, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990
Reuter
Leiðtogar skála
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, sótti Vaclav Ha-
vel, forseta Tékkóslóvakíu, heim í gær og drakk honum þá til
undir málsverði í forsetakastalanum í Prag. Er Thatcher fyrsti
breski forsætisráðherrann sem fer til Tékkóslóvakíu eftir stríð. I
gær hvatti Marian Calfa forsætisráðherra til hraðra og róttækra
efnahagsumbóta en áætlanir sem tékkneska þingið hefur nú til
meðferðar byggjast á einkavæðingu.
Sænskir jafnaðarmenn;
Vilja útiloka herskip með
kjamorkuvopn frá höfnum
^ Stokkhólmi. Frá Erik Lidén, fréttaritara Morgunbladsins. Reuter.
ÁRSÞING sænskra jafnaðarmanna sem nú er haldið í Stokkhólmi
samþykkti á sunnudag að eftir tvö ár mættu aðeins þau herskip
athafna sig í sænskum höfnum, sem væru örugglega ekki með kjarn-
orkuvopn um borð. Tveggja ára umþóttunartíminn var samþykktur
að ósk Stens Anderssons utanríkisráðherra sem vildi fá ráðrúm til
að vinna að framgangi tillögu Svía um bann við kjarnorkuvopnum
um borð í herskipum og kafbátum á þingi Sameinuðu þjóðanna.
Ráðherrann vísaði einnig til þess að í upphafi næsta árs væri fyrsta
skýrslan væntanleg um leiðir til að koma á kjarnorkuvopnalausu
svæði á Norðurlöndunum.
Kjarnorku-
veldin játa
hvorki né neita
tilvist kjarnorku-
vopna um borð í
herskipum
sínum og kafbát-
um. Hafa Svíar
ekki gengið sér-
staklega eftir því
við þau að skýra sten Andersson
frá vopnabúnaði skipa sinna, áður
en þeim er veitt leyfi til að koma
í sænskar hafnir. Hinn 3. septem-
ber skýrðu Greenpeace-samtökin
frá því, að 31 sinni á tímabilinu
1960 til 1988 hefði bandarískt her-
Einnota vörur • Vinnufatnaður • Raðgjöf • O.fl. o.fl.
HIÆnSOAGAR '90
DAGANA 19-22. SEPT. KL. 13-17.
Kynning á tækjum, hreinsiefnum, pappír og áhöldum til
daglegra þrifa í matvælafyrirtækjum, almennum
fyrirtækjum, stofnunum og heimilum.
í glæsilegum sýningarsal RV og RV-Markaðar að Réttarhálsi 2.
ioMSS
Frá K.EW. verða kynntar nýjar geröir af staðbundnum
háþrýstitækjum, gufuþvottatækjum, almennum
háþrýstitækjum, vatnssugum og teppahreinsi-
vélum.
Nú fást hjá RV hentugar gerðir af þessum tækjum fyrir
allar stærðir fyrirtækja, stofnana og heimila.
Frá Celtona verður kynnt ný lína af endurunnum,
óbieiktum pappírsvörum s.s. W.C. pappír, hand-
þurrkur, iðnaðarþurrkur o.fl.
Frá Scan-Otarés verða m.a. kynnt nýju FREE-EFNIN,
þ.e.a.s. ofnæmisprófuð hreinsiefni án ilm- og litarefna.
Öll hreinsiefni frá Scan-Otarés brotna niður í náttúrunni
innan 48 klst. frá notkun.
Frá RV verður m.a. kynnt nýja RV-línan í hreinsiefnum.
Góð vara á sériega lágu verði fyrir stofnanir, fyrirtæki og
heimili.
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA.
KYNNINGARAFSLATTUR !
Q0rrui
HEM/
Scan-Otarés
Hreinlega allt til hreinlætis
REKSTRARVÖRUR
Réttarhálsi2 -110R.vik - Símar31956-685554
skip flutt kjarnorkuvopn inn í sæn-
skar hafnir. Var vísað til þessrar
skýrlsu á flokksþinginu og sagði
Maj Britt Theorin, talsmaður
flokksins í afvopnunarmálum, að
Bandaríkjastjórn yrði að taka af öll
tvímæli um að Greenpeace hefði
rangt fyrir sér. Áður hafa sænsk
stjórnvöld formlega leitað álits
Bandaríkjastjórnar á skýrlsu Gre-
enpeace.
Sten Anderson hafnaði kröfu
þingfulltrúa um að bann við komu
herskipa án öruggrar vitneskju um
vopnabúnað þeirra tæki þegár í stað
gildi. Taldi hann að þar með gætu
Svíar orðið áhrifalausir í afvopnun-
arviðræðum. Hann sagði, að í haust
myndi sænska ríkisstjórnin leggja
fram á allsheijarþingi Sameinuðu
þjóðanna tillögur um bann við
kjarnorkuvopnum bæði um borð í
herskipum og kafbátum. Utanríkis-
ráðherrann sagði einnig, að
snemma á næsta ári væri fyrsta
skýrslan væntanleg um hvemig
staðið yrði að því að koma á kjam-
orkuvopnalausu svæði á Norður-
löndunum. „Ef við náum árangri á
þessum sviðum, verða engin vanda-
mál vegna heimsókna herskipa,"
sagði hann.
Auglýsingar í sjónvarpi
Meðal stórmála á flokksþinginu
er spurningin um það, hvort leyfa
beri auglýsingar í sænska sjónvarp-
inu. Hingað til hafa jafnaðarmenn
alltaf hafnað slíkum tillögum, við-
horfin hafa hins vegar breyst vegna
samkeppni frá gervihnattarstöðv-
um. Fyrir helgina hófust útsending-
ar á nýrri sænskri gervihnattarstöð,
sem Wallenberg-fjölskyldan stend-
ur að. Er stöðin fjármögnuð með
auglýsingum.
Seint á sunnudagskvöld sam-
þykktu jafnaðarmenn að heirfiila
auglýsingar í sjónvarpi. Var flokks-
stjórninni falið að kanna í samvinnu
við aðra flokka, hvernig að auglýs-
ingunum skyldi staðið. Akveða þarf
hvort auglýsingar verða á báðum
ríkissjónvarpsstöðvunum eða aðeins
í nýrri þriðju stöð ríkisins eða í öll-
um þremur. Ætlar ríkisstjórnin að
reyna að ná víðtækri samstöðu um
framkvæmd málsins.
Umræður um afstöðu Svía til
Evrópubandalagsins hafa ekki tekið
mikinn tíma á þinginu. I setningar-
ræðu sinni sagði Ingvar Carlsson,
flokksformaður og forsætisráð-
herra, að Svíar kynnu að huga að
aðild eftir 1993 ef öryggismálin
hindruðu hana ekki. Er þetta í sam-
ræmi við það sem ráðherrann hefur
áður sagt og orð Stens Anderssons
á utanríkisráðherrafundi Norður-
landanna í Molde í Noregi í síðustu
viku.
Bretar deila um
endurminningar
Youngs lávarðar
St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaó'ins.
Endurminningar Youngs lá-
varðar, fyrrum iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, eru að koma út
• Hreinsiefni • Pappir • Velar • Ahold • Einnota vörur • Úinnufatnaður • Raðgjöf • O.fl. o.fl.
RAFORKAN
þarf ekki
að vera
staðbundin
EG1900X
Rafstöðin frá HONDA er
hentug fyrir vertaka, við
byggingar sumarbústaða
og við almennar húsbygg-
ingar. Hún gefur frá sér
220V straum.
VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900
um þessar mundir. Hafa þær
strax vakið umræður og deilur.
Bók Youngs,
Framkvæmdaár-
in, The Enter-
prise Years, þyk-
ir nokkuð opin-
skárri en endur-
minningabækur
annarra stjóm-
málamanna, sem
setið hafa í ríkis-
stjórn Margaret Thatcher. í henni
greinir hann m.a. frá einkasam-
tölum sínum við forsætisráðherrann
og Norman Tebbit.
Það, sem mesta athygli hefur
vakið, er dagbók, sem Young hélt
í kosningabaráttunni árið 1987. Þá
var Tebbit formaður íhaldsflokksins
og stjórnaði kosningabaráttu hans.
Thatcher þótti Tebbit ekki standa
sig nógu vel og fékk Young ti! að
fylgjast með honum og gera tillögur
um auglýsingar og annað á loka-
stigum kosningabaráttunnar.
I bókinni kemur fram, að Thatch-
er réð á laun auglýsingastofu tii
að gera tiilögur um auglýsingaher-
ferð síðustu dagana fyrir kosning-
ar. Norman Tebbit brást hinn versti
við, þegar hann gerði sér grein fyr-
ir, hvað hafði gerst.
Young segir einnig, að Thatcher
hafi verið mjög svartsýn í kosninga-
baráttunni og gjarnan verið upp-
stökk og þung í skapi. Hann grein-
ir einnig frá ýmsum athugasemdum
hennar um samráðherra sína, sem
lýsa í versta falli tillitsleysi, en má
vel skilja sem hreinskiptni.
Thatcher er sögð líka illa frá-
sagnir bókarinnar og aðrir ráðherr-
ar eru Young reiðir fyrir lausmælg-
ina. Ritdómarar hafa tekið bókinni
fremur illa og þykir ekki margt
markvert í henni.