Morgunblaðið - 18.09.1990, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990
Félag hjartasjúklinga stofnað
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Stofnfundur Félags hjartasjúklinga á Eyjafjarðarsvæðinu var haldinn á sunnudag, en félagið er deild inn-
an landsamtaka hjartasjúklinga. Um 40 manns komu á fundinn. Gísli J. Eyland var kjörin formaður, en aðrir
í stjórn eru Gísli J. Júlíusson, Barði B.enidiktsson, Geirlaug Sigfúsdóttir og Þorsteinn Svanlaugsson. Stefnt
er að því að stofna til félagsskapar af þessu tagi í öllum kjördæmum landsins fyrir áramót, að sögn Gísla.
Hann sagði að markmiðið væri að m.a. að efna til útivistarferða fyrir hjartasjúklinga og einnig yrði opn-
uð þjálfunarstöð á Akureyri fyrir sjúklinga. Búið er að panta tæki á stöðina, en hún verður að öllum líkindum
á Bjargi.
Héraðsráð um staðsetningu álvers:
Osmekklegur mál-
flutningur o g vill-
andi íyiár almenning
„HERAÐSRÁÐ Eyjafjarðar mótmælir harðlega þeim vinnubrögð-
um og málflutningi sem einstakir ráðamenn hafa undanfarið haft
í frammi fyrir staðsetningu álvers á Keilisnesi. Þar sem viðræðum
Eyfirðinga við Atlantsál og iðnaðarráðuneytið hefur ekki verið
slitið telur Héraðsráð slíkan málflutning afar ósmekklegan og
villandi fyrir almenning.“ Þannig hljóðar yfirlýsing sem samþykkt
var á fundi Héraðsráðs Eyjafjarðar sem haldinn var í gær.
í yfirlýsingu ráðsins segir einn-
ig: „Héraðsráð Eyjafjarðar mót-
mælir hugmyndum um ölmusu-
gjafir til einstakra byggðalaga
utan suðvesturlands verði álver
reist á Keilisnesi. Þess í stað skor-
ar Héraðsnefnd á ríkisstjómina
að sýna fram á með hvaða hætti
hún ætlar að uppfylla ákvæði
málefnasamnings síns um eflingu
atvinnulífs á landsbyggðinni. Hér-
aðsráð varar við þeim alvarlegu
afleiðingum sem staðsetning ál-
vers á höfuðborgarsvæðinu muni
hafa fyrir atvinnulíf og búsetu á
Tveir aðilar sýna kaupum á Hrað-
frystihúsi Olafsfjarðar áhuga
Kaupfélag Eyfírðinga óskar eftir viðræðum við stjórn um málefni fyrirtækisins
TVEIR aðilar hafa sýnt áhuga á kaupum á Hraðfrystihúsi Ólafsfjarð-
ar, en um helgina kom fram ósk frá Kaupfélagi Eyfirðinga til form-
anns stjórnar HÓ um viðræður um kaup féiagins á eignum Hrað-
frystihússins, sem eru frystihús, rækjuvinnslaj loðnubræðsla og tveir
þriðju hlutar í togaranum Ólafi-Bekk ÓF-2. Áður hafði Gunnar Þór
Magnússon fyrir hönd Stíganda og Sædísar hf. gert tilboð í hluta-
bréf HÓ. Boðaður hefur verið hluthafafundur annað kvöld, miðviku-
dagskvöld, þar sem fjallað verður um fyrirliggjandi tilboð Gunnars
Þórs og greint frá ósk KEA um viðræður um málefni HÓ.
hönd Stíganda og Sædísar gerir til-
boð í öll hlutabréf HÓ og býður
hann 50 milljón króna staðgreiðslu.
Fyrir ári sameinuðust frystihúsin
tvö í Ólafsfirði, þegar Hráðfrystihús
Ólafsfjarðar keypti Hraðfrystihús
Magnúsar Gamalíelssonar hf.,
rækjuvinnslu ásamt eingarhlut fé-
lagsins í Ólafi-Bekk. Þær eignir sem
hér um ræðir eru því húsnæði
beggja frystihúsanna, rækju-
vinnsla, loðnuverksmiðja og og tveir
þriðju hlutar í skuttogaranum Ólafi
Bekk. Á þessum eignum hvíla
skuldir upp á um 500 milljónir, þar
af um 300 á togaranum.
landsbyggðinni."
Halldór Jónsson bæjarstjóri á
Akureyri og formaður Héraðsráðs
Eyjafjarðar sagði að Eyfirðingar
hefðu lagt í mikinn kostnað m.a.
vegna ýmiskonar rannsókna
tengdu hugsanlegu álveri á Dys-
nesi. Kostnaður þessi skipti millj-
ónum króna og menn hefðu því í
kjölfar yfirlýsinga ráðamanna
undanfarið um staðsetningu ál-
versins á Keilisnesi farið að spyija
sig hversu lengi ætti að halda
áfram að leggja fram fé vegna
þessa máls. Viðræðum við Eyfirð-
inga hefði hins vegar enn ekki
verið slitið formlega. „Við drögum
heiðarleika manna í þessu máli
ekki í efa, en yfirlýsingar ráða-
manna eru að okkar mati komnar
út að þeim mörkum sem menn
sætta sig við,“ sagði Halldór.
Héraðsráð Eyjafjarðar er lítt
hrifið af hugmyndum um t.d. að
niðurgreiðsla orkuverðs úti á
landsbyggðinni komi í stað þess
að álver rísi á Keilisnesi. „Þetta
snýst fyrst og fremst um atvinnu,
að næg atvinna sé fyrir hendi á
þeim stöðum sem menn ætla sér
að halda í byggð á landinu. Ef
fólk ekki hefur atvinnu, þá flytur
það eflaust í burt þangað sem at-
vinnan er, sama þó orkuverðið sé
niðurgreitt."
Tveggja ára drengur á Dalvík
hætt kominn eftir fall í tjöm
Jón Þórðarson formaður stjómar
HÓ sagði að íjallað yrði um tilboð
Gunnars Þórs Magnússonar í hluta-
/ bréf félagsins á hluthafafundi sem
haldinn verður annað kvöld og
væntanlega yrði einnig greint frá
ósk Kaupfélags Eyfirðinga um við-
ræður við stjórn um málefni Hrað-
frystihúss Ólafsfjarðar. Jón sagðist
ekki hafa rætt við kaupfélagsmenn
vegna þessa máls, en kvaðst álíta
að þeir hlytu að hafa áhuga á að
kaupa fyrirtækið fyrst þeir óska
eftir viðræðum við stjórnina um
málefni þess.
Hlutafjársjóður á 49% hlut í
Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar, bæjar-
sjóður Ólafsfjarðar 20% og yfir 100
einstakir hluthafar eiga smærri
hlut. Jón Þórðarson situr í stjóm-
s. inni fyrir Hlutafjársjóð, en fer ekki
með atkvæðisrétt fyrir sjóðinn. Jón
Ellert Lárusson situr einnig í stjóm-
inni fyrir Hlutafjársjóð. Bjami Kr.
Grímsson bæjarstjóri, Gunnar Þór
Magnússon og Björn Þór Ólafsson
eiga einnig sæti í.stjórn HÓ. Hald-
inn verður lokaður bæjarstjómar-
fundur á morgun, þriðjudag, þar
sem fjallað verður um Hraðfrysti-
hús Ólafsfjarðar og fyrirliggjandi
tilboð Gunnars Þórs auk áhuga
KEA á fyrirtækinu.
Bjarni Kr. Grímsson bæjarstjóri
og stjómarmaður í HÓ sagði að
verið væri að horfa til framtíðar
varðandi það að selja fyrirtækið.
Útgerðarfélag Ólafsfirðinga sem að
tveimur þriðju hlutum er í eigu HÓ
og einum þriðja bæjarins rekur tog-
arann Ólaf Bekk-OF-2, sem aflað
hefur vinnslunni í landi hráefnis.
Togarinn hefði um 3.000 tonna
þorskígildiskvóta, en við það að
sóknarmarkið er lagt af hmndu
veiðiheimildir hans niður í um 2.000
tonn. í því væri vandinn fólginn,
rekstur togarans væri þungur fyrir
og verið væri að leita allra leiða til
að halda uppi fullri atvinnu í vinnsl-
unni árið um kring. Til þess þyrfti
meira en 2.000 tonna kvóta.
Gunnar Þór Magnússon fyrir
TVEGGJA ára drengur var
hætt kominn er hann féll í tjörn
skammt frá heimili sínu á
Dalvík. Vegfarandi kom auga á
drenginn, náði honum úr tjörn-
inni og kom honum undir lækn-
ishendur. Tókst að blása lífi í
barnið sem er nú úr allri hættu.
Leiðrétting
Rangt var farið með föðurnafn
Eyjólfs K. Siguijónssonar, form-
anns bankaráðs Landsbankans, í
frétt um fund ráðsins á Akureyrars-
íðu s.l. laugardag. Er beðist velvirð-
ingar á þessu.
Tildrög slyssins eru ekki að fullu
ljós en drengurinn var einn að leik
við nýgerða tjom í Láginni við
Karlsrauðatorg. Á einhvem hátt
hefur hann fallið í tjömina og
ekki getað haft sig upp af eigin
rammleik. Svo heppilega vildi til
að fólk sem þarna átti leið um sá
til bamsins í tæka tíð og tókst að
koma því strax undir læknishend-
ur en ekki mátti tæpara standa.
Lágin er að því talið er gamall
árfarvegur í miðju bæjarins, við
íbúðagötu er Karlsrauðatorg heit-
ir. Undanfarin ár hefur verið unn-
ið að því að snyrta þetta svæði
og fegra með útplöntun tijáa. Til
prýðis var gerð tjöm í Lágina og
í sumar var vatn látið renna í
hana. Ljóst er að finna þarf leiðir
til að koma í veg fyrir slys af
þessu tagi við tjömina.
Fréttaritari
Akureyrarvöllur - Evrópukeppni
meislaralida
K.A. - C.S.K.A. Sofia
mióvikudaginn 19. sept. kl. 17.30.
Forsala aógöngumióa i Sporthúsinu þriójudaginn 18.
og mióvikudaginn 19. sept. frá kl. 13.00.
Fóstrur -fóstrur
Nú er gullið tækifæri að breyta til og reyna eitthvað
nýtt. Staða hverfisfóstru á Akureyri í Glerárhverfi er
laust til umsóknar. Staðan er 100% staða og starfið
er mjög fjölbreytt. Hverfisfóstra sér um dagvistir, leik-
velli og dagmæður í sínu hverfi. Viðkomandi þarf að
geta starfað sjálfstætt, vera skipulagður og hafa
áhuga á því að vinna með fólki.
Starfið veitist frá 1. desember nk. Allar nánari upplýs-
ingar um starfið veitir dagvistarfulltrúi, alla virka daga
frá kl. 10-12 í síma 96-24600. Skriflegar umsóknir
skulu berast dagvistarfulltrúa fyrir 20. október 1990,
á þar til gerðum eyðublöðum sem fást hjá starfs-
mannastjóra og dagvistarfulltrúa.
Dagvistarfulltrúi