Morgunblaðið - 18.09.1990, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990
49
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . . .
Köttur klórar smábarn
Faðir hringdi:
„Við búum í Vesturbænum og
höfum við tvisvar orðið fyrir því
að köttur hefur komist í barna-
kerru sonar okkar og klórað hann.
í fyrra skiptið var þetta minni-
háttar en í síðara skiptið var hann
klóraður til blóðs. Ég kem þessu
á framfæri til að aðvara aðra for-
eldra. Við erum með net á kerr-
unni en það virðist koma að litlu
haldi. Hér er nokkur hætta á ferð-
um því ef kötturinn hefði klórað
barnið í augað hefði ef til vill orð-
ið um alvarleg meiðsl að ræða.
Ég vil því beina því til fólks að
það gæti vel að börnum sem látin
eru sofa úti í vögnum eða kerrum.
Eins hefur heyrst um rottugang
í görðum hér í Vesturbænum en
þær geta einnig verið börnum
hættulegar.“
Veski
Svart seðlaveski með skilríkjum
tapaðist sl. miðvikudag líklega í
miðbæ Garðabæjar. Veskið er eig-
andanum mikils virði af persónu-
legum ástaðum. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
Margréti í síma 656310 eða vinn-
usíma 92-11795.
Amon Ra týndur
Kötturinn Amon Ra fór að
heiman frá sér að Barmahlíð 15
fyrir nokkru. Hann er grábrön-
dóttur með hvíta bringu, hvítan
kvið og hvítar hosur. Upplýsingar
í síma 624718 heima eða vinn-
usíma 31975.
Úr
Delma kvenúr með svartri leðu-
ról tapaðist á Whitesnakehljóm-
leikunum í Reiðhöllinni. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að hringja
í Lindu í síma 676206.
Skjalataska
Skjalataska með skólabókum
tapaðist 12. september, sennilega
í versluninni Árnes við Barónstíg
eða þar í grennd. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 17994.
Plastumbúðir - smóking
Emilía hringdi:
„Við vorum 18 samna á heilsu-
skóla í Danmörku í sumar og var
okkur meðal annars kennd aðferð
til að geyma grænmeti í plast-
frauðtunnum eða plastfrauðköss-
um. Nú vantar mig svona kassa
og væri þakklát ef einhver gæti
sagt mér hvort þeir fást hér á
landi og hringi í síma 40254. Þá
tapaðist smóking þjónsbúningu
merktur Hótel Sögu fyrir skömmu
og er finnandi vinsamlegast beð-
inn að hringja í ofangreint síma-
númer.“
Veski
S.D. hringdi:
„Dóttir mín varð fyrir því að
týna seðlaveski á Borginni og er-
um við óánægðar með hversu erf-
iðlega gengur að fá upplýsingar
um óskilamuni á skemmtistöðum.
Þetta á ekki aðeins við um Borg-
ina heldur virðast flestir skemmti-
staðir ekki hirða um að koma
óskilamunum til eigenda. Þetta
var Ijóst veski með ýmsum
skilríkjum. Finnandi er vinsam-
legast beðinn að hringja í síma
71049. Fundarlaun.“
Gullarmband
Gullarmbandi tapaðist við end-
urvígslu Fossvogskirkju 26.
ágúst. Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 685741.
Úlpa
Svört úlpa með appelsínugulu
fóðri tapaðist á leiðinni frá Graf-
arvogi niður á Langholtsveg,
sennilegast við Eikjuvog, Barða-
vog eða Snekkjuvog. Merkt
„Biynjar" innan í innri vasa.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja síma 675436. Fundar-
laun.
Köttur í óskilum
Fress köttur fannst við Kassa-
gerðina í Reykjavík sl. miðviku-
dag. Hann er svartur með hvítar
loppur og bílvanur. Hann er í
geymslu á Dýraspítalanum í
Víðidal.
Myndavél
Ricoh myndavél var tekin í
misgripum í flugstöðinni á He-
atrow-flugvelli 4. september.
Eigndinn er vinsamlegast beðinn
að hringja í Ingu í síma 685689.
Páfagaukur
Lítill gulhvítur páfagaukur tap-
aðist í Vesturbænum 8. ágúst.
Hafi einhver fundið hann, vinsam-
legast hefið samband í síma
10993 eða 687408 eftir kl. 17 á
daginn.
Úr
Fíngert kvenmannsúr fannst
við Leikskólann við Eiriksgötu.
Upplýsingar í síma 625207.
Macintosh fyrir byrjendur
Works - ritvinnsla, gagnasöfnun, töflureiknir og stýrikerfi á ,
© 15 klst námskeiði fyrir byrjendur! Fáiö senda námsskrá.
Ö5p
<Sfo Tölvu- og verkfrœðiþjónustan
Grensásvegi 16 - fjögur ár f forystu
Námskeiö í keramik's
byrja 1. október á Hulduhólum, Mosfellsbæ.
BYRJENDANÁMSKEIÐ
FR AMH ALDSN ÁMSKEIÐ
BARNANÁMSKEIÐ
Upplýsingar í síma 666194.
Steinunn Marteinsdóttir
• •
NYTT STJORNUKORT:
3 ára framtíðarkort
Persónulýsing, 12 mánaða framtfðarkort,
samskiptakort.
Gunnlaugur Guðmundsson,
Stjörnuspekistöðin, Miðbæjarmarkaðinum,
Aðalstræti 9, sími 10377
ESAB
RAFSUÐUVÉLAR
vír og fylgihlutir
Egill ólíkt skemmtilegri maður
Til Velvakanda.
„Egill Skallagrímsson var
skepna" hefur Morgunblaðið eftir
Einari Pálssyni, höfundi bókanna
um „Rætur íslenskrar menningar"
nú um helgina, og sýnist mér þetta
orðbragð bera vott um lágt menn-
ingarstig reykvíska menningar-
blómans. Ég er ekki að taka höfund
þessara orða einn út úr - hann
talar svona af því að hann á sér
vísa áheyrendur. - En ég held, að
ekki mundi mönnum verða til fram-
dráttar að komast þannig að orði
um Karlamagnús í Frakklandi, Ses-
ar á Ítalíu, Davíð kóng í Gyðinga-
landi (sá drap tugþúsundir) eða
Þútmes þriðja í Egyptalandi. Að
flestir höfðingjar sögunnar hafa
verið miskunnarlitlir og virt manns-
lífin lítils - bendi menn á einhveija
sem ekki voru það - er alkunn stað-
reynd. En sumir höfðu þó annað
en þetta til brunns að bera, og þeg-
ar betri eiginleikar náðu að koma
fram hjá þeim, þá er það minnis-
vert og efni í sögur. Og það er fyr-
I Níunda bók RÍM komin ut:
Egill var ekki hreysti-
menni lieldvit' skepna
[ — segir Einar Pálsson um helstu niðurstöður
I GGILS saga og úlfar tveir, níunda hefti bókaflokksins Rætur íslenskr-
I ar menningar eftir Einar Pálsson er nú komið út. Einar segir í Miti'
I fali við Morgunblaðið, að rannsóknir hans á goðsögnum og launsbgn-
I um í Egils sögu, sem er meginviðfangsefni bókarinnar, leiði L1 niður-
I stöðu sem gangi þvert á niðurstöður annarra. Hann segir Snorra
I Sturluson hafa skrifað Eglu, ekki U1 þess að hampa hreysti Egils
Iskallagrímssonar, heldur hið gagnstæða, L1 þess að syna skepnu-
Iskap hans og tvieðli Mýramanna.
n
'anesefni Knv.rinnarer Eeils til dærnis Sigurður Nordal og þeir Einar Pálsson.
ir slíka hluti sem Egill á Borg er
frægur maður enn í dag. Það sem
Egill gerði af sér í róstum sinnar
aldar er reyndar smámunir hjá „af-
rekum“ hinna miklu hershöfðingja.
En hann var ólíkt skemmtilegri
maður en flestir slíkir - og það
fann Snorri.
Þorsteinn Guðjónsson
Athyglisverður bæklingur
SÆNSK
GÆÐANÆRFÖT
Til Velvakanda.
Nýútkominn er bæklingur, Að-
staða til laxahafbeitar á íslandi,
er gefur gagnlegt yfirlit um þætti
er ráða miklu um velgengni ellegar
misfelli laxahafbeitar við ísland.
Jafnframt bregður ritið upp mynd
af lífsferli laxins, þessa ævintýrafisks
sportveiðimannsins. Mun þetta eina
heillega samantektin sem birst hefur
á íslensku um framangreind atriði.
Væntanlega reynist bæklingurinn
gagnlegur þeim sem stunda fiskeld-
isnám, þeim sem veita ráðgjöf á þess-
um vettvangi, og ekki síst þeim sem
sinna einhveijum framleiðsluþáttum
laxahafbeitar. Efnisniðurröðun er
skipuleg og framsetning auðskilin.
Því mun mörgum áhugamanninum
um laxa og laxveiðar forvitnilegt að
blaða í bæklingnum. Þannig fór
a.m.k. þeim sem þetta ritar, en hann
er áhugamaður en ekki vísindamaður
varðandi umræddan töfrafisk.
Á sl. 30 árum hefur höfundur rits-
ins, dr. Björn Jóhannesson, tínt sam-
an gögn og unnið úr þeim til birting-
ar. Er þetta unnið sem áhugastarf,
án nokkurra opinberra styrkja eða
aðstoðar, og Björn hefur einnig kost-
að útgáfu bæklingsins. Á hann þakk-
ir skildar fyrir þetta ósíngjarna fram-
tak.
Hallgrímur Björnsson,
verkfræðingur.
FYRIR • ALLA' FJÖLSKYLDUNA
• Stinga ekKi
®Úr fínustu merinóull
®Mjög slitsterk
• Má þvo viö 60°C
SKATABUÐIN
SN0RRABRAUT 60, S. 624145
HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIPJÓNUSTA - LAGER
<:
cn
SIEMENS
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300