Morgunblaðið - 18.09.1990, Side 52
ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Gránar í fjöll nyrðra
Kuldalegt var um að litast fyrir norðan í gær þegar ljósmyndari Morgunblaðsins á Akureyri tók þessa mynd. Víða gránaði í fjöll og hálku gerði
á fjallvegum. Skorar Vegagerðin á ökumenn að sýna fyllstu aðgæslu.
Tap Álafoss hf. um 747 milljónir á síðasta ári:
Um 2000 milljóna tap
á tveimur og hálfu ári
Eiginijárstaðan neikvæð um 266 milljónir í árslok
HEILDARTAP Álafoss hf. varð um 747 milljónir á síðastliðnu ári
að því er fram kom á aðalfundi fyrirtækisins sem haldinn var i
gær. Tap Álafoss hf. frá því fyrirtækið tók til starfa í ársbyrjun
1988 við sameiningu gamla Álafoss og iðnaðardeildar Sambandsins,
nemur nú um tveimur milljörðum á núgildandi verðlagi. Á árinu
1988 nam tapið um 724 milljónum og fyrstu sex mánuði þessa árs
varð um 165 milljón króna tap. Afkoman á fyrri helmingi þessa árs
er mun betri í ár en á sama tíma í fyrra þegar 391 milljón króna
tap varð hjá fyrirtækinu. Eiginljárstaðan var í árslok neikvæð um
^67 milljónir króna en var jákvæð um 204 milljónir árið áður.
Afskriftir, niðurfærsla vöru-
birgða og viðskiptakrafna ásamt
tapi af sölu fastafjármuna námu
alls rúmum 314 milljónum króna á
síðastliðnu ári. Þá námu vaxtagjöld,
verðbætur og gengismunur 563
Hraðbanka-
kerfin tvö
'‘sameinuð
Sjálfsafgreiðslukerfi banka og
sparisjóða, hraðbankar og tölvu-
bankar, hafa nú verið samtengd
undir heitinu hraðbankar.
Alls er um að ræða 25 afgreiðslu-
tæki á 26 stöðum víðsvegar á höfð-
uðborgarsvæðinu, í Keflavík og á
Akureyri.
milljónum króna, en reiknaðar tekj-
ur vegna verðiagsbreytinga námu
417 milljónum.
I lok síðastliðins árs var ráðist í
fjárhagslega endurskipulagningu
hjá Álafossi þegar ljóst varð hvert
stefndi í rekstrinum. Miðaði hún
að því að minnka skuldir félagsins
með sölu eigna og töku nýrra lang-
tímalána. Álafoss hefur allt frá
stofnun átt miklar eignir umfram
þarfir rekstrar sem ekki hefur tek-
ist að selja. Jafnframt hafa verið
gerðar miklar breytingar á rekstri,
bæði í stjórnun og verksiniðjum
fyrirtækisins. Að sögn Ólafs Ólafs-
sonar, forstjóra Álafoss, verður
fjárhagslegri endurskipulagningu
lokið á næstu mánuðum með yfir-
töku lánardrottna á fasteignum fyr-
irtækisins að andvirði 500 milljónir
króna. Ríkið hefur þegar aukið við
víkjandi lán fyrirtækisins um 60
milljónir og Hlutafjársjóður hefur
lagt 100 milljónir í fyrirtækið. Þá
hefur Atvinnutryggingasjóður lán-
að Alafossi 200 milljónir.
Ólafur segir að fyrstu sex mán-
uðina sé um að ræða óveruleg frá-
vik frá þeirrj rekstraráætlun sem
unnið hafi verið eftir. Frávikið sem
fyrirtækið standi frammi fyrir sé
að dollarinn hafi fallið úr 62 krónum
niður í 57 krónur. Þannig valdi
lækkun bandaríkjadals á gjaldeyris-
mörkuðum um 35 _ milljón króna
lægri framlegð hjá Álafossi en gert
hafi verið ráð fyrir í áætlunum fé-
lagsins.
Sala Álafoss til sovésku inn-
kaupastofnunarinnar verður ein-
ungis 2,3 milljónir dollara á þessu
ári en viðskiptabókun landanna
hljóðar upp á 4,5-6 milljónir. Sala
til annarra fyrirtækja í Sovétríkun-
um nemur hins vegar 4,6 milljónum
dollara. Nokkur dráttur hefur orðið
á greiðslum frá innkaupastofnun-
inni og nema útistandandi skuldir
Álafoss í Sovétríkunum á annað
hundrað milljónum króna. Ekki er
þó talin ástæða til að óttast
greiðslufall þó um greiðsludrátt sé
að ræða.
Heildareignir Álafoss voru um
síðustu áramót bókfærðar á 2.136
milljónir og heildarskuldir námu
2.403 milljónum.
Dýrari
olía er á
leiðinni
NYIR farmar af olíu og bensíni
eru nú á leið til landsins. Ljóst
er að þeir eru keyptir dýrara
verði en það eldsneyti sem fyrir
er í landinu og má því vænta verð-
hækkunar um næstu mánaðamót,
en ekki er enn ljóst á hvaða verði
farmarnir eru keyptir.
Samkvæmt upplýsingum frá olíu-
félögunum eru á leiðinni tii landsins
farmar af bensíni og olíum sem lagt
var af stað með um helgina. Seljend-
ur hafa nokkurra daga svigrúm til
að skrá verð farmanna, þannig að
það iiggur ekki fyrir fyrr en líða
tekur á vikuna.
Þó er ljóst að umtalsverðar hækk-
anir verða á eldsneytisverði hér á
landi. Verulega er gengið á þær
birgðir sem til eru í landinu og voru
keyptar áður en heimsmarkaðsverð
á olíu hækkaði í kjölfar innrásar
Iraka í Kúvæt. Núverandi heims-
markaðsverð á bensíni er 55-60%
hærra en þegar síðustu innkaup
voru gerð hingað, gasolíuverð hefur
hækkað um tæp 20% síðan síðasti
farmur kom og um 45-50% síðan
sá næsti þar á undan kom. Þar sem
skattar vega þungt í bensínverði er
ekki ljóst hve þungt verðhækkun á
heimsmarkaði vegur í útsöluverði
hér fyrr en ákvörðun liggur fyrir
um hvort skattheimtan verður
óbreytt í krónutölu eða hvernig hún
kann að breytast.
Eldsneytisverð er ákveðið um
mánaðamót, þannig að verðhækkan-
ir koma ekki til framkvæmda fyrr
en fyrsta næsta mánaðar.
Steingrím-
ur heimsæk-
ir Alumax
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, mun síðar í
þessari viku heimsækja höfuð-
stöðvar Alumax-álfyrirtækisins í
Georgíu-fylki í Bandaríkjunum,
í boði Pauls Dracks forsljóra.
Steingrímur tekur þátt í sérsakri
barnaráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna, sem hefst í næstu viku í New
York. Hann fer til Bandaríkjanna á
miðvikudaginn og mun væntanlega
heimsækja Alumax á fimmtudag
eða föstudag.
Alumax er eitt þriggja fyrirtækja
Atlantsálshópsins, sem fyrirhugar
að reisa álver hér á landi á næstu
árum.
Drengur fyrir bíl við biðstöð SVR:
5 börn fyrir bíl í september
ÁTTA ÁRA drengur varð fyrir bíl á Hringbraut við hús númer
48 laust eftir hádegi á laugardag. Drengurinn fór þar út úr stræt-
isvagni á biðstöð og fór fram fyrir hann út á götuna í veg fyrir
fólksbíl á leið í vestur eftir vinstri akrein.
Drengurinn var fluttur á Allan september í fyrra urðu tvö
börn fyrir bíl.
Telpa sem varð fyrir bíl með
líkum hætti við biðstöð SVR á
Suðurgötu í síðustu viku liggur
enn þungt haldin á sjúkrahúsi.
var
sjúkrahús. Hann var að sögn lög-
reglu óbrotinn en gekkst undir
rannsókn á höfði. Þetta er fimmta
barnið sem orðið hefur fyrir bíi
það sem af er septembermánuði.
Gangandi vegfarandi, þýskur
ferðamaður, fótbrotnaði á föstu-
dag þegar bfll, sem rekist hafði á
annan á mótum Suðurgötu og
Vonarstrætis, kastaðist upp á
gangstétt og klemmdi manninn
upp við grjóthleðslu við hús núm-
er 8. Annar ökumannanna tveggja
var einnig fluttur á slysadeild.