Morgunblaðið - 25.09.1990, Page 2

Morgunblaðið - 25.09.1990, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990 Aðgerðir Vesturlanda við Persaflóa: ísland leggur 140 miHj- ónir kr. til hjálparstarfs RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að íslendingar leggi fé til hjálpar- starfs vegna afleiðinga Persaflóadeilunnar. Rætt hefur verið um að aðstoðin nemi um 140 milljónum króna, að sögn Þorsteins Ingólfssonar ráðuneytisstjóra í utanrikisráðuneytinu. Gert er ráð fyrir að framlagið renni til Neyðarhjálparstofnunar Sameinuðu þjóðanna eða Rauða kross- ins. Samstarfsnefnd fjármála- og utanríkisráðuneytisins á að skila tillög- um í vikunni um hvert féð á að renna. Þorsteinn sagði féð ekki eiga að renna til þeirra hafnbanns- og hem- aðaraðgerða sem í gangi eru á Persa- flóasvæðinu. „Það er ekki búið að vinna endanlega úr þessu, en það er gert ráð fyrir að féð renni til líknar- og hjálparstarfa,“ sagði hann. Þorsteinn segir þá aðstoð sem rætt er um innan ríkisstjórnarinnar vera í samræmi við þá aðstoð sem önnur Evrópuríki séu að tilkynna um þessa dagana. Hann var spurður Margeir efstur á mót- inu í San Bemardino MARGEIR Pétursson stórmeist- ari varð efstur á opna skákmót- inu í San Bernardino í Sviss ásamt stórmeisturunum Hort og Tstsudinovskíj. Þeir fengu 7 vinninga af 9 mögulegum. Alls kepptu um 80 manns á mótinu, þar af voru 12 stórmeistarar. Opna mótið í San Bemardino er haldið árlega og var þetta 12. í röðinni. Mótið hófst 17. september síðastliðinn og því lauk í gær. Mar- geir sagði í samtali við Morgunblað- ið í gær, að góður endasprettur Dráttarvextir lækka í 21% SEÐLABANKINN ákvað í gær lækkun dráttarvaxta úr 23% í 21% og gildir lækkun- in frá næstu mánaðamótum. Dráttai’vextir hafa farið lækkandi á þessu ári. í ársbyij- un voru þeir 40,8% og lækkuðu 1. febrúar í 37,2%. Aftur varð lækkun 1. mars í 30%, 1. apríl í 26% og 1. maí í 23%, sem haldist hefur þar til nú. Tómas Árnason Seðla- bankastjóri segir lækkunina vera vegna hjaðnandi verð- bólgu. Hann segir að búast megi við áframhaldandi lágu verðbólgustigi næstu tvo mán- uði, þá fari verðlag hækkandi vegna olíuverðshækkana og launahækkana, en síðan er búist við hjaðnandi verðbólgu á nýju ári, að því tilskildu að olíuverð hækki ekki mun meira en fyrirsjáanlegt er. hefði tryggt sér sigurinn. „Þetta gekk rólega framan af, ég var óheppinn og missti niður unnið tafl gegn stórmeisturunum Ciric frá Júgóslavíu og Svíanum Hellers og hafði fjóra vinninga eftir sex um- ferðir. Síðan vann ég síðustu þijár skákirnar. Ég er mjög ánægður með taflmennskuna, þetta small vel saman núna eftir erfitt tímabil und- anfarið, loksins snerist gæfuhjólið mér í vil,“ sagði Margeir Pétursson. Næstir að vinningum, með 6,5 vinninga, urðu stórmeistararnir Gavrikov og Vaiser frá Sovétríkjun- um, Hellers frá Svíþjóð, Meduna frá Tékkóslóvakíu og Groszpeter frá Ungveijalandi. Auk Margeirs keppti einn annar íslendingur á mótinu, Leifur Jó- steinsson, og fékk hann fjóra vinn- inga. hvort framlag íslendinga tengdist þá ekki umræðum á utanríkisráð- herrafundi NATO fyrir skömmu, þar sem rædd voru fjárframlög aðild- arríkja vegna aðgerða við Persa- flóann. „Ekki nema óbeint. Bækur hafa verið bornar saman bæði á ut- anríkisráðherrafundi Norðurlanda og ráðherrafundi NATO, en undirstaðan fyrir þessu eru ályktanir Öryggis- ráðsins um hafnbann og þvingunar- aðgerðir sem hafa haft í för með sér það ástand sem nú er, þar sem er mikill ijöldi flóttamanna og hungurs- neyð á köflum," sagði Þorsteinn. _ Hugmyndir hafa verið um að ís- land sendi vatn til flóttamannasvæð- anna við Persaflóa. Þorsteinn sagði að samkvæmt upplýsingum frá hjálp- arstofnunum væri ekki vatnsskortur á svæðunum heldur væru frekar vandamál með flutninga á vatni inn- an þeirra. Morgunblaðið/Björn Blöndai Pramminn liggur við enda hafnargarðsins í Keflavík. I gær var verið að logsjóða í gat, sem komið hafði í ljós á botni hans. Sanddælupramma hvolfdi við Garðskaga: 10.000 lítrar af olíu í skipinu Keflavík. SANDDÆLUPRAMMA hvolfdi við Garðskaga aðfaranótt mánudags. Árvakur, skip Dýpkunarfélagsins, var með prammann sem hvolfdi í togi og var annar prammi aftan í honum. Um 10.000 lítrar af olíu eru í prammanum, en hún hafði ekki lekið í sjóinn í gærkvöldi. Árvakur var að koma frá ísafirði þar sem prammarnir vorú notaðir við hafnargerð, en áfangastaðurinn var Höfnin í Vogum, þar sem hefja átti dýpkunarframkvæmdir. Lagt var af stað um hádegi á laugardag og gekk ferðin vel þar til komið var út á miðjan Faxaflóa að veðrið tók að versna. Laust eftir miðnætti aðfaranótt mánudags þegar skipið var statt við Garðskaga skipti eng- um togum að sanddælupramman- um hvolfdi. Þá var leiðindaveður og talsverður sjór. Árvakursmönnum tókst að kom- ast með báða prammana til Keflavíkur þar sem sanddælu- pramminn var tekinn að hafnar- garðinum en lóðsbáturinn Auðunn tók hinn prammann í tog og fór með hann til Njarðvíkur. Á árdegis- flóðinu í dag á að reyna að rétta prammann við og unnu menn hörð- um höndum í gær við að undirbúa björgunaraðgerðir. Við björgunina átti að nota tvo öfluga krana við að koma sanddæluprammanum á réttan kjöl. pjg Olíufélögin biðja um 13% til 40% hækkun: ASÍ og VSÍ vilja að ríkisvaldið minnki skattheimtu á bensíni OLÍUFÉLÖGIN hafa lagt fram beiðni til Verðlagsstofnunar um verðhækkun frá og með næstu mánaðamótum á gasolíu, svartolíu og 92 oktana bensíni. Nemur hækkunarbeiðnin á gasolíu 40%, um 17% á svartolíu og um 13% á 92 oktana bensíni. Fijálst verð er á 98 oktana bensíni. Fulltrúar ASÍ og VSÍ hafa beint þeim tilmælum til ríkisstjórnarinnar að hún dragi úr skattheimtu á bensíni til að mæta hækkunum á innkaupsverði. Eitthvað mun vera til af olíubirgð- um en að sögn Kristins Bjömssonar, forstjóra Skeljungs, er 98 oktana bensín sem verið er að selja núna úr mun dýrari farmi og hafa olíufé- lögin til skoðunar að hækka einnig verð á því. Olíuhækkunarþörfin er tilkomin vegna hækkunar_ á innkaupsverði, að sögn Kristins. Álagning olíufélag- anna er bundin af krónutölu en skatt- iagning ríkisins er að mestu leyti hlutfallsleg og eykst við hækkun olíuvara. Kristinn sagði að fulltrúar fjármálaráðuneytisins hefðu setið með hagfræðingum olíufélaganna á fundum um hækkunarþörfina. „Þess- Apótekarar í dbreifbýli segja lækkun álagningar kippa fótunum imrian lyQasölu: Átta dreifbýlisapótek myndu líklega verða að hætta rekstri APÓTEKARAR í dreifbýli telja að ef lyfjaálagning í smásölu verði lækkuð, eins og boðað hefur verið, muni það kippa rekstrargrundvellin- um undan minnstu apótekum landsins og stefna faglegu öryggi við lyfjadreifínguna á landsbyggðinni í hættu. Búast megi við að í það minnsta átta apótek verði að hætta rekstri og önnur landsbyggðar- apótek neyðist til að skerða þjónustu sína til muna. Hanna María Siggeirsdóttir, lyf- sæti sjö sérfræðingar og var formað- sali í Stykkishólmi, segir að það séu átta minnstu apótekin á landinu sem eigi það á hættu að þurfa að hætta rekstri, en þau eru apótekin á Blönduósi, Neskaupstað, Patreks- firði, Seyðisfírði, Siglufirði, Grindavík, Ólafsvík og Stykkishólmi. Minnti hún á skýrslu sem nefnd, sem Guðmundur Bjamason heilbrigðis- ráðherra skipaði, skilaði í október 1989. I nefndinni, sem gerði úttekt á forsendum álagningar á lyf, áttu ur nefndarinnar Brynjólfur I. Sig- urðsson, hagfræðiprófessor. Sagði Hanna að í skýrslu nefndarinnar hafi komið skýrt fram að minnstu apótekin þyldu enga lækkun álagn- ingar. Einnig var lagt til í skýrslunni að allar lyfjasölur lækna og sérfræðinga yrðu settar undir stjóm lyfjafræð- inga, ekki síst til að styrkja rekstrar- grundvöll minnstu apótekanna svo að ekki þyrfti að koma til hækkun á lyfjaálagningu þeirra vegna. Apó- tekarar í dreifbýli, sem er hópur inn- an Apótekarafélags íslands, segja yfirvöld hafa hunsað þetta nefndará- lit fullkomlega. í tilkynningu sem þeir sendu frá sér á mánudag spyija þeir hvort hugsast geti að stjórnvöld velji að taka ekki mark á niðurstöð- um faglegra athugana ef niðurstöð- umar eru þeim ekki að skapi. Hanna Siggeirsdóttir segir dreif- býlisapótekara eiga mun erfiðara með að taka á sig lækkun álagning- ar en apótekara í þéttbýli þar sem þeir þjóni yfírleitt mun færra fólki á miklu dreifðara svæði. Nefndi hún sem dæmi að á hennar eigin svæði væru um 2.000 manns og ræki hún verslanir á tveimur stöðum til að þjóna því fólki, í Stykkishólmi og í Grundarfirði. I Reykjavík þjónaði apótek aftur á móti að meðaltali 6.000-7.000 manns og væri með eina útsölu. Fastakostnaður apóteka í dreifbýli og þéttbýli, s.s. húsnæði, laun og sími, væri þrátt fyrir mun minni veltu dreifbýlisapótekanna ósköp svipaður. „Ég sjálf gæti til dæmis velt 3-4 sinnum meira með nokkum veginn sama fastaköstnaði. Nú er búið að boða lækkun lyfjaá- lagningar úr 63% í 57%. Þetta þýðir 6% lækkun álagningar en við getum ekki skorið niður fastakostnaðinn á móti sem bitnar langverst á minnstu apótekunum með minnstu veltuna,“ sagði Hanna. ir opinberu starfsmenn hafa verið mjög orðvarir en það er ljóst að þeir hafa fylgst með útreikningunum," sagði Kristinn. Fulltrúar VSÍ og ASÍ hafa átt við- ræður við fjármálaráðherra um að ríkisvaldið dragi úr skattheimtu sinni á bensíni. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hefur meðal annars verið rætt um að 6% hækkun á bensíngjaldi 1. október næstkom- andi, sem gert var ráð fyrir í síðustu kjarasamningum, verði frestað, en sú hækkun jafngildir 1,30 kr. hækk- un á verði bensínlítrans. „Almennt vonast menn til að þessi mikla hækkun á olíuverði sé tíma- bundið ástand og við teldum það afar slæmt ef slík sveifla setti hér mikið úr skorðum í verðlagsmálum. Það er einnig umdeilanlegt, svo ekki sé meira sagt, að á meðan atvinnulíf- ið og launþegarnir tapa þá hagnist ríkissjóður um fleiri hundruð milljón- ir,“ sagði Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ. Einar Sigurðsson blaðafulltrúi Flugleiða segir félagið hafa farið fram á 6% hækkun fargjalda í innan- landsflugi vegna mikilla verðhækk- ana á eldsneyti, en það hækkaði um 12% um síðustu helgi og er nú heims- markaðsverðið komið í 440 dollara tonnið, hefur hækkað úr 160 dollur- um í júlímánuði síðastliðnum. Búist er við að fargjöld í Atlantshafsflugi hækki um 7% um mánaðamót og nýlega hefur fengist leyfi til 3,5% hækkunar fargjalda í flugi til og frá Islandi. „Hver 10% hækkun á elds- neytisverði þýðir 1-1,2% hækkunar- þörf á fargjöldum að öðru óbreyttu," segir Einar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.