Morgunblaðið - 25.09.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990
11
Svissneskir
fuglavinir
styrkja skóg-
ræktina
HÓPUR svissneskra fugla-
skoðmlisara, sem hér var á ferða-
lagi í sumar sem leið, hefur fært
Skógræktarfélagi íslands að gjöf
peninga til styrktar skógræktar-
átaki því sem nú stendur yfír.
Fólkið er allt félagar í Félagi
svissneskra fuglavina og hefur for-
ingi hópsins, Wilhelm Woodtli, stað-
ið fyrir hópferðum meðlima félags-
ins til íslands allt frá árinu 1976.
Að sögn fararstjóra Svisslend-
inganna nú í sumar, Inga Gunnars
Jóhannssonar, hefur þessi hópur
fyrst og fremst að markmiði að
stunda fugla- og náttúruskoðun í
ró og næði utan fjölfarinna ferða-
mannastaða og má sem dæmi um
viðkomustaði í sumar nefna Breiðu-
vík og Látrabjarg, Vigur, Húsey
og Borgarfjörð eystri.
Meðlimir hópsins hafa allir mik-
inn áhuga á náttúruvernd og hrif-
ust þeir mjög af því skógræktará-
taki sem hleypt var af stokkunum
nú i sumar. Þeir ákváðu því að
leggja skógræktinni lið með pen-
ingagjöf.
Polarn&Pyret
KRINGLUNNI 8—12, SÍMI 681822. OPIÐ MÁNUD.-FÖSTUD. KL. 10:00-19:00. OG LAUGARD. KL. 10:00-16:00
Hugmyndir um breytt hlutverk Landakotsspítala:
Umræðan oabyrg og
óheppileg fyrir spítalann
- segja hjúkrunarstjórn og hjúkrunarfræðingar
HJÚKRUNARSTJÓRN Landakotsspítala og fulltrúi hjúkrunar-
fræðinga við spítalann eru ósammála hugmyndum um að Borg-
arspítali og Landsspítali taki við hlutverki hans. Telja þessir aðil-
ar, að umræður um breytingar af þessu tagi hafí verið óábyrgar
og óheppilegar, en hins vegar sé rétt að endurskoða rekstur allra
spítala í landinu með hagræðingu í huga.
Hjúkrunarstjórn Landakotsspít-
ala og fulltrúi hjúkrunarfræðinga
segjast fagna málefnalegri um-
ræðu varðandi hagræðingu í heil-
brigðisþjónustunni, sem fram fari
í samráði við starfsfólk og neyt-
endur, enda krefjist hagsmunir
allra landsmanna þess að sífellt
sé leitað bestu leiða innan heil-
brigðiskerfisins. Á málþingi um
hagræðingu í heilbrigðisþjónustu
síðastliðinn laugardag hafi fulltrú-
ar neytenda og tíu heilbrigðis-
stétta lagt fram tillögur til ha-
græðingar og hafi sú umræða
verið málefnaleg og markast af
heildarsýn. Hins vegar hafi í máli
fulltrúa heilbrigðisráðuneytisins
og fjármálaráðuneytisins komið
fram fullyrðingar um að gerbreyta
ætti starfsemi einnar stofnunar,
Landakotsspítala. Umfjöllun fjöl-
miðla eftir málþingið hafi dregið
dám af þessum hugmyndum og
sé það miður.
Lýsir hjúkrunarstjórnin áhyggj-
um af þeim sökum, enda geti
þessi óábyrgi málflutningur haft
áhrif á ráðningar nýs starfsfólks
og óöryggi hjá því starfsfólki, sem
fyrir sé. Umræða af þessu tagi
eigi ekki að eiga sér stað nema
rökstuðningur og hlutlægt mat
liggi fyrir. Starfsemi spítalanna
þurfi að endurskoða, en þetta sé
ekki vænleg leið til árangurs. Segj-
ast hjúkrunarfræðingarnir vera
sannfærðir um að áróðurinn gegn
Landakotsspítala, sé af pólitískum
toga.
I máli þeirra kom fram, að þær
eru sammála ummælum Ólafs
Arnar Arnarsonar, yfirlæknis, sem
birtust í Morgunblaðinu á miðviku-
dag, en þar segir hann meðal ann-
ars, að hugmyndir um að Borg-
arspítali og Landsspítali taki að
sér hlutverk Landakotsspítala séu
algjörlega óraunhæfar. Fulltrúar
ijármálaráðuneytis og heilbrigðis-
ráðuneytis hafi tekið fjölda sumar-
lokana, sem stafi að verulegum
hluta af sumarleyfum starfs-
manna, og dreift þeim yfir allt
árið. Síðan hafi þeir haldið því
fram, að með því að halda þessum
rúmum opnum allt árið mætti
leysa vanda sjúklinga af Landa-
koti. Slíkt gæti einungis gengið
með miklum niðurskurði á þjón-
ustu.
Varðandi hugmyndir um að
breyta Landakotsspítala í öld-
runarspítala segja hjúkrunarfræð-
ingamir, að Landakot sé of stór
stofnun til að gegna slíku hlut-
verki; erfiðleikar yrðu í rekstri og
erfitt að fá starfsfólk. Enn fremur
sé Landakotsspitali hannaður fyrir
bráðaþjónustu og breytingin yfir
í öldrunarspítala yrði mjög kostn-
aðarsöm.
Hjúkranarfræðingarnir era
þeirrar skoðunar, að þýðingarmik-
ið sé að heilbrigð samkeppni ríki
Morgunblaðið/Emilía
Hjúkrunarstjórn Landakotsspítala (frá vinstri): Auður Ragnarsdótt-
ir, Edda Hjaltested, Sigurborg Sigurjónsdóttir, Rakel Valdimarsdótt-
ir, hjúkrunarforstjóri, Björg J. Snorradóttir, Aðalbjörg J. Finnboga-
dóttir og Alda Halldórsdóttir, fulltrúi hjúkrunarfræðinga.
í heilbrigðisþjónustunni milli mis-
munandi rekstrarforma og það sé
sorglegt, að á sama tíma og aðrár
þjóðir hverfi frá miðstýringu sé
stefnt að því að auka hana hér á
landi.
Hjúkranarfræðingarnir segja,
að umræða síðustu ára hafi valdið
ómældum skaða fyrir ímynd spít-
alans. Þarna sé um stóran vinnu-
stað að ræða, þar sem starfi um
600 manns. Landakotsspítali hafi
á að skipa mjög hæfu starfsfólki,
sem sé tilbúið að taka þátt í áfram-
haldandi uppbyggingu og eigi rétt
á vinnufriði.
Dökkblár/grœnn/raubur
útigalli. Stœrbir 90-140 sm.
Verbkr. 6.400-6.800.
Einnig einlitur vínraubur
útigalli í sömu sUerbum á
sama verbi.
Húfur; lújfur og hanskar í
sömu litum.
Vórulisti haustsins er kominn
í verslunina.