Morgunblaðið - 25.09.1990, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990
UM
SÆNSK
GÆÐANÆRFÖT
FYRIRALLAFJÖLSKYLDUNA
® Stinga ekki
júr fínustu merinóull
jMjög slitsterk
® Má þvo viö 60°C
Utsölustaðir:
Öll helstu kaupfélög, veiöafæraverslanir
Hestamaöurinn o.fl. versl.
Aðgát
eftir Hinrik
Bjarnason
Undanfarið hafa farið fram nokk-
ur skoðanaskipti í dagblöðum um
rekstur Ríkisútvarpsins annars vegar
og ljósvakamiðla í einkaeign, einkum
sjónvarpsstöðva, hins vegar. Síðasta
innlegg í þá umræðu birtist í Morg-
unblaðinu síðastliðinn föstudag, í
greinarkorni eftir einn af frumherj-
um í einkarekstri íslenskra sjón-
varpsstöðva, Goða Sveinsson, fyrr-
verandi innkaupastjóra Stöðvar 2 og
núverandi sjónvarpsstjóra Sýnar.
Því miður er málflutningur hins
unga athafnamanns því marki
brenndur, að byggjast ekki á stað-
reyndum heldur hálfkveðnum vísum
og fullyrðingum sem augljóslega er
til þess gert að gera starfsfóik við
öflun á efni fyrir Sjónvarpið tor-
tryggilegt fyrir sakir kæruleysis og
bruðls. Fyrir opinbera starfsmenn er
þessi aðferð nú ekki sérlega nýstár-
leg, útskit og niðurlæging, á þeim
fyrir téðar sakir hefur verið_ iðkað
því nær í listgreinarformi á Islandi
um áratugi. En það eru einkum hug-
myndir Goða Sveinssonar um rekstur
og fjármál sem kalla á litla athugun
Vertu
ákmum
hjá sjálfum þér
-fjárfestu
í Teíqubréfum!
TEKJUBRÉF - 20% ársávöxtun
miðað við 6 fyrstu mánuði ársins.
TEKJUBRÉF - 9% raunávöxtun
miðað við 6 fyrstu mánuði ársins.
TEKJUBRÉF - vextir eru greiddir út
á3mánaðafresti.
TEKJUBRÉF - örugg reynsla í 4 ár.
C2f
VERÐBREFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF
- Löggilt verðbréfaíyrirtæki -
HAFNARSTRÆTI28566 • KRINGLUNNI689700 • AKUREYR111100
á grein hans, en gera má ráð fyrir
að eftirfarandi kafli úr henni, sem
birtur er feitletraður sem undirfyrir-
sögn, sé kjarni þeirra hugmynda:
„Hér verðum við almennir skatt-
borgarar þó að taka tillit til stofnun-
arinnar og átta okkur á því hugar-
fari sem viðgengst annars vegar
þegar menn hafa almannafé undir
höndum þar sem aðhald er lítið sem
ekkert og hins vegar þær kröfur sem
gerðar eru til starfsmanna hjá einka-
fyrirtækjum þar sem fylgt er fjár-
hagsáætlunum og leitast við að sýna
hagnað af rekstri."
Það er athyglisvert að fá það stað-
fest að beinar greiðslur almennings
til opinbers fyrirtækis annars vegar
og einkafyrirtækis hins vegar skoð-
ast ekki almannafé nema í öðru til-
vikinu, og auðvelt að leiða getum
að því til hvaða ófarnaðar slík hug-
myndafræði muni geta leitt.
Þegar Stöð 2 hóf innkaup á er-
lendu efni hafði Sjónvarpið rekið slík
viðskipti í rúm 20 ár og breytti þeim
ekki í neinum atriðum er máli skipta
við tilkomu keppinautarins síst af
öllu með umsvifalausum verðhækk-
unum. Það var á hinn bóginn fróð-
legt að sjá umsvif starfsbræðranna
nýju og frétta af kaupum þeirra og
tilboðum. Þá keypti Sjónvarpið
klukkustund af leiknu efni fyrir 720
Bandaríkjadali, nú greiðir það 840
fyrir sama tíma en væntanlega veit
sjónvarpsstjóri Sýnar jafnvel og aðr-
ir að eðlileg meðaltalshækkun milli
ára á alþjóðlegum sjónvarpsmarkaði
er talin 6—8%. Langeinfaldasta að-
ferð til þess að gera sannverðugan
samanburð á innkaupum Stöðvar
2/Sýnar og Sjónvarpsins er að hætta
getsökum en leggja þess í stað fram
marktæk gögn til óvilhallra aðila, svo
gera megi faglegan samanburð á
þessum kostnaði ef þurfa þykir.
Mest kemur á óvart í hugleiðing-
um sjónvarpsstjórans samanburður
hans á erlendum ferðakostnaði Ríkis-
útvarþsins og Stöðvar 2/Sýnar. Um
þann samanburð er rétt að segja
aðeins eftirfarandi í þetta sinn:
Sjónvarpsstarfsmenn fá greidda
fasta dagpeninga á ferðum sínum,
sem verða að duga fyrir öllum kostn-
aði öðrum en fargjöldum. Þeir hafa
ekki sérstök greiðslukort fyrir fyrir-
tækisrisnu, hótel, bíla og matarút-
gjöld, auk fastra dagpeninga. Þeir
hafa ekki í samningum sínum
ákvæði um að þeir skuli ávallt ferð-
ast á dýrasta farrými, þvert á móti.
Yfirhöfuð fara þeir ekki í ferðalög
eyðsla
innanlands eða utan nema geta sýnt
fram á að þeir eigi erindi, og að
peningar séu ætlaðir til ferðarinnar
á áætlun.
Sjónvarpið sendi lengi vel einn
innkaupafulltrúa á hvem markað,
en eftir stórfellda lengingu dagskrár
var loks samþykkt að sendir yrðu
tveir til innkaupa á flesta þýðingar-
mestu markaði. Fyrir þessa tvo opin-
beru starfsmenn var það sannkölluð
opinberun að fylgjast með liði Goða
Sveinssonar á sömu mörkuðum. í
þeim hópi voru 4—7 manns, og mið-
að við bústaði, bílakost og umsvif
öll var sýnt að þar voru ekki á ferð
menn sem var ijár vant. Það er ekki
nema von að hann tali í vorkunnsöm-
um tón um launakjör þessara ríkis-
starfsmanna, starfssystkina sinna,
sem hann telur sjálfgefið að séu að
reyna að bæta sér upp rýr laun.
Honum til hugarléttis skal það upp-
lýst, að hjá Ríkisútvarpinu er þannig
haldið utan um fjármál að jafnvel
þótt fólk hefði geð í sér til að íhuga
þá iðju sem hann telur að því er virð-
ist sjálfsagða, þá gæti slíkt sem bet-
ur fer ekki tekist.
Sjónvarpsstjóri Sýnar fullyrðir að
ferðalög innkaupafólks Sjónvarps
séu tíðari en hjá samkeppnisaðilum.
Hefði nú ekki farið vel á því að
styðja þessa fullyrðingu með litlu
yfirliti máli sínu til sönnunar og al-
mennum lesanda til glöggvunar? Og
af því nefndar eru Moskva og París
þá sakaði ekki að fá það sannanlega
upplýst hve margar ferðir fulltrúar
fslenskra sjónvarpsstöðva hafa farið
til þessara borga undanfarinn ára-
tug. Frá opnun íslenska Sjónvarpsins
1966 hefur þrisvar verið farin slík
ferð til Moskvu, alltaf einn fulltrúi
og í boði Sovexport film. Síðast var
slík ferð farin í fyrra, á 7 daga kvik-
myndahátíð. Sá fulltrúi okkar átti
ánægjulegar stundir með þeim
starfsmanni Stöðvar 2, sem þar var
við störf, og gestgjafarnir minntust
glögglega og vitnuðu óspart til öllu
fjölmennari sendinefndar frá Stöð
2, er komið hafði í heimsókn nokkru
áður. Það væri í sannleika sagt mik-
ill léttir að þurfa ekki að fara að
rifja upp þessar ferðir sendinefnda
Stöðvar 2 eða aðrar, hvort sem er
til New Orleans, Houston eða Las
Vegas.
En aftur á móti skal lögð á það
áhersla, að innkaupafulltrúum Sjón-
varpsins er bæði samkvæmt útvarps-
lögum og verkforsögn sinna yfir-
manna ætlað að afla til dagskrárinn-
NYTT A MYNDBANDI
Driving Miss Daisy
á myndbandi í dag.
MORGAN
jivssiga KDppMAM dan
'IANPY 1 ^^AYKROYD
Co) rj/ í/[i\[f/-,/L/’/^ki C'hx.í /'"/
JCJ..Í /J.J ijjjl/j.Jcj-J Jlyjr 'Jrj/
A furiny, rouching and totaUy.írreastíble story.
Pl=IJkHUII;fc^:4U ^
LAUGARÁSBÍÓ
sími 38150
Hinrik Bjarnason
„Beinar greiðslur al-
mennings til opinbers
fyrirtækis annars veg-
ar og einkafyrirtækis
hins vegar skoðast ekki
almannafé nema í öðru
tilvikinu.“
ar eins ijölbreyttu og vönduðu sjón-
varpsefni og verða má, frá öllum
menningarsvæðum.
Eins og áður hefur verið drepið á
er til miklu heillavænlegri aðferð og
gagnlegri fyrir néytendur til saman-
burðar á kostnaði við starfsemi Sjón-
varpsins annars vegar og Stöðvar
2/Sýnar hins vegar en órökstuddar
dylgjur og fullyrðingar, nefnilega sú
að fela endurskoðendum Ríkisút-
varpsins, Stöðvar 2 og Sýnar að
gera rökstudda grein fyrir kostnað-
arþáttum umbjóðenda sinna, undir
forsögn óvilhallra sérfræðinga. Slík-
ur samanburður á erindi til allra, því
það er meinlegur misskilningur, sem
sýnilega gætir hjá Goða Sveinssyni
eins og fleirum, að rekstrarfé til
umsvifa í nafni einkaframtaks sé
sótt í aðra vasa en rekstrarfé opin-
berra stofnana.
Um leið og botni er slegið í þessa
stuttu athugasemd við grein sjón-
varpsstjóra Sýnar skulu honum
þökkuð fyrri samskipti á ýmsum
vettvangi, þótt við gætum ekki alltaf
verið samstíga, ýmist eðli málsins
vegna eða efnahags. Það er eitt
helsta tilhlökkunarefni í fjölmiðlun
komandi vetrar á Islandi að fylgjast
með opnun og útsendingum í sjón-
varpsstöð hans og njóta þar þess
frábæra og ódýra efnis, sem hann
hefur að sögn fest kaup á.
Höfundur er dagskrárstjóri í
Sjónvarpinu.
EPSON
EPSON 9 nála
prentarar í miklu úrvali.
EPSON LX-850
Heimilisprentari með
fullkomleika skrifstofu-
prentara. 150 st/sek.
Sérstaklega fullkomin
pappírsstýring.
Að sjálfsögðu eigum við
fleiri 9 nála prentara, bæði
dýrari og ódýrari.
EPSON prentararnir hafa
verð margverðlaunaðir fyrir
leturgæði og styrkleika. Líttu
við þegar þig vantar
prentara.
ÞÚR^
SÍMI: 681500 - ÁRMÚLA 11