Morgunblaðið - 25.09.1990, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990
ÁVAXTACRAUTAR
, „ '7m/>f//w/
Ryttitvby
y
^ ^ >
ftyoketíy
RynÍMbjr
VERSLUNARDEILD
SAMÐANDSINS
Griptu tækifæríd!
GoldStar síminn
m/símsvara á aöeins
kr. 9.952.-
(stgr.m/vsk).
• Sími og símsvari í einu tæki
• Fjarstýranlegur án aukatækja
úr öllum tónvalssímum
- hvaöan sem er
• 10 númera skammvalsminni
• Fullkomnar leiöbeiningar á
íslensku
• 15 mánaöa ábyrgö
• Póstsendum.
KRISTALL HF.
SKEIFAN 11B-SIMI 685750
Minnum á GoldStar
tölvurnar og símkerfin
3 ÓDÝRASTIR
Ljosmyndastof urnar i
Barna- 09 fjötakyldumyndir
Beykjavik
SÉW :■
Mynd Hafnarftrði
S*> *;
Ujðamyndaetofa Kópavogs
Statii
Ollum okkar tökum fylgja tvaer
prufustækkanir 20x25 cm.
Islending’ar taki þátt í
að setja Irökum skorður
eftirAuðun Svavar
Sigurðsson
Ágæti ritstjóri Morgunblaðsins!
Árás íraka á Kúvæt og innlimun,
ásamt töku vestrænna gísla, hefur
fært heiminum sannir um það, að
sífellt er nauðsyn að varnarmáttu-
vestrænna ríkja sé tryggur. Þíða í
samskiptum við Sovétríkin, a.m.k.
tímabundið, hefur kallað á endur-
skoðun varnarstefnu vestrænna
ríkja, með samhliða niðurskurði á
herafla. „Friðarhópar“ þeir sem köll-
uðu á einhliða afvopnun vestrænna
ríkja gagnvart Sovétríkjunum fyrir
um áratug, krefjast nú að öllum,
„sverðum verði breytt í plóga“, þar
sem ekki sé lengur um ógn frá Sov-
étríkjunum að ræða. Einungis vegna
mikils varnarmáttar vestrænna ríkja
fengust Sovétríkin að samninga-
borðinu sem leitt hefur til þíðunnar
í samskiptunum við þau. Sömu „frið-
arhópar“ vilja nú að samið verði við
Saddam Hussein þar sem vestrænir
gíslar verði notaðir sem skiptimynt
TlutariCL
Heílsuvörur
nútímafólks
í samningum og fallist verði á sum-
ar kröfur Husseins, fyrir brottflutn-
ing erlendra heija frá Mið-Austur-
löndum. írökum gæti þá gefist tími
til að koma sér upp kjarnorkuvopn-
um með þeim gjöreyðingarmætti
sem þeim fylgir, en áætlað er að það
sé innan tveggja ára, sem myndi
kosta okkur stórkostlegar fórnir ef
við ætluðum að halda aftur af honum
þá. Slíkri „friðarstefnu" var fylgt
gagnvart Hitler framan af með
hörmulegum afleiðingyim.
Um miðbik aldarinnar mörkuðu
íslendingar sér utanríkisstefnu sem
tryggt hefur öryggi og sjálfstæði
landsins með þátttöku í varnarstarf-
semi vestrænna ríkja og varnar-
samningi við Bandaríkin. Allan
þennan tíma höfum við notið vernd-
ar bandalagsþjóða okkar. „Friðar-
hópar“ á íslandi hafa að mestu þagn-
að í andstöðu sinni við þessa vamár-
stefnu og má segja að nær full
pólitísk samstaða sé um hana nú. Á
síðari tímum hefur fylgi vaxið við
nánara samstarf við Evrópuríkin, þá
einkum Efnahagsbandalagslöndin,
en þar ríkir nú nokkur bjartsýni á
að ríkjasamsteypa verði raunveruleg
innan fárra ára, til að treysta stöðu
þeirra gagnvart umheiminum.
Þegar Irakar réðust með skrið-
drekum sínum á vinveitt nágranna-
ríki og gerðu sig líklega til að gera
hið sama við Sádí-Arabíu og ógna
þar með ekki bara efnahag Evrópu
heldur grundvallar öryggishags-
Wordnámskeið • Macintosh
©
Word er fjölhæfasta ritvinnsluforritið fyrir Macintosh!
12 klst námskeið fyrir byrjendur og lengra komna!
<%>
Tölvu- og verkfræöiþjónustan
Grensásvegi 16 - fjögur ár í forystu
Obreyti vprd 1 héiít ar
SIEMENS-sæð/
OG GÓÐAR
ELDAVÉLAR FRÁ SIEMENS
Þessar sívinsælu eldavélar frá SIEMENS eru einfaldar í
notkun, traustar, endingargóðar og á mjög góðu verði.
HS 24020
■ Breidd 60 sm
■ Grill
■ 4 hellur
■ Geymsluskúffa
■ Verð kr. 46.300,-
HN 26020
Breidd 50 sm
Grill
4 hellur
Geymsluskúffa
Verð kr. 39.900,-
Munið umboðamenn okkar iríðs vegar um landið.
• Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs.
• Borgarnes: Glitnir.
• Borgarfjörður: Rafstofan Hvítárskála.
• Hellissandur: Verslunín Blómsturvellir.
• Grundarfjörður: Guðni Hallgrímsson.
• Stykkishólmur: Skipavík.
• Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar.
• ísafjörður: Póllinn hf.
• Sauðárkrókur: Rafsjá hf.
• Siglufjöröur: Torgið hf.
Akureyri: Sír hf.
Húsavík: öryggi sf.
Neskaupstaöur: Rafalda hf.
Egilsstaðir: Raftækjav. Sveins Guömunds.
Breiðdalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss.
Höfn í Hornafirði: Kristall.
Vestmannaeyjar: Tróverk hf.
Hvolsvöllur: Kaupfólag Rangæinga.
Selfoss: Árvirkinn hf.
Garöur: Raftækjav. Siguröar Ingvarssonar.
Keflavfk: Ljósboginn.
SMITH &NORLAND
NÓATÚNI 4 - SÍMI 28300
munum hennar til lengri tíma litið,
hefði mátt búast við samstíga við-
brögðum. Önnur varð þó reyndin.
Hvar var Evrópa og samstarf henn-
ar þegar á reynir? Evrópa er ijöl-
mennari en Bandaríkin og inniheldur
sum ríkustu ríki í heimi. Flest þeirra
drógu lappirnar þegar virkilega
reyndi á samstarf og samhæft átak.
Forysta Bandaríkjanna og frum-
kvæði Breta í að senda herafla til
að mæta árás og yfirgangi íraka
sýndi að orðum verður að fylgja vilji
til að standa saman þegar á reynir.
Fleiri Evrópuríki hafa nú bæst í
hópinn í því alþjóðlega átaki sem
nú fer fram við að setja írökum
skorður og hafa af því mikinn til-
kostnað. íslendingar hafa sömu
hagsmuni af því og aðrar Evrópu-
þjóðir að Irökum séu settar skorður
í útþenslustefnu sinni.
Auðun Svavar Sigurðsson
Viðskiptabann gegn írak, sem
Sameinuðu þjóðirnar samþykktu,
bitnar harkalega á sumum Banda-
lagsþjóðum okkar í NATO, einkum
Tyrkjum sem lokuðu einni aðal olíu-
útflutningsæð íraka sem liggur um
land þeirra. Tyrkir sem eiga landa-
mæri að írak og eru fátæk þjóð
borið saman við íslendinga, hafa
yfir að ráða einum stærsta herafla
í NATO. Við íslendingar sem notið
höfum góðs af samstarfi við Tyrki
í NATO í gegnum tíðina, eigum að
taka þátt í því alþjóðlega átaki að
setja írökum skorður, með því að
senda Tyrkjum fjárhagslegan styrk
til að mæta þeirra kostnaði af við-
skiptabanninu, ekki bara táknrænan
styrk heldur hlutfallslegan við aðrar
„Við íslendingar sem not-
ið höfum góðs af sam-
starfí við Tyrki í NATO
í gegnum tíðina, eigum
að taka þátt í því alþjóð-
lega átaki að setja Irökum
skorður, með því að senda
Tyrkjum Qárhagslegan
styrk...“
Evrópuþjóðir. Við getum nú sýnt
vilja okkar í verki til Evrópusam-
starfs. Tækifærið er núna til að
stöðva íraska ógnvaldinn, því ef við
hlustum á „friðarhópana“ nú í sam-
skiptunum við írak er líklegt að af-
leiðingarnar gætu orðið enn hprmu-
legri en seinni heimsstyijöldin.
Höfundur er lœknir og stundar
framhaldsnám í skurðlækningum
í Bretlandi.
Opið bréf...
til okkar allra
eftir Ragnheiði
Davíðsdóttur
Sögusvið 1: Miklabrautin í
Reykjavík. Ekið eftir vinstri akrein
á 70 km hraða. Farþegar: Ökumaður
er kona. Hún er með bílbeltin spennt
vegna þess að einhvers staðar heyrði
hún um skyldunotkun bílbelta. í aft-
ursætinu sitja þrjú böm á aldrinum
3-12 ára. Konan, móðir barnanna,
ákvað að láta elsta bamið sitja með
bílbeltin í framsætinu. Hafði hún
ekki líka heyrt það einhvers staðar
að börnin ættu að sitja í aftursæt-
inu? Hún reykir. Allir gluggar bflsins
em lokaðir. Bömin slást; pirruð, af
kæfandi sígarettureyknum. „Viljið
þið hætta að rífast og sitja kyrr,“
öskrar hún og lítur aftur fyrir sig.
Af hveiju var hún ekki búin að koma
því í verk að láta setja bílbelti í aftur-
sætin.
Högg. Börnin hendast fram í
bílinn. Sígarettan dettur í gólfið.
Grátur. Sírenuvæl. — Harmleikur.
Morgunblaðið daginn eftir:
Þriggja ára barn í lífshættu eftir
umferðarslys á Miklubraut. Tvö börn
slösuðust einnig í árekstrinum. Öku-
maður bílsins slapp án meiðsla og
er talið að bílbelti hafa orðið honum
til lífs.
Sögusvið 2: Þjóðvegur 1. Sveita-
ball. Ungur maður með rauðhlaupin
augu hækkar í útvarpinu um leið
og hann skiptir úr þriðja gír í þann
fjórða. Hraðamælirinn stígur í átt
að 120 km tölunni. Hann veit að
hann ætti ekki að sitja undir stýri
en hverra kosta átti hann völ? Það
fékkst enginn annar til þess að
keyra. Hann var jú sá sem hafði
minnst dmkkið og einhvern veginn
urðu þau að komast heim. Svo hafði
hann líka gert þetta svo oft og af
hveiju ætti það ekki að takast núna.
Hann svimar svolítið og hristir höf-
uðið til þess að halda athyglinni við
aksturinn. Nú vom bara örfáir kíló-
metrar á áfangástað. „Láttu nú bölv-
aða tíkina hreyfast," heyrir hann
kallað úr aftursætinu í gegnum dynj-
Ragnheiður Davíðsdóttir
Höfundur ber ökuskírteini46703
og cr þátttakandi íÁhugahóp um
hætta umferðarmenningu.
I
andi rokktónlistina úr útvarpinu. Og
það gerir hann — enda þekktur fyr- (
ir allt annað en jarðarfararakstur
um þjóðvegi landsins. Allt í einu
blindast hann af háum ljósgeisla bíls
sem kemur úr gagnstæðri átt. „Ætl-
ar mannfjandinn ekki að lækka ljós-
in,“ hugsar hann með sér staðráðinn
í að láta ekki í minni pokann fyrir
þessum þijóska bflstjóra. Högg.
Brothljóð. Stunur. Dauðaþögn. —
Harmleikur.
Morgunblaðið daginn eftir: Ung
hjón biðu bana í umferðarslysi þegar
tveir bílar lentu saman í hörðum
árekstri á þjóðvegi 1. Þijú ungmenni
slösuðust alvarlega og vom enn í
lífshættu þegar síðast fréttist. Öku-
maður er grunaður um ölvun við
akstur.
Mundu að akstur er dauðans
alvara þar sem örlögin ráðast á
sekúndubroti. Ef þú vilt ekki verða |
þátttakandi í næsta harmleik um-
ferðarinnar þá skaltu varast vítin á
meðan þú hefur líf og heilsu til. |