Morgunblaðið - 25.09.1990, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990
19
Atta leitarmenn í hrakningum á Gnúpveijaafrétti:
Gera þurfti út leiðang-
ur eftir leitarmönnum
Eystra-Geldingaholti.
LEITARMENN á Suðurlandi
lentu margir hverjir í miklum
erfiðleikum vegna veðurs í
síðustu viku. Var veður mjög
óvenjulegt og muna menn ekki
annað eins á þessum árstíma.
Atta menn fóru í eftirsafn héðan,
einn á dráttarvél og sjö smalar.
Voru þeir búnir að vera á ferðinni
í þijá daga og allt gengið vel. Á
mánudag var glampandi sól og veð-
ur eins og fagurst verður á fjöllum.
Þeir voru þá að smala Norðurlaut-
ina, landssvæðið milli Kisu og Dals-
ár. Á þriðjudagsmorgun voru þeir
staddir í Bjarnalækjarbotnum.
Hafði veður versnað nokkuð en
smalarnir lögðu samt af stað og var
ferðinni heitið í Gljúfurleit sem er
nokkuð sunnar.
Trússarinn, Ólafur Jónsson, var
einn eftir. Um hálftíma eftir að
þeir lögðu af stað versnaði veður
til muna og átti Ólafur í miklum
erfiðleikum vegna snjós og bleytu.
Tók það hann margar klukkustund-
ir að komast áfram smáspotta og
þurfti hann á endanum að hafast
við í dráttarvélinni um nóttina.
Tveir vagnar voru aftan í dráttar-
vélinni og voru birgðir smalanna á
öðrum en nítján kindur, sem tekist
hafði að smala saman, á hinum.
Sem betur fer var Ólafur með síma
og gat því verið í stöðugu sam-
bandi við byggð. Enginn leið var
hins vegar til að komast í samband
við smalana og höfðu menn miklar
áhyggjur af þeim.
Um leið og mönnum var ljós stað-
an var ákveðið að gera út leiðang-
ur. Var farið af stað upp úr klukk-
an fjögur á þriðjudeginum á einni
dráttaivél og tveimur jeppum. Voru
leiðangursmenn sex klukkustundir
að brjótast inn í Gljúfurleit en
venjulega er þetta um tveggja tíma
ferð. Veður var mjög slæmt þegar
komið var inn á afrétt og ófærð
mikil.
Öllum til mikils léttis voru smal-
arnir allir saman komnir í leitar-
skálanum í Gljúfurleit. Var það
þeirn einnig mrkill léttir að heyra
að Ólafur væri við góða heilsu.
Haldin var ráðstefna í húsinu og
ákveðið að fá gröfu til að komast
inn eftir. Var svo farið á gröfu,
öðrum jeppanum og dráttarvél inn
í Bjarnalækjarbotna en þangað var
komið um tíuleytið morguninn eftir.
Komust menn loks til byggða á
fimmtudagskvöld með um fimmtíu
kindur.
Nær víst er að töluvert sé enn
eftir að fé og líklegt að fjölga þurfi
fólki í síðustu leit.
Jón
Hagstætt verð og greiðsluskilmálar!
Heildsala og smásala:
\J VATNSVIRKINN HF.
ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966
■ÉÍÉÉÍ LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416
Apricot Scrub frá St. Ives er
hreinsikrem með sérstökum
slípikomum sem hreinsa
mjúktega burt óhrein og
dauð húðlög. Apricot Scmb
örvar blóðrásina og gefur
húðinni styrkjandi nudd en
er samt svo milt að það má
nota daglega.
Facial Cleanser frá St. Ives
er mitt, fitulaust hreinsi-
krem, fyrir allar húðgerðir.
Það hreinsar fullkomlega
burtu andlits- og augn-
farða, án nokkurrar
ertingar.
Collagen Elastin frá St. Ives
er alhliða rakakrem fyrir
andlit. Notaðu Collagen
Elastin kvölds og morgna
ogþað mun byggja upp húð
þína og viðhalda teygjan-
leika hennar og œskuljóma.
Pure Clay Masque frá St.
Ives er styrkjandi hreinsi-
maski sem gott er að nota
einu sinni í viku. Hann er
unninn úr jarðleir og
grceðandi jurtum. Maskinn
dregur úr ummerkjum
þreytu, djúphreinsar
húðina og mýkir.
IbÐVAL hf.
SKÚTUVOGUR100 125 RVK. S: 687370 &686570
St. Ivesfœst í betri matvörurerslunum og stórmörkuðum