Morgunblaðið - 25.09.1990, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990
21
daginn 26. september kl. 15.30 í
Breiðholtskirkju.
BÚSTAÐASOKN: Þriðjudaginn
25. september kl. 17.30 í Bústaða-
kirkju.
DIGRANESSÓKN: Miðvikudaginn
26. september kl. 13-15 í Safnaðar-
heimilinu við Bjarnhólastíg.
"FELLASÓKN: Fermingarbörn úr
Fellaskóla komi miðvikudaginn 26.
september kl. 18 í Fella- og Hóla-
kirkju.
GRAFARVOGSSÓKN: Sóknar-
presturinn mun hafa samband við
væntanleg fermingarbörn sín í
Foldaskóla vikuna 24.-28. septem-
ber. Viðtalstími sóknarprestsins er
í Foldaskóla þriðjudaga, miðviku-
daga og fimmtudaga kl. 17-18.
GRENSÁSSÓKN: Þriðjudaginn
25. september kl. 16-18 í safnaðar-
heimili Grensáskirkju v/Austurver.
HALLGRÍMSSÓKN: Miðvikudag-
inn 26. september kl. 16, í Hall-
grímskirkju.
HÁTEIGSSÓKN: Fimmtudaginn
27. septeniber kl. 15 í Háteigs-
kirkju.
HJALLASÓKN: Miðvikudaginn
26. september kl. 15-17 að Lyng-
heiði 21, sem er hús KFUM og K.
HÓLABREKKUSÓKN: Ferming-
arbörn úr Hólabrekkuskóla komi
fimmtudaginn 27. september kl. 16
í Fella- og Hólakirkju.
KÁRSNESSÓKN: Sóknarprestur-
inn mun hafa samband við væntan-
leg fermingarbörn sín í Kársnes-
skóla vikuna 24.-28. september.
Viðtalstími prestsins er á mánudög-
um, miðvikudögum og föstudögum
kl. 11.30-12.30.
LANGHOLTSSÓKN: Laugardag-
inn 29. október kl.?? í safnaðarheim-
ili Laugarneskirkju.
LAUGARNESSOKN. Þriðjudag-
inn 25. september kl. 17-18 í safn-
aðarheimili Láugameskirkju.
NESSÓKN: Þriðjudaginn 25. sept-
ember kl. 15.30 í Neskirkju.
SELTJARN ARNESSÓKN: Mið-
vikudaginn 26. septemberkl. 14-17.
Guðmundur Þorsteinsson
dómprófastur.
Þingmenn
Suðurlands á
ferð í Eyjum
Vestmannaeyjum.
ÞINGMENN Suðurlandskjör-
dæmis voru á ferð í Eyjum fyrir
skömmu til viðræðna við bæjar-
yfirvöld og til að kynna sér stöðu
ýmissa mála.
Þingmennimir komu til Eyja árla
morguns og fóra um bæinn ásamt
bæjarstjóra og bæjarráði. Bæjarveit-
ur voru heimsóttar, starfsemi Vern-
daðs vinnustaðar skoðuð og litið inn
í saltfiskpökkunarverksmiðju, sem
verið er að koma af stað í Eyjum.
Þá funduðu þingmennirnir með út-
flytjendum ísfisks í Eyjum og Jóni
Steinari Gunnlaugssyni lögfræðingi
þeirra.
Þingmennirnir snæddu hádegis-
verð í boði stjórnar Herjólfs en síðan
voru hafnarmannvirki skoðuð. Að
þVí loknu vora framhaldsskóli, stýri-
mannaskóli, sjúkrahús og sambýli
fatlaðra skoðuð en síðan var haldinn
fundur bæjarstjórnar með þing-
mönnunum.
Síðdegis héldu þingmennirnir
síðan frá Eyjum, eftir að hafa fræðst
um málefni bæjarins og stöðu fram-
kvæmda þar.
Grímur
1 ^ r^AINLÍi
'DS
£tiiu i /■ i/ ‘M ■■$
uKœrMAmnH . nk£ ' J
»i Vf ».».-*» ^
■ ESI
B 2000922!
:mn«un
m
5.PANKK!
O
JALDEYRISVIÐSKIPTIN
ERU NÚ EINFALDARI
1 U.%
mrJÁ
<D
- en upplýsingar um tilefni viðskipta, nýrra sem
hefðbundinna, verða aðfylgja og berast banka,
sparisjóði eða gjaldeyriseftirliti Seðlabankans.
Hinn 1. september sl. gengu í gildi nýjar reglur um öll gjaldeyrisviðskipti.
Samkvæmt þeim er aflétt hömlum á margs konar gjaldeyrisviðskiptum, ýmist að fullu
eða innan tiltekinna skilyrða,fcsem áður voru háð leyfi frá viðskiptaráðuneytinu eða
Seðlabankanum. Bankar, sparisjóðir og gjaldeyriseftirlit Seðlabankans veita allar
nánari upplýsingar um hinar nýju gjaldeyrisreglur.
Til að tryggja áreiðanlegar upplýsingar fyrir efnahagsstjóm, einkum um
fjárstreymi til og frá landinu, er gerð krafa um upplýsingar þegar gjaldeyrisviðskipti fara
fram. í því sambandi vill Seðlabankinn leggja áherslu á eftirfarandi atriði:
Allar viðskiptagreiðslur til og frá landinu skulu fara um innlendan banka eða
sparisjóð nema Seðlabankinn heimili annað sérstaklega.
Skjalaframsetning og upplýsingar með gjaldeyrisumsóknum í banka eða
sparisjóði gefi fulla skýringu á tilefni viðskiptanna.
Einungis verðbréfafyrirtæki, sem aðild eiga að Verðbréfaþingi íslands, hafa
heimild til að hafa milligöngu um kaup og sölu á erlendum verðbréfum. Reglur
um þau viðskipti öðlast gildi 15. desember nk.
©Tilkynna ber gjaldeyriseftirliti Seðlabanka íslands um kaup á fasteignum erlendis
á þar til gerðu eyðublaði sem fæst í bönkum, sparisjóðum eða hjá gjaldeyriseftir-
litinu og greinir reglur er gilda um eftirfarandi gjaldeyriskaup.
Tilkynna ber gjaldeyriseftirliti Seðlabanka íslands um opnun reikninga í
erlendum bönkum á þar til gerðu eyðublaði sem fæst í bönkum, sparisjóðum og
hjá gjaldeyriseftirlitinu.
Innlendum aðilum og erlendum ferðamönnum er heinjilt að flytja með sér til
landsins eða úr landi innlendan gjaldeyri sem þeir hafa eignast með löglegum
hætti.
Reykjavík, 18. september 1990.
SEÐLABANKI ÍSLANDS
LJOSRITUNARVELAR
Fjölbreytt úrval, frá þeim minnstu upp í afar fullkomnar
og afkastamiklar ljósritunarvélar.
If teslhi ELEI yai
t; AX
Frá litlum upp í afar fullkomin telefaxtæki.
HUÓIMWBR OPTÍMA
Akureyri
ARMULA 8 - SIMAR 84900, 688271