Morgunblaðið - 25.09.1990, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990
Bresku smáflokkamir
benast fyrir lífi sínu
St. Andrews. Frá Guðmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
BRESKU smáflokkarnir, Frjáls-
lyndir lýðræðissinnar, Skoskir
þjóðernissinnar og græningjar
hafa haldið ársfundi sína að
undanförnu. Skoskir þjóðernis-
sinnar kusu nýjan leiðtoga í síð-
ustu viku. Vill hann herða á
baráttunni fyrir sjálfstæði Skot-
lands.
Fijálslyndir lýðræðissinnar
Líbería;
Taylor boð-
ar kosningar
Abidjan. Reuter.
CHARLES Taylor, uppreisnafor-
ingi í Líberíu, segist hafa tekið
stjórn landsins í sínar hendur og
hefur boðað kosningar þann 10.
október næstkomandi. Vopnahlé
það sem lýst var yfir í landinu á
laugardag í átökum liðsmanna
Taylors og friðargæslusveita
Vestur-Afríku-ríkja hefur verið
haft í heiðri.
Taylor sagði í gær í samtali við
breska útvarpið að andstæðingum
sínum yrði heimilt að bjóða fram í
kosningunum, þ. á. m. Prince John-
son og hans mönnum. Taylor sagðist
líta á sjálfan sig sem forseta landsins.
Taylor lýsti yfir vopnahléi á há-
degi á laugardag í átökum milli
sinna manna og friðargæslusveita
Vestur-Afríkuríkja. Vopnahléð hefur
að mestu verið haft í heiðri. Taylor
hefur nú allt landið á sínu valdi ef
undan er skilinn nokkur hluti höfuð-
borgarinnar. Þar eru liðsmenn upp-
reisnarforingjans Prince Johnsons en
þeir hafa ekki tekið þátt í bardögum
um skeið. Fyrir tveimur vikum felldu
stuðningsmenn Johnsons forseta
landsins, Samuel Doe. Nokkrir
stuðningsmenn forsetans halda enn
uppi mótspymu gegn Taylor.
Talsmaður friðargæslusveita
Vestur-Afríkuríkja gerði í gær lítið
úr yfirlýsingum Taylors um kosning-
ar og sagði að ekki væri hægt að
treysta þeim. Nú eru um 6.000 her-
menn í friðargæslusveitunum sem
koma frá fímm ríkjum Vestur-Afr-
íku.
héldu ársfund sinn nýlega, en þeir
eru nú stærstir af breskum smá-
flokkum. Þeir eru að ná sér eftir
átökin við jafnaðarmenn, en sögu
þeirra undir forystu Davids Owens
er nokkurn veginn lokið. Paddy
Ashdown, leiðtogi fijálslyndra lýð-
ræðissinna, stvrkti stöðu sína á
ársfundinum. Ýmislegt bendir til
þess að flokkurinn sé á leið úr
þeirri kreppu, sem hann hefur ver-
ið í.
Skoskir þjóðernissinnar, sem
eiga fjóra þingmenn, kusu nýjan
leiðtoga á ársfundi sínum. Það var
Alex Salmond, ungur þingmaður.
Í ræðu sinni á þinginu sagði nýi
leiðtoginn, að flokkurinn myndi
ótrauður stefna að því að gera
Skotland sjálfstætt ríki. Hann ætl-
aði að taka við af Verkamanna-
flokknum sem stærsti flokkur
Skotlands. Skoskir þjóðernissinnar
njóta nú stuðnings ríflega 20%
kjósenda í Skotlandi.
Breski umhverfisverndarflokk-
urinn, græningjar, hóf ársfund sinn
um helgina. A honum komu fram
öflug mótmæli við stefnu Thatch-
er-stjórnarinnar í Persaflóa og
kröfur um að kalla heim breska
hermenn. Flokksmenn gagnrýndu
stefnu stjómvalda og Verkamann-
aflokksins í umhverfismálum. Þeir
sögðu til dæmis að hreinlæti á
breskum baðströndum stæðist ekki
kröfur EB, þótt bresk stjórnvöld
héldu því fram.
Stjórnmálaskýrendur telja
flokkinn í álíka útrýmingarhættu
og ýmsar þær dýrategundir, sem
græningjar bera fyrir bijósti.
Reuter
Varnarbarátta Mohawk-indíána
Lítt hefur miðað í friðarviðræðum fulltrúa stjórnvalda í Kanada og
Mohawk-indíána, sem telja yfirvöld hafa brotið á helgum rétti sínum
til yfirráða á landsvæði í Quebec-ríki. Indíánarnir halda nú til á
spildu lands sem hermenn hafa girt af með gaddavír og sýnir
myndin ungan indíána sýna hug sinn til herliðsins.
Æðsta ráðið frestar atkvæðagreiðslu um framtíðarskipan sovéskra efnahagsmála:
Gorbatsjov boðar mála-
miðlun fyrir 15. október
Moskvu. Reuter.
ÆÐSTA ráðið, þing Sovétríkjanna, samþykkti í gær að slá á frest
atkvæðagreiðslu sem fyrirhuguð hafði verið um framtíðarstefnu
Sovétstjórnarinnar á efnahagssviðinu. Þess í stað samþykkti þing-
heimur að veita Míkhaíl S. Gorbatsjov þriggja vikna frest til að
leggja fram nýja áætlun um hvernig innleiða beri fijálst markaðs-
hagkerfi í Sovétríkjunum. Þannig hafa þingmenn samþykkt að
gera beri grundvallarbreytingar á miðstýrðu tiskipanakerfí Sovét-
stjórnarinnar á vettvangi efnahagsmála en nokkrir þekktir sov-
éskir hagfræðingar ítrekuðu í gær fyrri efasemdir um að gerlegt
væri að bræða saman í eina þær ólíku tillögur sem kynntar hafa
verið á þingi á undanförnum vikum.
Gorbatsjov hvatti til þess í ræðu
á þingi í gærmorgun að atkvæða-
greiðslu yrði frestað til þess að
unnt yrði að ná sáttum í deilunni.
Áframhaldandi deilur og átök
gerðu það að verkum að ekki yrði
unnt að framkvæma þessi róttæku
umskipti. Borin var upp tillaga um
SIEMENS
« Þurrkari á tilboösveröi!
• Stórt lúguop og stór lósía
• Öryggislæsing og kæling í lok
þurrkunar til að forðast krumpur.
• Tekur 4,5 kg af þvotti.
• Sérlega hagkvæmur og spameytinn.
Staðgreiðsluverð: 39.900 kr.
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
að samin yrði ný áætlun um hvem-
ig innleiða bæri markaðsbúskap í
Sovétríkjunum og greiddu 285
þingmenn henni atkvæði sitt. 36
greiddu atkvæði gegn tillögunni
og 60 sátu hjá. Sagði Gorbatsjov
í ræðu sinni að hrinda bæri nýju
áætluninni í framkvSemd þann 15.
næsta mánaðar. Þannig var honum
veittur þriggja vikna frestur til að
leggja fram nýja áætlun og verður
það gert í samvinnu við fulltrúa
er sitja í tilteknum nefndum á
þingi.
Gjörólíkar áætlanir
Boðað hafði verið að atkvæði yrðu
greidd á þingi í gær en þijár ólík-
ar áætlanir um umskipti þessi hafa
CASCAMITE
VATNSHELT
TRÉLÍM
verið lagðar fram. Lengst gengur
áætlun sem kennd er við hagfræð-
inginn Staníslav Sjatalín og gerir
ráð fyrir að fijálst hagkerfi, með
tilheyrandi sölu ríkisfyrirtækja og
afnámi tilskipanakerfsins, verði
innleitt á 500 dögum. Nikolaj
Ryzhkov forsætisráðherra lagði
hins vegar til að breytingar þess-
ar yrðu framkvæmdar á mun
lengri tíma og að ekki yrði hróflað
við ýmsum grunnþáttum miðstýr-
ingar Sovétstjórnarinnar. Þriðju
áætlunina lagði síðan hagfræð-
ingurinn Abel Abganabegíjan
fram í síðustu viku en hún þykir
nauðalík áætlun Sjatalíns. Míkha-
íl Gorbatsjov hafði lýst sig hlynnt-
an helstu grunnþáttum áætlunar
Sjatalíns og kvaðst síðar jafn-
framt geta fellt sig við tillögur
Aganabegíjans en lýsti því síðan
óvænt yfir í gær að fella bæri
helstu þætti tillagna þessara sam-
an í eina, sem síðan yrði borin
undir þingheim.
Neikvæð viðbrögð
Staníslav Sjatalín brást hinn
versti við er niðurstaða þessi lá
fyrir: „Ég neita að taka þátt í
slíkum skrípaleik,“ sagði hann og
barði hnefanum í ræðupúltið.
Veníjamín Jarín, sem situr líkt og
Sjatalín í Forsetaráðinu svo.-
nefnda, ráðgjafarnefnd Gor-
batsjovs, kvaðst einnig telja þessa
niðurstöðu miður heppilega.
Nauðsynlegum ákvörðunum hefði
einungis verið slegið á frest og
sýnt væri að sami leikurinn yrði
endurtekinn að þremur viknum
liðnum. Leoníd Abalkín, aðstoðar-
forsætisráðherra Sovétríkjanna,
tók í sama streng og kvað niður-
stöðu þá sem atkvæðagreiðslan
leiddi í ljós, óviðunandi. Nikolaj
Ryzhkov sagðist hins vegar telja
þessa niðurstöðu vel viðunandi en
hann hafði í sjónvarpsávarpi á
sunnudag lýst yfir því að áætlun
Sjatalíns yrði aðeins til þess að
kalla frekari hörmungar yfir Sov-
étríkin. Andstæðingar forsætis-
ráðherrans telja hins vegar að
ekki sé unnt að slá því lengur á
frest að gera grundvallarbreyt-
ingar á hagkerfi Sovétríkjanna
og vísa til sívaxandi skorts á
nauðsynjum og aukinnar óigu í
samfélaginu vegna versnandi líf-
skjara.
Óviðunandi valkostir
Sýnt þykir að Gorbatsjov hafi
frestað atkvæðagreiðslunni til að
afstýra a.m.k. um stundarsakir
frekari deilum og átökum. Bent
er á að Ryzhkov forsætisráðherra
hefði að líkindum neyðst til að
segja af sér hefði þingheimur lagt
blessun sína yfir tillögu Sjatalíns
eða áætlanir Aganabegíjans.
Sjálfur hefur forsætisráðherrann
sagt að hann muni ekki hrinda í
framkvæmd áformum sem hann
hafi enga trúa á. Hefðu þingmenn
á hinn bóginn samþykkt tillögur
forsætisráðherrans hefði Gorb-
atsjov fengið ráðamenn í velflest-
um lýðveldum Sovétríkjanna upp
á móti sér þar eð Ryzhkov vill
að miðstýringarvaldi ráðamanna
í Kreml á efnahagssviðinu verði
viðhaldið í velflestum greinum.
Norska skipinu
Genius sleppt
Ósló. flf'ufPr JL.
Ósló. Reuter.
SOVÉSK flotayfirvöld slepptu í
gær norska skipinu Geiiius sem
er í eigu umhverfísverndarsam-
takanna Bellona í Noregi. Sov-
étmenn tóku það í sína vörslu
fyrir þremur dögum þegar það
var á siglingu á norðurskauts-
svæðinu til að mótmæla kjarn-
orkutilraunum þar.
Áhöfnin var að safna sýnum
úr hafínu í grennd við sovésku
eyna Novaja Zemlja á föstudag,
þvert ofan í fyrirmæli Sovét-
manna, þegar skipið var tekið.
Sovétmenn hafa gert tilraunir með
kjarnorkuvopn á eynni og höfðu
norsku umhverfisverndarsamtökin
heyrt að ein slík tilraun yrði gerð
fyrir septemberlok.
Áhöfnin var yfírheyrð, en skipið
er nú komið til Kirkenes í Norður-
Noregi.