Morgunblaðið - 25.09.1990, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990
27
Fjármál forsætisráðherra Noregs:
Ríkislögmaðxir og skattay firvöld
meta réttarstöðu Jans P. Syse
Ósló. Frá Helge Sorensen, frcttaritara Morgunblaðsins.
DEILAN um cinkafjármál Jans P. Syse, forsætisráðherra Noregs, er
nú komin til umfjöllunar hjá norska ríkislögmanninum. Þá munu skatta-
yfirvöld leggja mat á flókin atriði málsins. Forsætisráðherrann hefur
sagt afdráttarlaust, að hann ætli ekki að segja af sér cmbætti. Hann
harmar að hafa brotið af sér, en leggur áherslu á að hann hafi á eng-
an hátt hagnast á því eða valdið öðrum tjóni.
Georg Fredrik Rieber-Mohns ríkis-
lögmaður rannsakar nú einkafjármál
norska forsætisráðherrans. Hann
hefur farið yfir skýrslur endurskoð-
unarfyrirtækisins Birkeland og Ulv-
holt og hæstaréttarlögmannsins Há-
kons Lochens. Ríkislögmaðurinn tel-
ur mikilvægt að málið fái sömu með-
ferð og það fengi éf almennur borg-
ari hefði átt í hlut. Hann hefur því
haft samráð við ríkisskattstjórann í
því skyni að fá mat lagt á flókin
skattaatriði. Hann hefur jafnframt
beðið skattstjórann að taka málið
fyrir eins fljótt og auðið sé. Loks
hefur hann beðið skattayfírvöld að
meta hvort málið sé þess eðlis að
senda verði það til meðferðar ákæru-
valdsins.
Forystumenn þeirra flokka sem
starfa með Syse í ríkisstjórn, Kjell
Magne Bondevik, formaður Kristi-
lega þjóðarfiokksins, og Johan J.
Jakobsen, formaður Miðflokksins,
Grein í tímariti í Chile:
Allende íramdi sjálfsmorð
en féll ekki í valdaráni
TÍMARIT sem talið er hallt undir
vinstrisinna í Chile birti nýlega
grein þar sem segir að Salvador
Allende, fyrrum forseti landsins,
hafi ekki fallið í valdaráni hersins
árið 1973, heldur hafi hann fram-
ið sjálfsmorð.
í frétt dagblaðsins International
Herald Tribune um frásögn tímarits-
ins Análisis segir að fullyrðingar um
sjálfsmorð Allendes hafí komið, fram
strax eftir að herinn rændi völdum
í Chile 11. september 1973. Þeim
hafí hins vegar verið vísað á bug af
marxistum. Er sagt, að Análisis sé
með grein sinni nú að fá kommún-
ista, sósíalista og aðra þá sem studdu
Allende til að sætta sig við þá stað-
reynd að hann hafi framið sjálfs-
morð.
í Análisis er fullyrt að Fídel Castro
Kúbuleiðtogi og Moskvuútvarpið hafí
í sameiningu komið þeim tilbúningi
á framfæri að Allende hafí verið
myrtur í valdaráninu. „Á þennan
hátt meðhöndluðu vinstrisinnar um
heim allan sinn eigin sannleika um
síðustu stundir Allende," segir í
greininni.
Jarðneskar leifar Salvadors All-
ende voru nýlega grafnar upp og
jarðsettar á ný við virðulega athöfn
í Santiago. í grein sinni í Análisis
segir stjórnmálaritstjóri tímaritsins,
Francisco Martorell, að læknar og
aðrir sérfræðingar er skoðuðu jarð-
neskar leifar forsetans fyrrverandi
hafí staðfest að hann hafi framið
sjálfsmorð. Kemur þetta heim og
saman við fullyrðingar Patricios Gui-
jons Kleins, fyrrum líflæknis forset-
ans.
Allende hafði verið við völd í tæp
þrjú ár er honum var steypt af stóli.
Sérstök rannsókn sem gerð var á
vegum þingnefndar í Bandaríkjunum
leiddi í ljós að bandaríska leyniþjón-
ustan, CIA, hefði veitt ýmsum hópum
í Chile er efndu til verkfalla og mót-
mæla gegn Allende, fjárstuðning.
sögðu aðfaramótt laugardags að
þeir bæru fyllsta traust til forsætis-
ráðherrans. í norskum fjölmiðlum er
talið, að Syse sé hinn eini af forystu-
mönnum Hægriflokksin, sem hafi
hæfileika til að halda núverandi sam-
steypustjórn borgaraflokkanna sam-
an. Skoðanakannanir í síðustu viku
sýndu, að fylgi Hægriflokksins meðal
kjósenda minnkaði um 3,7%. Fram-
faraflokkurinn fékk þetta fylgi í sinn
hlut, en hann hefur skipað sér hægra
megin við Hægriflokkinn. Gunnar
Berge, formaður þingflokks Verka-
mannaflokksins, stærsta stjórnar-
andstöðuflokksins, segir að ljóst sé
að staða forsætisráðherrans hafí
veikst og ástæða sé til að skoða
skýrslurnar um mál hans nánar.
Syse sagði sjálfur á blaðamanna-
fundi skömmu fyrir miðnætti á föstu-
dagskvöld, að hann héldi áfram sínu
starfi án þess að hafa á tilfínning-
unni að staða sín væri veik. Hann
mundi gera það sem í hans valdi
stæði til að rækja embætti sitt vel í
framtíðinni. Hann viðurkenndi þó að
liðin vika hefði verið ákaflega erfið
og þakkaði öllum sem hefðu veitt
honum stuðning.
Forsætisráðherrann var einarðleg-
ur á blaðamannafundinum. Hann
svaraði mörgum af spumingum
þeirra um það bil 100 fréttamanna,
sem sóttu fundinn, með því að vísa
til fyrrnefndra skýrslna sem þá lágu
fyrir. Hann hvatti fréttamennina til
að skoða skýrslu endurskoðendanna
vandlega áður en þeir settu fram
spurningar sínar.
í skýrslu skattasérfræðingsins,
Hákons Lochens hæstaréttarlög-
manns, sem lögð var fram á fundin-
um, kom fram að Syse hefði greitt
160.000 norskum krónum (um
1.490.000 ísl. kr.) of lítið í skatt á
árinu 1989. Lögmaðurinn segist þó
ekki trúa því að Syse hafí svikið
vísvitandi undan skatti. Syse átti að
greiða 40% skatt af hagnaði fyrir
sölu á hlutabréfum, en hagnaðurinn
var ekki gefinn upp á skattaframtali
hans fyrir þetta ár.
Lögmaðurinn er sammála þeim
sem halda fram að forsætisráðherr-
ann hafi með þessari háttsemi sinni
farið inn á „grátt“ svæði í lögfræði-
legu tilliti.
Alexander Lilov.
Reuter
Búlgarskur
flokksfor-
maður seg-
ir af sér
Sófíu. Reuter. dpa.
ALEXANDER Lilov, leiðtogi só-
síalistaflokks Búlgaríu, sagði af
sér í gær á flokksþingi í gær.
Sagðist hann vilja víkja fyrir
yngri mönnum.
Lilov tók við flokksforystunni í
febrúar síðastliðinum eftir að hann
ásamt fleirum hafði steypt Todor
Zhivkov flokksleiðtoga. Undir
stjórn Lilovs var nafni flokksins
breytt á þann veg að hætt var að
kenna hann við kommúnisma.
Flokkurinn vann mikinn sigur í
kosningum sem haldnar voru í júní.
Litlar umbætur og mikill vöruskort-
ur síðan þá virðast hafa dregið
nokkuð úr stuðningi við Sósíalista-
flokkinn. Einnig ríkir nokkur óán-
ægja í garð Lilovs vegna fortíðar
hans en hann var aðalhugmynda-
fræðingur kommúnistaflokksins
fyrir nokkrum árum. Síðar féll hann
í ónáð vegna þess að hann lagðist
gegn stalínískum valdaháttum
Zhivkovs.
ERLENT
Reuter
Winnie Mandela á leið íréttarsal
Winnie Mandela, eiginkona Nelsons Mandela, varaforseta Afríka þjóð-
arráðsins, var kvödd í réttarsal í gær til að hlýða á ákæru fyrir
líkamsárás og mannrán. Sjálf réttarhöldin hefjast ekki fyrr en í febrú-
ar. Hér sést þegar verið er að rannsaka innihald handtösku Winnie
í dómshúsi í Soweto.
BIRKENST0CK
sandalar fyrir dömur
og herra í úrvali
Teg. Arizona
Stærðir:
35-40 kr. 3.590,-
41-46 kr. 3.970,-
Skóverslun Þórðar,
Kirkjustræti 8,
sími 14181.
Eldriborgaraferð
Yeraldar til Mallorka
með Hermanni Ragnari
og hjúkrunarfræðingi
Aðeins 8 sæti laus
Við eigum enn eftir 8 sæti í þessa vönduðu ferð til Mallorka þar
sem gist er í frábærum íbúðum og þú nýtur þjónustu fararstjóra
Veraldar og hjúkrunarfræðings ásamt daglegum uppákomum með
Hermanni Ragnari.
Verð frá kr. 56.700,- *
AUSTURSTRÆT117,101 REYKJAVÍK. SÍMI: (91)622011 &622200.
FARKORT FÍFj
Verð m.v. 4 í íbúð