Morgunblaðið - 25.09.1990, Side 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990
Ert þú orðin(n) 17 ára og
VILTU STARFA I
HJÁLPARSVEIT?
Hjálparsveit Skáta í Hafnarfirði verður með kynning-
arkvöld fimmtudaginn 27. september kl. 20.00 í
húsi Hjálparsveitarinnarvið Hraunvang.
SIEMENS
Siemens frystitækin eru eins og aðrar
vörur frá þessu öndvegisfyrirtæki:
traust, endingargóð og falleg.
Lítið inn til okkar og skoðið úrvalið.
SMITH &NORLAND
NÓATÚNI 4 • SlMI 28300
Allt á sínum stað
Sem áður er hægt að fá skápana útbúna með föstum
hillum, hillustoðum, útdregnum hillum, upphengjum
bæði föstum og útdregnum fyrir skjalapoka, útdregnum
spjaldskrárhillum og útdregnu vinnuborði til að leggja á
þá hluti sem unnið er við hverju sinni. Nú eru fáanlegir
rekkarfyrir segulspólur/diska. Segulspóluupphengjur og
síðast en ekki síst upphengjur fyrir tölvumöppur. Að
stafla tölvumöppum í hillur er nú ekki lengur nauðsyn.
Möppunum er einfaldlega rennt í þar til gerðar brautir.
Ef einhver sérstök vörsluvandamál þarf að leysa biðjum
við viðkomandi góðfúslega að hafa samband við okkur
sem allra fyrst og munum við fúslega sýna fram á
hvernig Shannon skjalaskápur hefur „Allt á sínum stað".
HAGSTÆTT VERÐ. LEITIÐ UPPLÝSINGA.
ÖLAfUR OÍSLASOM % CO. Slf
SUNDABORG 22 SÍMI 91-84800
Málmiðnaður
Hugmyndir um fyrírtækjanet
fá góðan hljómgrunn
EINS og Morgunblaðið skýrði frá fyrir skömmu hefur verkefnis-
stjórn sérstaks þróunarátaks innan málmiðnaðarins ákveðið að
kanna möguleika á stofnun svonefndra fyrirtækjaneta um fram-
kvæmdir við nýtt álver og virkjanir. Hugmyndin var kynnt á fundi
aðila í málmiðnaði í síðustu viku þar sem gerð var ítarleg grein
fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum. Ingólfur Sverrisson, fram-
kvæmdastjóri Félags málmiðnaðarfyrirtækja, sagði að undirtektir
manna á fundinum hefðu verið góðar og í ljós kæmi á næstu dög-
um hvort að eitthvað yrði úr stofnun slíkra fyrirtækjaneta í einni
eða annarri mynd.
„Á fundinum kom fram mjög
mikill áhugi meðal fyrirtækja á
að kanna þetta betur með hugsan-
legt víðtækt samstarf um einstaka
verkþætti í huga. í því sambandi
eru tvö atriði e'fst í hugum manna.
Annars vegar það að menn vilja
gjarnan passa uppá að í allri þess-
ari verkefnaholskeflu gleymist
ekki þeir viðskiptavinir sem menn
hafa hingað til byggt allt sitt á.
Hins vegar vilja menn leggja sitt
að mörkum til þess að koma í veg
fyrir að útlendingar hirði ijómann
af þessum viðskiptum fyrir framan
nefið á okkur og því þarf að skipu-
leggja allar athafnir með löngum
fyrirvara,“ sagði Ingólfur.
Að sögn Ingólfs eru fyrirtæki í
ákveðnum landshlutum þegar far-
in að ræða um það hverning þau
sem geti komið inn í dæmið sem
ákveðin heild. Þar má taka sem
dæmi fyrirtæki frá Akureyri og
Suðurnesjum. „Þessi fyrirtæki
ætla sér stóra hluti í fyrirhuguðum
framkvæmdum þó svo að álverið
Tölvur
• •
Örtölvutækni með
söluumboð fyrir Star
Skrifstofuvélar selur þó prentarana áfram
FYRIRTÆKIÐ Örtölvutækni-Tölvukaup hefur fengið söluumboð
fyrir Star-prentara hér á landi ásamt Skrifstofuvélum-Sundum
en fyrirrennari þess fyrirtækis var áður með einkasöluumboð
fyrir þessa prentara, sem eru mest seldu prentararnir hér á landi,
að sögn Sigurðar S. Pálsson hjá ÖT.
Að sögn Sigurðar bindur Ört-
ölvutækni miklar vonir við Star-
prentarana þar sem hér sé um að
ræða tiltölulega ódýra gæðaprent-
ara sem henti vel fyrir heimili og
smærri fyrirtæki. Þeim markaði
segir Sigurður að Örtölvutækni
hafi hingað til ekki getað sinnt sem
skyldi, þar sem fyrirtækið hafi
einkum verið með Microline- og
Hewlett Packard prentara sem séu
ætlaðir stærri fyrirtækjum og þar
af leiðandi dýrari.
Sigurður áætlar að á síðasta
ári hafi alls selst hér á landi um
1300 Star-prentarar og þannig
verið söluhæsti prentarinn hér á
landi, næst á undan Microline og
Epson en áætlað er að í kringum
1000 prentarar af hvorri þessarar
tegunda hafi selst hér í fyrra.
Star-prentarar eru í öðru sæti yfir
söluhæstu prentaranna í Evrópu,
næst á eftir Epson, og eru þessir
japönsku prentarar í mikilli sókn
á flestum mörkuðum heims.
Friðrik Friðriksson fram-
kvæmdastjóri Skrifstofuvéla-
Sunda, segist ekki hafa áhyggjur
af því þótt annar söluaðili sé kom-
inn fram á sjónarsviðið fyrir Star-
prentara. Hann segir Star hafa
þennan háttinn á víða um lönd,
m.a. í Danmörku. Gera megi ráð
fyrir að tilkoma tveggja söluaðila
verði fyrst og fremst til að stækka
markaðinn fyrir Star hér á landi.
Sigurður Pálsson tekur í sama
streng og segist fyrst og fremst
gera ráð fyrir að samkeppnin milli
söluaðilanna muni snúast um að
veita sem besta þjónustu fremur
en að eitthvert verðstríð ríki þeirra
á milli.
verði ekki byggt í þeirra ná-
grenni. Með góðu skipulagi og
góðum fyrirvara er hægt að koma
málum svo fyrir og það er eitt af
markmiðum okkar,“ sagði Ingólf-
ur. Hann sagði ennfremur að ekk-
ert væri því til fyrirstöðu að hafa
net á bak við annað net. í fyrsta
lagi gætu til dæmis fyrirtæki af
ákveðnu landssvæði komið saman
og innan þeirra væri síðan annað
net sem væri aðili að þjónustunet-
inu.
í skýrslu sem tekin hefur verið
saman um fyrirhuguð fyrirtækja-
net kemur fram að hlutverk þjón-
ustuneta yrði m.a. að samhæfa
fyrirtækjanetin og miðla sameig-
inlegum upplýsingum, afla fag-
þekkingar á ýmsum sviðum, að-
stoða við þróun samstarfsforma,
verkskiptingar og gerð samstarfs-
samninga, afla hagstæðra við-
skiptasamninga um hráefni og
flutninga sem meira eða minna
geta nýst öllum hópnum og að-
stoða við að koma upp og sam-
nýta tækjabúnað og aðstöðu. Eins
er ætlast til þess að þjónustunetin
verði miðstöð samræmingar á að-
stoð þjónustustofnana og samtaka
atvinnulífsjns t.d. Iðntæknistofn-
unar, VSÍ og iðnaðarsamtaka.
Framangreind starfsemi þjónustu-
miðstöðva tekur fyrst og fremst
til tilboðagerðar. Þegar henni lýk-
ur tekur við framkvæmdahluti
stóriðjunetsins, en markmiðið er
eins og áður hefur komið fram að
styrkja stöðu íslenskra iðnfyrir-
tækja með aukinni samvinnu
þeirra á milli og gera þau sam-
keppnishæfari á alþjóðamörkuðum
í framtíðinni. 9
Leiðrétting
Mitshubishi með
17,5% innflutn-
ings fólkshíla
í TÖFLU sem fylgdi með frétt um
bílainnflutning sl. fimmtudag í Við-
skiptablaði Morgunblaðsins misrit-
aðist tala um innflutning Mitsubishi
fólksbifreiða fyrir árið 1990. í stað
15,5% eins og stóð í súluritinu, var
innflutningur janúar-ágúst 1990
17,5% Á sama tímabil árið 1989
var hann 18,3%, eins og réttilega
kom fram. Er beðist velvirðingar á
þessari prentvillu.
Lægsta verð á Encyclopedia Britannica hingað til.
Nú er dollarinn hagstæður til kaupa á Britannica 1990.
33 stór bindi - yfír 33000 blaðsíður - mikill fjöldi litmynda
1989 útgáfan kostaði kr. 95.000,-
Við bjóðum þér 1990 útgáfuna í vönduðu, brúnu bandi á aðeins
kr. 69.000,- gegn staðgreiðslu, eða á kr. 77.000,- með afborgunum:
Þetta einstaka tilboð gildir meðan núverandi birgðir endast.
- -
DUMDUI/ ulIilnÍiKj BERGSTAÐASTRÆTI1, SÍMI 12030. OPIÐ 1-6 eh.