Morgunblaðið - 25.09.1990, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990
37
Vetrarstarf Laugameskirkju
Æskulýðsstarf
Guðsþjónustur og barnastarf
Á hveijum sunnudegi verða guðs-
þjónustur kl. 11.00. Börnin verða
með í guðsþjónustunni til að byija
með, en þegar prédikun hefst fara
börnin niður í safnaðarheimilið og
fá fræðslu við sitt hæfi. Eftir guðs-
þjónustumar verður boðið upp á
kaffisopa í safnaðarheimilinu fyrir
kirkjugesti og einnig verður reynt
að hafa þar stutta dagskrá af og til
með þátttöku bama og unglinga.
Einu sinni í mánuði verða guðsþjón-
ustur einnig kl. 14.00 fyrir þá sem
kjósa heldur að koma í messu eftir
hádegi.
Barnastarf íyrir 10-12 ára
Á hveijum fimmtudegi verður
barnastarf fyrir 10-12 ára böm.
Fyrsta samveran verður 27. okt.
og hefst kl. 17.00. í fyrra var byij-
að á þessu starfi og tókst það mjög
vel. Börnin fá innihaldsríka fræðslu
um grundvallaratriði kristinnar trú-
ar en jafnframt er brugðið á leik
með ýmsum hætti. Umsjón með
þessu starfi hafa Jóna Hrönn Bolla-
dóttir guðfræðinemi og Ólöf Ólafs-
dóttir hjúkrunarfræðingur.
A fimmtudagskvöldum verða
fundir fyrir 13 ára og eldri og er
það starf þegar hafið, en um síðustu
helgi var landsmót unglinga í æsku-
lýðsfélögum kirkjunnar og var það
haldið i Munaðarnesi. Æskulýðs-
starf kirkjunnar í Reykjavík hefur
vaxið mjög mikið síðustu árin og
hefur í því sambandi verið stofnað
Æskulýðssamband í prófastsdæm-
inu. Umsjón með æskulýðsstarfinu
í Laugarneskirkju hefur Hreiðar
Örn Gestsson, Diðrik Eiríksson o.fl.
Bjöllukór og drengjakór
I vetur hefur verið ákveðið að
bjóða upp á fjölbreytt tónlistarlíf
fyrir börn. í því skyni verður stofn-
aður drengjakór fyrir drengi á aldr-
inum 10-14 ára. Einnig verður
stofnaður bjöllukór fyrir börn á
aldrinum 10-14 ára.
Kór Laugarneskirkju
Við Laugarneskirkju er starf-
ræktur blandaður kór. Æfingar eru
á miðvikudögum. í vetur verður
m.a. sungin Allra heilagra messa
eftir Egil Hovland 4. nóv. og í vor
verður sungin Messa eftir W.A.
Mozart. Auk þessara verkefna
verða mörg önnur smærri verk æfð
sem flutt verða við guðsþjónustur.
Ennþá er hægt að bæta við karla-
röddum og geta þeir sem áhuga
hafa hringt í síma kirkjunnar,
34516, eða haft samband við organ-
ista kirkjunnar, Ronald Turner, en
hann býður kórfélögum upp á söng-
kennslu í einkatímum.
Fermingarstarfíð
Þriðjudaginn 25. sept. eiga vænt-
anleg fenningarbörn að koma til
skráningar í Safnaðarheimili kirkj-
unnar milli 17 og 18. Það er stór
áfangi í lífi hvers unglings að und-
irbúa sig fyrir fermingu. Það er
einnig mikilvægt að foreldrarnir
taki virkan þátt í fermingarstarfinu
svo fermingin 'verði sannkölluð fjöl-
skylduhátíð.
Kyrrðarstund í hádeginu
Á. hveijum fimmtudegi er kyrrð-
arstund kl. 12 á hádegi í Laugarnes-
kirkju. Frá kl. 12.00 er leikið á
orgel kirkjunnar, en kl. 12.10 fer
fram altarisganga og fyrirbænir.
Kl. ca. 12.30 er boðið upp á léttan
hádegisverð í safnaðarheimilinu.
Þessar kyrrðarstundir voru í allan
fyrravetur og ávallt vel sóttar, enda
er þettá kjörið tækifæri til þess að
njóta kyrrðar og helgihalds í önn
dagsins. Safnaðarfólk og fólk sem
vinnur í grenndinni sækir þessar
stundir og eru þær að sjálfsögðu
bæði fyrir konur sem karla.
Starf fyrir aldraða
í vetur verður öldruðu fólki í
sókninni sinnt meir en áður hefur
tíðkast. Ekki síst verður reynt að
vitja þeirra sem eru bundnir heirna
vegna veikinda eða annarra að-
stæðna. Einnig verða mánaðarlegar
guðsþjónustur kl. 14.00 fyrir þá
sem kjósa heldur að koma í messu
eftir hádegi. í tengslum við þetta
helgihald verður boðið upp á veit-
ingar í safnaðarheimilinu.
Fræðslustarf o.fl.
Eins og áður verður annað slagið
boðið upp á fræðslukvöld um ýmis
efni og verða þau auglýst hveiju
sinni. Einnig verður kvenfélag
Laugarneskirkja
sóknarinnar með sitt hefðbundna
starf fyrsta mánudag hvers mánað-
ar.
Til þess að allt þetta starf geti
gengið þarf mikið og gott starfs-
fólk, enda er stór hópur sjálfboða-
liða þegar að starfi. Þá hefur verið
ráðinn aðstoðarprestur í hlutastarf,
en hann heitir Bjarni Karlsson.
Hann verður vígður sunnudaginn
7. okt. við guðsþjónustu f Dómkirkj-
unni kl. 10.30.
Jón Dalbú Hróbjartsson,
sóknarprestur.
RAOAUGí YSINGAR
TILBOÐ - ÚTBOÐ
Lóðaútboð:
Einbýlishúsalóðir
og raðhúsalóðir
í Setbergshlíð í Hafnarfirði eru nú til sölu
einstakar útsýnislóðir í opnu útboði. Útboðs-
gögn eru afhent á skrifstofu SH Verktaka,
Stapahrauni 4, Hafnarfirði, sími 652221.
Tilboðum skal skila fyrir kl. 18.00 15. októ-
ber 1990.
Til sölu
Mitzubishi L-300 sendibíll árgerð 1982, einn-
ig Subaru 700 sendibíll árgerð 1984,
skemmdur eftir árekstur. Nýupptekin vél og
bremsur.
Upplýsingar gefur Hallur Jónsson, verkstjóri
í vinnusíma 691600 og kvöldsíma 672523.
/3C\ OS'IAOG
( HJSMIÖRSALANSE
Bitruhálsi 2 - Reykjavík - s. 691600.
Söluturn á góðum stað í
Vesturbænum til sölu
Mánaðarleg velta 2,8 milljónir. Leigusamning-
urtil 5 ára geturfylgt. Góðirtekjumöguleikar.
Upplýsingar veittar -í vinnusíma 679399 og
heimasímum 689221 og 652090.
Traktorsgröfur
Getum útvegað á sérlega hagstæðu verði
eftirtaldar traktorsgröfur:
1) JCB 3CX Sitemaster 4x4, ný vél.
Verð án vsk................3.640.000.
2) JCB 3CX Sitemaster 4x4, 50 tímar.
Verðánvsk. ................3.270.000.
3) JCB 3CX Sitemaster 4x4, 350 tímar.
Verð án vsk................3.207.000.
4) Chase 580K 4x4 1990, 550 tímar.
Verð án vsk................2.897.000.
5) MF 50HX Elite /Servo 4x4, ný vél.
Verð án vsk................3.420.000.
6) MF 50HX “S“ 4x4, 600 tímar.
Verð án vsk................2.754.000.
7) Ford 655 Special 4x4, ný vél.
Verð án vsk................3.415.000.
Útvegum einnig varahluti í vinnuvélar.
Markaðsþjónustan,
sími 26984.
SJÁLFSTfEDISFLOKKURINN
FÉLAGSSTARF
Auglýst eftir framboðum
til prófkjörs í Reykjavík
Ákveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík við næstu alþingiskosningar fari fram dagana
26. og 27. október nk.
Val frambjóðenda fer fram með tvennum hætti:
a) Gerð skal tillaga um frambjóðendur til yfirkjörstjórnar innan ákveð-
ins frests sem yfirkjörstjórn setur. Tillagan er því aðeins gild að
hún sé bundin við einn flokksmann og getur enginn flokksmaður
staðið að fleiri tillögum en 8. Tillagan skal borin fram af 20 flokks-
mönnum búsettum í Reykjavík.
b) Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbót-
ar frambjóðendum samkvæmt a-lið, eftir því sem þurfa þykir.
Hér með er auglýst eftir framboðum til prófkjörs samkvæmt a-lið
hér að ofan. Skal framboð vera bundið við flokksbundinn einstakling
enda liggi fyrir skriflegt samþykki hans um að hann gefi kost á sér
til prófkjörs. Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í næstu alþingis-
kosningum. 20 flokksbundnir sjálfstæðismenn skulu standa að
hverju framboði og enginn flokksmaður getur staðið að fleiri framboð-
um en 8.
Framboðum ber að skila, ásamt mynd af viðkomandi og stuttu
æviágripi, til yfirkjörstjórnar á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík, í Valhöll, Háaleitisbraut 1, eigi síðar en kl. 12.00 á há-
degi mánudaginn 8. október nk.
Yfirkjörstjórn Sjálfstæöis-
flokksins í Reykjavík.
Auglýst eftir framboðum
til prófkjörs á Vestfjörðum
Ákveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðis-
flokksins í Vestfjarðarkjördæmi við næstu alþingiskosningar fari fram
27. október nk. Val frambjóðenda fer fram með tvennum hætti:
a) Gerð skal tillaga um frambjóðendur til kjörnefndar innan ákveðins
frests sem nefndin setur. Tillagan er þvi aðeins gild að hún sé
bundin við einn flokksmann og getur enginn flokksmaður staðið
að fleiri tillögum en 4. Tillagan skal borin fram af 20 flokksmönn-
um búsettum í kjördæminu.
b) Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbót-
ar frambjóðendum skv. a-lið, eftir því sem þurfa þykir.
Hér með er auglýst eftir framboðum til prófkjörs skv. a-lið hér að
ofan. Skal framboð vera bundið við flokksbundinn einstakling enda
liggi fyrir skriflegt samþykki hans um að hann gefi kost á sér til
prófkjörs. Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í næstu alþingiskosn-
ingum. 20 flokksbundnir sjálfstæðismenn búsettir ( Vestfjarðakjör-
dæmi skulu standa að hverju framboöi. Enginn flokksmaður getur
staðið að fleiri framboðum en 4.
Framboðum þessum ber að skila, ásamt mynd af viðkomandi og
stuttu æviágripi, til formanns kjörnefndar, Einars Odds Kristjánsson-
ar, Sólbakka, Önundarfirði, 425 Flateyri, eigi síðar en kl. 12.00 á
hádegi 12. október nk.
Kjörnefnd kjördæmisráðs Sjáifstæöisflokksins á Vestfjörðum.
Auglýst eftir f ramboðum
til prófkjörs á Austfjörðum
Ákveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðis-
flokksins í Austurlandskjördæmi við næstu alþingiskosningar fari
fram 27. október nk. Val frambjóðenda fer fram með tvennum hætti:
a) Gerð skal tillaga um frambjóðendur til prófkjörsnefndar innan
ákveðins frests, sem nefndin setur. Tillagan er því aöeins gild
að hún sé bundin við einn flokksmann og getur enginn flokksmað-
ur staðið að fleiri tillögum en 4. Tillagan skal borin fram af 20
flokksmönnum búsettum í kjördæminu.
b) Prófkjörsnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur tll
viðbótar frambjóðendum skv. a-lið eftir því sem þurfa þykir.
Hér með er auglýst eftir framboðum til prófkjörs skv. a-lið hér að
ofan. Skai framboðið bundið við flokksbundinn einstakling, enda liggi
fyrir skriflegt samþykki hans að hann gefi kost á sér til prófkjörs.
Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í næstu alþingiskosningum.
20 flokksbundnir sjálfstæðismenn búsettir i Austurlandskjördæmi
skulu standa að hverju framboöi. Enginn flokksmaður getur staðið
að fleiri framboðum en 4. Framboðum þessum ber að skiia, ásamt
mynd af viökomandi og stuttu æviágripi, til formanns prófkjörsnefnd-
ar, Jónasar Þórs Jóhannssonar, Brávöllum 9, 700 Egilsstöðum, eigi
síðar en kl. 12.00 á hádegi 12. október nk.
Prófkjörsnefnd Sjálfstæðisflokksins i Austuriandskjördæmi.
Rangæingar
Framhaldsfundur
vegna stofnunar
sjálfstæðisfélags í
vestanverðri Rang-
árvallarsýslu verður
haldinn í Laufafelli á
Hellu miðvikudaginn
26. september kl.
21.00.
Þorsteinn Pálsson
og Eggert Haukdal
mæta á fundinn.
Sjálfstæðisfólk úr Rangárvallarhreppi og hreppunum vestan ytri
Rangár er hvatt til að mæta og gerast stofnfélagar.
Undirbúningsnefndin.
Kæru Seltirningar
Miðvikudaginn 26.
september verður
okkar fyrsti fundur
haldinn í félags-
heimili okkar á Aust-
urströnd 3 kl. 20.30.
Fundarstjóri verður
Jón Hákon Magnús-
son. Gestur fundar-
ins verður Halldór
Blöndal alþingis-
maður.
Allir velkomnir til skrafs og ráðagerða. Kaffi á könnunni.
\ Stjórnin og FUS, Baldur.
Sjálfstæðismenn
íKjalarneshreppi
Vidtalstími hreppsnefndarmanna í Kjalarneshreppi í kvöld þriðju-
daginn 25. sept. milli kl. 20 og 21.
Fundur
Stjórn og listi Sjáfstæðismanna í Kalarneshreppi heldur fund i kvöld,
þriðjudaginn 25. sept., kl. 21. Stjórnin.
mmmmmmmmmmmmm^^m l o-°-F- Rb- 1 = iao9258 -
WeLAGSLÍF □ EDDA 59902597 - Fjhst.