Morgunblaðið - 25.09.1990, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 25.09.1990, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990 49 EFTIRKÖST Nicu Ceausescu sárþjáður af skorpulifur Nicu Ceausescu, sonur rúmenska einræðisherrans Nicolae Ce- ausescus, var nýlega dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir glæpi í tengslum við desember-uppreisnina á síðasta ári. Nicu er sagður hafa fyrirskipað skotárás á andófsmenn. Á hinn bóginn var hann sýknaður af ákæru um þjóðarmorð sem hefði kostað hann lífstíðarfangelsi. Herdómstóll í Búkarest taldi sannað að Nicu hefði gefið skipanir sem leiddu til þess að 91 óbreyttur borgari féll í borginni Sibiu, heimaborg Nicus, 22. desember sl. Vetjendur reyndu að koma sökinni á herinn, sögðu að Nicu hefði farið til Búkarest BEASK Borgarstjór- inn í Nice leggur á flótta Ibúar frönsku borgarinnar Nice á sólgylltri strönd Rivierunnar urðu undrandi þegar þeir lásu blað- ið Nice Matin sunnudaginn 16. sept- ember síðastliðinn og sáu þar, að borgarstjórinn þeirra, Jacques Médecin, hafði ákveðið að hætta afskiptum af opinberum málum. Borgarstjórinn lét ekki þar við sitja heldur fluttist á brott frá Frakk- landi og er talið líklegt að hann ætli að setjast að í Argentínu, en vinfengi er með Médecin og Carlos Menem, forseta Argentínu. Þótt Médecin hafi gegnt störfum borgarstjóra í Nice í 24 ár var það ekki vegna þreytu sem hann sagði af sér og flutti úr landi heldur lagði hann á flótta undan vörðum laganna og eftirlitsmönnum með opinberum fjárreiðum. Þykir sýnt og sannað að borgarstjórinn fyrr- verandi hafí dregið til sín stórfé og þar að auki staðið að alls kyns braski með opinbera fjármuni. Fjármálaumsvif Médecins náðu til reksturs á spilavítum og leyni- reikninga í útlöndum auk þess sem hann átti hlut að dularfullum fyrir- tækjum sem fjárfestu víða um lönd. Þannig er talið að hann hafi flutt töluvert að peningum til Bandaríkj- anna og staðið þar að fyrirtækinu Oppenheimer Inc., svo að dæmi sé tekið, einnig hafí hann lagt fé í ferðamannaþjónustu á eyjunni Ha- iti, átt í fyrirtæki í Panama o.s. frv., o.s.frv. Médecin og fjölskylda hans hefur í 62 ár haft mikil áhrif á stjórn Nice, því að faðir borgarstjórans landlausa var einnig borgarstjóri á sínum tíma. Jacques Médecin fráfarandi borgarstjóri sem nú hefur flúið land. Nicu Ceausescu hlýðir á dómsúr- skurðinn í Búkarest. Hann er sagður afar heilsutæpur eftir svall undangenginna ára, einkum mun lifrin vera illa haldin. sama dag og morðin verið framin og ekki haft hugmynd um þau. Réttað var í máli Nicus í fjóra mánuði í Sibiu þar sem hann var flokksleiðtogi kommúnista og al- ræmdur fyrir sukk og fautaskap. Hann átti fjögur hús, búin gull- og silfurmunum, dýrum málverkum og hvers kyns vestrænum munaði. Tvær þernur höfðu þann starfa að færa honum kavíar og kampavín og hann ferðaðist um landið með hersingu af kvenfólki, ýmsum vild- arvinum og skuggalegum lífvörð- um. Er litið var inn á veitingastaði voru allir gestir sem fyrir voru umsvifalaust reknir á dyr. Nicu skildi við konu sína, Poliönu, fyrir tveim árum og var þá orðinn al- ræmdur fyrir kvennafar. Meðal annars reyndi hann að þvinga fim- leikastjörnuna Nadiu Comaneci til fylgilags við sig en óljóst er hvern- ig þeim atgangi lyktaði. Hann er einnig sagður hafa eytt stórfé í spilavítum Las Vegas-borgar í Bandaríkjunum. Nicu er nú 38 ára gamall og segja veijendur hans að hann geti ekki afplánað fangelsisvist vegna afar lélegrar heilsu og sé hann jafn- vel dauðvona. Nicu sé þungt haldinn af skorpulifur og blóðarásarsjúk- dómum, hann hafi lést um 22 kg síðan hann var handtekinn 22. des- ember. Læknar kanna nú staðhæf- ingar veijendenna. Ceausescu-hjónin, Nicolae og Elena, voru tekin af lífí á jóladag á síðasta ári. Bróðir einræðisherr- ans, Nicolae Andruta Ceausescu hershöfðingi, er stjórnaði þjálfunar- skóla öryggislögreglunnar, var dæmdur í 15 ára fangelsi í júní. Systkin Nicus, Valentin og Zoe, eru fijáis ferða sinna en munu, ásamt fleiri úr fjölskyldunni, verða ákærð fyrir fjárglæfra. Núverandi ráða- menn reyna að beina allri athygl- inni að glæpum Ceausescu-fjölskyl- dunnar en þeir eru flestir fyrrum embættismenn Ceausescus og talið víst að fortíð sumra þeirra þoli illa dagsins ljós. TEYGJHR 0G ÞREK Er ekki tími til kominn að þú farir að hreyfa þig? SÉRSTAKIR TEYGJU- OG ÞREKTÍMAR Konur: þriðjudaga og fimmtu- daga kl. 13.30 Karlar-. mánudaga og mið- vikudaga kl. 18.10 og miðvikudaga og fimmtudaga kl. 19.10 \im Engjateigi 1 • Reykjavík • Síinai' 687801 & 687701 Jónatan litli ásamt móður sinni. FJÖLGUN Fæddist í skýjunum Ekki getur talist algengt að flug- vélar lendi með fleiri innanborðs heldur en þær lögðu af stað með. Slíkt henti þó fyrir skömmu, en breið- þota frá British Airways var þá á leið frá Malawi til Heathrow. Voru farþegarnir einum fleiri er þotan lenti heldur en þeir voru þegar hún lagði af stað. Kona nokkur ól nefnilega dreng um borð! Jonathatn liti Low- ther átti ekki að koma í heiminn fyrr en viku síðar samkvæmt útreikn- ingum lækna, en hann lét sér ekki segjast. Nú hefur Lowtherhjónunum verið tjáð að Jónatan litli fái breskt vegabréf þrátt fyrir fæðingarstaðinn og BA hefur staðfest að þau verði ekki krafín greiðslu á fargjaldi fyrir aukafarþega! Frú Carina Fimmler frá MARGARET ASTOR er stödd hérlendis dagana 25., 26. og 27. september og kynnir haust- og vetrartískuna 1990 - auk annarra nýjunga frá ASTOR. ÍSFLEXJif. IVIatreióslumennirnir David Wallach gestur frá U.S.fl og Guómundur Þorsson CALIFORNIA MATUR EINS OG HANN GERIST BESTUR IVIatreidslumaóurinn David Wallach heimsækir Hard Rock Cafe frá 20. til 30. sept. frá kl. 18 öll kvöld Á boóstólum veróur amerískur matur meó frönsku, ítölsku og austurlensku ívafi SÝNIRHORN ÚR MATSEÐLI FORRÉTTIR SPICY THAILOBSTER TAILS WITH LEMON CUCUMBER SALAD (VEL KRYDDAÐIR HUMARHALAR AÐ HÆTTI TÆLANDS MEÐ SÍTRÓNU-GÚRKUSALATI KR. 995,- EXOTIC WILD MUSHROQM PASTA WITH DUCK CONFIT AND FRESH SAGE (VILLISVEPPA PASTA MEÐ ANDARKJÖTSMAUKI) KR. 795.- DESERTAR JACK DANIELS CREME CARAMEL (JACK DANIEL KARAMELLUBÚÐINGUR) KR.425.- Elskum alla - þjónum öllum Velkomin á Hard Rock Cafe, simi 689888
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.