Morgunblaðið - 25.09.1990, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1990
55
V e stmannaeyj ar:
Vandræða-
ástand að
skapast hjá
1 lögreglunni
Vestmannaeyjuni.
LÖGREGLAN í Vestmannaeyj-
um stendur frammi fyrir vand-
ræðum með mannskap um næstu
mánaðamót því samkvæmt lög-
um, sem tóku gildi 1. júlí sl., má
ekki ráða lögreglumenn til starfa
á tímabilinu 1. október til 15.
maí nema þeir hafí lokið námi
frá lögregluskólanum.
Níu menn ganga vaktir hjá lög-
reglunni í Eyjum og af þeim fara
tveir í lögregluskólann um næstu
mánaðamót. Pyrir þessa menn má
| ekki ráða afleysingamenn nema
þeir hafi réttindi. Yfír sumartímann
gegnir öðru máli því þá má ráða
| afleysingamenn án réttinda til
starfa hjá lögreglunn.
Auglýst verður eftir réttinda-
| mönnum til afleysingastarfa en ef
þeir fást ekki má búast við að loka
þurfi lögreglustöðinni einhvem
hluta sólarhringsins þar sem lög-
reglulið Eyjanna skerðist um ríflega
20% um mánaðamótin.
Grímur
Vetrarstarf Leikfélags Keflavíkur er hafíð.
Rokksöngleikur hjá
Leikfélagi Keflavíkur
VETRARSTARF Leikfélags
Keflavíkur er nú hafíð með
æfíngum á rokksöngleiknum
„Er tilgangur“ eftir ungan
Keflvíking, Júlíus Guðmunds-
son.
Félagið hefur ráðið til sín Hall-
dór Björnsson, en hann leikstýrði
einnig „Týndu teskeiðinni" hjá
félaginu sl. vor. Rúmlega' 20
manns taka þátt í sýningunni sem
ráðgert er að frumsýna um mán-
aðamótin október-nóvember nk.
og verða sýningar í Félagsbíói í
Keflavík.
Morgunblaðið/Amór
Núbygging Gerðaskóla. Gamli skólinn í baksýn.
Byggt við Gerðaskóla
Garði.
í SIJMAR hefír risið fyrsti hluti
nýs grunnskóla. Hér er um að
ræða 435 fm húsnæði af fyrir-
hugaðri 1200 fermetra bygg-
ingu. Ekki hefst kennsla í hús-
næðinu fyrr en að ári og verður
því að kenna í vetur eins og í
fyrra í tveimur kennslustofum
sem voru innréttaðar í búnings-
klefum væntanlegrar sundlaug-
ar.
Að sögn Jóns Hjálmarssonar,
formanns skólanefndar, verður
þessi nýbygging tilbúin að utan í
haust. Gler, hurðir og þak sett á
°g byggingin pússuð. Þá er áætlað
að hefja framkvæmdir að nýju í vor
og taka húsnæðið í gagnið næsta
haust. í nýja hlutanum eru fjórar
kennslustofur auk ýmissa minni
herbergja, hópherbergja nemenda,
geymslna, salema o.fl.
Nemendur Gerðaskóla eru um
230 og er svokallað norm skólans
1800 fermetrar en gamli skólinn
er 973 fermetrar. Vantar því liðlega
800 fermetra til að ná normi en
nýi hlutinn mun brúa um helming
þess bils. Þegar nýi skólinn verður
kominn í gagnið mun Gerðaskóli
hafa tæpa 2000 fermetra til afnota
og mun þá ef að líkum lætur vera
að réttri norm-stærð.
Barnakennsla hófst í Garðinum
1872 en fyrsti hluti núverandi hús-
næðis var tekinn í gagnið 5. októ-
ber 1911. Síðan þá hefir fjórum
sinnum verið byggt við skólann.
Kostnaður við nýbygginguna er
nú um 20 milljónir. Um einn tugur
kennara starfar við skólann. Skóla-
stjóri er Eiríkur Hermannsson.
Arnór
NÝTT STJÖRNUKORT:
3 ára framtíóarkort
Persónulýsing, 12 mánaða framtíðarkort,
samskiptakort.
Gunnlaugur Guðmundsson,
Stjörnuspekistöðin, Miðbæjarmarkaðinum,
Aðalstræti 9, sími 10377
Súkkulaði Sælkerans
Heildsölubirgðir íslensk Dreifing Simi 91-68 73 74
PETIT
á toppinn
Islenskt og gott
vis unovam