Morgunblaðið - 26.09.1990, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAUUR 26. SEPTEMBER 1990
Ríkið
bensíni óbreyttrí í
- segir Ásmundur Stefánsson
ÁSMUNDUR Stefánsson, forseti ASÍ, segir að það væri óskyn-
samlegt að láta tímabundna hækkun á bensínverði valda verð-
bólguskriðu í landinu. Ríkisvaldið geti deyft áhrif hækkunarinn-
ar með því halda skattheimtu á bensín óbreyttri að krónutölu,
í stað þess að láta hana aukast í hlutfalli við bensínhækkunina.
Bolli Þór Bollason í íjármálaráðuneytinu segir það misskilning,
að tekjur ríkisins aukist vegna hækkunar bensínverðs.
a
Alþýðusamband íslands og
Vinnuveitendasamband íslands
hafa beint þeim tilmælum til ríkis-
stjórnarinnar, að hún dragi úr
skattheimtu á bensíni. Ásmundur
Stefánsson, forseti Aiþýðusam-
bands ísiands, segir að opinber
gjöid séu verulegur hluti bensín-
verðsins og því fari áhrif hækkana
á bensínverði á verðlagið í landinu
eftir því að miklu leyti, hvernig
ríkið hagi skattheimtu sinni.
„Ríkisvaldið á í þessu efni tvo
möguleika. Annars vegar að halda
skattheimtunni óbreyttri hlutfalls-
VEÐUR
lega, og hins vegar að halda skatt-
heimtunni óbreyttri í krónutölu,
og deyfa þannig áhrif hækkunar-
innar á verðlagið," segir Ásmund-
ur.
Ásmundur segist telja, að
hækkun bensínverðs sé tímabund-
in og verðið muni aftur lækka
þegar meira jafnvægi sé komið á
heimsmarkaðinn. Menn hafí verið
að auka hjá sér birgðir og það
hafí augljóslega aukið eftirspum.
„Okkur þykir óskynsamlegt, að
tímabundin verðhækkun af þessu
tagi, verði látin koma hér af stað
verðbólguskriðu. Þar ber líka að
hafa í huga, að bensínverð gæti
orðið með hæsta móti þegar kem-
ur að endurnýjun samninga í nóv-
ember og aðilar vinnumarkaðarins
og ríkisvaldið hafa þá sameigin-
legu hagsmuni, að þau verðbólgu-
markmið, sem sett hafa vverið,
hafí sem minnst farið úr skorð-
um,“ segir Ásmundur Stefánsson.
Bolli Þór Bollason hjá fjármála-
ráðuneytinu segir að ríkið leggi
þrenns konar gjöld á bensín; tolla,
virðisaukaskatt og bensíngjald.
Hann segir ljóst, að það sé á mis-
skilningi byggt að halda, að ríkis-
sjóður græði á hækkun bensín-
verðs. Ætla megi að tekjur af toll-
um aukist, en ríkissjóður verði
hins vegar jafnframt af tekjum
vegna samdráttaráhrifa, sem
hækkunin muni valda. Þegar dæ-
mið í heild sé gert upp, komi í ljós,
að ríkið tapi á hækkuninni eins
og aðrir.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndai
Björgunarmenn reyna að rétta prammann við í höfninni í Keflavík
í gær, en áður en það heppnaðist sökk pramminn skyndilega.
Sanddælupramm-
inn sökk í höfninni
Keflavík.
Sanddælupramminn sem hvolfdi við Garðskaga aðfaranótt mánu-
dags og dreginn var til hafnar í Keflavík sökk þegar reynt var að
rétta hann við á árdegisflóðinu í gærmorgun. Pramminn liggur á
hliðinni við enda hafnargarðsins og eru um 10.000 lítrar af gasoliu
í skipinu. 1 gærkvöldi sást dálítil olíubrák í höfninni, þar sem pramm-
inn liggur, og óttast menn að meira af olíunni leki út þegar ný til-
raun verður gerð til að ná prammanum upp.
Tveir 60 tonna kranar voru not- Kefiavík sagði að björgun yrði tæp-
aðir við að rétta prammann við, en
áður en það tókst til fulls sökk
hann skyndilega. Áform eru uppi
um að gera aðra tilraun til að ná
prammanum upp og fá tvo enn
öflugri krana til verksins. Ibsen
Angantýsson hafnsögumaður í
lega reynd aftur nema í hagstæðri
átt svo hægt yrði að hefta olíuleka.
Þegar prammanum hvolfdi var
verið að draga hann frá Isafirði til
Voga þar sem nota átti hann við
hafnargerð.
-BB
Olíufélögin:
Millilandaskip fá ekki
olíu á lága verðinu
Erlend skip fá olíu hér á heimsmarkaðsverði
ÍSLENSKU skipafélögin hafa falast eftir því að fá keypta olíu hér
á landi á millilandaskip sín nú eftir að olíverð hér á landi varð með
því lægsta í heiminum, en um nokkurt skeið hafa þau keypt megnið
af brennsluolíunni erlendis. Áð sögn Kristins Björnssonar forsljóra
Skeljungs varð að samkomulagi milli olíufélaganna og skipafélag-
anna að ekki yrði breyting á þessum viðskiptum frá því sem verið
hefur.
„Þeir einu sem notið hafa þessa
lága verðs eru okkar yiðskiptavinir,
sem er íslenski skipaflotinn. Það
varð að samkomulagi við skipafé-
lögin að þau myndu halda áfram
að kaupa olíu á millilandaskipin
erlendis á sama hátt og verið hef-
ur, og var það samkomulag gert í
miklu bróðerni, enda skildu menn
hvor aðra mjög vel,“ sagði Kristinn.
Hann sagði að einu breytingarn-
ar sem orðið hefðu á olíuviðsíciþiun-
pm væru þær að útlendingum væri
seld olía á því verði sem þeir þyrftu
hvort sem er að kaupa á í sinn)
heimahöfn, og hefði það þótt mjög
eðlilegt, en öll erlend skip sem hing-
að hefðu komið um langa hríð hefðu
fengið olíuna keypta á heimsmark-
aðsverði.
VEÐURHORFURIDAG, 26. SEPTEMBER
YFIRLIT I GÆR: Um '500 km suður af landinu er 1.030 mb. hæð
sem þokast suðaustur en lægð sem er að myndast við Hvarf mun
hreyfast norðaustur til landsins.
SPÁ: Suð- og suðvestan-strekkingur og súld eða rigning um vestan-
vert landið en hægari og þurrt austantil.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Vestlæg átt. Skúrir um vestanvert landið
en annars þurrt. Víða léttskýjað á Suðaustur- og Austurlandi. Hiti
4-14 stig, hlýjast suðaustanlands.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Vestan- og norðvestanátt og fremur
svalt. Skúrir eða slydduél um norðanvert landið en annars víðast
þurrt og léttskýjað á Suðausturlandi.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
V Él
— Þoka
= Þokumoða
5, » Súld
CO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl, 12:00 í gær að ísl. tíma
htti veftur
Akureyri Reykjavik i* Ili hálfskýjaft skýjaö
Bergen 11 léttskýjað
Helsinki 7 aiskýjaft
Kaupmannahöfn vantar
Narssarssuaq 10 rlgnlng
Nuuk 7 rigning
óstó 9 skýjaft
Stokkhólmur 8 rlgnlng
Þórshöfn 9 skúr
Algarve 22 iéttskýjaft
Amsterdam m léttskýjaft
Barcelona 18 rigning
Beriln 13 skúr
Chicago 12 skýjað
Feneyjar 21 skýjaft
Franklurt 14 skiir
Qlasgow ii skýjaö
Hamborg ife skýjaft
Las Palmas 26 léttskýjað
London 15 skýjaft
Los Angeles 17 láttskýjaft
Lúxemborg 11 skjgaft
Madrid 19 alskýjaft
Malaga 23 alskýjáð
Mallorca 29 skýjað
Montreal 13 skýjaft
NewYork ÉÍ? skýjaft
Orlando 16 skýjaft
París vantar
Róm 23 skýjaft
Vín 17 skýjað
Washington 11 léttskýjað
Wlnnipeg 11 téttskýjað
Synti yfír Palma-flóa sjötugur:
Þetta er vestfirsk-
ur þráinn í mér
- segir Björn Kristjánsson sundkappi
BJORN Kristjánsson, sjötugur eftirlaunamaður sem dvelst nú á
Mallorca, synti yfír Palma-fíóa meðfram Arenal-ströndinni, alls
16 km leið, i gær. Björn var fjórar klukkustundir að þreyta sundið.
Björn hefur undirbúið sundið í
tæpt eitt ár en þegar til átti að
taka var honum synjað um leyfi
hafnaryfírvalda í Palma til að
synda yfir þveran flóann. Ákvað
hann þá að synda meðfram
strandlengjunni í fylgd hjólabáts
sem fveir íslenskir félagar hans
stýrðu.
Björn sagði að hann hefði haft
loforð ferðaskrifstofunnar sem
skipuleggur ferð hans til Mallorca
fyrir því að allur undirbúningur
og skipulagning fyrir sundið yrði
frágenginn þegar hann kæmi ut-
an. Það hefði hins vegar brugðist
og þá hefði hann breytt um áætl-
un og ákveðið að synda meðfram
strandlengjunni frá Cala Blanca-
höfðanum að Palma Nova-strönd-
inni, alls 16 km leið.
„Eg byijaði að synda kl. 12 á
hádegi í stafalogni og synti með-
fram Arenal-ströndinni. Ég hef
aldrei náð jafn miklum hraða á
sundi fyrstu 10 km leiðarinnar.
Síðan hvessti og ég stóð bara í
stað, þá var ég búinn að synda
um 15 km leið. En ég hélt áfram
og hafði þetta af. Eg finn ekki
fyrir þessu frekar en ég hefði
bara synt eina leið í sundlaug"
sagði Björn.
„Þetta er vestfírskur þráinn í
mér. Þegar mér var tjáð af hafnar-
yfirvöldum að ég yrði að bíða í
tvo mánuði eftir leyfi ákvað ég
að synda meðfram ströndinni,"
sagði Björn, sem synti 10 km í
Sundhöll Reykjavíkur um síðustu
jól. Hann fékk bijósklos í sumar
en kvaðst ekki hafa verið skorinn
upp. „Ég var látinn liggja hreyf-
ingarlaus í 10 vikur og hef alveg
náð mér.“ Björn bað fyrir
kveðju til skyldmenna og annarra
sem hefðu stutt sig í því að láta
drauminn rætast, að synda yfir
Palma-flóann á Mallorca.