Morgunblaðið - 26.09.1990, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990
Nefnd skipuð til að kanna
framtíðarmöguleika
á Keflavíkurflugvelli
STEINGRÍMUR Hermannsson forsætisráðherra hefur skipað sex
manna nefnd, sem athuga á möguleika á hvernig nýta megi að-
stöðu við Keflavíkurflugvöll í framtíðinni. Formaður nefndarinnar
er Jóhann Einvarðsson alþingismaður.
Nefndinni er falið að athuga í
ljósi reynslunnar hvaða breytingar
þurfí á fyrirkomulagi og aðstöðu
við flugvöllinn til þess að örva
flugumferð og auðvelda hvers kon-
ar flutningsaðilum afnot af vellin-
um og Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Nefndin á að kanna sérstaklega
hvers konar aðstöðu þurfi til að
flugvöllurinn nýtist sem bezt fyrir
íslenzka útflytjendur.
Nefndin á að athuga hvort er-
lendir aðilar hafí áhuga á að nota
Keflavíkurflugvöll fyrir ýmsa
starfsemi á sviði iðnaðar og þjón-
Ættarmót
Briemsættar
NIÐJAR hjónanna Valgerðar
Arnadóttur og Gunnlaugs Guð-
brandssonar Briem halda ættar-
mót á Hótel íslandi 30. septem-
ber. í tengslum við ættarmótið
verður gefíð út niðjatal hjón-
anna en afkomendur þeirra eru
um 2000.
í samtali við Ásgeir Eggertsson,
einn skipuleggjanda ættarmótsins,
kom fram að auk afkomenda hjón-
anna, sem búsettir eru á Islandi,
er von á fimmtán fulltrúum erlend-
is frá og mun einn þeirra, Suzanne
Bitsch frá Danmörku, ávarpa sam-
komuna auk þess sem hún mun
afhenda Þjóðminjasafninu mál-
verk af Gunnlaugi frá árinu 1795.
Sigurður Líndal, lagaprófessor,
mun einnig flytja ávarp á ættar-
mótinu. Veislustjóri verður Davíð
Oddsson, borgarstjóri í Reykjavík,
en hann er einn afkomandi Grund-
arhjónanna.
Niðjadal þeirra Valgerðar og
Gunnlaugs kemur út sama dag og
mótið verður haidið. Ritið er 700
síður og í því er fjöldi mynda. Það
verður selt á mótinu.
Ættarmótið hefst klukkan
15.30 en því lýkur milli klukkan
18.00 og 19.00. Aðgangur er á
kr. 1200 en boðið verður upp á
kaffihlaðborð.
ustu. Þá á hún að kanna hvernig
aðrar þjóðir h afi nýtt sér alþjóð-
lega flugvelli, til dæmis Arichorage
í Alaska og Shannon á írlandi.
Loks á nefndin að athuga áhuga
flutningsaðila, sem annast flutn-
inga milli Evrópu, Japans og
Bandaríkjanna, á að nota flugvöll-
inn sem birgðastöð eða umskipun-
arhöfn.
Stefna á að því að nefndin ljúki
störfum fyrir 1. marz á næsta ári
og skili niðurstöðum sínum og til-
lögum til forsætisráðherra. Nefnd-
in á að hafa samvinnu við Atvinnu-
þróunarfélag Suðurnesja og aðra
hagsmuna- og áhugaaðila um
málið.
Auk Jóhanns Einvarðssonar
sitja í nefndinni Eiríkur Alexand-
ersson útibússtjór, tilnefndur af
Sambandi sveitarfélaga á Suður-
nesjum, Gurinar Olsen, stöðvar-
stjóri Flugleiða hf. í Leifsstöð, til-
nefndur af Flugleiðum, Björn G.
Olafsson þjóðfélagsfræðingur, til-
efndur af Byggðastofnun, Róbert
T. Árnason skrifstofustjóri, til-
nefndur af utanríkisráðherra, og
Ámi Þór Sigurðsson deildarstjóri,
tilnefndur af samgönguráðherra.
Styttur framleiddar í Listasmiðjunni.
Listasmiðjan:
Morgunblaðið/RAX
Hugað að undirbúningi j ólanna
ENDA ÞÓTT enn séu rúmir
þrír mánuðir til jóla eru starfs-
menn Listasmiðjunnar í Hafn-
arfírði löngu farnir að huga að
undirbúningi jólanna og stytt-
ur, sem steyptar eru í verk-
smiðjunni, og seldar til jóla-
gjafa seljast vel þessa dagana.
Stytturnar er bæði hægt að fá
ópússaðar og brenndar en í
báðum tilfellum sér kaupand-
inn sjálfur um að mála styttúrn-
ar annaðhvort með litum líkum
þekjulitum eða glerjungi sem
síðan er brenndur.
í samtali við Eirík Harðarson,
sem sér um brennslu í Listasmiðj-
unni, kom fram að hægt er að
velja á milli 1.500 og 2.000 teg-
unda af styttum sem gerðar eru
úr keramiki náskyldu postulíni.
Vinsælast sagði Eiríkur gamal-
dags vaskasett en af fleiri stytt-
um, sem hægt er að velja um,
má nefna hús, dýr og fólk að
ógleymdum jólasveinunum sem
mikil eftirspurn er eftir þessa
dagana.
I tengslum við verslunina hefur
Listasmiðjan verið með námskeið
í frágangi á styttunum en að sögn
Eiríks hefur einnig verið töluvert
um að styttumar hafi verið seldar
til félagasamtaka og hópa. Einnig
hefur búðin sent töluvert magn
af vörum út á land, til dæmis til
elliheimila, en verslunin er ein-
ungis starfrækt í Hafnarfirði.
*
Isfískútflutningnr 3.400 tonn umfram heimildir Aflamiðlunar:
Ekki verður setið undir fullyrð-
ingum um skjalafals og smygl
segir Snorri Jónsson talsmaður Gámavina
„ÉG REIKNA með að ísfískút-
flyfjendur sifji ekki undir full-
yrðingum, sem komu fram í sjón-
varpi, um að þeir séu bæði skjala-
falsarar og smyglarar og því
verði höfðað meiðyrðamál," seg-
ir Snorri Jónsson talsmaður
Gámavina sf. í Vestmannaeyjum.
Flutt voru út 15 þúsund tonn af
óunnum þorski og ýsu í gámum
til Bretlands frá 1. apríl til 25.
ágúst sl., þar af 3.400 tonn um-
fram heimildir Aflamiðlunar en
Gámavinir og Skipaþjónusta
Suðurlands fluttu út um helming
af þessum 3.400 tonnum, að sögn
Vilhjálms Vilhjálmssonar fram-
kvæmdasljóra Aflamiðlunar.
Snorri Jónsson segist álíta að
hvorki utanríkisráðuneytið né Afla-
miðlun hafi haft heimild til að tak-
Hugsanleg samnorræn mynt:
Veit ekki til að ísland hafi
verið nefnt í því sambandi
- segir Jóhannes Nordal Seðlabankastjóri
JÓHANNES Nordal Seðlabankastjóri sagði í samtali við Morgunblað-
ið að hann vissi ekki til að rætt hafi verið um ísland eða íslensku
krónuna í sambandi við þær hugmyndir sem Niels Helveg Petersen,
viðskiptaráðherra Dana, viðraði í sjónvarpsviðtali á sunnudag um
samnorræna mynt. Jóhannes er staddur á ársfundi Alþjóðabankans
í Washington í Bandarikjunum, en það var þar sem danski ráðherr-
ann setti fram hugmyndir sinar. Jóhannes sagðist ekki geta metið
áhrif slíkrar breytingar fyrir ísland ef af yrði, nema að hann taldi
ljóst að hún yrði til að auka stöðugleika í gengismálum, sem væri
af hinu góða.
Petersen rökstuddi hugmyndir
sínar með því, að áhrif Skandinavíu-
þjóðanna í alþjóðaviðskiptum yrðu
meiri með sameiginiegri krónu, sem
tengd yrði þeirri dönsku, auk þess
sem staða þeirra gagnvart Evrópu-
bandalaginu styrktist. Danir eru í
EB, en ekki Norðmenn og Svíar.
Aðrar þjóðir nefndi hann ekki sem
aðila hinnar hugsanlegu nýju nor-
rænu myntar.
Jóhannes Nordal kvaðst ekki vita
til að ísland hafi verið nefnt í þessu
samhengi og hann sagði að það
hefði ekki af liálfu Dana verið rætt
við hann. „Á hinn bóginn held ég
að þessu hafi verið varpað fram
meira sem hugsanlegum mögu-
leika, frekar heldur en að neitt slíkt
sé í spiiunum í dag,“ sagði hann.
„Ég held satt að segja að þetta séu
ekki neinar alvarlegar tillögur sem
séu á ferðinni, frekar möguleikar í
stöðunni."
Jóhannes kvaðst ekki geta metið
á þessu stigi hvaða áhrif slík sam-
eiginleg mynt hefði fyrir íslend-
inga. „í fyrsta lagi er nú ekkert
verið að tala um okkur í þessu sam-
bandi. Það sem fyrst og fremst er
verið að ræða þarna er að auka
stöðugleika í gengismálum á Norð-
urlöndum. Það er auðvitað hugsan-
legur möguleiki til þess að gera
það, að tengja þe'ssar myntir beinna
saman og ég held að því meiri stöð-
ugleiki sem er almennt í kringum
okkur i Evrópu, þeim mun meiri
þrýstingur er á okkur að fylgja í
kjölfarið með einhveijum hætti.“
marka útflutning á ísfiski. „Við
erum hins vegar ekki búnir að taka
ákvörðun um hvort farið verður í
skaðabótamál vegna takmarkana á
þessum útflutningi en ef svo færi
yrði farið aftur til þess tíma, þegar
byijað var að skammta hann. Hitt
er annað mál að við gætum sjálfir
ákveðið að skammta ísfiskútflutn-
inginn, eins og við gerðum þegar
hann var fijáls. Verðið féll hins
vegar þegar vinnslan gat ekki sjálf
unnið sinn fisk,“ segir Snorri.
Aflamiðlun úthlutar nú útgerð-
unum sjálfum heimildir til útflutn-
ings á ísfiski en ekki útflutningsfyr-
irtækjum eða -hópum. „Við viljum
geta gert útgerðirnar ábyrgar fyrir
þeim heimildum, sem þær fá og
útgerðarmennirnir eiga sjálfír að
gefa upp áætlað útflutningsmagn
og tegundir hveiju sinni,“ segir Sig-
urbjörn Svavarsson stjórnarformað-
ur Aflamiðlunar.
Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttarlögmaður telur að Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkisráð-
herca hafi ekki haft heimild til að
framselja til Aflamiðlunar vald til
að gefa útflútningsleyfi og stjórn-
völdum sé óheimilt að binda leyfi
til útflutnings á fiski skilyrðum.
Sigurbjörn Svavarsson segist ekki
vilja tjá sig um þetta álit Jóns Stein-
ars. „Þetta er náttúrlega mál ráðu-
neytisins," segir Sigurbjöm.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins gerði Evrópubandalagið
athugasemd við það í fyrra að
íslensk stjórnvöld takmörkuðu út-
flutning á ísfiski, þar sem það væri
brot á GATT, alþjóðasamkomulagi
um tolla og viðskipti. EB telji hins
vegar málið horfa öðruvísi við ef
hagsmunaaðilar ákveði sjálfir að
takmarka útflutninginn.
Snorri Jónsson segir að útgerðar-
menn og sjómenn séu í minnihluta
í stjórn Aflamiðlunar. „Aflamiðlun
var ekki komið á fót í samráði við
okkur. Um 20% af aflakvótanum
eru í höndum manna, sem ekki eru
aðilar að vinnslunni. Vinnslan og
frystitogararnir bíða eins og hræ-
gammar eftir þessum kvóta og hafa
keypt þijá báta hér undanfarin tvö
ár. Þá er vinnslan iangt komin með
að kaupa upp trillukvótann."
Sjávarútvegsráðuneytið hefur að
undanförnu verið að kanna hvort
einhveijir ísfískútflytjendur hafí
brotið reglugerð um vigtun frá 1.
febrúar síðastliðnum með því að
gefa ráðuneytinu ekki upp réttar
tölur um áætlaðan útflutning hveiju
sinni. „Það er hið besta mál fyrir
okkur ef ráðuneytið fer með þetta
mál fyrir dómstólana, því okkur var
sagt að reynt yrði að koma í veg
fyrir að við kæmumst með málið
þangað," segir Snorri Jónsson.
Fyrirlestur
um Svavar
Guðnason
FIMMTUDAGINN 27. september
nk. klukkan 20.30 heldur Júlíana
Gottskálksdóttir, listfræðingur,
fyrirlestur um Svavar Guðnason
í Listasafni Islands. Fyrirlestur-
inn er haldinn í tengslum við
yfírlitssýningu á verkum lista-
mannsins í safninu.
Fyrirlesturinn nefnist: Hin sjálf-
sprottna tjáning og agaða hugsun.