Morgunblaðið - 26.09.1990, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990
27
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Árni Kópsson íslandsmeistari í torfæru með Guðbergi Guðbergssyni,
sem veitti honum mesta keppni í ár.
-Ol
CODAN
LOGSUÐUSLÖNGUR
ÁRVÍ
ÁRMÚLI 1-REYKJÁVlK-SlMI «87222 -TELEFAX
SIEMENS
Frystikistur og frystiskápar
Siemens frystitækin eru eins og aörar
vörur frá þessu öndvegisfyrirtæki:
traust, endingargóð og falleg.
Lítið inn til okkar og skoöiö úrvaliö.
SMITH &NORLAND
NÓATÚNl 4 • SlMI 28300
hiu bum uiyiu auyiysingar ira arinu
1988 í filmusafni auglýsingadeildarinnar,
vinsamlegast sækið þær
sem fyrst.
FILMUSAFN AUGLYSINGADEILDAR
Ami Kópsson Islands-
meistari í torfæruakstri
Þessir tveir drengir, ívar Örn Indriðason Kleppsvegi 126 Reykja-
vík, og Sveinn Lárus Sveinsson héldu fyrir nokkru hlutaveltu til
styrktar Rauða krossi Islands og söfnuðust 600 krónur.
Bílddælingurinn Árni Kóps-
son vann sína fimmtu torfæru-
keppni á keppnistímabilinu,
þegar hann sigraði í torfæru-
keppni á Akureyri á dögunum.
Hann tryggði sér þar með Is-
landsmeistaratitilinn í torfæru-
akstri, sem hann vann einnig í
fyrra í flokki sérútbúinna
jeppa. Steingrímur Bjarnason á
Willys vann flokk standard
jeppa á Willys í keppni Bíla-
kiúbbs Akureyrar.
Árni hefur oftast att kappi við
Guðberg Guðbergsson í mótum
ársins, hefur unnið fimm sigra,
orðið jafn Guðbergi einu sinni og
einu sinni lent í öðru sæti. „Ég
bjóst við jafnri keppni í sumar og
fleiri sterkum keppendum,“ sagði
Árni. „Hins vegar hafa verið alltof
mörg mót til Islandsmeistara og
þátttakan í mótinu er ekki raun-
hæf fyrir áhugamenn, þetta er
orðið svo dýrt. Þess vegna slökuðu
margir keppendur á seinni hluta
sumars. Viðhald á svona torfæru-
tækjum er tímafrekt og kostn-
aðarsamt og ég held að margir
muni hugsa sig tvisvar um fyrir
næsta ár, ef ekki verða einhveijar
breytingar á mótshaldi," sagði
Árni.
Guðbergur varð fyrir talsverðu
tjóni í keppninni á Akureyri þegar
sérhönnuð keppnisvél hans bilaði
í fyrstu þraut, stimpill brotnaði
og skemmdi út frá sér. „Bilunin
er óskiljanleg, þetta á að þola
allt. Ég ríf vélina eftir keppni og
læt gegnumlýsa alla hluti til að
athuga. hvort eitthvað meira en
stimpillinn sé í ólagi. Blöndungur-
inn sprakk í tætlur þegar vélin
sprengdi upp úr sér og þetta kór-
ónar erfitt tímabil, þar sem bilanir
og mistök í akstri hafa hindrað
betri árangur," sagði Guðbergur.