Morgunblaðið - 26.09.1990, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1990
31
Álver er áhættufyrirtæki
eftir Ingibjörgu Guð-
mundsdóttur
Það hefur ekki farið fram hjá
neinum hvað yfirgnæfandi meiri-
hluti þeirra, sem hafa tjáð sig um
álmálið, virðist líta á það sem
bjargráð íslenskrar efnahags-
stefnu. Mér finnst því mál til kom-
ið að við, sem erum á annarri skoð-
un, látum meira í okkur heyra. Ég
ætla í stuttu máli að segja álit
mitt á því, hvers vegna mér finnst
álverið slæmur kostur og hvaða
aðrar leiðir ég tel heppilegi-i fyrir
land og þjóð.
Þetta álver sem talað er um að
reisa, er að mínu mati allt of
mikið áhættufyrirtæki fyrir okkur
skuldum vafna þjóðfélag. Við höf-
um ekki efni á að fara út í slíkt
fjárhættuspil, sem gæti jafnvel
kostað okkur sjálfstæðið. Mig
langar til að telja upp þá neikvæðu
þætti, sem styðja mál mitt. Við
yrðum að taka gífurleg erlend lán
(og er þó ekki á bætandi) til að
koma upp þeim orkuverum sem til
þarf. Þá kæmi mikið umfram fjár-
magn í umferð, sem setti af stað
nýtt þensluskeið og verðbólgu. Og
um leið finnst mér okkar kynslóð
ekki hafa leyfi til að ganga of
nærri orkunýtingarmöguleikum
framtíðarinnar. Það er eins og ráð-
amenn haldi að dómsdagur sé í
nánd, svo mikið virðist liggja á að
nýta strax öll verðmæti okkar, en
minna hugað að því að treysta
undirstöður að varanlegri farsæld
landsins. Hvernig færi t.d. ef álæ-
vintýrið brygðist og við sætum
uppi með skuldirnar af ónýttum
orkuverum.
Við skulum vona það besta en
gera ráð fyrir því versta, bg ekki
treysta á heppnina, því hún bregst
venjulega þeim sem sýna slíkt
kæruleysi. Við vitum ekkert hvað
framtíðin ber í skauti sér. Kannski
verður hætt að nota ál í potta og
pönnur, ef satt reynist það sem
skrifað er í heilsublöð að ál valdi
alvarlegum sjúkdómi. Og við vitum
ekkert nema styijaldir verði úrelt
fyrirbæri á næstu áratugum, a.
m.k. meðal vestrænna þjóða, og
vopnaframleiðsla minnki stórléga.
Nei, við skulum ekki flana að
neinu, og ekki láta þiýsta á okkur
með að gera samninga strax. Þetta
er það stórt mál og kosningar
framundan. Ég skora á landsmenn
að krefjast þess að álsamningurinn
verði gerður að kosningamáli. Al-
menningur í lýðræðisþjóðfélagi á
rétt á því að láta í ljósi skoðanir
sínar, á máli sem getur haft jafn
afdrifarík áhrif á framtíðina.
Trúlega finnst mörgum ég vera
of svartsýn. En ástæðan fyrir því
að ég er svona ósátt við þetta feigð-
arflan íslenskra stjórnvalda, er sú
að ég sé fyrir mér allt aðra atvinnu-
uppbyggingu landsins og í þeirri
mynd á álverið ekki heima, jafnvel
þótt það gæti orðið gróðafyrir-
tæki. Skyndigróði og sveiflukennt
þjóðfélag er það sem við þurfum
síst á að halda.
Við vitum að framundan er að
breyta um stefnu hvort sem okkur
líkar betur eða verr. Vð höfum of
lengi róið á röng mið. Við skulum
átta okkur á því að mesta ríkidæm-
ið er að þetta land okkar skuli
vera staðsett úti í miðju Atlants-
hafi. Það er meira virði en þótt
Stjórn opinberra innkaupa:
Bjóða átti ót stóla
Þj óðleikhússins
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi frá Stjórn opinberra
innkaupa:
„Vegna blaðaskrifa um kaup á
nýjum stólum fyrir Þjóðleikhúsið
og gagnrýni einstakra fyrirtækja
og Félags húsgagnaframleiðenda á
byggingarnefnd Þjóðleikhússins
fyrir að hafa ekki efnt til útboðs
vegna smíði á stólum og tilheyrandi
innréttindum vill Stjórn opinberra
innkaupa, sem skipuð er af íjár-
málaráðherra, koma eftirfarandi á
framfæri:
Stjórnin hefur kynnt sér viðhorf
byggingarnefndar Þjóðleikhússins
og húsgagnaframleiðenda til þessa
máls og telur að hér sé um svo stór
innkaup að ræða að átt hafi að
efna til útboðs, ef til vill að undan-
gengnu forvali, meðal húsgagna-
framleiðenda áður en gengið var
til samninga um kaup á umræddum
stólum.
Sögnsnæld-
an geíur út
ljóðabók
SÖGUSNÆLDAN gefur út ljóða-
bók í október nk. sem ber nafnið
Líkami borgarinnar.
Bókin geymir ljóð eftir tvö dönsk
skáld, Michael Strunge og Sören
Ulrik Thomssen. Rætur þessara
tveggja skálda liggja aftur til daga
pönks og nýbylgju.
Michael Strunge fæddist árið
1958 og dó árið 1986. Sören Ulrik
Thomsen fæddist árið 1956 og er
áberandi í dönsku menningarlífi.
Öll ljóðin eru þýdd úr dönsku af
Magnúsi Gezzyni og Þórhalli Þór-
hallssyni.
Stjórnin telur brýnt að opin-
berir aðilar hagi innkaupum sínum
í samræmi við lög og reglugerðir
þar að lútandi og að almenningur
í landinu og bjóðendur telji réttlát-
lega að málum staðið hvað varðar
ráðstöfun á opinberu fé og sam-
keppnisaðstöðu bjóðenda.
Stjórnin væntir þess að þeir
starfshættir sem hér voru tíðkaðir
af hálfu byggingarnefndar Þjóðleik-
hússins verði ekki ráðandi við opin-
ber innkaup í framtíðinni."
(Úr fréttatilkynningu)
Ingibjörg Guðmundsdóttir
„Ég skora á landsmenn
að krefjast þess að ál-
samningurinn verði
gerður að kosninga-
máli. Almenningur í
lýðræðisþjóðfélagi á
rétt á því að láta í ljósi
skoðanir sínar, á máli
sem getur haft jafn af-
drifarík áhrif á fram-
tíðina.“
hér væri gull í jörðu eða olía í sjó
og af þessum auðæfum erum við
öfundsverð. En við verðum að trúa
á landið, og skilja hvað það er
dýrmætt til að það komi okkur að
gagni og verði til góðs. Þess vegna
þurfum við strax að fara að huga
að breyttri umgengni við landið
okkar, sem miða að því, að halda
landinu hreinu og styrkja jarðveg-
inn með því að nota húsdýraáburð
og allan þann lífræna úrgang sem
til fellur til sjávar og sveita.
Það er hrikalegt að horfa upp á
hvernig komið er fyrir sveitum
landsins og að hér skuli vera til
ráðherrar sem vildu helst af öllu
gefa fijálsan innflutning á land-
búnaðarvörum. Þeir hljóta þó að
vita að það gæti þýtt endalok
bændastéttarinnar með þeim af-
leiðingum, sem það gæti haft.
Ég tel að það ætti að hætta við
útfiutningsbætur á kjöt, en nota
heldur það fé í beinan stuðning við
bændur, svo þeir geti tekið upp
breytta búskaparhætti við að yrkja
BARDS
frá Irlandi
skemmta í
Óperukjallaranum
kvöld
(p)-perukjailiTiwi
jarðirnarjog koma þeim í heilbrigt
ástand. Ég held að það verði far-
sælla að hjálpa bændum að
„þreyja þorrann og góuna“ meðan
þetta millibilsástand er, því ef okk-
ur tekst að gefa íslenskum matvæl-
um gæðastimpil er ekki langt í,
að þau verði auðveld söluvara,
hvar sem er í heiminum. Og þá
geta bændur farið að reka sín bú
án styrkja, eins og aðrir atvinnu-
rekendur. En þessi leið tekst aldrei •
nema við breytt skipulag. Ríkisaf-
skipti, forsjárhyggja og miðstýring
verður að vera í lágmarki en ein-
staklingsframtakið, frelsið og virð-
ingin fyrir manneskjunni að aukast
mikið.
Við erum fámenn þjóð og búum
í landi, sem ekki er byggilegt nema
að litlum hluta. En landið okkar
býr yfir miklum möguleikum, ef
frelsi einstaklingsins og hugvit
hans fær að ráða ferðinni. Okkar
stóru mistök eru þessi mikla og
hraða uppbygging á höfuðborgar-
svæðinu þar sem ekkert hefur ver-
ið til sparað, og sem aukið hefur .
á erlendar skuldir okkar og valdið
þenslu og verðbólgu. Nú er svo
komið að meir en helmingur okkar
fámennu þjóðar er kominn þangað
og fólkið heldur áfram að flýja
erfiðleika landsbyggðarinnar. Sú
þróun getur ekki leitt til annars
en almennrar fátæktar. Slagsíðan
er þegar orðin of mikil. Nú loksins
er orðinn skilningur á því hvað
verðbólgan hefur leikið þjóðfélagið
grátt, og að peningar vaxa ekki á
trjám. Það er frumskilyrði að halda
verðbólgu niðri, ef möguleikar eiga
að vera á því, að lifa hér sem sjálf-
stæð þjóð og fá grósku í þá at-
vinnuvegi sem henta okkur best,
fiskverkun, landbúnað og smáiðn-
að. Þá fengjum við jafnvægi í
byggð landsins.
Að lokum vil ég segja þetta:
Aðalsmerki góðra bænda var að
byggja fyrst yfir bústofn sinn og
hlú að því sem gaf björg í bú.
Híbýlin komu á eftir. Við högum
okkur eins og búskussar, leggjum
alla áherslu á að gera borgina sem
glæsilegasta en látum undirstöðu-
atvinnuvegina sitja á hakanum.
Höfundiir er húsmóðir í
Reykjnvík.
Vertu öruggur!
Veldu GoldStar!
GoldStar símkerfin
eru hvarvetna viöur-
kennd fyrir gæöi og
hugvitsamlega
hönnun.
• Ótal möguleikar fyrir
allar stæröir fyrirtækja.
• Vönduð uppsetning og
forritun. 100% þjónusta.
• Tugir ánægöra notenda.
• Síöast en ekki síst:
Frábært verð.
KRISTALL HF.
SKEIFAN 11B - SÍMI 685750
Ath! GoldStar síminn
m/símsvara á kr.9.952.-
Yale
rr
púllarar
t*
Níðsterkir tisléttir
Yale - gæði - ending
[1] JÓHANN ÓLAFSSON & C0. HF.
43SumUborg 13 IlM Rr>k>tvik - Simi 68« 588
SIEMENS
Þurrkari á tilboðsverði!
• Stórt lúguop og stór lósía
• Öryggislæsing og kæling í lok
þurrkunar til að forðast krumpur.
• Tekur 4,5 kg af þvotti.
• Sérlega hagkvæmur og spameytinn.
Staðgreiðsluverð: 39.900 kr.
SMITH&NORLAIMD
NÓATÚNI 4 • SfMl 28300