Morgunblaðið - 26.10.1990, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1990
15
Bréf til spari-
fjáreigenda
eftirFriðrik
Jóhannsson
Guðmundur H. Garðarsson hefur
um langt skeið staðið vörð um hags-
muni sparifjáreigenda. Verðtrygg-
ing sparifjár og opnun fjármagns-
markaðarins eru málefni sem Guð-
mundur H. Garðarsson hefur barist
ötullega fyrir. Guðmundur var í
framvarðarsveit þeirra sem stóðu
að stofnun fyrstu íslensku verð-
bréfasjóðanna árið 1985. Tilkoma
verðtryggingar sparifjár og verð-
bréfasjóðanna síðar meir hefur
stuðlað að sívaxandi spamaði í þjóð-
arbúinu, íslenskum fyrirtækjum og
heimilum til heilla. Nægur sparnað-
ur er einn af homsteinum þess vel-
ferðarþjóðfélags sem við ætlum að
búa við í framtíðinni.
Allt frá upphafi „vinstri áratug-
arins“ höfðu sparifjáreigendur orðið
að þola stórfellda eignaupptöku í
formi neikvæðra raunvaxta. Nú er
hins vegar svo komið að spamaður
er aftur orðinn almennur og nálg-
ast að vera kominn á svipað stig og
í nágrannalöndunum. Nú þegar
stjórnvöld hafa hins vegar opinber-
að þá ætlun sína að afnema verð-
tryggingu sparifjár og skattleggja
vaxtatekjur, ríður á að sparifjáreig-
endur eigi sér öflugan málsvara á
Alþingi Islendinga.
Kjósum menn úr at-
vinnulífinu til áhrifa
Friðrik Jóhannsson
Guðmundur H. Garðarsson hefur
sýnt og sannað að honum er treyst-
andi til þess að gæta hagsmuna
þeirra. Tryggjum Guðmundi H.
Garðarssyni 4. sætið í prófkjöri
sjálfstæðismanna.
Höfundur er forstjóri
Fjárfestingarfélags íslands hf.
ÁAlþingi
licliir Sóndg
Pétursdóttír
svnlad
liiin lictur
atíiafiiir
IVIgja oróuiii
I Á því kjörtímabili sem lýkur í vor hefur Sólveig verið
1. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
og því starfað talsvert á Alþingi. Málefni sem hún hefur beitt
sér fyrir með lagafrumvörpum eru m.a.:
• Breyting á hegningarlögum til að bæta réttarstöðu barna.
• Breyting á skattalögum þess efnis að persónuafsláttur
eftirÞóriN.
Kjartansson
Jóhannes Kristjánsson bóndi á
Höfðabakka í Mýrdal og formaður
samtaka sauðfjárbænda er einn
þeirra sem gefa kost á sér í próf-
kjör Sjálfstæðisflokksins í Suður-
landskjördæmi 27. október nk.
Jóhannes hefur einn örfárra
bænda þorað að láta í ljósi þær
skoðanir að róttækra breytinga sé
þörf í hinu staðnaða forsjárkerfi
hefðbundins landbúnaðar, þar sem
menn geta nánast hvorki lifað eða
dáið.
Forsjárhyggja vinstri flokkanna
í málefnum undirstöðuatvinnuveg-
anna fer sívaxandi á sama tíma og
gjaldþrot sósíalismans í Austur-
Evrópu er afhjúpað. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur löngum kennt sig
við frjálslyndi, víðsýni og frelsi ein-
staklingsins.
Sjálfstæðismenn í Suðurlands-
kjördæmi ættu því að veita þeim
mönnum brautargengi, sem kjark
hafa til að rísa upp gegn hverskon-
ar ofstjóm, þegar þess er kostur.
Auk sauðijárbúskapar, hafa Jó-
hannes og Sólveig Pétursdóttir
kona hans byggt upp á Höfða-
Þórir N. Kjartansson
brekku myndarlega aðstöðu til
ferðaþjónustu.
Jóhannes er maður athafna og
atvinnulífs en það er almælt að allt-
of fáir slíkir sitji Alþingi íslendinga.
Ég skora á sjálfstæðisfólk á Suð-
urlandi að kjósa Skaftfellinginn
Jóhannes Kristjánsson í áhrifasæti
í prófkjörinu nk. laugardag.
Höfundur er framkvæmdastjóri í
VíkíMýrdal.
Ríkissjónvarpið:
Á söguslóðum á Grænlandi
DANSKA.sænska og norska sjónvarpið hafa ákveðið að ganga til
samstarfs við Sjónvarpið um gerð þriggja sjónvarpsþátta sem tekn-
ir verða upp á slóðum norrænna manna á Suður-Grænlandi.
Arni Johnsen blaðamaður mun
stjórna fimmtán manna leiðangri
sem fer á fimm gúmmíhraðbátum
um grænlenskar byggðir, en Arni
átti hugmyndina að þáttunum.
Ferðinni er heitið á slóðir norrænna
manna frá árunum 1000 til 1500
og verður siglt á nokkra afskekkta
staði, meðal annars í Paradísardal
undir jökli.
Víða eru sjáanlegar rústir norr-
ænna byggða og ummerki frá fyrri
öldum. Er ráðgert að sjósetja
gúmmíbátana í Narsarssuaq og
sigla síðan að Bröttuhlíð, Narssaq,
Görðum, Hvalsey, Qagssiarssuk,
Julianehab, Sydproven, Nanortalik,
Sermilik og að Tasessuaqvatni.
Farin verður alls um 1000 km. löng
leið á tólf til fjórtán dögum. Ekki
hafa áður verið gerðir samsvarandi
sjónvarpsþættir um eyðifírðina á
Grænlandi, sem tengjast svo óijúf-
anlega sögu Norðurlandanna.
Arni Johnsen verður leiðangurs-
stjóri, Páll Reynisson kvikmynda-
tökumaður og hljóðmaður verður
Gunnar Hermannsson. Verður leið-
angurinn farinn í fyrri hluta ágúst-
mánaðar næstkomandi.
verði að fullu millifæranlegur milli hjóna.
• Forgangskröfur ríkisins í þrotabú og dánarbú yrðu felldar
niður þannig að ríkið gæti ekki gert kröfur á undan öllum
öðrum kröfuhöfum, m.a. veðhöfum. Þetta frumvarp varð
að lögum vorið 1989.
• Breyting á lögum um fæðingarorlofsvo að vinnuveitendum
verði heimilt að greiða konum á almennum vinnumarkaði
mismun á fullum launum og fæðingaroríofi
frá Tryggingarstofnun ríkisins.
• Breyting á lögum um málefni
aldraðra til þess að minnka
greiðslubyrði þeirra sem
eru sjúkir eða dveljast í
þjónustuhúsnæði.
Það er óhætt að treysta
Sólveigu Pétursdóttur fyrir
framqanqi qóðra mála.
Kjósum
Sólveigu Pétursdóttur
í þriðja sætið
Kosningaskrifstofa, sfmar: 679516, 38300 og 38303