Morgunblaðið - 26.10.1990, Side 16

Morgunblaðið - 26.10.1990, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1990 leikurinn mánudaga til kl. 12.00-17.00. rinn Oskjuhlíð, c:mi ftotcnn SV3551 530 Ný sending af jökkum og kápum ujimiguim v/Laugalæk, sími 33755 Loksins. Handkrem sem verndar án kláða. Fljótsdalsvirkjun og mögn- leikar Austfirðinga eftir Kristin Pétursson Jónas Pétursson fyrrv. alþingis- maður skrifaði grein í Morgunblað- ið nýverið. Tekið skal undir þá skoð- un hans að Austfirðingar hafi for- 'ræði yfir virkjun fallvatna á Aust- urlandi. 1982 sat undirritaður í stjórn Sambands sveitarfélaga í Austurlandskjördæmi. Þá skrifaði ég bréf til þáverandi framkvæmda- stjóra SSA og iagði til að Austfirð- ingar sjálfir stofnuðu fyrirtæki til orkufreks iðiiaðar og leituðu sjálfir eftir samstarfi við erlenda aðila um stóriðju á Austurlandi. Ekki þótti þetta fýsileg hugmynd þá. Spurn- ingin er: Væri staðan í dag eins og hún er ef heimamenn hefðu sjálfir drifið málin áfram? Hver á að treysta okkur ef við treystum okkur ekki sjálf? Virkjun í Fljótsdal Fljótsdalsvirkjun-er einn af glæs- ilegustu virkjunarkostum landsins. Austfirðingar eiga nú tækifæri. Láta á það reyna hvort ekki er unnt að stofna eigið orkuöflunarfyr- irtæki. Til þess þarf að vísu að breyta lögum og afnema einokun Landsvirkjunar. Austurlandsveita gæti yfirtekið dreifingu raforku á Austurlandi og rekstur virkjana. Hér er bara um venjulegan fyrir- tækjarekstur að ræða. Bygging, framleiðsla og rekstur raforkuvera er alveg á færi Aústfirðinga að sjá um. Einhvemtíma hefur verið kall- aður saman fundur af minna tilefni en umijöllun um þetta. Kjami þessa máls er að heimamenn taki höndum saman um að taka þessi málefni í sínar hendur með dyggri aðstoð þingmanna og annarra. Það er hins vegar fráleitt annað en byggja Fljótsdalsvirkjun, þó svo flytja verði orkuna suður. Góður Færeyingur kenndi mér eitt sinn reglu sem er svona: Aldrei vera reiður lengur en það borgar sig. Orkufrekur iðnaður og jarðgangagerð Að mati undirritaðs verða Aust- firðingar að taka meira í eigin hend- ur leit að hentugu stóriðjufyrirtæki við Reyðarfjörð. Stjórnvöld á ís- Kristinn Pétursson „Bætt samkeppnisstaða Austfjarða varðandi orkufrekan iðnað með tilkomu jarðganga er ekki bara hagsmuna- mál Austfirðinga held- ur hagsmunamál þjóð- arinnar allrar í harðn- andi alþjóðlegri sam- keppni.“ landi skulda Austfirðingum það að styrkja þá til að leita að orkufreku iðnfyrirtæki sem hæfir aðstæðum. Við höfum reynsluna af því að láta kerfið vera með forræði í málunum. Stjórnvöldum ber skylda til að að- stoða heimamenn við þessi mál, en láta heimaaðila hafa forræðið og framkvæmdina. Jafnframt verður að herða sóknina í jarðgangagerð. Með jarðgangagerð batnar sam- keppnisstaða Austurlands. Það er hagsmunamál þjóðarinnar allrar. Arðsemi þjóðarinnar af jarðganga- gerð er meiri en hingað til hefur verið látið í veðri vaka. Má þar nefna aukna framleiðni fyrirtækja, lægra vöruverð með minnkandi lag- erhaldi verslana, aukna verðmæta- sköpun með tilkomu fiskmarkaðs á Austurlandi og auknu samstarfi og sérhæfingu fiskvinnslufyrirtækj a, sparnað vegna minnkandi snjó- moksturs, sparnað með auknu sam- starfi sveitarfélaga og síðast en ekki síst bætta stöðu Austfirðinga með tilliti til orkufreks iðnaðar á Reyðarfirði. Bætt samkeppnisstaða Austijarða varðandi orkufrekan iðnað með tilkomu jarðganga er ekki bara hagsmunamál Austfirð- inga heldur hagsmunamál þjóðar- innar allrar í harðnandi alþjóðlegri samkeppni. Austfirðingar eiga marga og mikla möguleika. Til að tryggja framgang þeirra möguleika þurfa þingmenn Austurlands að herða sóknina og standa fast á þeim hags- munamálum sem hér hafa verið nefnd. Höfundur er þingmaður og tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Austurlandi. Sjálfstæðisfélögin í Kjósarsýslu: • • Orn Kjærnested endurkos- inn formaður fulltrúaráðs Reykjum. AÐALFUNDUR Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Kjósar- sýslu var haldinn í félagsheimil- inu Urðarholti miðvikudaginn 17. október sl. Formaður ráðsins Örn Kjær- nested setti fundinn og kynnti fund- ACO Mjuk Hand er notalegt handkrem sem ver og verndar hendurnar aðeins meir en venjulega. Það er mýkjandi og í því er tvöfaldur skammtur náttúrulegra, rakabindandi efna. Og því fylgir enginn kláði. Það er því hægt að nota oft á dag, sé þess þörf. ACOMjukHand Með og án ilmefna. Fæst aðeins í apótekinu. arefnið. Þá skipaði hann starfsmenn fundarins þau Magnús Kjartansson sem fundarstjóra en Björk Bjarka- dóttur sem ritara. Ennfremur bauð hann velkomna gesti fundarins þau Salóme Þorkelsdóttur alþingismann og Þröst Lýðsson sem bæði eru í framboði, ásamt fleirum í prófkjöri sjálfstæðismanna á Reykjanesi. Þá flutti formaður skýrslu um störf ráðsins og stjórnarinnar á liðnu starfsári en þar var fjallað um ýmislegt en þó bar hæst málefni er snerta byggðakosningar sem fram fóru á sl. vori. Þá var gengið til kosninga en tveir aðalmenn gengu úr stjórninni. Það voru Guðni Indriðason af Kjal- arnesi en hann er fluttur í burtu úr héraðinu. í hans stað var kosinn Kristinn Gylfi Jónsson og Ólafur Þór Ólafsson úr Kjós í stað Gunn- ars Páls sem á sæti í stjórn sjálfkjör- inn sem formaður ungra sjálfstæð- ismanna. í varastjórn var kjörin Valgerður Sigurðardóttir i stað Gunnars Páls. Örn Kjærnested var endurkjörinn sem formður ásamt meðstjórnend- um þeim Salóme Þorkelsdóttur, Hjalta Sigurbjömssyni, Kjós, og Jóni Zimsen úr Mosfellsbæ. Vara- menn voru endurkjörnir þeir Guð- mundur Jónsson, Mosfellsbæ, Björn Jónsson, Kjalarnesi, Magnús Kjart- ansson, Mosfellsbæ, og Einar Guð- bjartsson. Að lokum var kosin kjörstjórn fyrir Mosfellsbæ, voru það: Guð- mundur Jónsson, Svala Arnadóttir, Þórarinn Jónsson, Magnús Kjart- ansson, Gunnar Hjartarson og Val- gerður Sigurðardóttir. Þessir aðilar gefa nánari upplýsingar um fram- kvæmdina ásamt stjórn Fulltrúa- ráðsins á skrifstofu Sjálfstæðisfé- lagsins í Urðarholti 4. - J.M.G.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.