Morgunblaðið - 26.10.1990, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR.26. OKTÓBER 1990
17
Er aðstoðarráðherra
ílla við sannleikann?
eftirJón Björnsson
í sjónvarpsfrétt síðastliðinn þriðju-
dag fór aðstoðarráðherra heilbrigðis-
mála, Finnur Ingólfsson, á kostum í
beitingu hálfsannleika og ósanninda,
þegar hann gefur í skyn eins og svo
oft áður að verðmyndun lyfja sé aðal-
iega í höndum apótekara, og óskilj-
anleg ráðamönnum og- almenningi.
Sannleikurinn er sá að verðmyndunin
er mjög ljós og auðskilin.
Hvað varðar innkaupsverð iyfja til
landsins (innflutningsverð, cif-verð)
þá eru það opinberir aðilar einir sem
ákveða hvaða lyf eru flutt til lands-
ins og á hvaða verði. Og það er heil-
brigðisráðuneytið sem gefur endan-
legan úrskurð um hvort lyf er flutt
inn og á hvaða verði. Þetta er svona
hversu oft sem Finnur falsar stað-
reyndir, og þótt hann hafi ekki áhuga
á sannleikanum þá geta allir frétta-
menn, sem og aðrir, gengið úr
skugga um sannleiksgildi þessarar
fullyrðingar.
Hvað verðmyndun hér innanlands
viðvíkur, þá er það iyfjaverðlags-
nefnd sem ákveður bæði heildsölu
og smásöluálagningu og birtist hún
fjórum sinnum á ári í lyfjaverðskrám
sem ráðherra staðfestir. Formaður
nefndarinnar er hagfræðingur, skip-
aður að tillögu Hagstofu íslands,
aðrir nefndarmenn eru lögfræðingur,
skipaður að tillögu Tryggingastofn-
unar ríkisins, starfandi apótekari,
Jón Björnsson
„O g það er heilbrigðis-
ráðuneytið sem gefur
endanlegan úrskurð um
hvort lyf er flutt inn og
á hvaða verði.“
starfandi lyfjafræðingur (núna ríkis-
starfsmaður) og þann fimmta skipar
ráðherra án útnefningar. Verði
ágreiningur í nefndinni sker ráðherra
úr.
Nefndin hefur í áraraðir starfað—
mjög faglega eftir laganna bókstaf,
en ekki af órökstuddu offorsi eins
og Finnur ætlast til. Hann skilur
ekki að í lögum eru oft sett ákvæði
um nefndir til að koma í veg fyrir
afglöp, þegar menn eins og hann
komast til valda.
Það er ekki óeðlilegt að samvisku-
samir nefndarmenn fari eftir eigin
sannfæringu og rökum þótt ráðherra
sé að skipa þeim án rökstuðnings
að gera annað.
Að „heilbrigðisráðherra hafi ekki
áhrif á verðið eins og hann óskar“ í
þeirri merkingu að hann ráði'því al-
farið, getur að vísu staðist, en því
aðeins ef lánleysi hans er slíkt að
enginn í lyfjaverðlagsnefnd, ekki
einu sinni sá sem hann sjálfur skipar
án útnefningar, fæst til að flytja
boðskap hans inn í nefndina. En
áhrif hefur hann, einsog eftirfarandi
dæmi sýna,
1. Um síðustu áramót komu til-
lögur frá lyfjaverðlagsnefnd sem ráð-
herra hafnaði og sendi til baka.
2. Ef ágreiningur verður í nefnd-
inni sker ráðherra úr, sem fyrr seg-
ir. Það átti sér stað í september
síðastliðnum. Þá kom upp ágreining-
ur í nefndinni sem ráðherrann greip
fegins hendi og fór ekki milliveginn
einsog sáttasemjari heldur ákvað
mestu skerðingu á álagningu sem
tillaga kom fram um í nefndinni.
3. Auk þess hefur ráðherrann
núna eftir álagningarlækkunina, sem
varð 1. október síðastliðinn, brotið
lög með því að hækka framleiðslu-
verð sérlyfja Lyfjaverslunar ríkisins
til þess að vega upp á móti álagning-
arlækkuninni án þess að leita álits
lyfjaverðlagsnefndar.
Höf’undur er formaður
Apótekarafélags íslands.
Skrifstofa stuðningsmanna
ÓLAFS ÍSLEIFSSONAR
er á Bergstaðastrœti 86,
símar 20994 og 13260.
Opið frá hádegi alla daga.
Allir velkomnir.
Ólafi öruggt sæti, 7. sætið
PAGVIBT BARIVA
Stuðningsstarf við
sérdeild Múlaborgar
Þroskaþjálfi óskast til starfa á sérdeild Múlaborgar.
Upplýsingarveita Ásrún Guðmundsdóttir, sér-
fræðingur, í síma 27277 og Sigríður Pálsdóttir,
forstöðumaður, í síma 685154.
IIÝTT SÍMANUMER
PRENTMYNDAGERÐAR'-
i^AYNDANAOT)
NUERAÐ HITTAA
Efþú hMrfœrðu milljónir
Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511.
SAMEINAÐA/SÍA