Morgunblaðið - 26.10.1990, Page 24

Morgunblaðið - 26.10.1990, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1990 Noregur: Syse sagður íhuga afsögn næstu daga Ósló. Reuter. VANGAVELTUR um að Jan P. Syse, forsætisráðherra Noregs, muni innan tíðar neyðast til að segja af sér mögnuðust enn í gær. Kaci Kullman Five, viðskiptaráðherra, lét að því liggja á þingi að ekki hefði tekist að ná sáttum innan þriggja flokka samsteypustjórnar Syse um hvernig aðlaga beri löggjöf Norðmanna að reglum Evrópu- bandalagsins. Norska fréttastofan NTB sagði að í röðum stjómmálamanna væri sú skoðun nokkuð almenn að Syse myndi skýra frá því á mánudag að hann hygðist segja af sér. Heimildar- manna var ekki getið nánar. Deilan kom upp fyrir tíu dögum er talsmenn Miðflokksins lýstu yfir því að þeir væm andvígir því að útlendingum yrði heimilað að eign- ast norskt land án þess að fyrir lægi samþykki stjómvalda. Þar með varð ljóst að Miðflokksmenn vora Handtökur í Búrma Bangkok. Reuter. EKKERT lát er á aðför herstjórn- arinnar í Búrma að stjórnarand- stæðingum. Hefur stjómin látið handtaka 14 forystumenn í helsta stjómarandstöðuflokk landsins, að því er stjórnarerindrekar héldu fram í gær. Fjórtánmenningarnir vora teknir fastir í fyrradag í áhlaupi lögreglu á höfuðstöðvar Lýðræðisbandalags- ins. Handtökunnar hefur ekki verið getið í fjölmiðlum Búrma og óljóst er hvort mennimir verða ákærðir að loknum yfirheyrslum. Lýðræðisbandalagið vann 80% þingsæta í kosningum í maí sl. en herstjómin, sem hefur ekki viljað afsala sér völdum nema gegn ákveðnum skilyrðum, hefur látið læsa flesta leiðtoga samtakanna á bak við lás og slá eða hefur þá í vstofufangelsi. Hefur herstjómin m.a. nýverið sakað bandalagið um að standa á bak við baráttu herskárra munka sem lagst hafa gegn því að hermenn og fjölskyldur þeirra njóti þjónustu búddareglunnar. Af þessum sökum hefur herstjóm- in látið handtaka tugi munka í þess- ari viku. Kjarnorku- tilraunum Sovétmanna andmælt Helsinki. Reuter. STJÓRNVÖLD í Finnlandi lýstu í gær yfir áhyggjum sínum vegna þess að Sovétmenn hefðu ný hafið kjarnorkusprengingar í tilrauna- skyni á eyjunni Novaja Semlíja. Kjamorkusprengjuna sprengdu Sovétmenn á miðvikudag og var það í fyrsta skipti í rúmt ár sem slíkar tilraunir fara fram neðanjarðar. Norðurlöndin höfðu áður hvatt Sov- étmenn til þess að falla frá áformum um að hefja slíkar tilraunir á Novaja Semlíja en þær fóru á áram áður einkum fram í Sovétlýðveldinu Kaz- akhstan. í tilkynningu sem utanríkisráð- herra Finnlands, Pertti Passio, birti í gær sagði að sú hætta væri fyrir hendi að geislavirk efni slyppu út í umhverfið við kjamorkutilraunir sem þessar. Slíkt gæti ógnað lífríkinu á norðurslóðum. Var á það minnt að Norðurlönd hefðu áður lát- ið í ljós von um að kjarnorkuveldin næðu sáttum um að leggja slíkar tilraunir af. Sams konar yfirlýsingar bárast einnig frá stjómvöldum í Noregi og Svíþjóð. Sovéska TASS-fréttastofan greindi frá því á miðvikudag að til- raunin hefði farið fram og sagði hana gerða í því í skyni að auka áreiðanleika og öryggi kjarnorku- vopna. ekki reiðubúnir til að ganga að einu þeirra skilyrða sem Evrópubanda- lagið hefur sett fram í viðræðum við Fríverslunarbandalag Evrópu um sameiginlegt evrópsk efnahags- svæði. Þá er flokkurinn einnig andvígur því að felld verði úr gildi lög er takmarka eignarhlutdeild út- lendinga í norskum fyrirtækjum, bönkum og lánastofnunum. Norski Hægriflokkurinn, flokkur forsætisráðherrans, er hlynntur því að Norðmenn gerist aðilar að Evr- ópubandalaginu en Miðflokksmenn og þriðji stjómarflokkurinn, Kristi- legi þjóðarflokkurinn, era því andvígir. Flokkarnir era á hinn bóg- inn allir sammála um að leitað verði eftir nánara samstarfí við Evrópu- bandalagið á vettvangi EFTA. Norski Verkamannaflokkurinn er í mikilli sókn ef marka má skoðana- könnun er birtist í Aftenposten á laugardag. Samkvæmt henni fengi flokkurinn rúm 42 prósent atkvæða ef gengið yrði til kosninga nú. í könnun sem gerð var í síðasta mán- uði mældist fylgi flokksins 36,8% en í þingkosningunum í september í fyrra fékk hann 34,3% fylgi. Fylgið við samsteypustjóm Syse reyndist aðeins 29,9 en flokkamir þrír fengu alls 37,2 prósent atkvæðanna í síðustu kosningum. AF ERLENDUM VETTVANGI KRISTJAN JONSSON Hrakfarir Bhutto tryggja ekki styrka stjórn and- stæðinga hennar í Pakistan ÓSIGUR Benazirs Bhutto í þingkosningunum í Pakistan kom flestum stjórnmálaskýrendum mjög á óvart, flestir höfðu búist við að hún myndi a.m.k. halda sínum hlut. í kosningabaráttunni safnaðist fagn- andi manngrúi saman hvarvetna þar sem Bhutto efndi til útifunda, bjartsýni stuðningsmanna hennar fór vaxandi fram á kjördag. Leiðtog- inn útskýrir áfallið með því að kosningasvik hafi verið höfð í frammi. Erlendir eftirlitsmenn, er reyndu að fylgjast með framkvæmd kosning- anna, skila skýrslu á morgun, föstudag, en erlendir stjórnarerindrekar draga fullyrðingar Bhutto í efa og segja að stórfelld svik hefðu ekki verið framkvæmanleg án þess að þeirra yrði greinilega vart. Pólitískur ferill Bhutto .er vart á enda en svo getur þó farið að hún og ýmsir nánustu samstarfs- menn hennar verði fundin sek um einhverja af þeim glæpum sem starf- andi bráðabirgðastjóm, er skipuð var af Ghulam Ishaq Khan forseta í ágúst eftir að Bhutto var vikið frá, sakar hana um. Bhutto er sögð hafa verið ónýtur stjómandi, hafa stuðlað að spillingu o g hyglað ættmennum sínum, eiginmanni og vinum með ýmsum hætti. Andstæ/iingar hennar úr níu stjórnmálaflokkum eiga það eitt sameiginlegt að vera á móti Bhutto og atlagan gegn henni tókst en sigurgleðin getur orðið skamm- vinn. Álíka umskipti urðu í nágrann- aríkinu Indlandi fyrir skemmstu þar sem Rajiv Gandhi, er beið ósigur fyrir svipaðri samfylkingu, eygir nú von á ný vegna deilna í ijandaflokki sínum. Eldraun Bhutto Ferill Bhutto í embætti forsætis- ráðherra, er lauk í ágúst sl., var enginn dans á rósum og margir telja að reynsluleysi hennar í stjórnmálum hafí átt sinn þátt í því. Hún bætti Reuter Það hefur verið nóg að gera hjá fjárlaganefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings að undanförnu. Þing- mennirnir eru frá vingtri talið: David L. Boren, Lloyd Bentsen, sem situr við borðsendann, Bob Packwo- od og Robert Dole. Samkomulag í augsýn um bandarísk fjárlög: Fallið frá sérstökum núlljónamæringaskatti Washington. Reuter. Bandarískir þingmenn og fulltrúar ríkisstjórnarinnar vinna nú að því að fínpússa samkomulag sem náðist i fyrrakvöld um afgreiðslu fjárlaga. I því felst m.a. að ekki verður lagður sérstakur skattur á milljónamæringa en fjármagnstekjur verða skattlagðar af auknum þunga auk þess sem tekjuskattsgreiðslur tekjuhárra verða auknar. George Bush Bandaríkjaforseti sagði að helstu þættir fjárlaganna væru nú ljósir. Þess vegna skrifaði hann á miðvikudagskvöld undir bráðabirgðafjárlög sem gáfu þing- inu frest fram á miðnætti aðfara- nótt laugardags til að ljúka fjár- lagavinnunni. Samkomulagið byggist á því að demókratar féllu frá því að leggja sérstakan skatt á þá sem hafa meira en milljón dala árstekjur. Þessí stað verður dregið úr möguleikum hátekjumanna til að fá frádrátt frá skatti. Hins vegar fengu demókratar því framgengt að skattar á fjármagnstekjur verða hækkaðir. Einnig verður tekjuskattur hjá stærstum hópi skattgreiðenda með millitekjur hækkaður að jafnaði. Hann var ýmist 28% eða 33% en verður 31%. Sprengjutilræði N orður-írlandi: a Atta menn teknir í yfirheyrslu Dublin. Belfast. ÍRSKA lögreglan yfirheyrði í gær átta menn í tengslum við sprengjutilræði í tveimur breskum herstöðvum á Norður-írlandi í fyrradag en þá biðu sex hermenn og óbreyttur Norður-íri bana. Mennirnir átta voru hand- teknir í héraðinu Donegal og meðal þeirra voru kunnir stuðn- ingsmenn hins ólöglega írska lýðveldishers (IRA). Talið er að sprengjutilræði IRA við NeWry-landamæra- stöðina hafi einungis heppnast þar sem hryðjuverkasveitin neyddi 65 ára gamlan mann, Patsy Giliespie, til þess að aka bifreið hlaðinni sprengjuefnum inn í stöðina meðan fjölskyldu hans var haldið í gíslingu. Fjölmiðlar á írlandi létu í ljós reiði vegna þessa og prestar írsku kirkjunnar vönduðu sveit- unum ekki kveðjur sínar. Af hálfu IRA var sagt að Giilespie hefði verið samverkamaður Breta og því réttdræpur í aug- um hryðjuverkasamtakanna. Hann hefði unnið í bygginga- vinnu hjá breska hernum á Norður-Irlandi og þar með fyr- irgert lífi sínu. í gær var mótmælandi skot- inn í Belfast stuttu eftir að 'hafa verið yfírhgyrður af lög- reglu í sambandi við rannsókn á nokkrum morðmáium í borg- inni. Er hann 10. ínaðurinn sem týnir lífi á Norður-írlandi í vik- unni vegna átaka vopnaðra sveita kaþólskra mann og mót- mælenda. að vísu sambúðina við Indveija og reyndi að rétta hlut kvenna í landinu en á 20 mánaða ferli sínum tókst henni ekki að koma neinum mikil- vægum lögum í gegnum þingið. Menntafólk í borgunum, er studdi hana ákaft, varð fljótt óánægt, taldi alla orku stjórnvalda fara í baráttu gegn stjórnarandstöðunni og jafnvel að Bhutto-fjöskyldan hefði ekki reynst hótinu skárri en qnnað yfír- stéttarfólk. Fátæklingar í stórborg- unum hafa þó margir reynst tryggir Bhutto. Ljóst er að stjórnarandstað- an gaf Bhutto engin grið og ekki má gleyma að hún hafði ekki meiri- hluta á þingi. Andstæðingarnir réðu ríkjum í fjölmennasta héraðinu, Punjab og bragðu fæti fyrir Bhutto við hvert tækifæri, herinn var tor- trygginn í hennar garð vegna reynsl- unnar af föðurnum, vinstrisinnanum Zulfikar Ali Bhutto, er herforingjar hrandu af valdastóli 1977 og tóku af lífi tveim áram síðar. Fréttamaður breska vikuritsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.