Morgunblaðið - 26.10.1990, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTOBER 1990
25
Reuter
Reuter
Benazir Bhutto.
Ghulam Mustafa Jatoi.
ípectator segir að Bhutto hafi ekki
ekist að vinna hylli ættflokkaleið-
oga sem ráði í reynd öllu sem máli
ikipti í Pakistan. í Indlandi hafi fjöl-
nenn og velmenntuð millistétt hrifs-
ið völdin af landeigendaaðlinum er
3retar yfirgáfu lönd sín á Indlandi
;ftir stríð en í Pakistan sé enn við
ýði lénsskipulag þar sem lýðræðið
5é aðeins nýtt heiti á slagsmálum
im fé, völd og tyllistöður í þröngum
/firstéttarhóp landeigenda. Frétta-
maðurinn bendir á að stórjarðeigand-
ínn Bhutto og einn af helstu and-
stæðingum hennar og starfandi for-
sætisráðherra, auðkýfingurinn Ghul-
am Mustafa Jatoi, deili með sér nær
öllu jarðnæði í héraðinu Sind. Loks
má geta að þorri Pakistana er múha-
meðstrúar og var Bhutto fyrst
kvenna til að ná kjöri í svo mikia
valdastöðu í múslimaríki. Því var
óspart beitt gegn Bhutto í sveitahér-
uðunum að stjómmálafskipti hennar
væru í engu samræmi við íslam; lög-
mál trúarinnar kveða á um auðmýkt
kvenna er lúta skulu körlum í einu
og öllu.
Almenningur hlynntur hernum
Yfir 100 milljónir manna búa í
Pakistan og flestir við örbirgð.
Fréttamaður Spectators í landinu
kemst að þeirri niðurstöðu að al-
menningur kjósi heist að stjómað sé
með herlögum, það sé illskást og
tryggi friðinn. Herinn njóti vinsælda,
minning einræðisherrans og hers-
höfðingjans Zia Ul-Haq, er fórst í
flugslysi með dularfullum hætti 1988
og Vesturlandabúum þótti lítt geð-
felldur, sé höfð í hávegum.
Herinn hefur fjórum sinn rænt
völdum í Pakistan. Mirza Aslam
Beg, forseti herráðsins, er sagður
hafa augastað á forsetaembættinu,
en hefur ekkert látið uppi um fyrir-
ætlanir sínar. Sumir telja hann dygg-
an lýðræðissinna.
Otrygg framtíð
Hver sem aðalorsök ósigursins var
þá er ljóst að Bhutto var betur lagið
að safna áköfustu stuðningsmönnum
sínum saman til fjöldafunda, þar sem
oft vom hundmð þúsunda manna,
en fá almennan stuðning í kjörklef-
anum. Heimildarmenn segja að úr-
slitin hafi jafnvel komið leiðtogum
flokkanna níu í íslömsku lýðræðis-
fylkingunni, er stofnuð var gegn
Bhutto, þægilega á óvart. Flokkamir
níu spanna litrófið frá fijálslyndri
miðju til hægri öfga og óljóst er enn
hver verður forystumaður um mynd-
un stjómar. Áðurnefndur Jatoi, er
var eitt sinn samheiji Bhutto og sat
inni nokkrum sinnum á valdaferii
Zia Ul-Haqs, styrkti stöðu sína í
kosningunum en flestir álíta þó að
annar maður, Nawas Sharif, helsti
forystumaður í Punjab, sé líklegast-
ur. Nawas, sem er 41ns árs gamall
lögfræðingur, fjómrn ámm eldri en
Bhutto, var skjólstæðingur Zia og
sótti mjög á í kosningabaráttunni,
þykir traustur ræðumaður og átti
mikinn þátt í að halda flokkunum
níu saman. Hann hefur þó einn ljóð
á ráði sínu að mati valdastéttarinn-
ar; kemur úr fjölskyldu auðugra iðn-
rekenda en ekki landeigenda. Nawas
vann ömggan sigur í kosningunum
og stjórnmálaskýrendur telja að óán-
ægja punjaba með óeðlilega lítil áhrif
á landsstjórnina hafi styrkt hann;
punjabar em fjölmennasta þjóðin í
landinu og hyggjast nú koma sínum
manni til æðstu valda. Hefð er að
forsætisráðherrann komi frá Sind-
héraði til að koma í veg fyrir ofur-
vald punjaba í landinu. Flestir æðstu
herforingjar Pakistans koma frá
Punjab.
GUÐMUNDUR H. GARÐARSSON
Alþingismaður
--------♦--------
Reykjavík 26. október 1990
Gott sjálfstœðisfólk.
Ég minni á framboð mitt í prófkjöri Sjálfstœðisflokksins
og þakka stuðning í öruggt sæti á
listanum. Það mun gera mér kleift
að tryggja enn frekar framgang
sjálfstæðisstefnunnar á Alþingi.
Kveðjur,
Til sjálfstæðisfólks í Reykjavík.
Haldið ykkur
fast
/ r
ÞVIHER KEMUR:
smn
\l
7\
OSTA
KILOIÐ AF
IMLÓAPAKKNWGUM LÆKKABIM
VAR: 755,30 KR/KG
VERÐUR: 555,30 KR/KG
mr^.