Morgunblaðið - 26.10.1990, Síða 38

Morgunblaðið - 26.10.1990, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1990 Velferðar- sveitar- félagið ? Samtök félagsmálastjóra gangast fyrir ráðstefnu um nýjungar í löggjöf um félagslega þjónustu og hlut sveitarfélagsins í velferð, í Borgartúni 6, Reykjavík, dagana 5. og 6. nóvember 1990. DAGSKRÁ: Mánudagur 5. nóv. 09.00-09.20: Setningarávarp: Jóhanna Sigurðar- dóttir, félagsmálaráðherra. 09.20-09.50: Velferðarsveitarfélagið: Árni Sigfús- son, borgarfulltrúi í Reykjavík. 09.50-10.20. Breytingar á lögum um verkskipt- ingu ríkis og sveitarfélaga m.t.t. félagslegrar þjónustu. Húnbogi Þor- steinsson, félagsmálaráðuneyti. 10.20- 10.30. Gagnrýni: Hallgrímur Guðmundsson, bæjarstjóri í Hveragerði. 10.30- 10.50: Kaffi 10.50-11.20: Breytingar á lögum um félagslegt húsnæði: Ingi Valur Jóhannsson, fé- lagsmálaráðuneyti. 11.20- 11.30: Gagnrýni: Dan Brynjarsson, hagsýslu- stjóri Akureyrarbæjar. 11.30- 12.00: Almennar umræður. 12.00-13.15: Matárhlé. 13.15-13.40: Dagskrá: Bubbi Morthens. 13.40- 14.10: Frumvarp um félagslega þjónustu á vegum sveitarfélaga: Bragi Guð- brandsson, félagsmálastjóri í Kópavogi. 14.10- 14.20: Gagnrýni: N.N. 14.20- 14.30: Gagnrýni: Sólveig Reynisdóttir, félags- málastjóri á Akranesi. 14.30- 15.00: Frumvarp um leikskóla: Gerður Óskarsdóttir, menntamálaráðuneyti. 15.00-15.10: Gagnrýni: Sólveig Ásgrímsdóttir, sál- fræðingur. 15.10- 15.20: Gagnrýni: Lára Björnsdóttir, fram- kvæmdastjóri Þroskahjálpar. 15.20- 15.40: Kaffi. 15.40- 16.10: Frumvarp um breytingar á lögum um vernd barna og ungmenna og barnalögum: Sigríður Ingvarsdóttir, formaður Barnaverndarráðs íslands. 16.10- 16.20: Gagnrýni: Unnur Ingólfsdóttir, félags- málastjóri í Mosfellsbæ. 16.20- 17.00: Almennar umræður. Þriðjudagur 6. nóvember 09.00-09.30: Velferðarsveitarfélagið: Björn Björnsson, prófessor í guðfræði við Háskóla íslands. 09.30-10.00: Ný sjónarmið við endurskoðun laga um málefni fatlaðra: Margrét Mar- geirsdóttir, félagsmálaráðuneyti. 10.00-10.10: Gagnrýni: Sveinn Allan Mortens, framkvæmdastjóri Svæðisstjórnar um málefni fatlaðra á Norðurlandi vestra. 10.10- 10.30 : Kaffi. 10.30-11.00: Breytingar á lögum um málenfi aldraðra: Hrafn Pálsson, heilbrigðis- ráðuneytið. 11.00-11.10: Gagnrýni: Ólöf Thorarensen, félags- málastjóri á Selfossi. 11.10- 12.00: Almennar umræður. 12.00-13.15: Matarhlé. 13.15-13.45: Velferðarsveitarfélagið: Jón Björns- son, félagsmálalstjóri á Akureyri. 13.45-14.10: Dagskrá: Sigrún Valgerður Gestsdótt- ir, söngkona, og Órn Magnússon, píanóleikari. 14.10- 14.40: Velferðarsveitarfélagið: Sigrún Sveinbjörnsdóttir, bæjarfulltrúi á Ak- ureyri. 14.40-15.00: Kaffi. 15.00-16.00: Almennar umræður um efni ráðstefn- unnar. 16.00: Slit. Móttaka ráðstefnugesta hefst 5. nóvember kl. 8.00 og eru þeir hvattir til að koma tímanlega. Dagskrá þessi er birt með fyrirvara um hugsanlegar breytingar. Nán- ari upplýsingar um ráðstefnuna eru veittar á Félagsmálastofnun Kópavogs, sími 91-45700. Þar er ennfremur unnt að tilkynna þátttöku meðan rúm leyf- ir. Samtök félagsmálastjóra. Ingunn Böðvars- dóttir - Minning Móðursystir mín Ingunn Böð- varsdóttir lést aðfaranótt 19. októ- ber. Hún var dóttir Ólafíu Þórðar- dóttur sem lifir hana og Böðvars Jónssonar sem drukknaði þegar hún var tveggja ára. Inga var dugnaðar- forkur sem átti sér fáa líka. Hún var fædd fötluð á höndum, en það var ekki hægt að sjá það því hún vann öll þau verk vel sem hún tók sér fyrir hendur. Árið 1940 giftist hún Magnúsi Magnússyni frá Lág- um, en hann lést 1959. Þau eignuð- ust tvo syni. Þeir eru Magnús og Hahdór, en fyrir átti Inga tvo syni þá Ólaf og Svavar. Hún giftist aftur Hjalta Sigur- jónssyni póstmanni, sem lést árið 1972. Fyrir rúmum áratug hófu þau Inga og Sæli sambúð sem reyndist þeim mjög farsæl og góð. Inga var mjög félagslynd kona, en var ekki allra, en þeim sem hún tók, tók hún vel. Því kynntist ég best þegar ég fór inn á hennar heimili 1972, þá 16 ára. Hún hefur alla tíð verið mér sem besta móðir og reynst mér og mínu fólki vel. Far þú í friði friður Guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði Guð þér nú fylgi Hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Okkar innilegustu samúðarkveðj- ur sendum við til Sæla og allra annarra ættingja. Tóta, Stjáni og börn Ól- afsvík, Anna systir og Ein- ar Neskaupstað í dag er hún borin til grafar hún amma okkar. Svo langt sem okkur rekur minni hefur amma alltaf ver- ið til staðar. Það var alltaf skemmti- legt að koma til ömmu. Hún hafði ríka kímnigáfu og alltaf var stutt í hláturinn. Frá æsku tengjast minningar um garðrækt, hesta og útivist henni ömmu okkar. Hún hafði alltaf tíma, áhuga og húspláss fyrir okkur bamabörnin þegar við vorum hjá henni. Nú þegar amma hefur lokið sínu lífshlaupi erum við barnabörnin þakklát fyrir þann þátt sem hún átti í að móta okkar barnæsku. Sem fullorðnu fólki lærist okkur meira um mannkosti hennar, þessarar sterku og sjálfstæðu konu sem oft þurfti að standa ein en lét aldrei deigan síga. Við eigum eftir að sakna ömmu okkar. Jafnvel í síðustu erfiðu veik- indum hennar átti hún eftir glettni og gott skap. Við vottum þér Sæli samúð okk- ar sem sérð nú á bak sambýliskonu þinni og félaga. Barnabörnin í dag 26. október fer fram frá Fossvogskirkju útför tengdamóður okkar, sem andaðist aðfaranótt 19. október á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Inga fæddist á Bjarnarstíg í Reykjavík 10. júlí 1917. Elsta barn Ólafíu Þórðardóttur. Föður sinn missti Inga aðeins tveggja ára. Við- búið er að oft hafi verið erfitt hjá þeim mæðgum í.þá daga. Inga eign- aðist seinna meir fjögur systkini, hefur trúlega oft mætt mikið á Ingu, því móðir hennar var oft að vinna mikið utan heimilisins. Ef til vill hefur það stuðlað að því hvað Inga varð myndarleg húsmóðir. Þrátt fyrir að Inga væri fædd fötluð Fædd 30. nóvember 1904 Dáin 18. október 1990 Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem) Okkur langar í fáum orðum að minnast móðursystur okkar, Odd- bjargar Guðjónsdóttur, er lést í Landspítalanum að kvöldi 18. októ- ber og verður borin til hinstu hvíldar frá Fossvogskapellu föstudaginn 26. október. Oddbjörg fæddist 30. nóvember 1904 á Bíldsfelli í Grafningi. For- eldrar hennar voru Hannesína Guð- rún Hannesdóttir og Guðjón Jóns- son. Árið 1911 fluttist hún með foreldrum sínum til Reykjavíkur og bjó þar ætíð síðan. Oddbjörg var eíst þriggja dætra þeirra, næst er lék allt í höndum hennar. Kom það sér oft vel, til dæmis þegar Inga gerðist bóndakona, en hún giftist Magnúsi Magnússyni bónda á Hrauni í Ölfusi. Þar var oft margt um manninn í kringum Ingu og það hefur henni örugglega líkað vel, því hún var mjög mannblendin og hrók- ur alls fagnaðar á mannamótum. Var hún mjög söngelsk og var mik- ið sungið þegar þau systkinin hitt- móðir okkar Kristín Laufey, yngst var Unnur er lést nokkurra vikna. Odda frænka var frá því að við fyrst munum eftir, fastur punktur í tilveru okkar systranna. Hún gift- ist aldrei og bjó flest okkar uppvaxt- arár í sama húsi og við í Löngu- hlíðinni, uns hún fluttist í hús Or- yrkjabandalagsins í Hátúni 10 er það var ný reist og bjó þar alla tíð síðan. Það var reisn yfir Oddu. Hún var ákaflega bein í baki alla tíð og bar sig vel. Alltaf var hún tilbúin að hlusta á okkur systumar og rétta hjálparhönd, taka þátt í gleði okkar eða sorgum og miðla okkur af reynslu sinni og þekkingu. Ekkert var of gott fyrir okkur. Hún var róleg og traust en undir niðri kraumaði glettnin, alltaf til í að gera eitthvað óvænt og skemmti- légt. Odda hafði yndi af að sauma. Ófáir eru púðamir og strengirnir sem hún taldi út, eða kjólarnir sem hún saumaði á okkur systurnar og dúkkurnar okkar. Hún heklaði líka mikið á meðan hún gat. Odda var ákaflega vandvirk og kenndi okkur systrunum að meta gott handbragð. Minnisstæðastar em sögumar og ævintýrin hennar Oddu, sem hún sagði okkur ungum. Með þeim mætti fyllar margar bækur. Sögun- um úr sveitinni, af hrútnum Golíat, allar Grýlu- og skessusögurnar, sögumar um fluguna Týra og Siggu saumakonu. Hún var ótæmandi brunnur ævintýra, allt skáldað jafn- óðum. Hún bjó yfír mikilli fráságn- argleði og átti auðvelt með að glæða sögur sínar lífi og spennu. Undir það síðasta var Odda orðin léleg til heilsunnar, en hún var hörð af sér. Hún naut mikils stuðnings systur sinnar og mágs, sem hún var þakklát fyrir. í Hátúninu leið FYRIRLIGGJANDI Þ. ÞORGRÍMSSON & CO Ármúla 29 TILBOÐ KR. 2.495,- Kuldarskór úr leðri Litur: Brúnt Stærðir: 40-45 o.fl. 5% stgreiðsluafsláttur Póstsendum samdægurs TOPpffl —-^EIBTN VELTUSUND11 21212 Oddbjörg Guðjóns- dóttir- Minning H

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.