Morgunblaðið - 26.10.1990, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1990
41
að aldri, eftir langa og erfiða
sjúkralegu.
Það er mikið lán hvers fyrirtækis
að fá starfsmann sem Erlu Eyjólfs-
dóttur í sínar raðir. Því miður eru
ekki of margir hennar líkar, svo
traustur og góður starfsmaður var
hún. Erla hóf störf hjá Nesti hf.
fyrir tæpum 17 árum. Hún bar það
með sér strax í upphafi og ætíð
síðan að þar fór traustur og góður
starfsmaður. Hún var sem klettur
úr hafi og góður leiðbeinandi fyrir
annað og nýtt starfsfólk. Alltaf til-
búin að miðla unga fólkinu sem hún
starfaði með af reynslu sinni, ekki
aðeins á starfssviðinu heldur var
hún mörgum sem móðir með hlýju
sinni og góðum ráðleggingum. Með
Erlu starfaði lengst af mun yngra
fólk en hún sjálf en það var ekkert
kynslóðabil. Hún var vinkona þess
í starfi og leik, fór með því út að
borða og á skemmtistaði og var
ávallt hrókur alls fagnaðar.
Við erum þakklát fyrir að hafa
haft Erlu sem starfsstúlku öll þessi
ár. Hún var svo samviskusöm, dug-
leg, ábyrg og heiðarleg. Alltaf tilbú-
in að grípa inn í þó svo að um
frídaga væri að ræða hjá henni.
Hún var þægileg í viðmóti og sló
gjarnan á létta strengi þegar það
átti við, sýndi ósérhlífni og dugnað,
mætti til vinnu þar til þrek hennar
þvarr og undir það síðasta oft hel-
sjúk. Oft var haft á orði, að nú
hlyti allt að vera í góðu lagi þar
sem Erla, húsmóðir staðarins, væri
á vakt. Margt starfsfólk hefur starf-
að með Erlu í gegnum tíðina. Það
hefur gjarnan haldið tryggð við
hana og hist í góðra vina hópi þó
svo það hafi fyrir löngu hætt störf-
um hjá Nesti. Að öllum öðrum ólöst-
uðum ber að þakka Katrínu Björg-
vinsdóttur einstaka tryggð við Erlu
og þá sérstaklega í erfiðum veikind-
um hennar.
Það er enginn vafi að vel verður
tekið á móti Erlu í húsi Drottins,
svo vel hefur hún skilað sínu starfi
hér á þessari jörð.
Við kveðjum Erlu með söknuði
og þökkum samstarfið af alhug.
Vottum fjölskyldu hennar, sem
hún unni svo mjög, okkar dýpstu
samúðar.
Sonja, Erla, Guðfinnur.
Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari og David Tutt píanóleikari.
Afmælis- og styrktartón-
leikar í Listasafni Siguijóns
í ÞESSUM mánuði eru liðin tvö ár frá vígslu Listasafns Sigur-
jóns Olafssonar í hinum endurbyggðu húsakynnum safnsins í
Laugarnesi. Safnið hefur frá upphafi leitast við að tengja mynd-
Iist Siguijóns við aðrar listgreinar og hefur staðið að tón-
skálda- og bókmenntakynningum auk fjölda tónleika.
í tilefni af þessum tímamótum
verður efnt til sérstakra afmælis-
og styrktartónleika í safninu næst-
komandi sunnudag kl. 20.30. Þar
munu Hlíf Siguijónsdóttir fiðlu-
leikari og David Tutt píanóleikari
flytja sónötur fyrir fiðlu og píanó
eftir Claude Debyssy, Jón Nordal
og César Franck. A efnisskrá er
einnig Notturno V eftir Jónas Tóm-
asson sem hann samdi fýrir þau
Hlíf og David, en verkið frumfluttu
þau á Isafirði sl. fimmtudagskvöld.
Hlíf Siguijónsdóttir lauk einleik-
araprófí í fiðluleik frá Tónlistar-
skólanum í Reykjavík árið 1974
undir handleiðslu Björns Ólafsson-
ar. Þaðan lá leið hennar vestur um
haf og stundaði hún nám í fiðlu-
leik í Bloomington í Indiana, Tor-
onto og Banff í Kanada. Síðan þá
hefur hún starfað víða, m.a. á
ísafirði, í Reykjavík, Þýskalandi
og Sviss. Undanfarin ár hefur hún
verið búsett í Reykjavík og tekið
virkan þátt í margs konar tónlist-
arflutningi auk þess sem hún kenn-
ir fiðluleik við Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar.
David Tutt er fæddur í Kanada,
en hann er nú búsettur í Sviss.
Hann stundaði píanónám í heima-
landi sínu og í Bloomington í Indi-
ana í Bandaríkjunum. Hann hefur
hlotið fjölda verðlauna og viður-
kenninga fyrir píanóleik sinn.
David hefur komið víða fram sem
einleikari, hérlendis og beggja
vegna Atlantshafsins, meðal ann-
ars með sinfóníuhljómsveit ung-
verska útvarpsins í Búdapest, og
sinfóníuhljómsveit Calgary,
Edmonton, Toronto o.fl.
Hlíf og David eru íslenskum
tónlistargestum að góðu kunn því
þau hafa oft leikið saman áður í
Reykjavík, á ísafirði og víðar.
A tónleikunum mun tónlistar-
gestum gefast kostur á að skrá
sig í stuðningsmannahóp Lista-
safns Siguijóns, en safnið hefur
ávallt notið stuðnings almennings,
sem á dijúgan þátt í uppbyggingu
þess.
Tónleikar þessir verða endur-
teknir þriðjudaginn 30. október nk.
kl. 20.30.
(Frcttatilkynning)
t
Móðir okkar, amrna og langamma,
SNJÓFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR,
Kirkjuvegi 4,
Vík i Mýrdat,
sem lést 15. október, verður jarðsungin frá Víkurkirkju laugardag-
inn 27. október kl. 13.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er góðfúslega bent á Víkurkirkju.
Sigurbjörg Björnsdóttir,
Birna F. Björnsdóttir,
Helga E. Hermannsdóttir,
Þórunn Ólafsdóttir,
Ragnar Ólafsson,
og barnabarnabörn.
Jóna Björnsdóttir,
Guðmundur Þorsteinsson,
SigurðurÆ. Harðarsson,
Steinunn Sigvaldadóttir
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma og langamma,
ERLA EYJÓLFSDÓTTIR,
Engjaseli 84,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, föstudaginn 26. októ-
ber, kl. 10.30.
Viðar Magnússon, Bettý Guðmundsdóttir,
Reynir Magnússon, Magnea Aradóttir,
ívar Magnússon, Sigrún Kjærnested,
Smári Emilsson, Nanna K. Magnúsdóttir.
Gyða Eyjólfsdóttir,
Svana Eyjólfsdóttir,
Trausti Eyjólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg móðir okkar, stjúpmóðir og tengdamóðir,
LILJA SIGFÚSDÓTTIR
frá Kirkjubæ, Vestmannaeyjum,
Eyjaholti 6, Garði,
sem lést 15. október, verður jarðsungin frá Útskálakirkju laugar-
daginn 27. október kl. 13.30.
Guðrún Rannveig Pétursdóttir,
Brynja Pétursdóttir,
Árni Pétursson,
Herbjört Pétursdóttir,
Ósk Pétursdóttir,
Guðlaug Pétursdóttir,
Magnús Pétursson,
Jóna Pétursdóttir,
Lára Guðmundsdóttir,
Guðni Þór Ólafsson,
Björn Hólmsteinsson,
Jóhann Jónasson,
Þórdís Guðmundsdóttir,
Sigurgeir Björgvinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkur langar til að minnast
elskúlegrar vinkonu okkar og
starfsfélaga, Erlu Eyjólfsdóttur,
sem andaðist á Landspítalanum 20.
október eftir erfið veikindi.
Ávallt bar Erla sig vel og var
það henni mikils virði að fá að halda
sínu starfi þrátt fyrir veikindi sín.
Aldrei kom sá dagur að Erlu vant-
aði í vinnu öll þessi ár, hvernig sem
viðraði og gátum við því ávallt
treyst á hana. Ógleymanlegar eru
þær vinnustundir sem við áttum
með Erlu. Hún var elsti starfskraft-
urinn í Nesti á Ártúnshöfða og það
var aðdáunarvert hvað hún hélt öllu
í röð og reglu af miklum dugnaði
og samviskusemi enda litum við
allar upp til hennar. Það lýsti henn-
ar innri manni hvernig hún fór með
eigur sínar og til að mynda var
bíllinn hennar alltaf nýpússaður og
fínn svo unun var að horfa á hann
út um gluggan í Nesti.
En þó að við værum allar yngri
skipti aldursmunurinn ekki máli,
enda var Erla alltaf ein af okkur.
Ósjaldan hækkaði Erla i útvarpinu
og söng og dansaði og kom öllum
í kringum sig í gott skap. Hún
hafði yndi af söng og hlustaði mik-
ið á Frank Sinatra og eitt af eftir-
lætis lögum hennar var „My way“
og eigum við ljúfar minningar með
henni og því lagi.
Oft fórum við út að skemmta
okkur og alltaf var Erla hrókur alls
fagnaðar.
Við vinkonurnar munum minnast
Erlu með söknuði og þökkum henni
fyrir allar ánægjulegu og skemmti-
legu samverustundimar sem við
áttum saman.
Sendum sonum hennar og fjöl-
skyldum þeirra innilegar samúðar-
kveðjur.
Blessuð sé minning hennar.
Gamlir starfsfélagar í Nesti,
Ártúnshöfða.
Kata, Daniela, Lizzý, Villa, Kata
R, Bára, Tóta, Erla H., Guðrún
T., Birna og Guðbjörg G.
+
Systir mín, mágkona og frænka,
ODDBJÖRG GUÐJÓNSDÓTTIR,
Hátúni 10,
verður jarðsungin í dag, föstudaginn 26. október kl. 13.30 frá
Fossvogskapellu.
Kristín L. Guðjónsdóttir, Ragnar Þ. Guðlaugsson,
Guðjón Ragnarsson, Hanna G. Ragnarsdóttir,
Halldóra G. Ragnarsdóttir og fjölskyldur.
t
Innilegar þakkir til ykkar allra fyrir auð-
sýnda samúð og hlýhug við fráfall og
útför elskulegs sonar okkar, unnusta,
bróður, mágs og tengdasonar,
KARLS JAKOBS HINRIKSSONAR,
sem lést af slysförum 13. október sl.
Guð blessi ykkur.
Svava Karlsdóttir, Hinrik
Elfn Karítas Bjarnadóttir,
Pálína Hinriksdóttir, Svavar Ásmundsson,
Þórunn H. Sigurðardóttir, Bjarni Bogason.
ERFISDRYKKJUR
Tökum að okkur að sjá um erfisdrykkjur, stórar og
smáar, í glænýjum og notalegum sal, Ásbyrgi.
Upplýsingar í síma 91-687111.
fíÚTEL ígiLANP
Erfidrykkjur í hlýlegu
og notalegu umhverfi
Vid höfum um árabil tekið að okkur að sjá um erfídrykkjur fyrir >
allt að 300 manns. í boði eru snittur með margvíslegu áleggi, *
brauðtertur, flatbrauð með hangikjöti, heitur eplaréttur með
rjóma, rjómapönnukökur, sykurpönnukökur, marsípantertur, *
rjómatertur, formkökur, 2 tegundir o.fí.
Með virðingu,
FLUGLEIÐIR
HÖTEL LOFTLEIÐIR
REYKJAVlKURFLUGVELLI. 101 REYKJAVlK
SIM1. 9 1 - 2 2 3 2 2
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
KJARTANS BJÖRGVINS JÓNSSONAR
frá Hafnarhólmi,
Ásabraut 5, Keflavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar 14 G á Landspítalan-
um fyrir góða og hlýlega umönnun.
I
Sigríður Ingimundardóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum samúð og vinarhug við andlát og útför
ÖNNU SVEINSDÓTTUR
frá Kirkjubæ.
Vaka Sigurjónsdóttir,
Máni Sigurjónsson,
Frosti Sigurjónsson,
Fjalarr Sigurjónsson,
Bergþór Sigurðsson,
Kristín I. Tómasdóttir,
Guðrún Valgarðsdóttir,
Beta Einarsdóttir,
Sigríður Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.