Morgunblaðið - 26.10.1990, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1990
„ l/i£ i/HJum fci éitthyab fer
veJ vi<5 be.ppit>. Efgia eitthvaÍF
rne% bruruxble ttiirn ? "
sem þú segir mér getur
verið notað gegn þér.
Með
morgunkaí'iinu
Ég sting upp á að við spil-
um handbolta ...
HOGNI HREKKVISI
'NEí / ÉC3 SENDI Eicto Ern/S. Plzzo PVfZlR. PiGi11
Guðmund
Magnússon
í 6. sætið
Til Velvakanda.
Þessa dagana er mikið talað um
þörfina á því að ungt fólk eignist
fulltrúa í þingflokki Sjálfstæðis-
flokksins. Það er bent á það að fólk
á aldrinum 18-35 ára sé helmingur
kjósenda en eigi engan fulltrúa í
röðum sjálfstæðismanna á Alþingi.
Ég held að rétt sé að taka tillit
til þessa í komandi prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins. Ég held að það sé
rétt sem sagt er að framboðslisti
flokksins verður ekki trúverðugur ef
fulltrúi ungs fólks er þar ekki í ör-
uggu sæti.
Ég álít að Guðmundur Magnússon
sagnfræðingur sé góður fulltrúi unga
fólksins á Alþingi. Mér hafa líkað
skrif hans á undanfömum árum og
allir eru sammála um að hann var
röggsamur sem kosningastjóri Sjálf-
stæðisflokksins í borgarstjórnar-
kosningunum í vor og þar á undan
sem aðstoðarmaður Birgis ísleifs
Gunnarssonar í menntamálaráðu-
neytinu.
Ég ætla að kjósa Guðmund í 6.
sætið í prófkjörinu og hvet sjálfstæð-
ismenn í Reyjavík til að gera hið
sama. Ég er sannfærður um að hann
verður góður fulltrúi flokksins á Al-
þingi.
Þórður Pálsson
---------------
JAKKAR
Tveir jakkar voru teknir af stól-
bökum föstudagskvöldið 19. október.
Annar er úr svörtu sléttu fiaueli með
stórru hettu og kraga. Hann er tek-
inn saman í mitti með teygju og á
honum eru fjórir vasar, tveir niðri
og tveir bijóstvasar, Jakkinn er hálf-
síður.
Hinn jakkinn er gulgrænn ullar-
jakki hnepptur með tölu að innan
og utan og hann ér tekinn saman í
mitti með belti og er með jakkafata-
sniði.
Þær eða þeir sem tóku jakkana.
eru vinsamlegast beðin að skila þeim
á Tvo vini og annan í fríi.
Þessir hringdu ..
Styðjum Guðmund H.
Garðarsson
Jóhann Guðmundsson hringdi:
„ Ellílífeyrisþegar. Gætum
kjara okkar með því að kjósa
Guðmund H. Garðarsson í öruggt
þingsæti í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins. Við þörfnumst mál-
svara þegar Framsóknarflokkur-
inn ætlar að ráðast á kjör okkar.
Hvað skyldi þeim Guðmundi
Bjarnasjmi og framsóknarráð-
herrunum þykja ef þeir ættu að
verða fyrir tekjuskerðingu við
62.500 krónur? Burt með bola-
brögð Framsóknar - kjósum á
þing þá sem bera hag okkar fyrir
brjósti, þá sem eru málsvarar ellil-
ífeyrisþega."
Ættu að fá frest
Eldri borgari hringdi:
„Okkur er gert að greiða raf-
magnsreikninginn 5. hvers mán-
aðar en tryggingabæturnar koma
ekki fyrr en hinn tíunda. Eldra
fólk hefur ekki úr miklu að spila.
Mér finnst að þeir sem eru komn-
ir á eftiraunaaldur ættu að fá
frest til að greiða rafmagnsrein-
inginn fram til tínunda hvers
mánaðar."
Góð þjónusta hjá Flugleiðum
Farþegi hringdi:
„Ég var að koma frá Bandaríkj-
unum 11. október og vil þakka
Flugleiðum fyrir ánægjulegt flug
heim. Ahöfnin var sérstaklega
elskuleg og þjónustan öll til fyrir-
myndar. Ég var búin að vera í
Bandaríkjunum í sex vikur og
varð vör við að þar hafa Flugleið-
ir sérstaklega gott orð á sér. Þar
er fyrirtækið þekkt fyrir elskulegt
viðmót starfsfólks og góðan viður-
gjörning í flugvélunum. Við get-
um verið stolt af þessu íslenska
fyrirtæki.“
Of seint á dagskrá
Ólöf hringdi:
„Þáttur Jónasar Jónassonar á
föstudagskv ætti að vera fyrr á
dagskrá, hálftíma eða klukkutíma
fyrr. Margt eldra fólk sem vill
gjanan hlusta á þáttinn getur
ekki haldið sér vakandi svona
lengi frameftir.“
Ullarjakki
Köflóttur ullaijakki með silfur-
nællu tapaðist fyrir skömmu.
Upplýsingar í síma 676204.
Svefnpokar
Tveir svartir plastpokar duttu
af bíl á leið frá Sauðárkróki að
Vatnsdalshólum um verslunar-
mannahelgina. í þeim voru tveir
bamasvefnpokar, annar skræp-
óttur en hinn grár og hvítur, barn-
asæng og koddar, og tvær dýnur.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja i síma 98-22776.
Stutt morgunleikfimi
H.S. hringdi:
„Ég er óánægð með breyttan
tíma á Morgunleikfimi Halldóru
Bjömsdóttur hjá Ríkisútvarpinu.
Þá hefur þátturinn verið styttur
og vil ég fara þess á leit að hann
verði lengdur á ný.“
Köttur
Ungúr högni, svartur með hvít-
ar loppur, bringu og trýni og hvít-
an topp á rófu fór að heinam frá
Langagerði fyrir nokkru. Hann
var með græna ól. Vinsamlegast
hringið í síma 686827 ef hann
hefur einhvers staðar
komið fram.
Hjól
Nýlegt Superia hjól er í óskilum.
Upplýsingar í síma 30803
Páfagaukur
Grænn páfagaukur tapaðist frá
Fannafold sl. sunnudag. Vinsam-
legast hringið í síma 675461 ef
hann hefur einhvers staðar
komið fram.
Víkverji skrifar
Víkveiji hitti á dögunum hesta-
mann, sem varð tíðrætt um
Reiðhöllina í Víðidal, en hún er nú
í eigu banka og til sölu. Þessi mað-
ur sagðist álíta að Reykjavíkurborg
ætti að kaupa húsið og fá hesta-
mönnum það til að reka. Nefndi
hann til að reiðmennska væri nú
komin inn í skólakerfið og reiðskól-
inn til húsa í Reiðhöllinni, þannig
að nauðsynlegt væri að húsið yrði
áfram til þeirra nota að vetrinum.
Vandræðalaust ætti að vera að
halda uppi starfi að sumrinu, því
svo væri ásóknin mikil í reiðnám-
skeið, sem haldin eru að sumar-
lagi, m.a. á vegum Reykjavíkur-
borgar, að hvergi kæmust allir
krakkar að sem vildu.
Auk þessa mætti svo selja hesta-
mönnum æfingatíma í húsinu og
halda þar reiðsýningar og fleiri
skemmtanir fyrir almenning.
Vafalaust mætti tína til fleiri
hluti til þess að halda uppi mjög
öflugri hestamennsku í Reiðhöllinni
og sagði viðmælandi Víkveija það
stórmál, að ekki kæmi önnur og
óskyld starfsemi þarna inn. Von-
andi sæju borgaryfirvöid sér fært
að koma til liðs við hestamenn með
þessum hætti og ekki minni ákveðni
en þegar þau góðu heilli gátu boðið
Hundaræktarfélagi Islands til af-
nota hús, sem borgin hafði keypt.
Stundum verða skrif Víkverja
lesendum tilefni til bréfa-
skrifta. Víkveiji sagði á laugardag-
inn frá nýrri gerð af músagildrum,
sem danskur verkfræðingur hefur
gert. í þessum pistli nefndi Víkveiji
Músavinafélagið á nafn og nú hefur
honum borist orðsending frá því
félagi, sem er til húsa á Grettisgötu
40b í Reykjavík. í tilefni dagsins
birtir Víkveiji þessa orðsendingu
, alla:
„í grein Víkveija 20. október sl.
var minnst á Músavinafélagið og
markmið þess að kvelja ekki skjól-
stæðinga okkar til bana þótt þeir
villist inn í frátekin hýbýli okkar
mannanna. (Hver á annars hvað
frátekið hér í þessum heimi?)
Músavinafélagið hefur langt ára-
bil beitt sér gegn hvers kyns eitur-
herferðum gegn þessum ferfætling-
um af hálfu okkar viti bornu frænd-
systkina þeirra hér í þróuninni.
Einnig hefur félagið lagst gegn
hvers kyns kvalafullum músagildr-
um sem menning okkar hefur því
miður komið sér upp gegn þessum
samborgurum okkar.
Þess í stað hefur félagið staðið
fyrir innflutningi á mannúðlegum
músalokum til nota handa hveijum
þeim sem er svo vinsæll af skjól-
stæðingum okkar að hafa fengið
heimsókn þeirra inn á heimilið leng-
ur en góðu hófi gegnir stundum.
Músalokur þessar eru þannig
úr garði gerðar að þetta eru
glær pínumúsahús með loftræsti-
götum á sem mýsnar lokast inni í
þegar þær renna á góðgætið inni í
þeim. Þeim verður aidrei meint af
innilokuninni og er þá ekkert annað
að gera en að fara með lokuna úr
í móa og hella úr henni þar.
Músalokurnar eru einnig þannig
úr garði gerðar að ef um börn eða
unglinga er að ræða á heimilinu er
auðvelt að koma músamatnum
þannig fyrir í lokunni að þegar út
er komið og plastspjaldið er dregið
frá matnum étur músin sig út í
gegnum matinn og er fijáls ferða
sinna eftir máltíðina. Krakkar hafa
yfirleitt mjög gaman af að sjá þessi
minnstu spendýrasystkin okkar
dunda við að éta sig út í frelsið
aftur.
Músavinafélagið selur eða leigir
hveijum þeim sem lenda í að fá
svona heimsóknir inn til sín svona
músalokur á vægu verði og hvetur
alla sem lenda í þessum skemmti-
legu heimsóknum að hafa samband
við Músavinafélagið og fá mannúð-
legar lokur hjá félaginu hvenær
ársins sem er, svo skemmtilegur
og farsæll endir verði á þessum
annars alltof sjaldgæfu samskiptum
okkar við hagamýs og húsamýs
landsins."