Morgunblaðið - 26.10.1990, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 1990
Leikur nn. 6:
Notth. Forest - Tottenham
í beinni utsendingu
kl. 14°“
á laugardaginn.
ekki bara heppni
Upplýsingar um úrslit leikja: Lukkulínan, s. 99-1002
Sigurður Lárusson hefur verið ráðinn þjálfari Þórs á Akureyri næstu þijú
árin. Hér er Sigurður ásamt syni sínum, Lárusi Orra, sem lék með Þór á síðasta
keppnistímabili eins og faðir hans.
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
Sigurður gerði
þriggja ára
samning við Þór
Kjartan Másson og Guðjón Ólafsson
taka við Keflavíkurliðinu
SIGURÐUR Lárusson hefur
gengið frá þriggja ára samningi
við Akureyrarliðið Þór, sem
féll niður í 2. deild sl. keppn-
istímabil. „Við erum mjög án-
ægðir með að fá Sigurð til
starfa sem þjálfara," sagði Sig-
urður Arnórsson, formaður
knattspyrnudeildar Þórs.
etta er tímamótasamningur,
sem gerir það að verkum menn
hætta að hugsa um eitt ár í einu,
heldur getur Sigurður einbeitt sér
að því að hugsa um
FráReyni lengri tíma í upp-
Eiríkssyni byggingu liðsins.,“
áAkureyri sagði Sigurður Ar-
nórsson.
Sigurður Lárusson var einnig
ánægður með samninginn og sagð-
ist líta björtum augum á fram-
tíðina. „Ég fæ meira starfsöryggi
og betri tíma til að vinna við þann-
ig kringumstæður. Ég mun ræða
við þá leikmenn sem léku með Þór,
en ég veit ekki betur en allir þeir
sem léku með Þór í sumar verði
áfram næsta keppnistímabil. Það
eru margir efnilegir leikmenn að
koma upp hjá Þór sem eiga eftir
að láta að sér kveða í framtíðinni,“
sagði Sigurður Lárusson.
Kjartan og Guðjón á
ný til Kef lavíkur
Keflvíkingar hafa ráðið Kjartan
Másson og Guðjón Ólafsson sem
þjálfara næstu tvö keppnistímabil.
Kjartan var þjálfari ÍK, en þeir fé-
lagar þjálfuðu saman Reyni í Sand-
gerði fyrir nokkrum árum. Þess
má geta að þeir sáu einnig um þjálf-
un Keflavíkurliðsins um tíma 1988,
eða þegar Keflvíkingar létu enskan
þjálfara fara á miðju keppnistíma-
bili.
ífiRÚmR
FOI_K
■ V-ÞÝSKA landsliðið í hand-
knattleik varð sigurvegari í fjögurra
þjóða móti í Þýskalandi um sl.
helgi. Þjóðverjar unnu Dani,
IIBHHHi 27:20, og Tékka,
FráJóni 21:20, en gerðu
Halldóri jafntefli, 24:24, við
. Garöarssyni Júgóslavi. V-
i Þýskalandi Þýskaiand fékk
fimm stig, Júgóslavía fjögur,
Tékkóslóvakía þrjú og Danmörk
ekkert.
■ Þjóðveijar tefldu fram sínu
yngsta liði frá upphafi, en meðalald-
ur leikmanna er 22,4 ár. Leikmenn
eins og Fraatz frá Essen, Schöne
og Fitzek hafa misst sæti sín, enda
verið að byggja upp landslið fyrir
Ólympíuleikana í Bracelona
1992.
■ Þjóðverjar tefla fram liði sam-
einaðs Þýskalands í handknattleik
í fyrsta skipti í nóvember, en þá
hafa þeir boðið þremur þjóðum,
Sovétmönnum, Svíum og Rúmen-
um á mót í Þýskalandi.
■ NORSKI landsliðsmaðurinn í
knattspyrnu Tore Andre Dahlum,
22 ára, hefur verið orðaður við
Stuttgart.. Hann leikur með Start
í Noregi.
■ BAYERN Miinchen vill ekki
lána skoska landsliðsmanninn Alan
Mclnally til Hamburger, en aftur
á móti vill félagið ekki selja hann
þangað.
Mclnally Vogts
■ BERTI Vogts, landsliðsþjálfari
Þýskalands, er mjög ánægður með
Manfred Binz, varnarleikmann
Frankfurt, sem stóð sig svo vel í
landsleik gegn Svium á dögunum.'
Talið er að Binz, sem er 25 ára,
sé framtíðar „sweeper“ þýska
landsliðsins og er sagt að hann
líkist Franz Beckenbauer.
■ JÚRÍ Sedykh, heimsmethafi í
sleggjukasti, hefur í hyggju að enda
keppnisferilinn í Frakklandi með
Parísarliðinu Racing club de Fran-
ce. Þetta kom fram í franska blað-
inu L’Equipe og þar sagði einnig
að Sedykh hefði verið stöðvaður á
landamærunum fyrir skömmu er
hann var á leið til Parísar til að
skrifa undir samninginn. Hann var
ekki með vegabréfsáritun en er
væntanlegur til Parísar innan
tveggja vikna til að skrifa undir.
Mánaðarlaun hans verða um 130
þúsund ÍSK, auk þess sem hann fær
íbúð og þíL