Morgunblaðið - 28.10.1990, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 28.10.1990, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1990 5 Rauði kross íslands Getur þú ímyndað þér hvernig það er að missa heimilið, að missa foreldra, börn eða systkini, að vera svangur og kaldur, jafnvel veikur eða meiddur? Mundirðu ekki vilja að allir gerðu það sem þeir gætu til að hjálpa? Um allan heim eru menn að reyna að leysa deilur sínar með heimskulegcista hætti sem til er: með stríði og drápum. En átök þeirra bitna ekki mest á þeim sjálfum heldur á saklausu fólki. Við verðum að hjálpa þessu fólki. Ef þr ert fimmtán ára eða yngri getur þú hjálpað okkur með því að gera fyrir okkur mynd sem lýsir því sem þetta saklausa fólk, konur börn og gamalt fólk, þarf að þola. Þar með ert þú orðinn þátttakandi í alþjóðlegri myndasamkeppni sem er liður í heimsátaki til hjálpar stríðshrjáðum. Þú mátt gera myndina eins og þú vilt: nota blýant, liti eða tölvu, gera klippimynd eða þrykkmynd eða hvað sem þér dettur í hug. if egar þú hefur lokið við myndina skaltu setja nafnið þitt aftan á hana og senda okkur fyrir 1. desember í umslagi merktu „Myndasamkeppni" Rauði kross íslands, Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík. A. öllum myndunum sem við fáum mun sérstök dómnefnd velja tíu til að senda til höfuðstöðva Rauða krossins í Sviss og ef þín mynd er ein þeirra mun- um við þakka þér fyrir með verðlaunum. 1. VERÐLAUN: Ferð til Genfar Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík, sími: 91-26722 ARGUS/SlA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.