Morgunblaðið - 28.10.1990, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1990
5
Rauði kross
íslands
Getur þú ímyndað þér hvernig það er
að missa heimilið, að missa foreldra, börn
eða systkini, að vera svangur og kaldur,
jafnvel veikur eða meiddur? Mundirðu ekki
vilja að allir gerðu það sem þeir gætu til að
hjálpa?
Um allan heim eru menn að reyna að
leysa deilur sínar með heimskulegcista hætti
sem til er: með stríði og drápum. En átök
þeirra bitna ekki mest á þeim sjálfum heldur
á saklausu fólki. Við verðum að hjálpa þessu
fólki.
Ef þr ert fimmtán ára eða yngri getur
þú hjálpað okkur með því að gera fyrir okkur
mynd sem lýsir því sem þetta saklausa fólk,
konur börn og gamalt fólk, þarf að þola. Þar
með ert þú orðinn þátttakandi í alþjóðlegri
myndasamkeppni sem er liður í heimsátaki
til hjálpar stríðshrjáðum.
Þú mátt gera myndina
eins og þú vilt: nota blýant, liti
eða tölvu, gera klippimynd eða
þrykkmynd eða hvað sem þér
dettur í hug.
if egar þú hefur lokið við myndina
skaltu setja nafnið þitt aftan á hana og
senda okkur fyrir 1. desember í umslagi
merktu
„Myndasamkeppni" Rauði
kross íslands, Rauðarárstíg 18,
105 Reykjavík.
A.
öllum myndunum sem við fáum
mun sérstök dómnefnd velja tíu til að senda
til höfuðstöðva Rauða krossins í Sviss
og ef þín mynd er ein þeirra mun-
um við þakka þér fyrir með
verðlaunum.
1. VERÐLAUN:
Ferð til Genfar
Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík, sími: 91-26722
ARGUS/SlA