Morgunblaðið - 28.10.1990, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR/INNLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1990
Ráðstefna kennara í Norræna húsinu:
Hvernig á skóli
að henta öllum?
ALÞJÓÐLEG ráðstefna grunnskólakennara og starfsfólks
fræðslustofnana var haldin í Norræna húsinu fyrir skömmu.
Markmið ráðstefnunnar var að leita svara við því hvernig koma
megi til móts við einstaklingsþarfir í skólum, í blönduðum hóp-
um, þannig að öllum sé sinnt eins og best verði á kosið óháð
namsgetu. Þrjátíu þátttakendur frá Bretlandi, Finnlandi, Dan-
mörku og Svíþjóð sóttu ráðstefnuna auk íslendinga.
Að sögn Grétars Marinóssonar,
dósents við Kennaraháskóla
Islands, var megináherslan á ráð-
stefnunni lögð á það hvemig hægt
sé að hjálpa kennurum til að búa
til skóla sem hentað geti öllum
nemendum á grunnskólaaldri,
óháð aðstæðum þeirra eða getu
til náms.
„Sú þróun sem við emm að
vinna að er tvenns konar. Annars
vegar að hverfa frá skólakerfi sem
upphaflega er fyrir fáa, í átt að
skólakerfi sem tekið getur alia
inn. Hins vegar viljum við stuðla
að því að áherslan verði færð frá
námsgreinunum yfir á bömin,
þannig að litið sé á aðra þætti en
námsgreinarnar og bömunum
hjálpað að þroskast sem einstakl-
ingar, í blönduðum hópum þar
sem allir taka þátt,“ sagði Grétar.
Að sögn Lambert Bignell,
kennara frá Bretlandi, sem sótti
ráðstefnuna, er svipuð þróun í átt
til skólakerfis sem sinnt geti þörf-
um allra, að eiga sér stað í Bret-
landi. „Við höfum sérskóla og
sérdeildir fyrir þá nemendur sem
erfiðara eiga með að tileinka sér
námsefni skólanna, en við vinnum
nú að því að blanda meira bekki
og skóla og þjálfa kennara með
sérþekkingu og hæfni til að kenna
blönduðum hópum, þar sem bæði
er um að ræða nemendur með
venjulega námsgetu og þá sem
erfiðara eiga með að tileinka sér
það efni sem kennt er, af einhverj-
um ástæðum, sagði Lambert.
Erik Mörk Pedersen, frá Dan-
mörku, sagði að þær tilraunir sem
gerðar hefðu verið þar í landi með
blandaða bekki í skólum hefðu
sýnt að vel væri hægt að kenna
nemendum með mjög ólíka náms-
getu í sama bekk. „Fyrir fimmtán
árum voru í Danmörku 3000 böm
sem álitin voru óhæf tii náms og
því ekki gerðar tilraunir til að
kenna þeim. í dag er ekki um
neinn slíkan nemanda að ræða.
Öllum er kennt,“ sagði Erik;
Að sögn Grétars er æskilegt
að stefna hérlendis að fyrirkomu-
lagi sem þegar er í Svíþjóð þann-
ig að í stað þess sem verið hefur,
að ákveðinn kennari sjái um til-
tekinn bekk, deili þrír til fjórir
kennarar með sér jafnmörgum
bekkjum. Kennararnir skipu-
leggja þá vinnu sína saman, skipta
með sér verkum og bera ábyrgð
á því að menntunarlegum þörfum
barnanna sé sinnt. Með þessu er,
að sögn Grétars, auðveldara fyrir
kennara að koma til móts við
þarfir nemendanna, þannig að
Tveir af erlendu þátttakendunum á ráðstefnunni, þeir Lambert
Bignell og Erik Mörk Pedersen ásamt Grétari Marinóssyni, sem
séð hefur um skipulagningu hennar.
einnig sé hægt að sinna nemend-
um sem oft hafa verið sendir út
úr bekkjum, þar sem tiltekinn
kennari hafi ekki ráðið við að
kenna þeim.
Til þess að þetta fyrirkomulag
geti orðið að raunveruleika þarf,
að sögn Grétars, að koma til
stuðningur utan frá, við einstaka
kennara og skóla, til dæmis frá
fræðsluskrifstofum og kennara-
menntunarstofnunum.
Grétar lagði áherslu á að þrátt
fyrir að umræðan á ráðstefnunni
hefði einkum snúist um þau böm
sem erfiðara ættu með nám væri
mikil þörf á aukinni umfjöllun um
og úrlausnum fyrir þau börn sem
afburðagreind væru. Hann sagð-
ist ekki telja það lausn þegar börn
væru flutt á milli bekkja vegna
mikillar námsgetu, heldur þyrfti
að koma til fjölbreyttara úrval af
námsefni fyrir börn á sama aldri
og sveigjanlegri hópaskipting.
Meginhluti þeirra þátttakenda sem sóttu ráðstefnuna í Norræna húsinu.
MS segir sig
úrMORFÍS
Skólafélag Menntaskólans við
Sund hefur ákveðið að segja sig
úr MORFÍS, Mælsku- og rök-
ræðukeppni framhaldsskóla.
Astæðan er, að sögn forsvars-
manna félagsins, almenn óá-
nægja með þá stefnu sem nem-
endur MS telja að MORFÍS-
keppnin hafi tekið undanfarin ár.
Akvörðun um úrsögn úr MORF-
ÍS var samþykkt einróma á
almennum félagsfundi sem 700 af
850 nemendum skólans sóttu.
Að sögn Ragnars Helga Ólafs-
sonar, ármanns í MS, telja nemend-
ur að grundvallaratriðum mælsku- j
og rökræðulistar sé ekki nægilegur
sómi sýndur í keppninni og niður-
stöður dómara byggist þar með á
röngum forsendum.
„Sú ræðumennska sem við iðkum
fellur ekki inn í það form sem
MORFÍS er að móta með dóm-
gæslu. Við reynum að flytja okkar
mál vel og skilmerkilega án þess
að vera með bjánaskap og skemmti-
atriði en keppnin er hins vegar far-
in að ganga út á það að menn eru
að klippa bindi af fundarstjóranum,
skjóta úr knallettubyssum í pontu
og fela sig inni í pontunni. Þetta
er ekki sú ræðumennska sem við
viljum stunda og því var tekin
ákvörðun ym að við segðum okkur
úr MORFÍS," sagði Ragnar Helgi.
Guðmundur Steingrímsson, for-
seti málfundafélags Menntaskólans
í Reykjavík, sagðist á hinn bóginn
geta fullyrt að dómarar keppninnar
hefðu farið eftir sannfæringu sinni
og gætu rökstutt dóminn.
*
Aréttmg
ÞAR sem ef til vill má misskilja
orð mín í grein minni um 50 ára
afmæli Hallgrímssafnaðar, er ég
tala um þijá fyrstu presta safnað-
arins, þá vil ég taka skýrt frain
að ég tel þá alla skörunga og lær-
dómsmenn.
Sr. Sigjón Þ. Árnason, var mjög
mikilhæfur maður einlægur trú-
maður, víðlesinn í guðfræði og hafði
brennandi áhuga á kristniboði og
öllu starfi kirkjunnar. Sjálfur á ég
hinar ágætustu minningar um hann.
Fjalar Lárusson
Leiðrétting
Ifrétt á miðsíðu í gær misrituðst
nöfn þeirra Péturs Jónassonar
gítarleikara og Marshalls Brement
fyrrverandi sendiherra. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
7. einvígisskákin:
Karpov með auðunna biðstöðu
Skák
Karl Þorsteim
ALLT bendir til þess að Karpov
jafni metin í einvíginu um heims-
meistaratitilinn í skák sem nú
fer fram í New York. Sjöunda
einvígisskákin fór í bið aðfara-
nótt laugardags að íslenskum
tíma og Karpov innsiglaði 44.
Jeik sinn. Dómur skáksérfræð-
inga er samhljóða um væntan-
legan sigur Karpovs. Hann er
peði yfir í hróksendatafli og
fremur er búist við því að heims-
meistarinn tilkynni uppgjöf sína
án frekari taflmennsku.
Heiftarlegur afleikur heims-
meistarans í 27. leik er or
sök ógæfu hans, fremur en snilldar-
leg tilþrif Karpovs. Bandaríski stór-
meistarinn Yasser Seirawan sagði
afleikinn einn hinn versta sem
Kasparov hefði gert sig sekan um
á öllum skákferlinum. Honum
yfirsást auðsjáanlega einföld gildra
og til þess að forðast mannstap var
hann tilneyddur til þess að láta peð
af hendi fyrir alls engar bætur.
Kasparov setti dreyrrauðan þegar
hann uppgötvaði mistök sín sem í
einu vetfangi gerði stöðu hans
óveijandi. Framhaldið tefldi hann
niðurlútur, auðsjáanlega viss um
úrslit í skákinni.
Hvítt: Anatoly Karpov.
Svart: Garrí Kasparov.
Kóngs-indversk vörn.
1. d4 - Rf6, 2. c4 - g6, 3. Rc3
- Bg7, 4. e4 - d6, 5. Rf3 - 0-0,
6. Be2 - e5, 7. Be3 - Ra6,8.0-0.
Hér breytir Karpov út af 5. ein-
vígisskákinni. Þá lék hann 8. dxe5
og í framhaldinu urðu uppskipti á
drottningum án þess að hann öðlað-
ist nokkurt frumkvæði.
8. - Rg4, 9. Bg5 - f6.
Hér hefur yfirleitt verið Ieikið
9. — De8, 10. h3 — h6 með óljósri
stöðu.
10. Bcl - KhS, 11. h3 - Rh6,
12. dxeð — fxe5, 13. Be3 — Rf7,
14. Dd2 - Rc5, 15. Rg5.
Svartur þarf ekki að vera óhress
með byijunina. Hann hefur yfirleitt
jafnað taflið og ef riddari getur
hreiðrað um sig á d4-reitnum er
frumkvæðið komið í hans hendur,
15. - Rxg5, 16. Bxg5 - Bf6, 17.
Be3 - Re6, 18. Bg4! - h5!?, 19.
Bxe6 — Bxe6, 20. Rd5 — Bh4,
21. Hacl - Kh7, 22. Hc3 - Hf7,
23. b3.
Það er dæmalaust hversu varkár
Karpov er í einvíginu. í stað þess
að leita leiða til að undirbúa fram-
rás c-peðsins leggur hann höfuð-
áherslu á að valda eigin liðsmenn.
23. - c6, 24. Rb4 - Hd7, 25.
Hccl - Bf6, 26. f4! - exf4, 27.
Bxf4.
Staðan er í jafnvægi. Áhrifa-
máttur svarta biskupaparsins veg-
ur upp ótrygga 'kóngsstöðu. Nú
kom vel til álita að leika 27. —
D7 með það fyrir augum að leggja
til atlögu á kóngsvæng með g5!
við tækifæri. Þess í stað verða
Kasparov á ótrúleg mistök
27. - Da5??, 28. Rd5!
Svona einfalt er það! 28. - Dxd2
er svarað með 29. Rxf6+ og næst
30. Bxd2. Hörfi drottningin til baka
fellur a.m.k. peð og staðan með.
28. - Dc5+, 29. Khlí
Kasparov hefur kannski aðeins
reiknað með 29. Be3 — Bg5!. 29.
— cxd5 er nú svarað með 30. cxd5
og biskupinn á e6 er í uppnámi
eftir að drottningin hörfar. Eftir
29. - Bg7, 30. Be3 - Da3, 31.
Rf6+ — Bxf6, 32. Hxf6 er svarta
staðan einnig vonlaus.
29. - Bxd5, 30. cxd5 - Dd4, 31.
dxc6 — bxc6, 32. Hxc6 — He8,
33. Hc4 - I)xd2, 34. Bxd2 -
Be5, 35. Be3 - Bg3, 36. Hf3 -
h4, 37. Bf2 - Bxf2, 38. Hxf2 -
Hde7, 39. Hf4! - g5, 40. Hf6 -
Hxe4, 41. Hxe4 — Hxe4, 42.
Hxd6 - He7, 43. Ha6 - Kg7.
Hér fór skákin í bið og Karpov
lék biðleik. Hrókur hans er ákjósan-
lega staðsettur á a6. Peð heims-
meistarans á a7 er veikt og svarti
hrókurinn er bundinn við að valda
það af 7-reitaröð. Vinningsáætlun
hvíts í framhaldinu er fremur ein-
föld. Hún felst í framrás peðanna
á drottningarvæng samstíga ferð
hvíta kóngsins til g4 og svörtu
peðin á kóngsvæng falla. Biðskákin
er tefld aðfaranótt sunnudags að
íslenskum tíma en 8. einvígisskákin
verður tefld á mánudagskvöldið.