Morgunblaðið - 28.10.1990, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1990
19
Innflutning' iðnaðarvara úr
landbúnaðarafurðum verð-
ur að leyfa fyrr eða síðar
- segir Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
JÓN Sigurðsson, viðskiptaráðherra, segir Ijóst, að ísland muni
fyrr eða síðar verða að leyfa innflutning- á iðnaðarvörum sem
unnar væru úr landbúnaðarafurðum, þar sem í fríverslunarsamn-
ingi íslands og Evrópubandalagsins, og sambærilegu ákvæði í
samningi íslands og EFTA-ríkjanna, væri gert ráð fyrir að viðkm-
andi ríki geti beitt verðjöfnun á slíkar iðnaðarvörur. Nefndi ráðher-
ran jógúrt sérstaklega í þessu sambandi. Þetta kom fram á um-
ræðufundi um GATT-viðræðurnar, sem bændasamtökin gengust
fyrir á fimmtudaginn, en þar var viðskiptaráðherra frummælandi
ásamt Hauki Halldórssyni, formanni Stéttarsambands bænda, og
Amund Wenger, framkvæmdastjóra norsku bændasamtakanna.
„Hún hugsar mikið og les hún
Anwar mín,“ sagði Bernadetta og
Ghada klappaði henni lof í lófa.
Ég spurði Suleiman hvernig þau
hefðu komist úr landi. „Við ákváð-
um að fara bara beint í gin ljóns-
ins,“ sagði hann og brosti dauflega.
„Við keyrðum til Bagdad og sögð-
umst vera frá Bahrein og það var
alls staðar tekið gott og gilt. Við
vorum í Bagdad í nokkra daga og
reyndum að láta eins og ekkert
væri en við vorum óskaplega hrædd.
Svo komumst við yflr til Jórdaníu
en þorðum ekki að láta uppskátt
hvaðan við værum vegna afstöðu
Jórdana og reyndum því að komast
áfram til Kairó. Hér verðum við
væntanlega þar til við förum heim.“
„Og viltu skrifa," sagði Ghada,
„að við förum heim, og höldum upp
á Nyárið í Kúveit. Ég er alveg viss
um það. Sabah-fjölskyldan er elsk-
uð af Kúveitum og það koma engar
málamiðlanir til greina.
„Láta Saddam fá Bobyan- og
Warbak-eyjar? sagði ég, „væri það
ásættanlegt?"
Það kvað við margraddað mót-
mælaóp í stofunni. Saleiman hristi
höfuðið.
„Það kemur ekki til minnstu
mála. írakar verða af öllu kúveisku
landi.“
Sér hann það fyrir sér í náinni
framtíð?
„Það er náttúrlega erfitt að
segja. Nú er fjöldi Kúveita í Saudi
Arabíu, um tuttugu þúsund manna
her og margir í Evrópu. Sumir eru
einnig í Bagdad og reyna að koma
sér inn í raðir Saddams. Þó nokkuð
margir, sennilega eitt til tvö hundr-
uð þúsund, eru enn í Kúveit. Ég
held við verðum að treysta því að
Saddam gefist upp. Allur heimurinn
fordæmir hann. Hann er hræddur
maður en hann er hættulegur því
hann er sjúkur á sinni og virðir
mannslíf einskis.
Ég sagði áðan að við hefðum
kannski þurft að læra lexíurnar
okkar. Nú þegar við erum hér alls-
laus og upp á náð og miskunn ann-
arra komin skiljum við betur að
peningar eru ekki það sem lífsham-
ingjan verður keypt fyrir. Það sem
mér finnst mestu varða nú er að
það verði komið í veg fyrir að sterk-
ar þjóðir geti tekið þær sem eru
veikari einsog ekkert sé.“
Anwar rétti upp höndina. „Viltu
skrifa líka að amma mín sem var
fædd í Palestínu segir að ísraelar
fari meira að segja betur með fólk
en Saddam Hussein.
Saleinman sagðist furða sig á
því að írakar nytu stuðnings í
Arabalöndum svo sem í Jórdaníu,
Jemen og meðal Palestínumanna á
Vesturbakkanum. Hann sagði að
Kúveitum væri legið á hálsi fyrir
að hafa ekki deilt ríkidæmi sínu
með efnaminni Arabaþjóðum en
tölur sýndu annað.
Þegar við kvöddumst hafði löngu
verið ákveðið áð ég mætti birta öll
nöfnin. „En talaðu við fleiri Kúv-
eita,“ sagði Saleiman í kveðju-
skyni. „Þeir hafa allir sína sögu að
segja. Kannski þeir hafí einhverja
gagnrýni á okkur úr Sabah-fjöl-
skyldunni og þá er ekki nema rétt
þeir komi fram með hana.“
Þegar ég hélt heim á hótel aftur
var farið að rökkva og Ijós að kvikna
við Nílarfljótið. Öryggisvarsla er á
hveiju götuhorni og það er greini-
lega mikill ótti eftir morðið á Mah-
goub forseta þingsins. Tilræðis-
mennirnir hafa ekki fundist og eng-
ar sannnir enn fyrir því að morðið
hafí verið skipulagt erlendis frá.
Þó menn segi í einu orðinu að hér
sé kyrrt finnur maður fljótlega
óróakennd í fólki og sprengjutil-
kynning á Tahirtorgi — sem reynd-
ist að vísu gabb — setti allt á ann-
an endann. Á gamla basarnum rifj-
uðu karlarnir upp þegar Anwar
Sadat var myrtur. Einn sagði: Trú
okkar á Mubarak hefur veikst.
Hann er ekki fær um að halda
egyþsku þjóðinni saman. Hann hef-
ur líka orðið að athlægi á alþjóða-
vettvangi. Nú er hann á flandri
milli Flóaríkjanna og heldur að
rauði dregillinn sé merki um styrk
sinn. Það hefur líklega verið rétt
sem við sögðum hér í morgun.
Hann er flón, hann Mubarak.
*
Afundinum gerði viðskiptaráð-
herra grein fyrir stefnu
íslenskra stjórnvalda í GATT-við-
ræðunum, og þá fyrst og fremst
hvað varðar þá þætti er lúta að
landbúnaði. Hann lýsti samningst-
illögu íslenskra stjómvalda, sem
kynnt hefur verið í landbúnaðar-
nefnd GATT-viðræðnanna, en
sagði að tillagan hefði ekki verið
lögð formlega fram þar sem beðið
væri átekta um þróun samninga-
viðræðnanna á næstu dögum.
Hann sagði að þar væri lagt til
að útflutningsbætur yrðu lækkað-
ar um 65% fram til ársins 1996
og dregið yrði úr reiknaðri mark-
aðsvernd og niðurgreiðslum um
25% með hliðsjón af tilboði ann-
arra, og aðlögunin yrði jöfn milli
ára. Innflutningur yrði heimilaður
á unnum íandbúnaðarvörum, svo
sem ostum, en áfram yrði innflutn-
ingsbann á nýmjólk og hráu kjöti,
og könnuð yrði álagning breyti-
legra innflutningsgjalda, sem
TILBOÐS-
DAGAR
Nýborg;#
Ármúla 23, sími 83636
„Lífslistin“
birtist í postulíni frá
Rosenthal. Fagur
boróbúnaóuráyóar
eigió borö.
Nýborg"#
Ármúla 23, sími 83636
næmi mismun á heimsmarkaðs-
verði og innanlandsverði. Hann
sagði að samkvæmt þessum tillög-
um, og miðað við áætlaðar tölur
til fjárlaga fyrir árið 1991, væru
útflutningsbætur áætlaðar 1.040
milljónir króna á ári að aðlögun-
artímanum loknum og annar
stuðningur 12.980 milljónir, en
lækkun ársútgjalda yrði 3.920
milljónir króna.
Viðskiptaráðherra sagði að til-
boð íslendinga hefði litla þýðingu
nema því fylgdu fyrirheit um við-
skipti. Hann gat þess að í fríversl-
unarsamningi íslands og Evrópu-
bandalagsins, og sambærilegu
ákvæði i samningi íslands og
EFTA-ríkjanna væri gert ráð fyrir
að viðkomandi ríki gætu beitt
verðjöfnun á iðnaðarvörur, sem
nota landbúnaðarvörur sem hrá-
efni, til þess að jafna samkeppn-
ismismun sem stafar af mismun-
andi niðurgreiðslum á búvörur í
einstökum ríkjum. Hann sagði að
ekki yrði komist hjá því að fylgja
þeirri þróun, sem væri innan
EFTA og Evrópubandalagsins á
þessu sviði í náinni framtíð, ekki
síst með hliðsjón af áherslum inn-
an GATT. Gætt hefði vaxandi
þrýstings innan EFTA og EB um
að fjölga þeim vörum, sem falla
undir verðjöfnunargjaldskerfið,
þannig að ekki mætti leggja á þær
vörur tolla og magntakmarkanir í
innflutningiu, en hins vegar mætti
leggja á þær verðjöfnunargjald til
þess að jafna út aðstöðumun
vegna mismunandi miðurgreiðslna
á hráefni í viðkomandi vörur.
Dæmi um þetta væri jógúrt, en
ísland væri eina EFTA landið, sem
ekki hefði enn gefið jákvæð svör
um að innflutningur á þeirri afurð
yrði leyfður. „Ég tel ljóst að ísland
muni verða að leyfa slíkan inn-
flutning fyrr eða síðar, enda ókleift
fyrir okkur íslendinga að standa
á innflutningsbanni eftir að verð-
jöfnunargjaldskerfið er komið á.
Framleiðendur jógúrts verða í
framtíðinni að keppa við innflutn-
ing á jafnréttisgrundvelli á sama
hátt og önnur iðnfyrirtæki hér-
lendis verða að mæta erlendri sam-
kepppni," sagði viðskiptaráðherra.
SWATON
MATGERÐ KEISARANS
FÍNA í KÍNA
MATSEÐILL
Fiskisúpa keisarans í Kína
Humar fyrir hermanninn að austan
Kjúklingur Swaton steiktur við múrinn
Hörpudiskur pönnusteiktur m/lauk
Lambakjöt í súrsætri sósu Shanghai
Krabbakjöt með sveppum og Swatonsoði
Cha Chi Kai: léttsteiktur kjúklingur
Nautakjöt: woksteikt í mildu kryddi
TILBOÐ FYRIR TVO
Fiskisúpa • Humar • Swatonkjúklingur
Krabbi með sveppum*Nautakjöt*Kaffi
1.290,- kr. fyrir manninn
Swaton er blómlegt hérað við borgina Shanghai í Kína. Þar er kínversk
matargerðalist byggð á gamalli hefð með mildum kryddtegundum og ein-
faldri samsetningu réttanna. Swaton héraðið er þekkt fyrir góða matargerð
og matreiðslumeistarar kínversku keisaranna voru ævinlega frá Swaton.
Þar er heimspekingurinn Konfúsfus einnig fæddur.
Næstu vikur verður Swaton matur á matseðli veitingahússins Sjanghæ
ásamt ljósu og dökku Tsing tao öli frá Kína.
HTl
• Kinverska veitingahúsiö
Laugavegi 28b • Simi 16513
nn