Morgunblaðið - 28.10.1990, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1990
25
Kristinn Jóhannsson,
Djúpavogi — Minning
Fæddur 3. ágúst 1904
Dáinn 11. október 1990
Kristinn Jóhannsson frá Borgar-
garði á Djúpavogi andaðist á
sjúkrahúsinu Sólvangi, Hafnarfirði,
11. október sl. Kristinn fæddist 3.
ágúst 1904 á Dynjanda í Arnarfirði
og var því 86 ára er hann lést. Með
nokkrum orðum vil ég minnast
þessa gamla vinar míns og ná-
granna um fjölda ára. Mér er ekki
margt kunnugt um ævi hans áður
en hann flytur austur á land á árun-
um milli 1930 og 40. Ég veit þó
að ungur kynntist hann alvöru
lífsins. Átta ára gamall missti hann
föður sinn og móðir hans varð ekkja
sem hafði fyrir 17 börnum að sjá.
Ungur fór hann að vinna fyrir sér
og mun fljótt hafa farið á sjóinn.
Hann kynntist hinu erfiða sjó-
mannslífí á skútum og togurum.
Fyrri konu sína, Hallgerði Sigurðar-
dóttur, missti hann eftir stutta sam-
búð frá ungum syni en þau höfðu
komið sér upp heimili í Hafnar-
firði. Eftir það flytur hann austur
á land. Þar kynntist hann seinni
konu sinni, Sigurborgu Sigurðar-
dóttur frá Strýtu við Ilamarsfjörð.
Árið 1934 munu þau hafa geng-
ið í hjónaband og stofnað heimili,
fyrst á Djúpavogi og síðar í Merki,
litlu býli skammt innan við Djúpa-
vog, þar sem þau komu sér upp
dálitlum búskap jafnframt því sem
Kristinn stundaði vinnu á Djúpa-
vogi. í Merki ólu þau upp 5 mann-
vænleg börn. Vinnudagurinn mun
oft hafa verið langur og ekki slegið
slöku við að afla heimilinu lífsbjarg-
ar. Frá Merki á vinnustað á Djúpa-
vogi er um 3-4 km gangur. Þessa
leið fór Kristinn oftast gangandi
Kveðja:
Kristín Jóna
Pétursdóttir
Á morgun á að bera til moldar
litlu fallegu stúlkuna sem við þekkt-
um svo vel í svo stuttan tíma.
Guð geymi hana og styrki ykk-
ur, elsku Sigga og Pétur, og bræð-
urna þq'á í ykkar miklu sorg.
Guðfinna Sigurðardóttir,
Gylfi Sæmundsson.
snemma á morgnana, oft með
mjólkurbrúsa í báðum höndum, því
hann seldi mjólk í þorpið áður en
þar hófst föst mjólkurvinnsla. Heim
gekk hann síðan er vinnu lauk. Um
bílferðir var tæpast að ræða fyrr
en nokkru eftir 1950. Stundvísi
hans var við brugðið. Eftir að hafa
skilað mjólkinni til kaupenda var
hann kominn_ að vinnu sinni með
þeim fyrstu. Árið 1961 keyptu þeir
Kristinn og Sigurður sonur hans
húsið Borgargarð á Djúpavogi og
fluttu þangað ásamt fjölskyldum
sínum. Sigurborg dó árið 1976.
Kristinn dvaldist áfram í kjallara-
íbúðinni í Borgargarði í skjóli barna
sinna og tengdabarna. Þangað
fluttust líka bræðurnir frá Strýtu,
Gísli og Stefán, eftir að aldur og
heilsubrestur gerði þeim ókleift að
stujida búskap.
Ég á margar góðar minningar
um samskipti og samstarf okkar
Kristins. Ég minnist þess er ég
rúmlega kominn af fermingaraldri
réðst í að mála litlu íbúðina hennar
Helgu frænku minnar á Hjalla und-
ir leiðsögn Kristins. Verkinu lukum
við fljótt og vel. Svo var Kristni
fyrir að þakka. Þegar rætt var um
borgun kom slíkt ekki til greina.
Að taka við greiðslu af gamalli,
fátækri konu var fjarri hans hugs-
unarhætti. Fljótur var hann að
bjóða mér hjálparhönd er ég stóð í
húsbyggingu. Kvöldið og nóttin,
sem við steyptum ofan á skorstein-
inn líður mér seint úr minni. Við
byijuðum verkið um kvöldið ég og
mágur minn, ungir menn og hraust-
ir. Kristinn kom brátt til liðs við
okkur og yfirgaf okkur ekki fyrr
en verkinu var lokið seint um nótt-
ina. Þreyttur mun hann hafa verið
orðinn sem oft áður að loknum löng-
um vinnudegi, maður kominn hátt
á sextugsaldur. Sem betur fór höfð-
um við bíl þá nótt að aka honum
heim. Þegar minnst er Kristins Jo-
hannssonar má ekki gleyma öllu
því fórnfúsa starfi sem hann vann
í þágu kirkjunnar á Djúpavogi. Um
fjölda ára var hann meðhjálpari og
hringjari. Söng einnig í kirkjukórn-
um og tók yfirleitt þátt í allri söng-
starfsemi sem fór fram í þorpinu á
meðan heilsa leyfði. Hann var
gæddur þeirri fágætu náðargáfu
BLOM
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
Opið alla daga frá kl. 9-21.
Sími689070.
ERFISDRYKKJUR
Tökum ad okkur að sjá um erfisdrykkjur, stórar og
smáar, í glænýjum og notalegum sal, Asbyrgi.
Upplýsingar í síma 91-687111.
að þurfa ekki að heyra laglínu nema
einu sinni eða tvisvar þá kunni hann
hana. Það kom því oft í hans hlut
að koma þeim til hjálpar sem áttu
í basli með að læra röddina sína.
Auk þess að kunna lagið kunni
hann allar raddirnar sem átti að
syngja. Hann hafði þýða og áferðar-
fallega bassarödd og bætti hvern
þann sönghóp sem hann starfaði
með.
Nú er byggðin við austanverðan
Hamársíjörð í eyði. Það var mikil
upplifun að alast þar upp fyrri hluta
aldarinnar þar sem samhjálpin var
sett ofar hverri kröfu. Smala-
mennska, heyskapur, gæsla búfjár
var nánast samvinnuverkefni. Ef
einhver þurfti hjálparhönd var hún
fúslega rétt fram og aldrei talað
um að borga eða skrifa reikning.
Greiði kom iðulega í greiða stað.
Sjávarafla og nýmeti var oftar en
ekki deilt út meðal nágranna og
þótti ómetanleg gjöf áður en fi-ysti-
vörur urðu daglegt brauð. Ég og
mitt fólk stöndum í ævarandi þakk-
arskuld við þetta góða fólk sem
þarna bjó. Kristinn Johannsson er
reyndar sá síðasti sem hverfur yfir
móðuna miklu af því fuilorðna fólki
sem voru nágrannar okkar þau ár
sem ég sleit barnsskónum við ijörð-
inn fagra, þar sem sólin skín ailan
ársins hring og ilmur úr jörð er
ótrúlega sterkur á vorin af blóð-
bergi og öðrum jarðargróðri.
Eg og mitt fólk þökkum Kristni
Jóhannssyni góð kynni, gott ná-
grenni og vináttu sem entist þar
til yfir lauk. Jafnframt vottum við
börnum hans, tengdabörnum og
barnabörnum samúð okkar.
Ingimar Sveinsson
G0LF
K0RKUR
VINYLKORKUR
0G NÁTTÚRUKl
Veggfóðrarinn býður vandaðan
gólfkork í miklu úrvali frá
stærsta framleiðanda heims.
Glæsilegt náttúruefni fyrir
heimili og fyrirtæki.
Líttu við og skoðaðu úrvalið
VEGGFÓÐRARINN
VERSLUN MEÐ GÓLF- OG VEGGEFNI
FÁKAFEN 9 • SKEIFUNNI • 108 REYKJAVÍK
SÍMAR: (91) - 6871 71 / 687272
5. 'i'.
V _
?fC-••,.... .x
3
AÐALSIMI
69 11 00
BEINT INNVAL:
■ y2
(?)
AUGLÝSINGADEILD
69 11 11
BLAÐAAFGREIÐSLA
69 1122
PRENTMYNDAGERÐ
69 1133
Mjyj/}