Morgunblaðið - 28.10.1990, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1990
37
af nútímalistamönnum, sem skilja
ekki raunverulegt eðli málverks.
Skáldið tekst á loft og segir: „Og
skáldum, sem skynja ekki eðli ljóðs-
ins.“
Hér var hreyft við kjarna máls-
ins, að það er mikilvægast að hafa
hæfileikann til að skynja og láta
hrífast, en ekki búa til eintómar
skilgreiningar á almennum fyrir-
bærum allt um kring né víddum
málverksins, ljóðsins, tónlistarinn-
ar.
Annars gengum við, ég og skáld-
ið, um alla sali safnsins og töluðum
ekki of mikið, bentum meira á hin-
ar og þessar myndir í upphafínni
hrifningu, því að þögnin segir mest
og skilgreinir gáfulegast þegar
staðið er fyrir framan slík málverk
sem Svavars Guðnasonar, en skáld-
ið var þó stöðugt að endurtaka:
„Þetta er nú meiri augnaveizl-
an . . .“
Það sem er mest áberandi við
þessa sýningu og sker hana úr þeim
þrem sýningum öðrum, sem haldnar
hafa verið á list Svavars hérlendis,
er umfang hennar og mikið upplýs-
ingagildi.
Frammi liggja úrklippubækur,
eldri sýningarskrár, auk þess sem
gefin hefur verið út sérstök bók um
listamanninn í tilefni sýningarinnar,
sem að sjálfsögðu er ómetanleg
heimild og gott að hafa á milli hand-
anna.
Sýningargestum gefst kostur á
að líta á einum stað á verk lista-
mannsins, sem annars eru dreifð
um allar trissur, að segja má, heima
sem erlendis á einkaheimilum, opin-
berum stofnunum og söfnum.
Hér eru samankomin eldri verk,
sem sýna áhrif frá dönskum félög-
um Svavars í listinni og það víða
að, sjálfsprottin sértæk verk á
blómaskeiði hans, fimmta áratugn-
um, er svo mörg meginverk litu
dagsins ljós, flatamálverk sjötta
áratugarins, er „geometrían"
gleypti allt smátt og stórt, sem við
núlistir var kennt. Nýtt þroska- og
blómaskeið á sjöunda áratugnum
með ótrúlega fijóum myndum og
fjölþættum. Vatnslita- og krítar-
myndir, sem eru margar hveijar
sláandi einfaldar en þó svo magn-
þrungnar. Með þetta eitthvað
innanborðs, sem svo erfitt er að
skilgreina, en er guðsgjöf allífsins,
sem listamaðurinn hefur þroskað,
beislað og mótað.
Svavar kaus að halda heim er
hann stóð á hátindi listar sinnar
og gatan var greið framundan, þótt
ekki gerðu sér allir það ljóst, og
enn liðu nokkur ár þar til þeir félag-
ar í Helhesten hlytu viðurkenningu.,
En grunnurinn hafði verið lagður
og hann var svo traustur að flestir
hafa haldið sínu striki fram á dag-
inn í dag. Sótti ég heim stórar sýn-
ingar á verkum Egils Jacobsen og
Carls Hennings Pedersen í listhúsi
Asbæk í Kaupmannahöfn á sl. ára-
tug og voru þær mjög lifandi og
áhrifaríkar þótt breytingarnar á
myndstíl væru næsta óverulegar.
Er merkilegt til þess að vita, að
Svavar, sem var þeirra þijóskastur
og einþykkastur, skyldi á tímabili
söðla yfír í andstæðu sjálfsprottnu
listarinnar, hreina óhlutlæga
strangflatalist, þótt liturinn yrði
sem fyrr kjarni málverkanna. En
það gefur auga leið hve nýjunga-
girni einangrunar og fámennis get-
ur verið varhugaverð, og auðvelt
að smitast af henni, og vissulega
sá Svavar að sér og tók aftur upp
gömlu vinnubrögðin, sem voru hon-
um eiginlegust. .
Maður getur að vísu hrifist mjög
af sumum verkanna á strangflata-
tímabilinu og liturinn stendur sem
fyrr fyrir sínu, en ósjálfrátt metur
maður meir hið sértæka og sjálf-
sprottna myndmál, sem átti svo vel
við listamanninn. Heilmikil tilvísun
til náttúrunnar og þannig alls ekki
alveg óhlutlæga en mjög sértækt,
— abstrakt.
Allt saman myndverk, sem sækja
í heimslist samtíðar gerandans, en
geta þegar best lætur ekki verið
komin nema undan pentskúf, pall-
etthníf og sköfu íslendingsins Svav-
ars Guðnasonar.
21. ársfundur Hafnarsambands sveitarfélaga;
Fjárveitingar ríkis-
ins til framkvæmda
fjarri þörfinni
^ Keflavík.
ÁRSFUNDUR Hafnarsambands sveitarfélaga var haldinn í Keflavík
fyrir skömmu í boði Suðurnesjahafna. Fundinn sóttu um 120 fulltrú-
ar en hafnirnar á landinu sem áttu rétt á að senda fulltrúa eru 61
og var þetta 21. ársfundurinn sem haldinn er. Á fundinum var kynnt
nýtt tölvukerfi sem unnið hefur verið í samvinnu hafnanna og sjávar-
útvegsráðuneytisins. Tölvukerfinu sem heitir Lóðsinn er ætlað að
halda utan um alla flutninga um hafnirnar, vigtun afla, veiðieftirlit
og sjá um alla útskrif á reikningum.
Sturla Böðvarsson bæjarstjóri í
Stykkishólmi og formaður
Hafnasambandsins sagði að ýmis
mál hefðu verið tekin til afgreiðslu
á þinginu. Þar mætti nefna að
ákveðið hefði verið að hækka gjald-
skrá hafnanna um 10% sem væri í
takt við þjóðarsáttina. Tii þessa
hefði samvinna verið höfð við Sigl-
ingamálastofnun í sambandi við
mengunarvamir í höfnunum og nú
hefði verið ákveðið að hafa einnig
samvinnu við olíufélögin.
Fjárveitingar til hafnanna voru
talsvert hitamál á ársfundinum. í
ársskýrslu sinni sagði Sturla Böðv-
arsson að mikil óánægja hefði verið
á síðasta ársfundi með hversu tak-
Formannafundur BSRB:
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Framkvæmdir við höfnina í Keflavík, en á ársfundi Hafnarsambands
sveitarfélaga, sem fram fór í Keflavík um síðustu helgi, kom fram að
á fjárlögum ríkisins í ár er gert rá fyrir 17% lækkun á framlögun
ríkisins.
mörkuðu fjármagni hefði verið ætl:
að til hafnargerða á árinu 1990. í
upphafi hafi verið gert ráð fyrir 350
milljónum, en í meðförum þingsins
hefði þessi upphæð verið hækkuð í
475 milljónir. Óskir sveitarfélag-
anna um framkvæmdafé í ár vegna
uppbyggingar hafna væri 1.534
milljónir. Hlutur ríkisins ætti að
vera 1.100 milljónir en væri sam-
kvæmt fjárlagafrumvarpinu aðeins
315 milljónir sem væri 17% lækkun
frá síðasta ári og fjarri þörfinni.
Á síðasta ársfundi kynnti sam-
gönguráðherra hugmyndir um sér-
stakan tekjustofn til framkvæmda
í höfnunum. Sturla sagði að menn
hefðu tekið undir þessar hugmyndir
en síðan orðið æfir þegar þeir hefðu
séð að í fjárlagafrumvarpinu fyrir
árið 1991 væri gert ráð fyrir þess-
ari tekjuöflun með því að leggja
skatt á þá sem fá þjónustu í höfnun-
um.
BB
Sömu tekna krafist fyrir
dagvinnu o g nú eru greidd
fyrir dagvinnu og eftirvinnu
FORMANNAFUNDUR Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, sem
haldinn var 25. október, samþykkti að gera kröfu um sömu tekjur
fyrir dagvinnu til handa launafólki og það hefði nú fyrir dagvinnu
og yfirvinnu. Fundurinn mótmælti skerðingu á framlagi til Lífeyris-
sjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga, sem
boðuð væri í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þá lýsti formanna-
fundurinn yfir andstöðu við áform um að skerða grunnlífeyri al-
mannatrygginga og Iagði áherslu á, að grunnlífeyririnn ætti að vera
óháður þeim tekjum, sem einstaklingar fengju úr lífeyrissjóðum.
Fundurinn mótmælti einnig þeirri skerðingu, sem fram kæmi í fjár-
lagafrumvarpinu, á framlögum til Framkvæmdasjóðs aldraðra.
Fjöldi samþykkta var gerður á
formannafundi BSRB 25.
október síðastliðinn. Þar var meðal
annars samþykkt ályktun þar sem
segir, að hjaðnandi verðbólga á
undanförnum árum hafí skilað þeim
árangri, að undirstöðuatvinnuvegir
þjóðarinnar hafi rétt við. Hlutur
almenns launafólks í efnahagsað-
gerðum síðustu mánaða leggi þung-
ar skyldur á herðar ríkisstjórnar og
atvinnurekenda og þjóðarsátt sé
krafa um breytta tekjuskiptingu og
aukinn kaupmátt. Ef fram fari, sem
horfi, kunni þegar á næsta ári að
verða ráðist í byggingu nýrrar ál-
verksmiðju og orkuvera og þegar
verði að hefja viðræður um hvernig
megi koma í veg fyrir að þær fram-
kvæmdir verði til að setja nýja verð-
bólguskriðu af stað. Tryggja verði
fyrirfram, að fjárhagslegur ávinn-
ingur þessara framkvæmda og
rekstrar komi launafólki til góða.
Formannafundur BSRB gerði þá
kröfu, að sömu laun verði greidd
fyrir dagvinnu til handa launafólki
og það hafi nú fyrir dagvinnu og
Á Toppnum!
Hilmar
Sverris
skemmtlr í kviild
HÓTEL ESJU
Laugavegi 45 - s. 21255
Sunnudags- og
mánudagskvöld:
AKKURAT
Midvikudagskvöld:
LANGI SEil OG
SKUGGARNIR
yfirvinnu. Fundurinn benti á, að
lífsafkoma hér á landi byggðist á
yfirvinnu og alls konar aukagreiðsl-
um og óhóflegur vinnutími væri
orðinn meinsemd, sem stæði í vegi
framfara. Hvatti fundurinn til að
samtök launafólks, atvinnurekenda
og stórnvöld hæfu þegar viðræður
er miðuðu að lausn þessara mála.
Þá samþykkti formannafundur-
inn tillögu, þar sem fram komu
hörð mótmæli við þeirri skerðingu
á framlagi til Lífeyrissjóðs starfs-
manna ríkisins og Lífeyrissjóðs
hjúkrunarfræðinga, sem boðuð væri
í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar-
innar. Vakin var athygli á því, að
með því að draga úr því fjármagni,
sem rynni til Lífeyrissjóðs ríkis-
starfsmanna, væri verið að rýra það
fjármagn, sem sjóðurinn lánaði
Húsnæðisstofnun ríkisins.
Fundurinn mótmælti áformum
um skerðingu grunnlífeyris al-
mannatrygginga og lagði áherslu
á, að grunnlífeyririnn ætti að vera
óháður þeim tekjum, sem einstakl-
ingar fái úr lífeyrissjóð. Bent var
á, að á undangengnum árum hefðu
stjórnvöld verulega rýrt grunnlíf-
eyrinn og ef ekki yrði horfið af
þeirri braut, væri hætt við að drægi
úr áhuga launafólks á sparnaði í
lífeyrissjóðum.
Áð lokum beindi formannafundur
BSRB því til ríkisstjórnarinnar, að
Sjálfstæðisfólk í Reykjaneskjördæmi
Skrifstofa stuöningsmanna
Árna M. Mathiesen
er aö Bæjarhrauni 12, Hafnarfiröi.
Símar: 51727, 52088 og 650211
Opiö virka daga kl. 16 - 22
og kl. 10 -18 um heigar. '
Stuöningsmenn eru hvattir til aö mæta.
Alltaf heitt á könnunni.
Tryggjum Árna öruggt þingsæti.
Stuöningsmenn
Frá árinu 1978 hefur Diskólekiö
Dollý slegíð i gegn sem eitt besta
og fullkomnasta ferðadiskótek ó
íslondi. Leikir, sprell, hringdansar,
fjör og gáðir diskátekarar er það
sem þú gengur að visu. Þægilegt
diskótek, sem býður upp á það
besta í dægurlögum sl. áratugi
ásomt því nýjosto. Láttu vono
menn sjá um einkasomkvæmið þitt.
Diskótekiú Ó-Dollý!
Sími 91-46666.
Bíólinan
2IUI1GIC1Q1
Hringdu og fáðu umsögn
um kvikmyndir
þjóðfélaginu og var í því skyni bent
á nauðsyn þess að efla húsnæðis-
kerfið og breyta skattkerfinu al-
mennu launafólki í hag, svo sem
með stórhækkuðum persónu-
afslætti. Lagði fundurinn til, að
fjármuna til slíkra ráðstafana yrði
meðal annars aflað með skattlagn-
ingu á fjármagnstekjur og hærra
skattþrepi á hátekjufólk.