Morgunblaðið - 28.10.1990, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ
UTVARP/SJONVARP SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1990
43
Aðalstöðin:
Draumsmiðjan
■■■■ Draumsmiðjan er á
OO 00 dagskrá Aðalstöðvar-
““ innar í kvöld. Draum-
ar hafa fylgt mannkyninu allt
frá fyrstu tíð og verið mönnum
ráðgáta jafn lengi. í þættinum
fjallar Kristján Frímann um
drauma frá ýmsum sjónarmið-
um og leggur út af merkingu
þeirra. Draumar hlustenda eru
útskýrðir og ráðnir.
Kristján Frímann
Harðardóttir og Magnús R. Einarsson.
11.30 Þarfaþing.
12.00 Fréttayfirlit og veður.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Níu fjögur. Dagsútvarp Rásar2 helduráfram.
14.10 Gettu beturl Spurningakeppni Rásar 2 með
verðlaunum.
16.03 Dagskrá. Starfsmenn daegurmálaútvarpsins
■ og fréttaritarar heima og erlendis rekja stór og
smá mál dagsins.
18.03 Þjóðarsálin — Þjóðfundur i beinni útsend-
ingu.
18.00 Kvöldfréttir. -
19.32 Gullskifan.
20.00 Lausa rásin. Lltvarp framhaldsskólanna.
Umsjón: Jón Atli Jónasson og Hlynur Hallsson.
21.00 Rokkþáttur Andreu Jónsdóttur.
22.07 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson
spjallar við hlustendur til sjávar og sveita. (Úr-
vali útvarpað kl. 5.01 næstu nótt.)
0.10 í háttinn.
1.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns.
NÆTURÚTVARPIÐ
1.00 Sunnudagssveiflan. Endurlekinn þáttur
Gunnars Salvarssonar.
3.00 i dagsins önn — Umhverfisfræðsla fyrir börn
Umsjón: Steinunn Harðardóttir. (Endurtekinn
þáttur frá deginum áður á Rás 1.)
3.30 Glefsur. Ur dægurmálaútvarpi mánudagsins.
4.00 Vélmennið leikur næturiög.
4.30 Veðurfregnir. - Vélmennið heldur áfram leik
sinum.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
5.05 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson
spjallar við hlustendur til sjávar og sveita.
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
6.01 Morguntónar.
LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2
8.10-8.30 og 18.35-19.00. Útvarp Norðurland.
AÐALSTÖÐIN
FM 90,9 / 103,2
7.00 Á besta aldri. Umsjón Steingrimur Ölafsson
og Helgi Pétursson. Fyrri klukkutiminn er helgað-
ur þvi sem er að gerast á líöandi stundu. Kl.
7.00 Morgunandakt. Kl. 7.10 Orð dagsins. Kl.
7.15 Veðrið. Kl. 7.30 Litið yfir morgunblöðin. Kl.
7.45 Fyrra morgunviðtal. Kl. 8.10 Heiðar, heilsan
og hamingjan. Kl. 8.30 Hvað gerðist þennan
dag. Kl. 8.45 Málefnið.
9.00 Morgunverk Margrétar. Umsjón Margrét
Hrafnsdóttir. Tónlist og ýmsar uppákomur. Kl.
9.30 Húsmæörahorniö. Kl. 10.00 Hvað gerðir
þú við peningana sem frúin í Hamborg gaf þér.
Kl. 10.30 Hvað er í pottunum. Kl. 11.00 Spak-
mæli dagsins. kr. 11.30 Slétt og brugðiö.
12.00 Hádegisspjall. Umsjón Steingrímur Ólafsson
og Eirikur Hjálmarsson.
13.00 Strætin úti að aka. Umsjón Ásgeir Tómas-
son.
Kl. 13.30 Gluggaö i siðdegisblaðið. Ki. 14.00 Brugð-
ið á leik i dagsins önn. Kl. 14.30 Saga dagsins.
15.00 Leggðu höfuðið i bleyti. Kl. 15.30 Efst á
baugi vestanhafs.
19.00 Kvöldtónar. Umsjón Halldór Backman. Ljúfir
kvöldtónar.
22.00 Draumasmiðjan. Umsjón Kristján Frímann.
24.00 Næturtónar Aðalstöðvarinnar.
BYLGJAN
FM 98,9
7.00 Eirikur Jónsson og morgunvakt Bylgjunnar.
9.00 Páll Þorsteinsson. Vinir og vandamenn kl.
9.30.
11.00 Valdís Gunnarsdóttir. Afmæliskveðjur og
óskalögin. Hádegisfréttir sagðar kl. 12.
14.00 Snorri Sturluson. Vinsældarlistapopp.
17.00 (sland i dag. Jón Ársæll Þórðarson. Viðtöl
og simatimar hlustenda.
18.30 Kristófer Helgason og kvöldmatartónlistin.
22.00 Hafþór Freyr Sigmundsson mættur. Óskalög
og kveðjurnar.
23.00 Kvöldsögur. Siminn er opinn og frjálst að
tala um allt milli himins og jarðar.
24.00 Hafþór Freyr á vaktinni.
2.00 Þráinn Brjánsson á næturvakt.
Fréttir á klukkutímafresti kl. 10, 12, 14 og 16.
EFF EMM
FM 95,7
7.30 Til i tuskið. Jón Axel Ólafsson og Gunnlaug-
ur Helgason.
7.45 Út um gluggan.
8.00 Fréttayfiriit. Gluggað-i morgunblöðin.
8.15 Stjörnuspá dagsins.
8.45 Lögbrotið. Lagabútar leiknir. Verðlaun í boði.
9.00 Sitthvað forvitnilegt og fréttnæmt.
9.30 Kvikmyndagetraun. Boðið ut að borða,
9.50 Stjörnuspá dagsins endurtekin.
10.00 Fréttayfirlit,
Rás 1:
Fomaldarsögur
IMorðurlanda
■■■■ í dag hefst í miðdeg-
fr 03 isútvarpi Rásar 1
14 ““ fjögurra þátta röð er
nefnist Fornaldarsögur Norður-
landa í gömlu ljósi í umsjá Við-
ars Hreinssonar. í þáttunum
verður fjallað um Fomaldarsög-
urnar, en umsjónarmaður segir
þær vanmetna grein islenskra
fornbókmennta ojg hafa staðið
í skugganum af Islendingasög-
um, Eddukvæðum, Sturlungu
og verkum Snorra Sturlusonar.
Sögurnar eigi sér rætur í munn-
legri frásagnariist og mefgnið
Viðar Hreinsson.
af þeim megi telja til skemmti- og afþreyinga, oft með harmrænu
ívafi. í þáttunum eru sögurnar skoðaðar í gömlu ljósi að því leyti
að fjallað er um þær sem skemmtun. í fyrsta þættinum verður sagt
frá tveimur þeim elstu, Völsungasögu og Ragnarssögu loðbrókar.
16.30 Mál til meðferðar. Umsjón Eiríkur Hjálmars-
son. Kl. 16.30 Málið kynnt. Kl. 16.50 Málpipan
opnuð. Kl. 17.00 Mitt hjarfans mál. Akademia
Aðalstöðvarinnar. Kl.18.00 Galaprinslnn. Edda
Björgvinsdóttir les.
Albert méð eitt hinna háskalegu vopna sinna.
Stöð 2:
Kamikaze
23 —
Fjalakött.urinn sýnir í kvöld spennumyndina Kamikaze.
15 Hér segir frá Albert sem er einrænn snillingur á sviði
““ tækninýjunga. Þegar hann er rekinn frá því fyrirtæki er
hann starfar við, bregst hann illa við og afræður að útrýma öllum
þeim sem honum er í nöp við með nýrri tækni sem hann hefur fund-
ið upp.
Franski kvikmyndagerðamaðurinn Luc Besson, sem leikstýrði þess-
ari mynd, hefur á síðustu misserum vakið mikla athygli fyrir myndi
sínar. Eftir hann liggja myndir eins og Le Dernier Combat, Subway
, og The Big Blue. Tónlist ofangreindra mynda er öll samin af Eric
Serra og samdi hann einnig tónlistina í Kamikaze.
10.03 Ágúst Heðinsson og seinni hálfleikur.
10.30 Óskastund.
11.00 Leikur fyrir alla hlustendur.
11.30 Úrslit.
12.00 Fréttir á hádegi.
12.15 Ert þú getspakur hlustandi?
13.00 Sigurður Ragnarsson. Kvikmyndagagnrýni,
hlustendaráðgjöf og fleira.
14.00 Fréttayfirlit.
14.30 Skyldi Sigurður hafa samband?
15.30 Óvænt uppákoma.
16.00 Fréttayfirlit.
16.03 Anna Björk Birgisdóttir og siðdegistóniist
16.30 Gamall smellur.
17.00 Nú er það áttundi árat -gurinn.
17.30 Og svo sá niundi.
18.00 Fréttaskýrsla dagsins.
18.30 Ákveðinn flytjandi tekinn fyrir.
19.00 Vinsældalistapottur. Valgeir Vilhjálmsson
með Evrópuflutning á Bandariska smáskifu- og
breiðskífulistanum auk þess sem hann fer yfir
stöðu á Breska listanum og flytur fróðleik um
flytjendur.
22.00 Jóhann Jóhannsson á rólegu nótunum.
ÚTVARPRÓT
FM 106,8
10.00 Fjör við fóninn með Stjána stuð.
12.00 Tónlist.
13.00MÍIIÍ eitt og tvö. Kántrýtónlíst.
14.00 Daglegt brauð. Birgir Örn Steinarsson.
18.00 Garnagaul. Þungarokk með Huldu og Ingi
björgu.
19.00 Nýliðar.
20.00 Heitt kakó. Tónlistarþáttur
22.00 Kiddi i Japis með þungarokkið á fullu.
24.00 Náttróbót.
STJARNAN
FM 102/104
7.00 Dýragarðurinn. Klemens Arnarson.
11.00 Bjarni Haukur með splunkunýja tónlist.
11.00 Geðdeildin II. Umsjón; Bjarni Haukur og Sig
urður Helgi.
12.00 Sigurður Helgi Hlöðversson.
14.00 Sigurður Ragnarsson.
17.00 Björn Sigurðsson. Klukkan 18.00-19.00
bakinu með Bjama!
20.00 Darri Ólason. Vinsældarpopp.
22.00 Arnar Albertsson.
ÚTRÁS
FM 104,8
16.00 MS
18.00 Framhaldsskólafréttir.
18.00 FB
20.00 MH
22.00 IR
Gárur
eftir Elínu Pálmadóttur
Hamingjan
er afstæð
Maður verður að hafa trú á
því sem maður er að gera.“
Svo einfalt var svarið. Þarna sat
þessi glaða kona á móti mér og
svaraði barnalegri spurningu þess
sem ekki þekkir og þá ekki skil-
ur. Hún er nunna, systir af reglu
heilags Frans
af Assisi. Hún
hafði boðið
mér heim í
gamla klaustr-
ið sitt, þar sem
hún býr í svo-
nefndu
„communauté"
eða samfélagi.
í þessari ald-
argömlu
klausturbygg-
ingu í suður-
hluta Parísar-
borgar sefur
hún í skonsu
með litlum
þakglugga
uppi í risinu,
þangað sem
enginn and-
blær nær og hitinn verður illþöl-
andi á sumrin. Við sátum á
kínverskum veitingastað í ná-
grenninu. Hún hafði fengið leyfi
til að bjóða mér þangað að borða,
„af því maturinn hjá okkur er svo
misjafn," sagði hún. Til þeirra
kemur nefnilega afgangsmatur-
inn af veitingastaðnum á neðstu
hæð í nýbyggingu við klaustrið,
sem fyrir hundrað árum var reist
í fátækrahverfi í útjaðri og skógi,
en er nú komið inn í mitt við-
skiptahverfi. Og með því að leigja
götuhliðina á nýbyggingunni og
reka þarna veitingastað fær
klaustrið tekjur. „Þetta er allt í
lagi. Maturinn vill bara stundum
skorpna dálítið áður en kemur að
okkur. Maður veit aldrei. En það
gerir okkur fært að hafa eitthvað
að borða,“ sagði hún.
Hún þolir illa kæfandi hitann í
herbergisskonsunni sinni. En hvað
er það? Áður var hún 7 ár í steikj-
andi hita Egyptalands, vann þar
líknarstörf á spítala. Og þótt hún
búi ásamt 30 samsystrum sínum
í elsta sambýlinu eru í húsinu
rúmgóðar setustofur. Einhver
góður maður hafði gefið þeim
sjónvarpstæki. Þar sitja þær sam-
an að loknum vinnudegi, „sam-
vera skiptir svo miklu máli hjá
okkur,“ sagði hún. Mér datt í hug
að það skipti raunar máli víðar,
mætti leggja meira á sig fyrir
hana. Og auðvitað er kapellan
þeirra mikið nýtt. Þær eiga saman
bænastund á kvöldin og á morgn-
ana áður en þær fara hver til sinna
starfa. Nema þær elstu sem vel
er búið að. Ein fer til vinnu sinnar
í sjúkrahúsi, önnur starfar í skóla
í starfsþjálfun fyrir ungar stúlk-
ur, sem rekinn er í einni bygging-
unni, til að hjálpa þeim að kom-
ast í vinnu. Áður voru reknir
skólar fyrir fátæk börn og stúlk-
ur, en nú er séð fyrir því í skóla-
kerfinu. Systurnar reyna að gagn-
ast þar sem þörfin er mest.
Sjálf heldur Odile á skrifstofu
sína eða ritstjórnina á blaði kaþ-
ólikka, Peuple de Monde, þar sem
hún hefur nú starfað sl. 7 ár.
Þetta blað fer víðar en flest önnur
og fyrir það ferðast hún mikið,
enda hefur það á stefnuskrá sinni
kynni milli þjóða. I það er hún
að skrifa stóran greinaflokk um
ísland, eftir að hafa verið hér í
sumar. Þá bjó hún hjá systrunum
í Stykkishólmi og systrunum í
Hafnarfirði. Ritstjórinn bauð mér
að borða með þeim, þau áttu líka
að venju von á afgangsmatnum
frá fyrrnefndu veitingahúsi. Þetta
var kátt og skemmtilegt fólk, satt
að segja með glaðværasta og
elskulegasta fólki sem ég hefi
lengi hitt. Að vera hamingjusamur
í lífinu er greinilega afstætt nug-
f'
tak. Lífshamingjan mælist þarna
á einhverja aðra mælistiku en við
bregðum gjarnan á umbúðasam-
félagið okkar.
Ekki sýnist þetta þröngsýnt
fólk, eins og manni hættir til að
halda fyrirfram. Ekki aldeilis! Því
finnst t.d. kirkjusókn ekki endi-
lega mælikvarði á trú þjóðar, eins
og þeirrar íslensku. Hefur ekkert
með það að gera! segir Odile, sem
er orðin mikill íslandsaðdáandi.
Ekki eru allir í röðum kaþólskra
jafn hrifnir af páfanum Jóhannesi
Páli og við vorum þegar hann lét
svo lítið að koma til okkar. Til
þess er Jóhannes Páll allt of
þröngsýnn, t.d. í málefnum
kvenna, hálfs mannkyns. Konum
mun aldrei líðast að verða prestar
meðan hann lifir með sína þröng-
sýnu karla í kring um sig. Við
íslenskar konur fengum plús þeg-
ar ég sagði að séra Auður Eir og
nokkrir íslenskir kvenprestar
hefðu þess vegna ekki mætt í
Þingvallamessu hans. í því sam-
bandi var laumað að mér brand-
ara, sem gengur: Veistu hver er
munurinn á páfanum og venjuleg-
um mönnum? Svar: Venjulegir
menn kyssa konur og troða á jörð-
inni. Jóhannes Páll páfi kyssir
jörðina og treður á konum!
Sem við stóðum á efri hæðinni
í gamla húsinu og horfðum út
yfir klausturbyggingarnar þrjár
og kirkjuna, sem varpaði skugga
á klausturgarðinn, og yfir há tré
sem eftir eru af stóra skóginum
þeirra og yfir Mon Souris-skrúð-
garðinn, segir Odile mér að hún
hafi verið að koma úr viku endur-
næringu í kyrrlátu klaustri eða
bænarferð. Þar fór hún daglega
í 10 km gönguferð í skóginum
og baðst fyrir allan tímann. Fellur
betur að gera það úti f sköpunar-
verki Guðs en lokuð inni í kirkju.
Trú hennar er látlaus og óbilandi
Hún er dóttir fornleifafræðings
og safnvarðar í Nancy. Frá upp-
hafi vildi hún verða nunna. Og
aldei hefur hvarflað að henni að
það sé ekki hamingjuríkasta
lífsstarfið. Hún er yndisleg kona
og ljómar af henni. Ég fór að sjá
eftir að hafa ekki þegið boðið að
búa í gestaíbúð þeirra. Þar eru
alltaf erlendir gestir, þar sem
þessi grein reglunnar leggur
áherslu á samvinnu milli þjóða,
Þá hefði ég fengið að kynnast
þessu fólki og lífi þess betur. Það
var fengur að þessum stuttu
kynnum.