Morgunblaðið - 28.10.1990, Side 44
tiÝTT SMANÚMER
^SINGADBLD^.
Janv
ircgftiiMð&ffo
MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6. 101 REYKJA VÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 28. OKTOBER 1990
VERÐ I LAUSASOLU 90 KR.
Nauðgun kærð
í Reykjavík
UNG kona kærði mann fyrir
nauðgun til lögreglunnar í
•*» Reykjavík á laugardagsmorgun.
Atburðurinn átti að hafa gerst í
húsi við Kleppsveg og var um
kunningjafólk að ræða, að sögn
Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Fáskrúðsfj örður:
Rammasamn-
ingur um nýt-
ingu vatns
Fáskrúðsfirði.
UNDIRRITAÐUR var í gær-
morgun rammasamningur milli
Búðahrepps og italska fyrirtæk-
isins Menes SA í Sviss, um nýt-
ingu á vatni úr svokölluðum
Dalalindum innst í Fáskrúðsfirði.
Samningurinn gerir ráð fyrir að
fyrirtækið kanni á næstu þremur
árum hversu hagnýtt er að reisa
átöppunar- og flöskuverksmiðju
á staðnum. Að þeim tíma liðnum
Jellur samningurinn úr gildi.
Gert er ráð yrir að verksmiðjan'
nýti um tíu sekúndulítra af
vatni og að um 18 manns komi til
með að starfa í báðum verksmiðjun-
um. Samningurinn gerir ráð fyrir
að íslenska ríkið verði aðili að fyrir-
tækinu ásamt því ítalska.
Búðahreppur skuldbindur sig
jafnframt til að láta af hendi land
undir verksmiðjurnar og að endur-
bæta hafnaraðstöðuna. Auk þess
að sjá til þess að skip allt að 50
þúsund tonnum, sem væntanlega
koma inn til lestunar, njóti þar for-
gangs.
- Albert
Félagsmálaráð segir eftirlit með vínveitingastöðum í lágmarki:
89 vínveitingastaðir í Reykjavík
Fræðst um Þingvelli
Nemendur úr Digranesskóla í Kópavogi fóru til Þingvalla í vikunni til að fræðast um þennan sögufræga stað. Sr. Heihiir Steins-
son þjóðgarðsvörður tók á móti krökkunum og var gerður góður rómur að leiðsögn hans. Sögðu þau að þessi kennslustund á
Þingvöllum hefði verið á við margar í skólanum.
22.600 þurfa að fara út að skemmta sér samtímis til að fyila þá
MIKIL fjölgun hefur orðið á vínveitingastöðum í
Reykjavík síðan bjórbanni var aflétt 1. marz 1989.
Frá þeim tíma hafa 35 nýir staðir fengið vínveit-
ingaleyfi, þar af 10 á þessu ári. Auk þess eru fjór-
ar nýjar umsóknir um vínveitingaleyfi til meðferð-
ar hjá embætti lögreglustjóra.
Alls hafa 89 veitingastaðir í
Reykjavík leyfí til vínveitinga
og eru 50 þeirra í miðbænum og
nágrenni. Leyfilegur gestafjöldi á
stöðunum öllum er 22.600 manns
og lætur nærri að rúmlega þriðj-
ungur borgarbúa á aldrihum 18-65
þurfí að fara út og skemmta sér
í einu til þess að fylla staðina.
Veitingamenn sem Morgunblaðið
ræddi við eru sammála um að
ekki sé neinn grundvöllur fyrir
rekstri allra þessara veitingastaða
og þróunin hljóti að verða sú að
gjaldþrotum fari enn fjölgandi í
gi-eininni.
Einn stór veitingastaður, Breið-
vangur, var nýlega opnaður og er'
leyfilegur gestafjöldi 1.300
manns. Þá verður nýr 600 manna
skemmtistaður bráðlega opnaður
í kjallara nýju Kringlunnar. Að-
sókn að stórum skemmtistöðum
hefur minnkað umtalsvert undan-
Bréf Hinriks 8. um Grindavíkur-
mál komin fram og* sýnd á Islandi
GRINDAVÍKURSLAGURINN 1532 varð afdrifa-
ríkur, hér á landi og ekki síður á ajþjóðavett-
vangi, enda er það í eina skiptið sem íslandsmál
hafa verið upphaf og örlagavaldur í friðarsamn-
ingum stórveldanna í Evrópu. Nú eru fram kom-
in tvö bréf um þessi mál, undirrituð af sjálfum Hinrik 8. Eng-
landskonungi, í 500 síðna skjalabunka frá Ríkisskjalasafninu í
Hamborg. Verða þessi bréf m.a. á sýningunni „Skjöl í 800 ár“,
sem Þjóðskjalasafnið opnar í Bogasalnum í næstu viku og eiga
gestir kost á að lesa þau öll af filmu í lesvél.
IGrindavíkurslagnum fóru
Hansakaupmenn að beiðni
danskra valdsmanna með 280
manna lið og réðust á Englend-
inga í Grindavík, drápu 15 og
tóku skip þeirra og urðu af þess-
um og öðrum róstum þeirra á
milli alþjóðlegar deilur stórveld-
anna með umfangsmiklum frið-
arsamningum.
Átök Englendinga og Þjóðverja
um hina dýrmætu skreið á Is-
landi í heila öld voru hrein og
óvægin sjóræningjastríð og
skiptu miklu máli í Evrópu. Hin-
rik 8. hafði mikinn áhuga á Is-
landi, enda Walesbúi, og var floti
hans hér norður frá, upp í 150
skip á hverju ári, þjálfunarstöðin
sem byggði upp breska flotann
og gerði Breta að flotaveldi.
Grindavíkurslagurinn varð þar
afdrifaríkur, því eftir hann og
friðarsamningana í Þýskalandi
hurfu Bretar frá og Þjóðveijar í
framhaldi af því, þar til einokun-
in tók við á Islandi 1602.
Sýning Þjóðskjalasafnsins er
fyrsta veigamikla sýningin á
íslenskum skjölum, sem safnið
hefur gengist fyrir. Spanna skjöl-
in 800 ár. Elsta skjalið er Reyk-
holtsmáldagi frá 13. öld, sem
m.a. segir frá gjöfum Snorra
Sturlusonar og Hallveigar Orms-
dóttur sambýliskonu hans til
kirkjunnar í Reykholti og lýkur
sýningunni á skjölum frá 1989,
þegar aðskilnaður verður á Is-
landi á dómsvaldi og umboðs-
valdi, eftir 700 ár.
Sjá nánar á bls.10: Hinrik
8. og Grindavíkurslagurinn.
farin ár. Samkvæmt upplýsingum
Ólafs Laufdal veitingamanns hef-
ur aðgöngumiðasala á stóru
skemmtistaðina dregist saman úr
80 þúsund seldum miðum á mán-
uði í 25-30 þúsund sl. 2-3 ár.
Þá hefur það haft áhrif á af-
komu staðanna að áfengissala
hefur dregist saman í landinu.
Samdrátturinn nemur 4% það sem
af er árinu. Sala á bjór hefur orð-
ið þriðjungur af því sem áætlað
var að hún yrði. Talið var að nýr
hópur viðskiptavina kæmi til sög-
unnar með tilkomu bjórkránna en
sú hefur ekki orðið raunin, að sögn
veitingamanna.
Félagsmálaráð Reykjavíkur
fjallaði um fjölgun vínveitinga-
staða á fundi fyrr í mánuðinum.
Ráðið vakti athygli á því að eftir-
lit með því að farið sé að lögum
og reglum á vínveitingastöðum sé
nú í algjöru lágmarki. Vínveitinga-
stöðum hafi íjölgað margfalt á
undanförnum árum en á sama
tíma hafi fækkað föstum störfum
eftirlitsmanna með vínveitinga-
húsum. Forsendur þess að félags-
málaráð hafi ekki mælt gegn
vínveitingaleyfum að uppfylltum
vissum skilyrðum séu þær að eftir-
lit sé með því að ákvæðum laga
um aldursmörk og tjölda gesta
verði framfylgt. Því skori félags-
málaráð á dómsmálaráðuneyti að
skapa skilyrði til þess eftirlits sem
nauðsynlegt sé.
Sjá nánar á bls. 16-17: Krá á
hverju götuhorni.