Morgunblaðið - 31.10.1990, Side 4

Morgunblaðið - 31.10.1990, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1990 VEÐUR Flugfélag Norðurlands: Flogið fjórum sinnum í viku til Keflavíkur Álver á Keilisnesi: FLUGFÉLAG Norðurlands hf. hefur ákveðið að hefja flug fjórum sinnum í viku í byijun apríl á næsta ári á flugleiðinni Akureyri- Keflavík. Flugfélagið heldur jafnframt uppi áætlunarflugi frá Ólafsfirði til Reykjavíkur. Flugfélagið ætlar að nota Fair- child Metro 3 vélar í þetta flug en félagið hefur haft flugleyfi á þessari leið í tæpt eitt ár. Það hefur staðið þessu flugi fyrir þrif- um að ekki hefur verið aðstaða fyrir innanlandsflug í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, að sögn Sigurð- ar Aðalsteinssonar, framkvæmda- stjóri Flugfélags Norðurlands. Hann sagði að vonir stæðu til að aðstöðu fyrir innanlandsflug yrði komið upp á flugvellinum á næst- unni. „Farþegum verður ekið frá flug- vélinni að húsinu og öfugt. Það helgast af því að við komum til með að hafa stæði yst við ranann en farþegamir ganga beint út úr brottfararsalnum á jarðhæð og koma aldrei inn á tollsvæðið. Þessi leið er of löng fyrir farþeganna svo þeim verður ekið að flugvél- inni,“ sagði Sigurður. Hann sagði að i brottfararsaln- um væri nokkurs konar innsalur þar sem engin starfsemi færi nú fram og þar væri ráðgert að koma upp innritunarborðum og biðsal fyrir farþega í innanlandsflugi. I komusal verður samskonar að- stöðu komið upp, að sögn Sigurð- ar. Þar verður komið fyrir færi- bandi fyrir farangur og farþegar eiga greiða leið út á bílastæðin. „Við vonum að þetta flug verði nýtt af farþegum á leið til og frá útlöndum og frá Suðumesjum. Það er töluverð umferð milli Suður- nesja og Eyjafjarðarsvæðisins," sagði Sigurður. Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Víðdælskir gangnamenn á leið í loftið með Magnúsi Ólafssyni bónda. Talið frá vinstri: Magnús Ólafs- son, Sveinsstöðum, Sigurbjartur Frímannsson, Sólbakka, Grétar Árnason og Ragnar Gunnlaugsson, Bakka. dalnum með Magnúsi til leitar á Víðidalstunguheiði. Eins og fyrr segir fundust fjórar kindur fram við Arnarvatn og auk þess sagði Magnús Ólafsson að þeir hefðu fundið eina hvíta tófu og töluvert af ijúpu. Magnús Ólafsson sagði ennfremur að leitarflugið færi þannig fram að hann benti leitar- mönnum á jörðu niðri hvar kindurn- ar væri að finna og sparaði það oft mörg sporin. Jón Sig. Blönduósi. ÞAÐ færist stöðugt í vöxt að bændur taki í þjónustu sína flug- vélar til að fara í eftirleitir. Þetta á a.m.k. við í Húnavatnssýslum og síðast í gær var farin ein eftir- leitarferð á Víðidalstunguheiði og fundust fjórar kindur fram við Arnarvatn. Magnús Ólafsson bóndi og flug- maður á Sveinsstöðum í Þingi hefur stundað svona leitarflug til nokkura ára á Grímstungu- og Haukagils- heiði sem er afréttur bænda í Sveinsstaða- og Áshreppi í A-Hún. Magnús sagði að þessi aðferð við leit að sauðfé færi vaxandi og síðast í gær fóru þrír bændur úr Víði- VEÐURHORFUR I DAG, 31. OKTOBER YFIRLIT í GÆR: Milii Færeyja og Suður-Noregs er 974ra mb lægð sem þokast norður, en 1023ja mb hæð yfir Norðaustur-Grænlandi þokast austur. Yfir suðvestanverðu Grænlandshafi er grunnt lægð- ardrag sem þokast austur. SPÁ: Norðaustan átt, víðast gola eða kaldi en þó líklega allhvasst suöaustan lands. Éljagangur frá norðanverðum Vestfjörðum austur á Austfirði en léttskýjað suðvestantil. Vægt frost norðvestantil á landinu en allt að 5 stiga hiti á Suðausturlandi. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FIMMTUDAG:Norðanátt, víðast fremur hæg. Smáél um landið norðanvert en bjart veður syðra. Frostlaust að deginum sunnanlands en annars vægt frost. HORFUR Á FÖSTUDAG:Hæg breytileg átt. Víðast hvar léttskýjað og talsvert frost inn til landsins. N: /, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- 10 1 Hitastig: 0 gráður á Celsíus stefnu og fjaðrirnar • Skúrir Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður V er 2 vindstig. * V Él Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka / / / — Þokumóða Hálfskýjað * / * ? Súld Skýjað r * r * Slydda / * / oo Mistur * * * -4- Skafrenningur Alskýjað * * * * Snjókoma •* * * K Þrumuveður Forstjóri og yfirmenn yæntanlega íslenskir „STARFSLIÐ þessa fyrirtækis verður að öllum líkindum alíslenskt," segir Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra um fyrirhugað álver Atlantsál- hópsins. Ráðherra segir að þetta hafi komið fram í viðræðum hans við forsvarsmenn álfyrirtækjanna sem fylgi þeirri stefnu að ráða eingöngu innlenda menn til starfa í þeim löndum sem reist hafa álver á þeirra vegum, þ.á.m. í allar yfirmannastöður. Þetta þýði þá einnig að yfirmenn og forsljóri álvers á Keilisnesi verði að öllum likindum íslendingar. m / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 2 úrk.fgrennd Reykjavfk 5 hálfskýiað Bergen 6 skúrásíð.klst Helsinki 5 alskýjaö Kaupmannahöfn 10 léttskýjað Narssarssuaq 4-2 snjókoma Nuuk +0 skýjað Osló 8 skýjað Stokkhólmur 8 skúrásíð.klst. Pdrshöfn 9 alskýjað Algarve 20 léttskýjað Amsterdam 11 skúr Barcelona 24 heiðskfrt Berlín 7 skýjað Chicago vantar Feneyjar vantar Frankfurt 12 skýjað Glasgow 7 skúr á síð.klst. Hamborg 8 skýjað Las Palmas 24 skýjað London 14 léttskýjað Los Angeles 1S heiðskirt Lúxemborg 8 skýjað Madríd 19 hálfskýjað Malaga vantar Mallorca 23 léttskýjað Montreal +1 skýjað NewYork vantar Orlando 16 skýjað ParÍ8 12 hálfskýjað Róm vantar Vín 12 skýjað Washíngton 2 heiðskfrt Winnipeg +0 heilðskfrt Iðnaðarráðherra sagði að í fyrir- liggjandi samningsdrögum væri að finna skilmála um forgang inn- lendra aðila að verktöku og þjón- ustu við byggingarframkvæmndirn- ar og á rekstrartímanum. Hins veg- ar mætti reikna með að allt starfs- lið fyrirtækisins, sem verður stofn- að. um rékstur álversins verði íslenskt. „Aðstandendur Atlantsáls hafa sagt mér að það sé þeirra stefna að hafa innlenda menn í yfir- mannastöðum. Ég veit að þeir hafa haft þetta að leiðarljósi í Kanada og fleiri löndum þar sem fyrirtæki í þeirra eigu eru starfrækt,“ sagði ráðherra. ekki er búist við að farið verði að huga að ráðningu yfirmanna álvers fyrr en búið er að undirrita aðalsamning um byggingu þess og stofnun Atlantsál hf., sem áætlanir gera ráð fyrir að geti orðið í mars á næsta ári. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins liggur fyrir óform- legt samkomulag um að Islendingar skipi allar yfirmannastöður álvers- ins. Miklaholtshreppur: Hlýtt sumar kveður Borg, Miklaholtshreppi HLYTT og á margan hátt gjöf- ult sumar hefur nú kvatt. Síðustu dagar þess sumarauki, var með hlýjum dögum 7 til 11 stiga hita. Eftirmæli sumarsins gætu verið á þann veg, vorið og sumarið komið á réttum tíma. Áfallalaust vor og hlýtt sumar. Grasvöxtur mikill og heyfengur víða í besta lagi og garðávextir í ágætu lagi. Dilkar komu feitir af fjalli. Marg- ir tala um heldur léttari dilka enn í fyrra, þar sem áður þótti upphefð að eiga stóra þunga og feita dilka er nú verðfellt. Slíkir eru nú bragð- laukar margra neitenda að fitan má ekki prýða falleg dilka föll án verðfellingar. Nokkuð virðist vanta af fé frá því sleppt var á fjali í vor. Er það óskiljanlegt því veður hafa verið hagstæð og áfallaus að mestu til þessa dags hér um slóðir. Meðalvikt dilka segir ekki allt um vænleikann heldur hvað hver ær skilar eigenda sínum af kjöti. Hjá Helga Guðjónssyni bónda í Hrútsholti skilaði ein af hans ám 52 kg af kjöti. Gjöra aðrar betur. Þessi ær bar þó á eðlilegum tíma í vor. Fyrstu dagar vetrarins hér hefur verið hvöss norð- austan átt en 4 til 6 stiga hiti. - Páll Reykjavík- Húsavík: Fjögnr flug- félög sækja um flugleiðina FJÖGUR flugfélög hafa sótt um flugleiðina Reykjavík-Húsavík. Flugfélag Norðurlands hf., Arnar- flug innanlands hf. og Flugtak hf. sóttu um 20% af áætlunarflugi á þessari flugleið en Flugleiðir hf. sóttu um að halda flugleiðinni áfram óskertri. Umsóknirnar verða bornar undir Flugráð og væntanlega verður ieitað eftir afstöðu Húsvíkinga til þeirra. Ekki er reiknað með flugleiðinni verði úthlutað fyrr en í síðari hluta nóvembermánaðar. Fljúgandi smalar á Blönduósi i í C c. m Q i m € 1 C' 4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.