Morgunblaðið - 31.10.1990, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 31.10.1990, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1990 né vitna til þeirra nema með leyfi höfundar. Safninu hafa borist fjölmargar ágætar bókagjafir, þar á meðal nokkur einkabókasöfn. Hið stærsta þeirra og verðmætasta er bókasafn Benedikts S. Þórarinssonar, kaup- manns í Reykjavík, sem hann ánafn- aði háskólanum 1935 og afhent var eftir lát hans 1940. Þetta er ein- stakt safn íslenskra bóka, tímarita, blaða og ýmiss smælkis, alls um 8.000 bindi. Rit úr Benediktssafni eru ekki lánuð út. Undanfarið hefur safnið keypt nokkuð af efni á myndböndum og snældum, og er það geymt á lestrar- sal og lánað í þijá daga í senn. Má þar nefna sem dæmi leikrit Sha- kespeares, úrval af spænskum kvik- myndum auk kennsluefnis í ýmsum greinum. Safnið hefur einnig nýlega eign- ast nokkrar skrár á geisladiskum (CD-ROM), sem geymdar eru í af- greiðslu- og spjaldskrársal, þ. á m. skrár um bækur og tímarit, sem fáanleg eru til kaups í helstu við- skiptalöndum okkar, alfræðirit Grolier og skrár í félagsvísindum. Leit á geisladiskum fer fram við tölvuskjá, og eru bókaverðir notend- um til aðstoðar eftir þörfum. Hvenær er safnið opið? Yfir vetrarmánuðina er safnið opið kl. 9-19, en í júní, júlí og ágúst kl. 9-17. Lokað er á laugardögum og sunnudögum allt árið. Sjálft lestr- arrýmið í lestrarsalnum á 2. hæð er hins vegar opið kl. 8-22 alla daga vikunnar eins og flestar lesstofur háskólans. Fyrir tuttugu árum samþykkti Alþingi að þjóðin skyldi eignast bók- hlöðu, og eftir nokkur ár flyst safn- ið ásamt Landsbókasafni í nýju bygginguna á Melunum. Þá verður vonandi hægt að byggja upp öflugt bókasafn með rýmri opnunartíma og aðgangi að ritum, sem nú eru í lokuðum geymslum. Þá fyrst verður hægt að bjóða þjóðinni upp á þá þjónustu, sem hún á skilið. Höfundur er bókasafnsfræðingur ogstarfar við upplýsingaþjónustu ogafgreiðslu í Háskólabókasafni. Dæmigerður tímahraksleikur. Karpov heldur jafntefli í endataflinu eftir 32. exf6 — gxf6 33. Dxc7 — Dd6+ 34. Dxd6 — Hxd6. Af þeim sökum víkur Kasparov kóngnum undan hugsanlegri leppun en gætir þess ekki að í mörgum tilfellum stendur kóngurinn verr á hl. - Dc5! 33. exf6 - gxf6 34. Bb3 - Rd5 35. Dh4 - Kg7 36. Hdl? 36. Hf3 var sjálfsagður leikur sem svartur svarar með 36. — De7. Fær- in vega líklega jafnt að þeirri stöðu. Taflmennska heimsmeistarans er á hinn bóginn óþekkjanleg og hann má einungis þakka gæfunni að ekki fór verr. - c6 37. Hd4?? - Dxc3 38. Hg4+ - Kh8 39. Bxd5 - Dal+ 40. Kh2 - De5+ Kasparov lék biðleik. 41. Khl væri svarað með 41. — Hxd5! og máthótun á dl gerir aðstöðu hvíts vonlausa. Líklegasta áframhaldið er því 41. hg3 — cxd5 42. Dg4! — De7 43. Dd4. Vinningsvon Karpovs bygg- ist á framrás frípeðanna en þrátt fyrir viðurkennda snilld hans i slíkum töflum gera peð hans vinningstil- raunir mjög erfiðar. Jafnteflismögu- leikar Kasparovs hljóta því að teljast meiri en vinningsvon Karpovs í bið- skákinni, sem tefld verður aðfara- nótt miðvikudags að íslenskum tínia. Mióasala og borðapantanir í síma 687111. Sny rtilegur klæðnaður, geymum galla- f atnaðinn heima Glæsilegur 9 rétta matseóill Forréttir: Regnbogafiskipaté Tærfjallasúpa með fuglakjöti Sérrýlöguð rjómasveppasúpa Aðalréttir: Lambadrottning með lyngberjasósu Soðið laxafiðrildi !Austurlenskur kjötréttur með súrsætri sósu Eftirréttir: Mózart ís Jarðarberjarjómarönd með jarðarberjum Kaffi með konfektköku Glæsilegur Skrjabín og Rachmaninoff Tónlist Ragnar Björnsson Fyrstu tónleikar EPTA — Evr- ópusambands píanóleikara — á starfsárinu 1990-91 voru haldnir í Islensku óperunni sl. mánudag. Þorsteinn Gauti Sigurðsson píanó- leikari reið á vaðið með tvo glæsi- lega fulltrúa rússneskrar píanó- hefðar, þá Skijabín og Rachmanin- off, sem auk þess að vera nokkurn veginn jafnaldrar, voru báðir nem- endur í Konservatóríinu í Moskvu, og báðir voru þeir dáðir píanóleikar- ar, annar í Rússlandi, hinn einnig utan Rússlands. Hljómaveröld þess- ara tveggja höfunda fangar áheyr- andann, og þá ekki síður litauðgi Skijabíns. Myndir rússnesku slétt- unnar birtast í einu vetfangi, rúss- neskt þunglyndi þrýstir manni inn í rás sögunnar, hjarnið er heimur dansarans og allt flýtur þetta í blóði morða, svika, ótta og ásta, þar sem hjartað slær heitast í dauðanum, því dauðinn er sigur þess sem er eilíft. Þetta er sú rússneska þjóðar- sál sem sumir þeir sem tækifæri fá til að gista Rússland nokkrum sinnum fá að kynnast. Þessar myndir lætur Þorsteini Gauta sér- Fundur um aðild Islands að EB lega vel að túlka, — hvernig svo sem á því stendur. Það er ekki oft að maður heyri aðra en Rússa skila innihaldi þessarar tónlistar, en fyrir Þorsteini hafa dyrnar verið opnað- ar. Tækni hefur Þorsteinn til þess að skila undarlegri en magnaðri fimmtu sónötu Skijabíns og innsæi til þess að túlka furðusýnir etíðna hans, og úthald til þess að bæta við 9 Etudes — tableaux op. 39 eftir Rachmaninoff, sem hann spil- aði margar glæsilega. Víst má leika þessi verk, eins og reyndar öll önn- ur — á margan annan veg en Þor- steinn gerði, t.d. mætti leika, sér- staklega Rachmaninoff-etiðurnar, með minni pedal og þar með e.t.v. enn tærar, p- og mp-spil hans er oft mjög áhrifaríkt, en fyrir kemur að fortespilið verður svolítið gróft og þá frekar að áslátturinn í forte- spili vinstri handar mætti vera hnit- Þorsteinn Gauti Sigurðsson miðaðri á stundum. En þrátt fyrir ágætan samruna hans við rússnesk- an píanóstíl, mundi ég óska eftir ströngum klassískum stíl á næstu tónleikum, t.d. Scarlatti, Bach, Mozart. Alþjóðamálastofnun Háskóla Islands gengst fyrir opnum fundi um ofangreint efni föstudaginn 2. nóvember. Fundurinn verður haldinn á Hótel Sögu, sal A, og hefst kl. 13.30. Á ráðstefnunni munu bæði fræði- menn og stjómmálamenn fjalla um þessa spumingu. Jón Baldvin Hannibalsspn ut- anríkisráðherra ræðir stöðu íslands og Evrópusamstarfíð. Eyjólfur K. Jónsson formaður Evrópunefndar Alþingis: Hvers vegna má ísland ekki ánetjast sam- eiginlegri fiskveiðistefnu EB? Þóður Friðjónsson þjóðhágsstjóri ræðir um áhrif innri markaðar EB á hagstjórn á íslandi. Gunnar Helgi Kristinsson lektor fjallar um áhrif íslands á ákvarð- anatöku EB. Guðmundur Magnússson próf- essor nefnir erindi sitt Samstarf Evrópuþjóða í gengismálum. Magnús Gunnarsson fram- kvæmdastjóri SÍF: Grindavíkur- slagurinn árið 2000. Að loknum þessum stuttu fram- söguerindum munu ræðumenn svara fyrirspurnum og taka þátt í pallborðsumræðum. Ráðstefnu- stjóri er Gunnar G. Schram prófess- or. Fundur þessi er öllum opin. Á Alþingi fyrir Reykjanes MARÍA E. INGVADÓTTIR frambjóðandi í prófkjöri sjálfstæðismanna Skrifstofa Maríu er opin aila daga frá kl. 16-21 á Austurströnd 6, Seltjarnarnesi Allir velkomnir Stuðningsmenn Símar 612520og612521 Himnasending í rokksögu þessa lands! MKHHll KAFFIFILTER GLETTIN SAGA UM SALINA HANS JÓNS OG GULLNA LIOIÐ a Hótel Islandi föstudags- og laugardagskvöld Landsfrægir rokklistamenn sjá um söng, dans og hljóðfæraleik REX skrifstofuh úsgögn fyrir heimilið og fyrirtækið AXIS AXIS HÚSGÖGN hf SMIÐJUVEGI9, KÓPA VOGI, SÍMI 43500.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.