Morgunblaðið - 31.10.1990, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 31.10.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1990 19 Spurning um bóka- stefnu og skáld eftirJón Óskar Fyrir nokkru var haldin svokölluð bókastefna í Gautaborg, þar sem lögð var mikil áhersla á að kynna íslenska menningu, nýjustu bækur hafðar til sýnis, íslenskir rithöfund- ar látnir fjalla um íslenskar bók- menntir og tónlistarfólk spila og syngja. Ekki veit ég eftir hvaða reglu íslenskir höfundar voru valdir til að koma fram á þessari ráð- stefnu, en allmikið var frá henni sagt og af henni látið í fjölmiðlum hér á landi, ekki síst útvarpi og sjónvarpi, en þess getið jafnframt að hún hefði vakið mikinn áhuga sænskra fréttamanna, sérstaklega sagt frá því, ef verk íslenskra höf- unda höfðu verið nýlega þýdd á sænsku, svo sem vænta mátti, og vom þau verk og höfundar þeirra óspart í fréttunum. Það var að sjálf- sögðu gott og blessað, en eitt vakti athygli mína og fleiri. Jón úr Vör, sem lengi hefur notið virðingar í Svíþjóð meðal bókmenntafólks, var hvergi nefndur á nafn. Þó vill svo til, að úi-val úr ljóðum hans var nýkomið út á sænsku, þegar bóka- stefnan var í Gautaborg. Þýðandi Inge Knutsson. Löngu áður hafði Þorp Jóns komið út á sænsku, en auk þess hefur úrval úr ljóðum hans komið út á norsku og ljóð eftir hann í mörgum norrænum ljóðasöfnum, en ein bóka hans var lögð fram til Norðurlandaverð- launa, svo sem kunnugt er. Hann var langdvölum í Svíþjóð áður fyrr og er því ekki í neinum vandræðum að koma fyrir sig orði á sænsku. Hann hefði átt að vera sjálfsagður á slíka ráðstefnu og sóffli að því að vekja athygll A honum og bók hans. Hvornig gleymdist skftldið & þessari ráðstefnu? Og hver er tllgangurinn með slikri kynnlngu tslenskrar menning- Jón Óskar „Hver er tilgangurinn með slíkri kynningu íslenskrar menningar, ef eitt af helstu skáld- um þjóðarinnar er snið- gengið með svo áber- andi hætti?“ ar, ef eitt af helstu skáldum þjóðar- innar er sniðgengið með svo áber- andi hætti? Nú skilst mér að fleiri íslenskar bókasýningar séu á döf- inni, þar sem löndum er boðið að láta ljós sitt skína, ef eitthvað af verkum þeirra hefur verið þýtt á Norðurlöndum. En eru þær ekki eins? Hefur verið reynt að bæta fyrir hneykslið? Æskílegt værl að íá svar vlð þessu frá réttum aðilum. Htifuiuhir rr ríthöfundur, IWtrgiiíéWW&ifo Metsölublað á hverjum degi! \skm BREYTT UPPGJÖRSTÍMABIL 1. september -15. nóvember Athygli gjaldenda skal vakin á því að yfir- standandi uppgjörstímabil virðisauka- skatts er 15 dögum lengra en venjulega. Tímabilið er frá 1. september til 15. nóv- ember en gjalddaginn er óbreyttur, þ.e. 5. desember. Síðastatímabil ársins verður jafnframt 15 dögum styttra. Það hefst 16. nóvember og lýkur 31. des- ember. Tekur til þeirra sem hafa tveggja mánaða skil Lenging tímabilsins tekur til þeirra sem hafa almenn uppgjörstímabil, þ.e. tveggja mánaða skil. Þeir sem hafa skemmra eða lengra uppgjörstímabil fallaekki hér undir. Uppgjörstímabil endurgreiðslna sam- kvæmt sérákvæðum reglugerða verða óbreytt. Sérstakt uppgjörstímabil -aðeins árið 1990 Sérregla þessi er einungis bundin við árið 1990. Meginreglan er áfram sú að hvert uppgjörstímabil ertveir mánuðir. Uppgjör Athygli skal vakin á því að fullnaðarupp- gjör virðisaukaskatts skal fara fram fyrir tímabilið. Þannig skal skattreikningum vegna virðisaukaskatts lokað 15. nóv- ember í stað 31. október. RÍKISSKATTSTJÓRI Nœsti gjalddagi húsnœðislána er 7. nóvember. Gerðu ráð fyrir honum í tœka tíð. HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS SUÐURLANDSBRAUT 24 ■ 108 REYKJAVÍK ■ S(MI 696900 16. nóvember leggjast dráltarvextir á lán með lánskjaravísitölu. 1. desember leggjast dráttarvextir á lán með byggingarvísitölu. Gjalddagar húsnœðislána eru: 1. febrúar - 1. maí - 7. ágúst - 1. nóvember. Sum lán hafa fjóra gjalddaga á ári, önnur aðeins einn. SPARAÐU ÞÉR ÓÞARFA ÚTGJÖLD AF DRÁTTARVÖXTUM OG VANSKILAKOSTNAÐISÍÐAR. HAFÐU ALLTAF NÆSTU GJALDDAGA INNI í MYNDINNI. ER1. NÓVEMBER INNI í MYNDINNI HJÁÞÉR?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.