Morgunblaðið - 31.10.1990, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1990
21
PROFKJOR SJALFSTÆÐISMANNA
REYKJAVÍK:
Styrkir stöðu
mína
- segir Friðrik Sophus-
son
„ÉG er þakklátur fyrir stuðning-
inn. Þetta er besta kosning sem
ég hef fengið i þeim fimm próf-
kjörum sem ég hef tekið þátt í
og styrkir stöðu
mína í flokkn-
um,“ sagði Frið-
rik Sophusson,
alþingismaður,
sem hafnaði í
öðru sæti í próf-
kjöri sjálfstæðis-
manna í
Reykjavík.
„Mér fannst þessi keppni vera
drengileg og vil nota tækifærið til
að óska nýjum þingmannsefnum til
hamingju með árangurinn. Aðalat-
riðið er að listinn er firnasterkur
og næst er að snúa sér að því að
undirbúa alþingiskosningar en
sjálfstæðisflokkurinn hefur meðbyr
og mikla möguleika á góðum sigri,“
sagði Friðrik.
REYKAVÍK:
Er þakklátur
sjálfstæðis-
fólki
- segir Birgir Isleifur
Gunnarsson
„ÉG er þakklátur sjálfstæðisfólki
fyrir það trausta fylgi sem ég
fekk. Ég var þriðji að heildarat-
kvæðamagni,
með 78% at-
kvæða, og mun-
aði fáum atkvæð-
um að ég hlyti
þriðja sæti list-
ans,“ sagði Birg-
ir ísleifur Gunn-
arsson, alþingis-
maður, sem hafn-
aði í fjórða sæti í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík.
„Þetta er mér því meira ánægju-
efni þar sem ég hafði mig lítið í
frammi fyrir þetta prófkjör, venju
samkvæmt, og rak til dæmis ekki
kosningaskrifstofu. í heild er listinn
sigurstranglegur með allmarga nýja
og góða frambjóðendur. Ég sakna
hins vegar Guðmundar H. Garðars-
sonar úr hópnum en hann hefur
reynst hugmyndaríkur og duglegur
þingmaður,“ sagði Birgir ísleifur
Gunnarsson.
Rusl á svöl-
um vakti ugg
LÖGREGLAN var kvödd að húsi
við Hringbraut á mánudag, en
tilkynnt hafði verið að þar lægi
maður úti á svölum og hefði gert
nokkuð lengi.
Þegar lögreglan kom á staðinn
reyndist enginn vera maðurinn,
heldur var þarna um rusl að ræða.
Eldur í potti
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavik var
í gær kallað að húsi við Brávalla-
götu. Þar Iogaði eldur í potti á
eldavél.
íbúðin var mannlaus, en áður en
íbúarnir fóru út gleymdu þeir að
slökkva undir pottinum. Töluverður
reykur var í íbúðinni, en skemmdir
eru ekki taldar miklar.
REYKJAVÍK:
Hlýt að vera
himinlifandi
- segir Eyjólfur Konráð
Jónsson
„Ég hlýt að vera himinlifandi,"
segir Eyjólfur Konráð Jónsson,
alþingismaður, sem hlaut fimmta
sæti í prófkjöri
sjálfstæðismanna
í Reykjavík.
Ég ákvað fyrir
fjórum árum að
fara fram í
Reykjavík, og
sagðist ekki
mundu semja um
eitt eða neitt við
einn eða neinn heldur vildi ég láta
reyna á það í höfuðvígi fijálslyndis
á Islandi, Sjálfstæðisflokknum í
Reykjavík, hvaða stuðnings sjónar-
mið mín og störf nytu. Ég fékk þá
mjög gott og greinilegt svar og
ennþá betra nú,“ sagði Eyjólfur
Konráð Jónsson.
VESTFIRÐIR:
Þakka Vest-
firðingum
stuðninginn
- segir Matthías
Bjarnason
„Ég vil þakka þeim Vestfirðing-
um sem studdu mig í prófkjörinu
og sömuleiðis þeim sem ég veit
að munu styðja
mig í kosningum
þótt þeir hafi
ekki tekið þátt í
prófkjöri og eru
nú ýmist staddir
erlendis eða ann-
ars staðar á
landinu. Jafn-
framt veit ég um
marga, einkum sem eldri eru,
sem aldrei taka þátt í prófkjöri
en eru miklir stuðningsmenn,"
sagði Matthías Bjarnason, al-
þingismaður, sem hlaut bindandi
kosningu í efsta sæti framboðs-
lista Sjálfstæðisflokksins á Vest-
fjörðum.
Ég tel listann sigurstranglegan
eins og þtjú efstu sætin eru skipuð,
það var í þau sem menn fengui bind-
andi kosningu, og ég vonast til að
það takist að sama skapi að stilla
öllum listanum þannig upp að hann
verði í heild sigurstranglegur. í
heild er Sjálfstæðisflokkurinn í sókn
á Vestfjörðum sem annars staðar á
landinu og ég er þess fullviss um
gott samstarf okkar á milli. Hins
vegar ekki nóg að velja frambjóð-
endur, það verða líka að vera sterk-
ir bakhjarlar og flokksstarf á Vest-
fjörðum er, þégar á heild er litið,
gott og þar er ágætt fólk sem legg-
ur rram mikla vinnu f því sambandi.
AUSTURLAND:
Niðurstöður
eru skýrar
- segir Egill Jónsson
EGILL Jónsson
alþingismaður,
sem hlaut fyrsta
sætið á fram-
boðslista sjálf-
stæðismanna á
Austurlandi í
prófkjöri á laug-
ardag, segir það
mikinn kost að
niðurstöður prófkjörsins séu
skýrar og góð samstaða sé um
listann á Austurlandi.
„Þátttakan í prófkjörinu var
sannfærandi og mun betri en fyrir
síðustu kosningar," segir Egill.
„Það er mikill kostur, að niðurstöð-
urnar eru alveg skýrar og það er
góð samstaða um framboðsíistann
á Austurlandi, sem er grundvallar-
atriði."
Egill segir, að þátttakan í próf-
kjörinu sýni, að það sé mikill
straumur með Sjálfstæðisflokknum
um þessar mundir. Þátttaka hafi
verið almenn um allt kjördæmið,
einnig á þeim stöðum þar sem fylgi
flokksins hafi verið fremur lítíð, og
það gefi tilefni til bjartsýni.
M
M
M
M
M
M
M
M
M
M
M
M
M
M
M
►<
M
M
M
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
>4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
M
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
STORSYNINGIN DYRIÐ GENGUR LAUST
RÍÓ TRÍÓ í 25 ÁR
ásamt stórhljómsveit Gunnars Þórðarsonar
Stórkostleg 18 manna sýning - Glæsilegur matseðill
- Skemmtistaður á heimsmælikvarða -
Fólkið segir:
„Þvílík skemmtun. “„ Við höfum ekki skemmt okkur eins vel ífleiri ár. “
„Stemningin varrosaleg. “
Borðapantanir í símum 77500 og 78900
Miðaverð kr. 3.900,-. Eftir kl. 23.30 kr. 700.- Snyrtilegurklæðnaður
Hljómsveit Gunnars Þórðarsonar leikur fyrir dansi
ásamt söngvurunum Helgu Möller og Eyjólfi Kristjánssyni
föstudag og laugardag
I I I II ViM I I
SÍHU77500 í MJCDD e
»-*■•»■■*■■*■■*■■»■■*■■*-»■ ■*■■*■ ■*-*-* 4
M
M
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
M
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
►4
M
►4
►4
►4
►4
►4
»►4
M
►4
M4
léttsápa,verndar
Sebamed léttsápan hefur pH-gildið 5,5 sem er það sama og pH-gildi
heilbrigðar húðar. Þess vegna er hún frábær sápa fyrir þá sem ekki
þola venjulega sápu, þvo sér oft eða hafa óhreina húð.
Sebamed léttsápan hentar í raun vel fyrir alla þá sem láta sér annt
um huðina og vilja vernda heilbrigði hennar.
Sebamed sápan hreinsar á mildan hátt. Hún freyðir vel og ilmurinn af
henni er bæði mildur og þægilegur.
Sebamed léttsápan fæst í næsta apóteki bæði í föstu og fljótandi
formi.
■a«».-a.wxKS£
liquid cleanser
sebemi
ff&r L
CIS®8tl