Morgunblaðið - 31.10.1990, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 31.10.1990, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 1990 ISHOKKI WKEPPNIN ÍSLENSKI HANDBOLTiNN 9. UMFERÐ Miövikudagur 31.10. Valur-KR Kl. 18:30 Hlíðarendi Miðvikudagur 31.10. FH-ÍBV Kl. 20:00 Kaplakriki, Hafnarfirði Miðvikudagur 31.10. Stjarnan-Víkingur Kl. 20:15 Ásgarður, Garðabæ Föstudagur 2.11. KA-Haukar Kl. 20:30 íþróttahöllin, Akureyri Laugardagur 3.11. Fram-ÍR Kl. 16:30 Laugardalshöll Laugardagur 3.11. Selfoss-Grótta Kl. 16:30 íþróttahús Selfoss \vrKV(.(,i\(.VFi:i\{. isiAwrs uf X FH án þriggja lykilmanna gegn Tyrkjum: „MEIÐSLI lykilmanna er mikil blóðtaka fyrir okkur. Við leikum án þriggja leikmanna gegn Tyrkjunum," sagði Þorgils Ótt- ar Mathiesen, þjálfari Islands- meistara FH, sem leika fyrri leik sinn gegn tyrkneska liðinu Biskuiler í Evrópukeppni meist- araliða í Hafnarfirði á föstu- daginn. Oskar Ármannsson er handar- brotinn, Stefán Kristjánsson er meiddur á ökkla og Jón Erling Ragnarsson er meiddur á nára. „Það er slæmt að leika án þessara leikmanna, en ég vona að Stefán verði orðinn góður fyrir seinni leik okkar, sem fer fram í Tyrklandi í næstu viku. Það breytir miklu fyrir okkur að hann geti leikið með, því að við erum ekki með skyttur á hverju strái,“ sagði Þorgils Óttar. FH-ingar vita ekki mikið um styrkleika tyrkneska liðsins, sem er frá borginni Eskisehir. „Það má segja að við rennum algjörlega blint í sjóinn. Við vitum ekkert hvernig tyrklenska liðið leikur. Það tekur okkur því tíma í leiknum í Hafnar- firði að sjá það út. Við fréttum frá Svíþjóð að Saab ætti við sama vandamál að stríða, en félagið leikur gegn tyrkneska liðinu Halk Bankasi Ankara í Evr- ópukeppni bikarhafa. Forráðamenn Saab voru að hugsa um að senda mann til Tyrklands til að sjá liðið leika, en því miður höfum við ekki fjármagn til að gera það sama,“ sagði Þorgils Óttar, sem segir að stuðningur áhorfenda komi til með að ráða miklu. „Við þurfum á styrk frá þeim að halda. Það er mjög þýðingarmikið að vinna leikinn í Hafnarfirði og helst með sem mest- um markamun. Éger hóflega bjart- sýnn eftir það mótlæti sem við höf- um orðið fyrir." FH-ingar leika útileik sinn í Ank- ara en ekki Eskisehir, þar sem ekki er löglegur völlur fyrir leik í Evr- ópukeppninni. FH-liðið heldur til London á miðvikudaginn í næstu viku og þaðan verður flogið beint til Ankara. Morgunblaðið/Júlíus Stefán Kristjánsson hefur skorað flest mörk fyrir FH í 1. deildarkeppn- inni, eða 50 mörk. Wayne Gretzky fagnar enn einu metinu. Reuter HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNIN Ennmet hjá Gretzky WAYNE Gretzky frá Kanada, sem leikur með Los Angeies Kings í NHL-íshokkídeildinni, varð fyrsti leikmaðurinn til að gera samtals 2.000 stig (mörk og stoðsendingar) í deildinni. 2.000. stigið kom í leik gegn Winnipeg Jets í Winnipeg um helgina, en gestirnir máttu samt þola tap, 6:2. Höllin í Winnipeg var þéttsetin Iiðlega 15.500 áhorfendum og þeir risu allir sem einn úr sætum til að fagna metinu, en Gretzky er gífurlega vinsæll í Winnipeg. Gretzky, sem er 29 ára, lék fyrsta leik sinn í deild- inni með Edmonton Oilers 10. október 1979 og átti þá eina stoðsendingu. Ilann hefur brotið 100 stiga múrinn á hverju keppnistímabili og fimm sinnum far- ið yfir 200 stig, en metin eru liðlega 50. _ Leikurinn gegn Jets var 857. deildarleikur hans. Stoð- sendingin var sú 1.316. í röðinni, en mörkin eru alls 684 eða 2,33 stig að meðaltali í leik. Á yfirstandandi tímabili hefur Gretzky gert sjö mörk og átt 14 stoð- sendingar í 10 leikjum. „Við rennum blint í sjóinn“ - segir Þorgils Óttar Mathiesen, þjálfari FH-liðsins, sem leikur gegn Biskuilerfrá Tyrklandi á föstudaginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.