Morgunblaðið - 01.11.1990, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1990
Geislavirkni í
kjöti rannsökuð
Á VEGUM Rannsóknastofnunar landbúnaðarins er í samvinnu við
Geislavarnir ríkisins verið að rannsaka magn geislavirkni í kjöti búfén-
aðar, og jafnframt því hvernig geislavirk efni berast frá jarðvegi í
kjötið, en rannsóknirnar eru hluti af samnorrænu verkefni. Að sögn
Olafs Guðmundssonar, deildarstjóra fóðurdeildar Rala, liggja niðurstöð-
ur ekki fyrir, en hann sagði að ljóst væri að geislavirkni í kjötinu
væri langt fyrir neðan öll hættumörk.
Olafur sagði að rannsóknirnar
væru gerðar til þess að öðlast vitn-
eskju um magn geislavirkni í kjötinu
til þess að hafa samanburð ef til
dæmis yrði annað kjarnorkuslys á
við það sem varð í Tsjemóbyl, en
auk þess væri mikilvægt að hafa
samanburð við nágrannalöndin, og
þá hvort íslensk matvæli væru betri
að þessu leyti en matvæli frá öðrum
löndum.
„Það er ennþá einhver örlítil
geislavirkni hérna vegna kjarnorku-
sprengjutilrauna, sem gerðar voru í
Sovétríkjunum aðallega í kringum
1960, en einmitt með tilliti til þess
að þeir eru nú famir að sprengja
þama aftur þá er mjög gott að vita
hvemig ástandið er núna til þess að
geta greint ef það verða einhvetjar
breytingar," sagði hann.
Rannsóknimar hafa verið gerðar
á fé á tveimur stöðum á landinu. A
Auðkúluheiði var hópur í girðingu á
þurrum lyngmóa, og þar vom tekin
jarðvegssýni, gróðursýni og síðan
sýni af kjötinu eftir að fénu var slátr-
að. Annar hópur var svo í girðingu
á mýrlendi á Hesti í Borgarfírði. Þar
vom hiiðstæð sýni tekin, auk þess
sem nákvæm sýni vora tekin af því
sem skepnumar átu og einnig saurn-
um frá þeim.
„Með þessu er hægt að gera sér
aðeins meiri grein fyrir því hvernig
geislavirkni berst í kjötið, en það er
ekki ólíklegt að þetta sé eitthvað
lægra hjá okkur heldur en erlendis,
og gæði kjötsins því meiri. Ég vil
þó taka fram að þær niðurstöður sem
við getum reiknað með að fá, eru
langt fyrir neðan öll hættumörk,"
sagði Ólafur.
Morgunblaðið/Þörkell
Hugaðaðjólahátíð
Þó enn sé langt til jóla er sums staðar farið að
huga að þeim. Svo er til dæmis farið í Rammagerð-
inni við Hafnarstræti. Þar hafa yngstu borgarbúarn-
ir í mörg ár getað virt fyrir sér jólasveina í gluggum
verslunarinnar frá nóvemberbyrjun. Á myndinni sést
starfsmaður Rammagerðarinnar setja jólasveina-
sleða, sem hreindýri er beitt fyrir, út í glugga og
einhvern næstu daga verður útstillingin tilbúin.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 1. NÓVEMBER
YFIRLIT í GÆR: Yfir Norður-Grænlandi er 1025 mb hæð og hæðar-
hryggur frá henni suður um Grænlandshaf. Víðáttumikið 979 mb
lægðasvæöi yfir Norðursjó þokast norðaustur.
SPÁ: Norðaustan kaldi víðast hvar á landinu. Él á Norður- og
Norðausturlandi en annars þurrt. Kalt í veðri.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Hæg breytileg átt og víðast léttskýjað.
Fremur kalt í veðri og víða næsturfrost inn til landsins.
HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg suðvestlæg átt og skýjað um vest-
anvert landið og á stöku stað súld eða slydda, en hæg vestlæg
átt og léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi. Hlýnandi veður,
fyrst vestan lands.
10 Hrtastig:
10 gráður á Celsíus
XJ Skúrir
*
V E'
— Þoka
= Þokumóða
5, ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
[T Þrumuveður
TAKN:
Heiðskírt
x Norðan, 4 vindstig:
v Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* # *
/ VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hlti veftur Akureyri 1 úrk.ígrennd Reykjavík 2 léttskýjað
Bergen 9 skýjað
Helsinki 2 rigníng
Kaupmannahöfn 9 Iskýjað
Narssarssuaq 4-6 skýjað
Nuuk -5-0 snjókoma
Osló 6 skýjað
Stokkhólmur 5 rigning
Þórshöfn 8 alskýjað
Algarve 21 skýjað
Amsterdam 11 haglél á sið.klst.
Barcelona 23 skýjað
Berlín 11 skýjað
Chicago 23 þokumóða
Feneyjar 12 rigning
Frankfurt 12 skúr á sfð.klst.
Qlasgow 7 rigningásíð.klst.
Hamborg 10 skúr
Las Palmas 23 alskýjað
London 12 skýjað
LosAngeles 24 alskýjað
Lúxemborg 10 skúr á síð.klst.
Madrfd 17 skýjað
Malaga 24 láttskýjað
Mallorca 22 léttskýjað
Montreal 8 léttskýjað
NewYork 16 hálfskýjað
Orlando 16 skýjað
Parfs 14 léttskýjað
Róm 23 skýjað
Vfn 12 léttskýjað
Washington 16 léttskýjað
Winnipeg 13 léttskýjað
Tölvuumsjón ratsjárstöðva:
Þrír starfsmenn Kögnn-
ar hf. farnir til þjálf-
unar í Bandaríkjunum
ÞRÍR starfsmenn Kögunar hf.
eru farnir til Los Angeles í
Bandaríkjunum þar sem þeir
eru í þjálfun hjá Hughes Airc-
raft í hugbúnaðarsmíð fyrir
tölvuumsjón ratsjárstöðvanna,
sem verið er að koma upp hér
á landi á vegum Varnarliðsins.
Kögun hf. er íslenskur umboðs-
aðili Hughes og mun sjá um
rekstur tölvumiðstöðvarinnar
og viðhald hugbúnaðar.
Að sögn Gunnlaugs Sigmunds-
sonar hjá Kögun fara alls 15
starfsmenn fyrirtækisins til þess-
arar þjálfunar. Fjórir fara í des-
ember eða janúar, aðrir fjórir í
febrúar og loks fjórir í júlí. Þessi
hópur verður kjarni starfsliðs við
tölvuumsjónina, en ennfremur
verður fenginn viðbótarmann-
skapur frá íslenskum hugbúnaðar-
fyrirtækjum til að vinna við tölvu-
miðstöðina.
Gunnlaugur segir að tugir
manna muni vinna við ratsjár-
stöðvarnar og tölvumiðstöðina.
Ratsjárstöðvarnar eru fjórar, stað-
settar á Miðnesheiði, Bolafjalli við
Bolungarvík, Gunnólfsvíkurfjalli
og á Stokksnesi.
Að sögn Jóns Böðvarssonar hjá
Ratsjárstofnun fara tveir 19
manna hópar héðan til Banda-
ríkjanna upp úr áramótun á nám-
skeið um ratsjámar. Reiknað er
með að byijað verði að setja rats-
járnar í stöðvarnar næsta vor og
að hægt verði að taka stöðvarnar
í notkun nærri áramótum
1991/1992.
Smygluðu
áfengi og
nautakjöti
TOLLVERÐIR lögðu hald á 216
lítra af áfengi, 96 kíló af nauta-
kjöti og 10 vindlingjalengjur, sem
fundust um borð í Brúarfossi á
þriðjudag. Fimm skipveijar hafa
viðurkennt smyglið.
Brúarfoss var að koma úr venju-
legri ferð til Hamborgar, Amster-
dam, Rotterdam og Immingham.
Tollverðir stöðvuðu skipvetja, þegar
þeir voru að bera úrvals nautakjöt
frá borði á þriðjudagsmorgun. I
framhaldi af því var leitað í skipinu.
Síðdegis fundust 10 vindlingalengjur
og 216 lítrar af vodka, sem var falið
í ruslabrennara á vélagangi.
Fimm skipveijar á Brúarfossi gáfu
sig fram og viðurkenndu smyglið.
Að gengnum dómi verður áfengið
afhent ATVR, en kjötinu verður eytt.
Ráðstefna um rann-
sóknir í læknadeild
RÁÐSTEFNA um rannsóknir í læknadeild Háskóla íslands verður
haldin dagana 2. og 3. nóvember í Odda, hugvísindahúsi Háskólans.
Umsjón með ráðstefnunni hefur Vísindanefnd læknadeildar.
Ráðstefnunni er ætlað að gefa
mynd af rannsóknastarfseminni og
auka kynni og samvinnu innan
deildarinnar. Hlut að dagskrá ráð-
stefnunnar eiga kennarar og starfs-
menn allra námsbauta deildarinnar
og þeir sem vinna við stofnanir og
rannsóknastofur sem tengjast
deildinni.
Ráðstefnan verður sett í stofu
101 í Odda klukkan 13, 2. nóvemb-
er. Sérstakur gestur ráðstefnunnar,
Dr. Kristján Jessen, háskólakennari
við University College, London,
flytur þá erindi um rannsóknir sínar
og nefnir hann erindið „Rannsóknir
á boðefnum og þroskun í úttauga-
kerfinu".
Auk erindis Dr. Kristjáns verða
flutt föstudag og laugardag 75 stutt
erindi og 67 rannsóknaverkefni
verða kynnt með veggspjöldum.