Morgunblaðið - 01.11.1990, Page 34

Morgunblaðið - 01.11.1990, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1990 KAVÍAR VERSLUNARDEILD ^$>SAMBANOSINS GÆÐANÆRFOT FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA ® Stinga ekki júr fínustu merinóull jMjög slitsterk j Má þvo við 60°C ÚTILÍF" GLÆSIBÆ, ÁLFHEIMUM 74, S. 82922 SIEMENS Falleg tevél! IA9QQQ1 • Hellir upp á 1 - 8 bolla. • Samowar-aðferð við telögun. • Valsnerill fyrir lengd bleytitíma SIVHTH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300 NEYTENDAMAL * Avinningur af innfiutt- um landbúnaðarvörum ÞESSAR vikurnar er talsvert til umræðu, bæði á opinberum vettvangi og manna á meðal, hvort tímabært sé að hefja inn- flutning á landbúnaðarvörum, neytendum til hagsbóta. Vænt- anlega fær málið góða umfjöll- un því það hefur margar hlið- ar, jafnvel frá sjónarmiði neyt- enda. Þó hér verði ekki tekið fyrir, hvaða afleiðingar það gæti haft fyrir þjóðina ef land- búnaður legðist að miklu leyti niður í landinu, þá má minna á að ekki hefur farið mikið fyrir eftirliti með innfluttum matvælum hér á landi til þessa. Rétt er því að vekja at- hygli á vissum þáttum sem snerta eldi búsmala og öryggi matvæla í Evrópulöndunum, sem fólk búsett í þessum lönd- um hefur talsverðar áhyggjur af og gætu vel lent á borðum okkar ef við höldum ekki vöku okkar. Sýking í búfénaði A síðasta ári kom upp tauga- sjúkdómur í nautgripum „mad cow disease“ í Bretlandi. Það sem vakið hefur ugg, í sambandi við þennan sjúkdóm, er að hann virð- ist geta borist á milli dýrateg- unda. Vísindamenn greinir á um öryggið, en margir þeirra segja að ekki sé hægt að útiloka að sjúkdómurinn geti, við neyslu kjötsins, borist í neytendur. Með- göngutíminn er þó langur, allt að 25-30 ár. Þessi umræða í Evrópu varð til þess að bannaður var að innflutningur á bresku nautakjöti til landa á meginl- andinu. Hormón til að auka nyt í mjólkurkúm Viðurkennt er að nyt mjólk- urkúa má auka með því að gefa þeim hormón. Deilur standa nú um það hvort hormón þetta, sem er náttúrulegt, brotni niður í skepnunni eða hvort það berist með mjólkinni inn í fæðukeðjuna til skaða fyrir neytendur. Greinar síðustu erlendra tímarita fullyrða hið síðarnefnda. Yaxtarhormónar Inngjöf vaxtarhormóna við eldi sláturdýra eins og nautgripa er bönnuð í flestum Evrópulöndum. Efnaverksmiðjur, staðsettar á laun í Hollandi, eru sagðar hagn- ast vel á framleiðslu og sölu þessa hormóns fyrir nautgripi og önnur eldisdýr. Fjölmörg lyf eru einnig notuð við hvers konar kvillum eldisdýra og eiga þau að hafa brotnað niður í skepnunum áður en þeim er slátrað. En litlar sem engar rannsóknir hafa verið gerðar á eitrunaráhrifum í kjöti frá fóðrinu sem dýrin eru alin á. í októberblaði „Food Chemical News“ er greint frá því, að í ár hafi aflatoxín fundist í maís-upp- skeru fylkjanna Texas, Georgíu og Norður-Karólínu og hafi af- latoxínið komið fram í sumum mjólkurvörum. Aflatoxín í kornmeti Danir hafa nýlega gefið út skýrslu á vegum norrænu ráðher- ranefndarinnar, þar sem neyt- endur eru varaðir við neyslu á innfluttum vörum sem geta inni- haldið aflatoxín. Aflatoxín, sem m.a. getur valdið krabbameini í •lifur, hefur fundist í hnetum, fíkj- um og í vissum korntegundum eins og maís sem m.a. er notað sem fóður fyrir kýr. Þaðan getur aflatoxínið borist í mjólkina og mengað mjólkurvörur og eru neytendur varaðir við ofneyslu þeirra, eins og á osti. Díoxín í matvælum Bann var sett á sölu mjólkur- vara á vissum svæðum í Hollandi á síðasta ári, eftir að díoxín hafði fundist í mjólkinni. Díoxín er, eins og flestir vita, krabba- meinsvaldur og hefur orðið mikil aukning á því í umhverfinu á undanförnum árum. Síðan um- hverfisslysið mikla varð í Seveso Fyrir nokkru var keypt í einum stórmarkaði borgarinnar nýtt kindakjöt, læri, sem ekki átti ekki að hafa frosið. Lærið leit prýðilega út, en lyktin benti þó til þess að kjötið gæti hafa legið með óskyldum matvælum. Þar sem ófryst kjöt á að uppfyiia óskir vandlátustu neytenda var lærið keypt og efnt til veislu. Það verður að segjast eins og er að oft hefur lambakjöt smakkast betur. Gestir spurðu kurteislega hvort kjötið væri af „gömlu“ (út- sölukjötið!). „Nei, alls ekki, þetta er nýtt kjöt,“ sagði ég sannfærandi. Enda hafði sölumaður fullyrt að kjötið væri af nýslátruðu og var það verðlagt sem slíkt. „Virkilega?" var þá sagt og fylgdi löng þögn á eftir. Niðurlag þessa ævintýris er á þann veg að enginn kveðst munu sakna þess þó lambalæri verði ekki á borðum næstu vikurnar. Neytandi spyr: Er ekki á ein- hvern hátt hægt að tryggja neyt- endum, sem versla á hinum al- menna markaði, lambakjöt í gæð- aflokki. Það er mjög slæmt að geta aldrei treyst á gæðin. Slátrið í ár og framtíð fornra hefða í matargerð Nú er sláturtíð. Blaðamaður á Ítalíu, þegar stór hluti héraðs mengaðist af krabbameinsvald- andi díoxíni, hefur almenningur í Evrópu haft miklar áhyggjur af díoxíni í matvælum. Vegna þrýstings frá almenningi leitar landbúnaðarráðuneyti Evrópu- bandalagsins ráða til að draga úr menguninni. Aðildarþjóðir Evrópubandalagsins hafa verið minntir á að þeim beri að hafa strangt eftirlit með þessum mengunarvaldi í búfénað, nautgripum, í fersku kjöti, mjólk tók að sjálfsögðu slátur, bæði til búdrýginda og til að viðhalda gömlum íslenskum hefðum í mat- argerð. Svið eru einnig hluti af þessari matarhefð, þau voru löngum hátíðarmatur en eru það óvíða lengur. Fyrstu kynni flestra ungmenna af sviðum eru heima fyrir þegar soðin eru sviðin sem fylgja með slátrinu. En þau hafa á seinni árum varla staðið undir nafni hvað gæði snertir. Sláturaðilar hafa iðulega látið minnstu og lélegustu sviðahaus- ana með slátrinu og hefur þeim á þann hátt tekist að afvenja heila kynslóð af því að borða og njóta þessa þjóðlega réttar. Sviðahausarnir hafa í gegnum árin verið lítið meira en skinn og bein. Þeir voru ekki betri í ár; illa frágengnir, kjammarnir settir lausir í plastpoka og frystir þann- ig að þýða varð þá alla upp í einu, svo hægt væri að ná þeim í sundur til að ganga frá í frysti- kistuna. Það er ekki réttlætanlegt að láta lélegustu sviðahausana með slátrinu til innlendra neytenda, en setja þá stærri í verslanir eða selja með útflutningsbótum til Færeyja fyrir„slikk“ - neina til- gangurinn sé að leggja af neysl- una hér á landi. og eggjum, og að fylgt verði ströngum reglur við brennslu sorps til að halda menguninni í lágmarki. Díoxín í umhverfinu Díoxín myndast m.a. í brennsluofnum verksmiðja sem brenna plasti, en það getur einn- ig komið frá verksmiðjum sem framleiða pappírsvörur og frá gastegundum sem myndast við brennslu á eldsneyti sem inni- heldur klórefnasamband. Það er því nauðsynlegt fyrir þá, sem nú beijast fyrir innflutn- ingi matvæla, að fylgjast vel með umræðunni um mengun í erlend- um matvælum, áður en hafist verður handa við innflutning til landsins. Heilbrigði landsmanna getur verið að veði. Slátur illa hreinsuð t Slátrið í ár kom í misjöfnu ástandi til neytenda. Neytandi hringdi, slátrið hafði verið slæmt, illa frágengið, vambir 'hálfkalónaðar jafnvel með gras- tuggu í - gjörsamlega óviðun- andi. Hún hafði kvartaði við sölu- aðila sem könnuðust vel við ástandið. Þeir sögðust hafa kom- ið kvörtunum á framfæri við stjórnendur viðkomandi slátur- húss en það hefði lítil áhrif haft. Slík vinnubrögð við meðhöndl- un hráefnis til íslenskra neytenda eiga ekki að eiga sér stað. Þarna er um handvömm að ræða og lélegt eftirlit. Væntanlega verður staðið betur að þessum málum að ári. Framtíð landbúnaðarvara í höndum framleiðenda Rétt er að vekja athygli ís- lenskra framleiðenda á því, að umræða um innflutning á erlend- um búvörum fær fyrst hljóm- grunn hjá neytendum, þegar þeir sitja uppi með innlend matvæli sem meðhöndluð hafa verið af kæruleysi og standast ekki gæð- akröfur. Framtíð íslenskra land- búnaðarvara er því og verður fyrst og fremst í höndum fram- leiðenda sjálfra. M. Þorv. íslensk matvæli í gæðaflokki A Islendingar þurfa að vanda betur innlenda framleiðslu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.