Morgunblaðið - 01.11.1990, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 01.11.1990, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1990 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur ■mhí-I. mars - 19. apríl) V* Þú hefur litla tilfinningu fyrir fjármálum í dag, en þú hlýtur mikilsverða stöðuhækkun í vinn- unni. Þér hættir til að bruðla með fé þegar þú ferð út á lífið. Naut (20. apríl - 20. maí) (ffö Farðu sériega gætilega í samn- ingamálum í dag og varaðu þig á þeim sem væru til með að not- færa sér trúnað þinn. Þú færð góðar fréttir frá ráðgjafa þínum. Tvíburar (21. maí - 20. júní) 0Í Þú verður að viðhafa vissa leynd vegna ákveðins máls í dag. Treystu ekki blaðurskjóðum. Þú færð nýjar hugmyndir varðandi fjárfestingu. Krabbi (21. júní - 22. júlí) HÍ6 Einhleypingar kynnast rómantík- inni í dag. Farðu að finna vini þína núna. Þér gengur betur að skilja barnið þitt en áður. Við- hafðu aðgát í fjármálum ef þú ert á einhveiju kvölddrolli. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þú telur þig hafa betur í einhvers konar glímu við náinn ættingja eða vin í dag. Frumlegar hug- myndir þínar vekja athygli. Láttu það ekki stíga þér til höfuðs. Meyja (23. ágúst - 22. september) Þú ert fær um að hugsa djúpt og alvarlega í dag. Þér hættir þó til að sitja helst til fast við þinn keip. Sinntu ferðalögum og öðrum hugðarefnum þínum. Vog ~y£J3. sept. - 22. október) Sfrl Varaðu þig á fjármálabröskurum í dag. Ræddu í tíma við bankann þinn ef þú ætlar að fá lán til endurbóta heima fyrir. Þér hætt- ir til að eyða of miklu í kvöld. Sþoródreki (23. okt. - 21. nóvember) Hjj6 Þú ert í góðu andlegu formi í dag, en þú verður að hafa taum- hald á gagnrýninni þegar þú dæmir annað fólk. Þú ert á sömu bylgjulengd og náinn ættingi eða vinur og átt með honum góðar stundir. Bogmaöur (22. nóv. - 21. desember) Þig langar til að fá tíma til að sinna andlegu starfi. Þér bjóðast ný tækifæri í viðskiptum núna. Leyfðu þér ekki of mikla eftirláts- semi í kvöld. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Vinur þinn gerir þig að trúnaðar- manni sínum. Þú dregur að þér athygli og rómantík í dag. Farðu út að skemmta þér i kvöld, en eyddu ekki of miklu. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðh Það gengur á ýmsu í viðskiptalíf- inu hjá þér í dag. Þú innir af hendi ýmis skylduverkefni heima fyrir. Stattu við allar skyldur þínar gagnvart öðrum. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) 'S* Taktu ekki þátt í stjórnmáladeil- um í dag. Hittu vini þína og njóttu samverunnar með þeim. Þú verður að veita smáatriðunum athygli í vinnunni núna. Þú ættir ekki að bóka tíma þinn of stfft í kvöld. AFMÆLISBARNIÐ er skapandi og hugmyndríkt. Það á auðvelt með að vinna með öðru fólki og getur náð langt í viðskiptalifmu. Fjárhagslegt og tilfinningalegt öryggi er því mikils virði. Stund- um haslar það sér völl í viðskipt- um sem tengjast listum. Innsæi þess er með afbrigðum virkt og það ætti að læra að treysta því betur en það gerir. Það er í eðli sínu samúðarfullt og yrði góður læknir. Þó er það líklegra til að kjósa sér vettvang þar sem sköp- unargáfa þess fær betur notið sín. Stjörnuspána á aö lesa sem dœgradvöl. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni ■ vísindalegra staöreynda. DÝRAGLENS TOMMI OG JENNI SMÁFÓLK Sjáðu, Magga, það eru tólf auðir stólar í hljómsveit- inni. Þetta fyrsta verk er fyrir litla hljómsveit, herra. Þeir þurfa ekki alla spilar- ana. Ég var farin að halda að þeir væru með flensu. BRIDS Umsjón: Guðm. Páll Arnarson „Sex grönd eru borðleggj- andi,“ sagði austur eins og hug- hreystandi við sjálfan sig, eftir glæsilega spilamennsku suðurs í sex hjörtum. Það skyggði þó lítt á gleði sagnhafa. Austur gefur; NS á hættu. Vestur ♦ 4 ♦ 752 ♦ 98654 ♦ 10762 Vestur Norður Austur Suður — — 1 spaði Dobl Pass 3 lauf Pass 3 hjörtu Pass 4 hjörtu Pass 4 spaðar Pass 5 tíglar Pass 6 hjörtu Pass Pass Pass Útspil: spaðafjarki. Austur hafði vissulega rétt fyrir sér varðandi grandslemm- una. En það blasir ekki. við hvernig hægt er að segja 6 grönd af öryggi. Norður á ekk- ert gott svar við doblinu, getur tæplega krafið í geim með 2 spöðum, og 3 lauf er heldur skárra en 1—2 grönd. Fyrir- stöðusögn hans á 5 tíglum getur þess vegna hæglega verið byggð á einspili eða eyðu, og því lang- sótt fyrir suður að velja frekar 6 grönd. Suður var ekki vongóður þeg- ar spaðafjarkinn lá á borðinu. Augljóst einspil. En hann sá þó einn möguleika. Hann tók ÁK í laufi, fór inn á blindan á tígul og trompaði lauf. Drottningin féll og nú var stutt í land. Aftur inni á tígul og laufgosa spilað. Með ásinn stakan í trompinu var austur varnarlaus. Suður gat losað sig við spaðadrottninguna og aflétt stunguhættunni. ♦ 8732 ¥ D106 ♦ ÁK *G954 Austur ♦ KG10965 y k ♦ G103 ♦ D83 Suður ♦ ÁD ♦ KG9843 ♦ D72 ♦ ÁK Umsjón Margeir Pétursson Á alþjóðlegu móti í Ungverja- landi í sumar kom þessi staða upp í skák þýzka alþjóðameistarans Stefan Kindermann (2.560), sem hafði hvítt og átti leik, og sovézka alþjóðameistarans Igor Novikov (2.550). 26. Rf5! - gxf5, 27. Hh3 - h6, 28. gxh6 - Re5, 29. Dg5+ - Rg6 (Eða 29. - Kh7, 30. Dg7+! og mátar) 30. h7+ - Kh8, 31. Dxg6! og eftir þennan leik er svartur óveijandi mát. (Hann gafst þó ekki upp fyrr en eftir að hafa reynt nokkra vonlausa leiki: 31. - Ilel+, 32. Hxel - Hxel+, 33. Kg2 - He2+, 34. Kfl - Hel+, 35. Kxel - Rd3+, 36. Kfl og þá loksins fékk Rússinn sig fullsadd- an.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.